Morgunblaðið - 13.04.1975, Síða 22

Morgunblaðið - 13.04.1975, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRlL 1975 Eyjólfur K. Jónsson: Tillaga til þingsályktunar um kaupþing Eyjólfur K. Jónsson (S), Þór- arinn Þórarinsson (F) og Ellert B. Schram (S) flytja þingsálykt- unartillögu, þess efnis, að Alþingi skorar á rikisstjórnina að beita sér fyrir því, að sett verði á stofn kaupþing á vegum Seðlabanka Is- lands. Framsaga Eyjólfs K. Jónssonar fyrir tillögu þessari fer hér á eftir: Þegar lögin um Seðlabanka Is- lands voru sett á árinu 1961 var bankanum veitt heimild til að reka kaupþing, en i 15. gr. lag- anna segir: „Seðlabankinn má kaupa og selja ríkisskuldabréf og önnur trygg verðbréf og skal hann vinna aó því að á komist skipuleg verð- bréfaviðskipti. Er honum i þvi skyni heimilt að stofna til og reka kaupþing, þar sem verzlað yrði með vaxtabréf og hlutabréf sam- kvæmt reglum, sem bankastjórn- in setur og ráðherra staðfestir." Þrátt fyrir heimild þessa hefur bankinn enn ekki sett á stofn kaupþing, þótt nokkuð hafí á veg- um bankans verið unnið að undir- búningi þess. Meginástæðan til þess, að ekki hefur orðið af fram- kvæmdum mun vera sú, að stjórn Seðlabankans hafi naumast talið grundvöli fyrir rekstri kaupþings, því að lítið væri um verðbréf, sem hentuðu til viðskipta á kaupþingi. Raunar hafa hér á landi tvisvar verió gerðar tilraunir með rekst- ur kaupþings, annars vegar við lok fyrri heimsstyrjaldarinnar og síðan árið 1942, en í bæði skiptin mistókst þessi starfræksla, og hefur það sjálfsagt átt sinn þátt í því, að menn hafa síðan skotið sér undan því að koma kaupþingi á fót. Við, sem mál þetta flytjum, telj- um að nú sé timabært að hefjast handa um rekstur kaupþings. Að vísu er okkur það ljóst, að ekki eru hér á markaði hlutabréf í mörgum félögum, sem henta til viðskipta á kaupþingi, þó að gera verði ráð fyrir því, að nokkur hlutafélög muni fljótlega leitast við að fá bréf sin þar skráð. Hins vegar er nú þegar i umferð tals- vert mikið af ríkisskuldabréfum, bæði hin svoköliuðu spariskir- teini og eins happdrættisskulda- bréf og áform uppi um frekari útgáfu slikra bréfa. Bréf þessi henta mjög vel til viðskipta á kaupþingi og ættu viðskipti með þau að nægja fyrst í stað, enda ekki gert ráð fyrir, að kaupþingið verði viðamikil stofnun, né heldur, að Seðlabankinn þurfi að hafa útgjöld af rekstrinum, því að gert er ráð fyrir, að kaupþingið taki þóknun fyrir þau viðskipti, sem það annast. Þegar ríkisvaldið gefur út skuldabréf í allstórum stíl er eðli- legt, að það g'eri ráðstafanir til aó auðvelda borgurunum viðskipti með þessi verðmæti. Menn eru að sjálfsögðu fúsari til að kaupa skuldabréf, ef þeir vita, aó þeir geta losnað við þau, ef þeir þurfa á fé sínu að halda til annarra þarfa. Rekstur kaupþings veldur því þess vegna, að ríkið getur Eyjólfur Konráð Jónsson aflað sér lánsfjár með hagstæðari kjörum en ella væri. Enda þótt flestir hallist nú að því, að eðlilegt sé að ríkió afli sér lánsfjár innanlands í talsverðum mæli til að rísa undir hinum ýmsu framkvæmdum, hefur nokkuð verið deilt um kjör þau, sem verið hafa á hinum svonefndu spari- skírteinum, og er raunar líklegt, að