Morgunblaðið - 13.04.1975, Page 12

Morgunblaðið - 13.04.1975, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRIL 1975 eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Sýning Steinunnar Marteinsdóttur Myndllst ÞAÐ hefur lengi veriö hljótt um Steinunni Marteinsdóttur leir- mótunarsmið sem iistakonu, hún vann hér áður fyrr á sjálfstæðum grundvelli um fimm ára skeið, en hætti skyndilega og hóf nám við Háskóia íslands i hverju veit ég ekki og á bágt með að skilja for- sendur þess að listamenn leiti á vit þeirrar stofnunar, — en fróð- leikurinn er þó eitt af leiðarljós- unum í lifi og starfi þeirra er sig myndlistum helga. Síðan hófst hún handa við að miðla þekkingu sinni á sviði leirmótunar með námskeiðum að býli sínu og manns síns að Hulduhólum i Mos- fellssveit og voru þau fjölsótt og þar fann margur athafnaþrá sinni virka útrás. Slík mannleg sam- skipti á sviðum iistrænna athafna gefa af sér mikinn og áhugaverð- an ríkdóm en eru naumast full- nægjandi vettvangur fyrir útrás skapandi þarfa listafólks er til lengdar lætur og svo fór að Stein- unn lokaði sínu verkstæði og hóf sjálfstæða iistsköpun i miklum mæli. Var sem opnuðust allar gáttir skapandi þarfar frúarinnar og árangur þess óveðurs og síbylju leitandi sálar getur að lita á Kjarvalsstöðum i dag og lýkur sýningunni raunar sama dag og þetta birtist. Allt það sem bærðist innra með listakonunni fékk skyndilega út- rás, margra ára þrá eftir að minn- ast á sjálfstæðan hátt við leirinn og glerunginn ruddist nú fram líkt og óveður og viðleitninni hömlur engar. öll sýning Steinunnar Marteinsdóttur á Kjarvalsstöðum ber mark áðurnefndra atriða, auk þess sem þetta er fyrsta sýning listakonunnar á opinberum vett- vangi og ber því að nálgast sýn- inguna af nokkurri varúð. Alla viðieitni á sviði siíkra umbrota ber að nálgast af yfirvegan og skilningi, því að án skilnings''fær ekkert þróast til mikilla umsvifa. Strax og komið er inn á Kjarvalsstaði ber hinn gífuriegi fjöldi sýningargrýta skoðandann ofurliði og gefur henni meiri svip af basar en hnitmiðaðri sýningu auk þess sem þróuninni eru ekki gerð greinileg markviss skil. Þannig virkár sýningin ákaflega ruglingslega á áhorfandann og uppsetningin bætir þar ekki um, en svo er sem oftar að ef lengi er leitað þá uppgvötar skoðandinn fjölmargt sem gleður augað við rólega yfirvegan, og þeim mun betur sem skoðað er því fleiri hlutir koma upp á yfirborðið sem við fyrstu sýn drukkna í hinum óhóflega fjölda sýningargripa. Sá framsláttur margra hefur við þung rök að styðjast að listakonan hefði verið stórum betur kynnt með einum fjórða af sýningar- gripunum. Fram kemur mjög greinilega að minu mati að Steinupn stendur á miklum tímamótum í viðleitni sinni og að hin látlausu náttúru- legu form, til að mynda þau er hún nefnir „Stef um Snæfellsjök- ul“, „Esjustef" og svo einkum „Gróður vasar“ vitna um ótví- ræða hæfileika listkonunnar á sviði frjálsrar ummyndunar sýni- legra forma, ásamt öllu því sem hún mótar samkvæmt frjálsri upplifan úr náttúrunnar ríki. Inn á milli verða fyrir skoðandanum ýmsir áhugaverðir gripir sem illu heiili drukkna við fyrstu yfirferð, en hér sannast hið fornkveðna „að lengi skal leita“. En reyndar sagði einn af höfuðpaurum nú- tímalistar á þessari öld, að maður ætti aldrei að leita, einungis að finna... Þó að fram komi að hinn víð- færgi húsbóndi hafi hér nokkra tauma, þá skal hér sagt að án áhrifa skapast engin gild verk, og er þau eru I næsta nágrenni i öllum skilningi ber þeim ekki að hafna, en Steinunn hefur allt aðra litasýn og formkennd en hús- bóndi sinn og til slíkra hluta ber henni að marka sinn listræna garð. Skal hér staðar numið að sinni, og einstök verk ekki tiunduð né umfjölluð, en skírskotað skal til kröfuhörku allra er með slikum málum fylgjast og ef vel vill sem Steinunn Marteinsdóttir getur í viðleitni sinni komið ríkulega til móts við. Bragi Ásgeirsson. Ragnheiður Jónsdóttir r Félagið Islenzk Grafík er nú með aðra samsýningu sína í sýn- ingarsölum Norræna hússins, hin fyrri var haldin i Unuhúsi fyrir fimm árum, svo sem margir munu minnast. Þar sem ég er þess full- viss að einhverjum þyki fimm ár full langur tími á milli sýninga slíks félagsskapar, þykir mér rétt að taka það fram að starfsemi félagsins hefur verið með miklum blóma allan tímann, með þátttöku í norrænum samsýningum og al- þjóðlegum sýningum víða um heim. Þá hefur félagið sett upp tvær viðamiklar sýningar í Norræna húsinu á erlendri grafík, hina fyrri á verkum úr verkstæði Stanley William Hayter í París og svo á Norrænni grafik ítengslumvið listahátíðina 1972 og eru báðar þessar sýningar undirrituðum minnisstæðar, eink- um hin síðari, og voru félags- skapnum til mikils