Morgunblaðið - 18.04.1975, Síða 13

Morgunblaðið - 18.04.1975, Síða 13
eldmóði og allir hlutu að hrífast með. Baldvin dró ekki af sér í starf inu og síðar meir hafði ég það upp úr honum að hann hafði komist upp i það að halda 100 fundi og erindi á einu ári og geri aðrir betur. Er engum til efs, sem til þekkir, að á þessum árum vann Baldvin samvinnuhreyfingunni ómetanlegt gagn, og það er trú mín, að enn búi samvinnuhreyf- ingin í landinu að þessu þrótt- mikla og lifandi starfi. Eftir þrotlaust starf í um 18 ár við erindrekstur hjá Sambandinu gerði Baldvin nokkurt hlé á, og árin 1954—1960 er hann fram- kvæmdastjóri S.I.S. á kirkju- sandi. Nýþáttaskilverðaí starfs sögu Baldvins í ársbyrjun 1961, en þá hefur hann störf hjá Sam- vinnutryggingum g.t. og And- vöku g.t. og þar starfar hann enn af fullum krafti. Á þessum vett- vangi, sem og i starfi sínu áður hjá Sambandinu, hefur Baldvin unnið ákaflega þarft og mikið starf. Meðal annars hefur hann frá upphafi ritstýrt og séð um útgáfu Gjallarhornsins, sem er málgagn samvinnutrygginga- manna, og hefur gjarnan megin- efni þess ágæta rits verið frá Baldvin komið. Með þvi að Baldvin hefr gjarn- an viljað sjá árangur af störfum sínum dreif hann í þvi að koma á fót klúbbunum Öruggur akstur, en þeir eru orðnir 33 dreifðir um allt landið. Er svo að sjá, að starf- semi klúbbanna, en þeir hafa jafnframt með sér landssarritök, hafi á síðustu 5—7 árum verið einna virkasta aflið i umferðarör- yggismálum þjóðarinnar. Baldvin hefur litið á þessa klúbba, eins og foreldri. Hann hefur talið sig ábyrgan fyrir þeim og þannig hef- ur hann starfað. Ofurlítil saga lýsir áhuga Bald- ins i starfi. Fyrir rösklega tveim- ur árum var ég staddur á flugvell- inum á Akureyri síðla dags í svartasta skammdeginu. Veður var hvasst og á gekk með rigning- arhryðjum. Rétt áður en fólk átti að ganga út i flugvélina til Reykjavikur, snaraðist inn í af- greiðsluna holdvotur maður, og fór mikinn. Var þar kominn Baldvin Þ. Kristjánsson og hafði staðið óvarinn á vörubilspalli austan úr Þingeyjarsýslu. Bald- in varð að komast suður, engin önnur farartæki voru tiltæk og þá var ekkert um annað að gera en að fá far með vörubíl og láta vinda og regn lemja sig, en það blöskraði kempunni hreint ekki. Auk þess að vera prýðilegur ræðumaður er Baldvin Þ. ágæt- lega ritfær hann hefur skrifað fjölmargar greinar um samvinnu- mál og ýmislegt sem hefur verið ofarlega á baugi með þjóðinni hverju sinni. I þessu sambandi má gjarnan rifja það upp að Baldvin er einn af þeim sem stóðu í þvi að út var gefið í upphafi starfsmannablaðið Hlynur hjá Sambandinu og átti hann þar ýmsar greinar og leiðara t.d. í fyrsta blaðinu. Jafnframt þessu hefur Baldvin getið sér gott orð sem þýðandi úr erlendum málum og á seinni ár- um hafa komið út í þýðingu hans mjög merkar bækur. Alltof langt mál yrði hér að tíunda allt sem Baldvin hefur gert á sviði félagsmála á ýmsum vettvangi. Ég fullyrði að það sé allt að þvi þrekvirki að hafa unnið í um þrjá áratugi að félags- og útbreiðslumáium samvinnuhreyf- ingarinnar á Islandi, ef maður Framhald á bls. 22 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRlL 1975 13 F / 125P STATION Eigum fyrir- Hggjandi hinn g/æsi/ega og vinsæla 5 manna Fiat 125 P station Hafið samband við okkur sem fyrst og tryggið ykkur góðan bíl á sérlega hagstæðu veðri. Verð: 867.000.00 Útb. 617.000.00 250.000,00 lánað í 12 mánuði. Til öryrkja Verð kr 867.000 Tollafsl 214.000 Útb. 503.000 250.000 lánað i 12 mánuði. FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI, Davíð Sigurðsson h.f., SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888. Álandseyjavika í Norræna húsinu 19.