þau kjör hafi upphaflega verið óþarflega góð fyrir kaupendurna og séu jafnvel enn. En á kaup- þingi mundi myndast þaó verð, sem rétt yrði að telja, og þar feng- ist eðlileg viðmióun, bæði fyrir ríkið og eins þau sveitarfélög, sem kynnu að vilja afla sér fjár með skuldabréfaútgáfu — og raunar líka meiriháttar einka- fyrirtæki, sem kynnu að vilja bjóða út skuldabréfalán með tryggingum í eignum sínum. En vonandi er, að sú starfsemi, sem hér hefur verið gerð að um- talsefni, yrði aðeins upphaf ann- ars meira. Megíntilgangur kaup- þings á að vera sá, að auðvelda alþýðu aðild að atvinnurekstri og auðvelda fyrirtækjum að afla sér áhættufjár frá fólkinu i landinu. Ekki er því að leyna, að hérlendis hefur gengið erfiðlega að koma á fót og reka almenningshlutafélög, þótt því fari hins vegar fjarri, aó það sé hér óþekkt fyrirbæri. Þvert á móti má halda því fram, að hvergi hafi stærra átak verið gert í þessu efni en einmitt hér á landi, og er þá átt við Eimskipafé- lag Islands, sem stofnað var fyrir sex áratugum og svo sannarlega var almenningshlutafélag í upp- hafi. Hiutafé í Eimskipafélagi Is- lands h/f nam hvorki meira né minna en 1.680.750.- Einhvern tíma var sagt: Hvað er ein milljón? Og kannski er von, að menn segi það nú. En tæplega 1,7 millj. kr. var vissulega mikið fé, þegar Eimskipafélagið var stofnað. En hve mikið fé var það miðað við nútímaverðiag? Því er kannski ekki hægt að svara nákvæmlega, en þó má hugsa sér að bera þessa upphæó saman við fjárlagaupphæðir eða þá inn- og útflutning, sem líklega er fullt eins góð viðmiðun vegna þeirra miklu breytinga, sem orðið hafa á þjóðfélagsháttum og stór- felldra útgjalda á fjárlögum til tryggingamála t.d. og ýmiss konar þarfa, sem ríkisvaldið sinnti ekki áður fyrr um. Innflutningur Islendinga nam árið 1913 16,7 millj. kr. árið 1914 18,1 millj. og árið 1915 26,3 millj. kr. Utflutningurinn var hins vegar 1913 19,1 millj., 1914 20,8 millj. og 1915 39,6 millj. kr. Hlutafjársöfnunin til Eimskipa- félagsins nam þvi nákvæmlega 1/10 hluta alls innflutnings árið 1913, en náði tæplega 10% út- flutningsteknanna það ár og einnig tæplega 10. hluta bæði inn- flutnings og útflutnings árið 1914. Sambærilegar tölur fyrir árið 1974 eru hins vegar: Innflutningur 47,6 milljarðar og útflutningur 32,9 milljarðar. Er því ekki fjarri lagi, að tclurnar hafi á þessu 60 ára tímabili tvö- þúsund faldazt, og næmi þá hluta- fjársöfnun, sem sambærileg væri við hlutaféð í Eimskipafélaginu hvorki meira né minna en nálægt 3,5 milljörðum króna. Og sjá vist allir hvað unnt væri að gera í atvinnumálum með slikri upp- hæð, sem aflað væri sem áhættu- fjármagns og stæði undir eðli- legum lántökum til atvinnu- rekstrar. Menn hafa að vonum velt þvi nokkuð fyrir sér, hvernig á því stóó, að hlutabréf Eimskipa- félagsins urðu aldrei almenn verzlunarvara. Dr. Valtýr Guð- mundsson telur sig þegar árið 1918 hafa fengið svar við þeirri spurningu. Hann gagnrýnir mjög harðlega það ákvæði i samþykkt- um félagsins, að stjórnin verði að samþykkja hlutabréfasölu og segir m.a.: „Það er eins og sérdrægni og eigingirni ætli að verða flestum hlutafélögum vorum að fótakefli, eða þá fáfræði og naglaskapur." I fyrstu samþykktum Eimskipa- félags Islands var tekið fram, að eitt atkvæði væri fyrir hverjar 25 kr. sem hluthafi á i félaginu, „en þó getur enginn hluthafi átt fleiri atkvæði en 500 alls fyrir sjálfan sig og aðra.