sóma og munu hafa átt stóran þátt í því aó augu margra opnuðust fyrir menn- ingarlegheitum þessarar list- greinar og ýmsir tóku að safna grafík ekki síður en málverkum. Það er spá undirritaðs að mun skemmri timi muni liða til næstu sýningar og fyrr en varir getur þetta orðið gildur og árviss við- buróur í listalífi höfuðborgarinn- ar því að allt bendir til þess að grafikin hafi endanlega fest ræt- ur hérlendis sem fullgild listgrein við hiið málverksins, högg- myndarinnar og öðrum þáttum myndlistar. Saga grafik-listar er þó mun lengri en félagsskapurinn og áhugi hefur verið mikill á henni meðal listamanna gegnum árin, við minnumst öll ágætra tilþrifa Jóns Engilberts á þessu sviði og hann stofnaði raunar listarskóla Islands og er byggt verður yfir þann skóla, sem hlýt- ur að gerast fyrr eða síðar viljum við vera hlutgeng i norrænum hópi sem menningarþjóð, þá þarf að sérhanna grafiskt verkstæði, sem einnig verði opið fyrir starf- andi listamenn, þar sem þeir geta gengið að hinum fullkomnustu tækjum og fengið aðstoð þjálfaðra tæknimanna. Kostnað- urinn við slíkt er lítill miðað við margt annað sem nýtur skilnings í skólakerfinu. En þóhefur það verið svo gegnum árin, að lítill skilningur hefur verið á mikil- vægi þessara atriða innan skólans og lítið fé fengist til eðlilegrar döngunar þessara mála, þannig átti skólinn hvorki pressur né steina til skamms tíma né mörg önnur verkfæri, allt fengið að láni frá gamla félaginu og einstakling- um, svo sem Halldóri Péturssyni teiknara og Einari Hákonarsyni, sem setti upp fullkomið málm- þrykkverkstæói, sem skólinn svo keypti af honum fyrir fáum árum. Áhrifamiklir aðilar voru á móti grafík lengi vel, þótt nú hafi þeir sem betur fer snúið við blaðinu. Grafík hefur verið kennd við skól- ann frá árinu 1956, sem liður í almennri kennslu en áður einung- is á námskeiðum og ávallt hefur verió mjög mikill áhugi meðal nemenda fyrir listgreininni og á stundum alltof mikill að því er Barbara Arnason. félag sem bar sama heiti en var óvirkt sökum mannfæðar og Iélegra skilyróa til iðkunar list- greinarinnar hérlendis, þá hefur fjöldi listamanna fiktað dálítið við listgreinina, aðailega dúk- og tré- ristu og ég veit aó á stefnuskrá félagsins er að draga þetta allt fram í dagsljósió innan tíðar og gæti orðið mikil og áhugaveró sýning, þar sem margt óvænt kæmi í ljós. Skilyrði til iðkunar listgreinarinnar þurfa enn mikið að batna og hún á ekki að vera einkavettvangur fárra, sem hafa efni og aðstæður til að festa sér rándýrar grafískar þrykkpressur og allt annað sem þeim tilheyrir. Hér er mikill vettvangur til úr- bóta fyrir Handíða- og niynd- öðrum kennurum fannst og því náói það ekki fram að ganga, að grafíkin yrði að sérdeild uppúr 1962 svo sem ráðgert var af þá- verandi skólastjóra (Kurt Zier). Þessar upplýsingar eru nauðsyn- legar sem yfirlit yfir þróunina, sem hefur tekið svo jákvæðum umskiptum hin síðari ár og er bakgrunnur þeirrar sýningar, sem nú getur að líta í Norræna húsinu og án nokkurs vafa verður framhald á þróuninni, svo sem mikill áhugi á listgreininni stað- festir meóal nemenda skólans í dag, svo sem jafnan fyrr. Vikjum svo að sýningunni í Norræna hús- inu, sem svo mikla athygli hefur vakið, svo sem aðsókn og sala á verkum sýnir, — nú þegar þetta er ritað eru t.d. 100 grafisk blöð seld og fleiri eiga vafalítið eftir aó seijast áður en dyrum verður hall- að aftur næstkomandi mánudag. Þetta er falleg sýning í heild, myndum yfirleitt vel fyrir komið nema i gangi og er það einasta gloppan sem ég sé á upphenging unni. Athygli vekur hve tækni- brögðin eru þróuó og á háu stigi hjá mörgum sýnendum. Þannig álít ég að tæknin hjá þeim sem mest hafa helgað sig málmæting- unni svo sem Einari Hákonarsyni Björgu Þorsteinsdóttur og Ragn- heiði Jónsdóttur sé tvímælalaust á alþjóðamælikvarða enda hafa þau öll hlotið viðurkenningu á stórum sýningum erlendis og Ein- ar raunar alþjóðleg verðlaun ásamt með heimsþekktum lista- mönnum, ég geri þó raunar meiri kröfur til þessa listamanns en verk hans rísa undir á þessari sýningu. Björg hefur lengi glímt vió tækniatriði af atorku og dugnaði og svo sem oft vill verða í slikum pataldri þá hafa myndir hennar orðið nokkuð þurrar, en nú er breyting að verða þar á og hún mun óefað bæta mikið við sig á næstu árum. Hlutur fimm barna húsmóður í Garðahreppi, Ragn- heiðar Jónsdóttur, er sennilega einsdæmi og á ég bágt með að skilja hvernig hún fær tima til slikra tilþrifa sem hún sýnir i myndum sínum, hún er i stöðug- um vexti svo sem nýjustu myndir hennar á sýningunni eru til vitnis um og hún á tæknilega full- komnustu myndirnar á sýning- Framhald á bls. 36

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.