—27. aprfl 1975 Dagskrá: Laugard. 19. aprll kl. 16:00 Álandseyjavikan hefst. Sýningar opnar almenningi í sýningarsölum I kjallara, anddyri og bókasafni. „SPELMANSMUSIK" kl. 17:00 Kvikmyndasýning i samkomusal: ÁLAND. Sunnud. 20. apríl kl. 15:00 Prófessor MATTS DREIJER heldur fyrirlestur um sögu Álandseyja. kl. 17:00 Kvikmyndasýning: BONDBRÖLLOP, SANGFEST PA ALAND Mánud. 21. aprll kl. 17 :00 Kvikmyndasýning: FÁKTARGUBBEN. kl. 20:30 Prófessor NILS EDELMAN heldur fyrirlestur með litskyggn- um um berggrunn Álandseyja. Þriðjud. 22. aprll kl. 17:00 Kvikmyndasýning: POSTROTEFÁRDER ÖVER ALAND. kl. 20:30 Fil dr. JOHANNES SALMINEN heldur fyrirlestur um álenzkar bókmenntir. KARL-ERIK BERGMAN, rithöfund- ur, les úr eigin og annarra verkum. ÞÓRODDUR GUÐMUNDSSON, rithöfundur, les úr þýðingum sínum á álenzkum skáldskap. Miðvikud 23. aprll kl. 17:00 Kvikmyndasýning um siglingar á seglskipum. HARALD LINDFORS, skipstjóri, rifjar upp endurminningar frá tlm- um seglskipaferðanna um öll heimsins höf. kl. 19:00 Samfelld dagskrá um Álandseyjar: LARS INGMAR JOHANSSON: Detálándska náringslivets utveckling. FOLKE SJÖLUND: Alands turism. KARL-ERIK BERGMAN: Fiske pá Aland. LARS INGMAR JOHANSSON: Alands sjálvstyrelse och förvaltning. Til skýringar efni verða sýndar myndræmur og litskyggn- ur. Fimmtud. 24. aprll. kl. 16:00 Kvikmyndasýning. ALAND. „SPELMANSMUSIK". kl. 17:00 KURT WEBER ræðir um álenzkt listallf Föstud. 25. aprll kl. 17:00 Kvikmyndasýning: ALAND. Laugard. 26. aprll kl. 16:00 Vikulok: Tónleikar WALTON GRÖNROOS, óperusöngvari. Undirleikari: AGENS LÖVE. Sunnud. 27. aprll Síðasti dagur álenzku sýninganna. Kvikmyndasýningar. „Ské'rma' sýningin frá Historiska museet I Stokkhólmi verður þó látin standa fram eftir vikunni. NORRÍNÁHÖSÐ POHjOLAN TAIO NORDENS HL5 FÁTT VEITIR MEIRI ÁNÆGJU EN GÓÐ PLATA Rick Wakeman: Steely Dan: Barry White: Eric Clapton: Chicago: Seals & Crofts: Justin Hayward og John Lodge: Ramsey Lewis Bob Dylan B.T. Express Mahavisnu Orchestra Argent Hollies Robert Flack Amon Duul David Bowie Herbie Man Black Heath Barrabas John Prine Ace Grinderswitch Billu Joel Kokomo Emmyloo Harris Lobo Ýmsir gamlir góðir Aðrir gamlir góðir Enn aðrir gamlir góðir Eagles Doobie Brothers Loudon Wainwright Earth, Wind & Fire Mac Davis Lou Reed Billy Swan Labelle Berry White Leslie West Styx John Denver John Denver Led Zeppelin David Gates Gordon Lightfood Robin Trower Dan Fogelberg Harry Nilsson Alice Cooper King Arthur Kathy Lies Splunkuný plata There's One in Every Crowd VIII I'II play for you Blue Jays (tveir úr Moody Blues) Sun Goodess Blood on the Tracks Do it Till You're satisfied Visions of Emeraldi Circus Another Night Feel like making love Hijach Young Americans Discoteque Keep on running Barrabas Common Sense Ný plata Macon Tracks Streetlife Serenade Kokomo Pieces og the Sky A Cowboy Afraid of Horses History of British Rock Vol. 1 History of British Rock Vol. 2 Rock on (20 „Orginal" Topplög frá 1959—1963) On the Border What Were Once Vices Unrequited That's the way of the World All the Love in the World Live I Can Help Nightbirds Can't Get Enough The Great Fatsby Styx II Live Back Home again Physical Graffity Never Let Her Go Cold on the Shoulder For Earth Below Souvenirs Duit on Mon Dei Welcome to my Nightmare Ný sending af 4 rása (CD-4) plötum Laugavegi 89.* Sími13008.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.