“ Þannig var atkvæða- magn hvers einstaklings tak- markað svo mjög, að það nam nokkuð innan við 1% heildar- hlutafjárins. Þetta ákvæði var mjög i þeim anda, sem vera ber í eiginlegum almenningshlutafé- lögum, og raunar má segja, að samþykktir félagsins i heild hafi verið furðulega frjálslegar og vel úr garði gerðar, að undanskildu því ákvæði, sem dr. Valtýr fjallaði um. En það ákvæði var réttlætt með því, að hætta gæti verið á, að útlendingar reyndu að seilast til áhrifa í félaginu, sem sjálfsagt hefur þó verið ástæðulaus ótti. Vafalaust er það rétt skoðun, að þetta ákvæði hafi að verulegu leyti valdið þvi, að ekki hófust frjáls viðskipti með hlutabréfin, en þá hefðu þau hækkað í verði. Um það segir dr. Valtýr, þrem árum eftir stofnun félagsins: „Annars hefðu hlutabréf Eim- skipafélagsins getað margfaldazt í verði 5—6—7 eða máske 8 sinnum, svo að hluthafar hefðu grætt hlutafé sitt 5—8 sinnum og þ’’í verið færir um að leggja fram nægilegt fé til að auka skipastól félagsins að mun — og sjálfsagt gert það með ánægju.“ Ef þessi ummæli eru rétt, hefði hlutafjáreign i Eimskipafélaginu ekki einungis valdið því, að menn hefðu verið reiðubúnir að auka fjárframlög sín til þess félags, heldur er mjög líklegt, að þeir hefðu verið viljugir að taka þátt i stofnun annarra atvinnufyrir- tækja. Og þá hefði þróunin orðið öll önnur en raun hefur á orðið. Ég hygg þó, að skýringar dr. Valtýs séu langt frá því að vera einhlítar. Svo þverstæðukennt sem það kann að virðast, þá hygg ég þó, að sú mikla alda þjóðrækni, sem reis, hafi valdið þvi, að fjár- festing í hlutabréfum þessa ágæta félags varð ekki eins arðvænleg og ella. Menn gerðu ekki kröfur til mikils arðs, þeir vildu að félag- inu yxi fiskur um hrygg. Siðar voru lögleidd skattfríðindi fyrir félagið, en áskilið, að það mætti ekki greiða nema takmarkaðan arð. Er tímar liðu, varð þetta til þess, að menn sinntu ekki svo mjög um þessa eign sína, og þess vegna var brýn þörf á þeirri fjár- hagslegu endurskipuiagningu, sem stjórn félagsins hóf fyrir nokkrum árum og vonandi verður haldið áfram, samhliða eðlilegum arðgreiðslum. Því hefur talsvert verið haldið á loft, að hlutafélagsiöggjöfin gamla frá 1921 stæði í vegi fyrir stofnun heilbrigðra almennings- hlutafélaga. Þetta er á misskiln- ingi byggt. Þessi gamla löggjöf er svo rúm, að innan hennar er hægt að byggja upp heilbrigð opin hlutafélög, eins og Eimskipafélag- ið líka var í öllum meginefnum. Hitt er aftur á móti rétt, að í samþykktir félaganna sjálfra verður að setja ýmis ákvæði, sem tryggi hag hluthafanna, og vissu- lega væri ákjósanlegt, að unnt reyndist að hraða endurskoðun hlutafélagalaganna, og er það raunar svo á Norðurlöndum öllum, en samstarfsnefnd hefur reynt að samræma löggjöfina nú um allmargra ára skeið, en sótzt verkið seint. Frumvarp að nýjum hluta- félagalögum mun nú hafa verið samið, og æskilegt væri að það kæmi fyrir þetta þing, þótt sjálf- sagt sé tíminnn nú orðinn of stuttur til að afgreiða málið, en það væri þá til skoðunar i sumar og unnt að afgreiða það á næsta þingi. Þegar gömlu hlutafélagaiögin voru samþykkt í upphafi þriðja áratugarins var einnig fjallað um samvinnufélagalög. Og vissulega er fyllsta ástæða til þess, að nú verði fjailað um atvinnurekstur- inn i heild og félagslega uppbygg- ingu, þvi að mikið vatn hefur runnið til sjávar, síðan samvinnu- félögin voru að festa rætur og uppbygging hlutafélaga að hefj- ast hér á landi. Á það hefur raunar verið bent, að ekki sé við núverandi aðstæður unnt að stofna ný samvinnufélög, sem tekizt gætu á við meiriháttar verkefni á atvinnusviðinu, ein- faldlega vegna þess, að ekki mundi með núverandi skipulagi unnt að afla þess áhættufjár frá almenningi, sem þörf væri á. Ég hygg, að forustumenn samvinnu- hreyfingarinnar geri sér grein fyrir þessum staðreyndum, enda hefur Erlendur Einarsson, for- stjóri Sambandsins, talsvert fjallað um nýjar leiðir i fjármögn- un samvinnufélaga og bent á nauðsyn endurskipulagningar. Hann hefur m.a. talað um, að eðli- legt væri, að samvinnufélög gæfu út svonefnd stofnbréf, sem 1 eðli sínu eru svipuð hlutabréfum i al- menningshlutafélögum, en þó leggur hann áherzlu á, að hver einstaklingur fari einungis með eitt atkvæði í samvinnufélögum, þótt hann eigi mörg stofnbréf. En í almenningshlutafélögunum má raunar líka takmarka atkvæða- magnið eins og gert var upphaf- lega hjá Eimskipafélaginu. Raunar skiptir ekki máli, hvort slík félög væru nefnd almenningshlutafélög, samvinnu- félög eða eitthvað allt annað. Meginatriðið er, að unnt reynist að stofna heilbrigð, opin félög með þátttöku almennings, og um þá stefnu ætti að geta tekizt all almenn samstaða, enda hefur fólkið sýnt það víða um byggðir landsins, að það er reiðubúið að láta nokkurt fé af hendi rakna til atvinnumála. Ljóst er raunar, að svonefnd stofnbréf, sem forstjóri SlS fjallar um, mundu henta vel til sölu á kaupþingi, alveg eins og hlutabréf í almenningshluta- félögum. Opnun kaupþingsins gæti þess vegna orðið fyrsta skrefið í nýrri framfararsókn i atvinnumálum og félagslegri upp- byggingu í þjóðfélaginu. Ljóst er, aó alþýða fæst ekki til að leggja fram fé til hlutabréfa- kaupa eða kaupa svonefndra stofnbréfa í rikum mæli, nema likur séu til þess, að menn fái eðlilegan arð af framlagi sínu. Víða um lönd leitast ríkisvaldið við að örva alþýðu til þátttöku í atvinnurekstri, meðal annars með skattaívilnunum, og ljóst er, að hér þarf að gera breytingar á skattalögum, ef heilbrigður at- vinnurekstur á að þróast með almennri þátttöku landsmanna. En hér er ég kominn út i aðra sálma, og þótt þessi málefni séu aó vísu hin þýðingarmestu, skal ég láta staðar numið, en aðeins lýsa yfir þeirri von minni, að opn- un kaupþings leiói til þess, að athafnamenn og stjórnmálamenn sameinist um að hefja nýja sókn í atvinnumálum. Merk félög, sem til eru i landinu, verói endur- skipulögð, bæði hlutafélög og samvinnufélög, samhliða því sem ný verða stofnuð. Ég legg svo til, að málinu verði svo vísað til háttvirtrar allsherjar- nefndar. ■a* Nýtt símanúmer U€RZLUNflRBflNKINN Aóalbanki Bankastrætiö

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.