Morgunblaðið - 18.04.1975, Side 32

Morgunblaðið - 18.04.1975, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1975 0 JN , _ a i/rr i/ A na c' itWffl Piltur og stúlka « er ekki nema ein, og sofum viö í henni, heimilisfólk- iö, og er ekki ábætandi, því við erum fimm og tveir krakkar aö auki; en hesta ykkar veit ég, aö húsbónd- inn hirðir, ef þið hafið höftin, og 4 skildingar eru undir hestinn um daginn. Vandast tekur nú málið, sagði Sigurður, og ekki vil ég vera þar viö níunda mann; en hrossin verðum við að skilja hér eftir, Indriði minn! Þarna hillir undir bæ út á nesinu, segir Indriði. Og ekki er það bær, blessaður minn, þaó er biskupsstofan. Hvaó er annað en ríða þangað, mig langar hvort sem er að koma á biskupssetrið. Þá mun þaó skilja félagsskap okkar, þvi þó ekki virðist langt þangað, þá er það sá annar vegur en Ódáðahraun, að ég vil sízt fara á öllu íslandi í náttmyrkri, og bágt gengur heilögum anda að flytja biskupinn yfir þaö, þó vegabótafélagið hafi ætlað honum það; við verðum heldur að koma af okkur klárunum og fara svo á göngu til Reykjavíkur. Indriði kvaðst vilja fylgja hans forsjá; og skilja þeir eftir hesta sína og varnað á Rauðará og ganga til Víkur. Er þá orðió koldimmt og komið undir hátta- tíma, er þeir koma í bæinn; og er þeir gengu ofan eftir stignum, sem liggur ofan í Víkina fram hjá stiftamtmannshúsinu, hleypa þar fram hjá þeim margir menn og konur og þeysa ofan í bæinn, og sáu þeir Indriði, að það fólk mundi eiga þar heima í bænum, er það fór meö glensi miklu og háværni. Hvaðan ætli þetta fólk komi? sagði Indriði. HÖGNI HREKKVÍSI Spurningin er aðeins sú: Hve lengi þola nágrann- arnir þetta menningarframtak Högna? Það veit ég ekki; þó þykir mér líkast til, að það hafi riðið í dag sér til skemmtunar, og getur verið, að það komi ofan úr réttum, því það er eitthvað um þetta leyti, sem þeir rétta þar upp í Kollafirðinum, og þangaó er það vant að fara að gamni sínu hérna úr Víkinni. Og mér heyrist það allt tala dönsku, er þá ekki töluð íslenzka hérna í bænum? Það er þó sannast um ykkur Austfirðingana, að þið eruð misvitrir, og hyggnari var Hornfirðingurinn um árið; hann gat þó séð, að það var ekki Horna- fjarðartunglið, sem kom upp í kaupstaðnum. Satt er það, sagði Indriði, vitrari hefur hann verið; en hvert ertu nú að fara með mig, lagsmaður? Ég ætlaði að fara með þig til hans Staupa-Jóns, ef hann er ekki dauður, svo við gætum fengið okkur þar einhverja hressingu, en ekki hefur hann á boðstólum annað en brennivín. Ekki langar mig svo mikið í það; ég vildi helzt fá mér rúm og fara að sofa; hér mun vera nóg um gestaherbergi, hugsa ég. Undrahesturinn Skjóni Svo héldu þeir enn áfram góðan spöl. Þá sagði Skjóni aftur: „Heyrirðu nokkuð núna?“ „Jú, nú heyri ég greinilega að fulloróinn hestur hneggjar.“ Þá hneggjaði Skjóni sjálfur hátt og hvellt og enn fóru þeir góðan spöl. Svo hneggjaði Skjóni aftur, og rétt á eftir gall við hnegg svo mikið í heiðinni, að allt lék á reiðiskjálfi. „Nú er klárinn kominn,“ sagði Skjóni. „Flýttu þér nú og breiddu yfir mig uxahúðirnar með nöglunum i og láttu oddana snúa út, veltu svo tjörutunnunni spölkorn frá mér og klifraðu svo upp i stóra greni- tréð þarna. Þegar hesturinn kemur, stendur eldur úr nösum hans og þá kviknar í tjörutunnunni. Taktu svo vel eftir: Ef loginn hækkar, þá vinn ég á, en ef hann lækkar, þá verð ég undir. En ef þú sérð aó ég vinn, þá legðu við hinn hestinn beislið sem ég er með núna, þá verður hann spakur.“ Ekki hafði piltur fyrr kastað uxahúðunum fyrir Skjóna, en annar hestur kom þjótandi utan úr skóginum, og stóð af honum gneistahríðin, svo kviknaði í tjörutunnunni á augabragði og svo ruku þeir saman, aðkomuhesturinn og Skjóni, og varð heldur aðgangur. Þeir bitu og slógu, rótuðu upp jörðinni með hófunum, og stundum horfði piltur á þá, en stundum á tjörutunnuna, og lengi stóð bardag- inn, en að lokum hækkaði loginn. Piltur var þá ekki seinn á sér aö klifra niður úr trénu og leggja beislið við ókunna hestinn, sem haföi orðið að lúta í lægra haldi vegna naglanna, sem voru i húðunum, sem breiddar voru yfir Skjóna, og var nú svo spakur orðinn, að hvert barn hefði getað stjórnað honum. flkÍlmof9unh(iffinu í nýjasta fréttabréfi Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur er m.a. skýrt frá því, að vetur- inn hafi orðið sitkagreninu hér í Reykjavík þungur i skauti og er komizt þannig að orði í Skóginum um þetta: í vetur hefur borið mikið á því að sitkagreni hefur misst barr og orðið brúnt. Orsökin er líklega mikið saltveður sem gerði um miðjan janúar svo og vegna sitkagrenilúsar sem hefur lagst á grenið s.l. sumar. Það er mjög erfitt að átta sig á þessari lús, vegna þess hve hún er smá, sést varla nema i stækkunargleri. Mikið öryggi er að sprauta grenið siðla sumars gegn þessari lús. I danska útvarpinu er fast- ur þáttur kl. 7.45 á morgn- ana og nú nýverið tók stjórn- andi þessara þátta upp á því að ræða við fólk um drauma þess. — Hvað dreymdi yður i nótt? er spurningin, sem hann leggur fyrir gesti sina. — Um þennan nýja þátt var skrifað um daginn í Berlingatíðindin. Þar kem- ur það fram, að stjórnandi þáttarins, sem heitir Ole Michelsen, hefur i nokkur skipti rætt við sama mann- inn og hefur spjall þeirra þótt takast vel. Michelsen hefur þá rætt við Alfred Jensen, sem er listmálari. Hann varð fyrstur til að koma fram í þessum draumaþætti og hefur sem fyrr segir komið fram í nokkur skipti siðan. I Berlingatíðindum er m.a. komizt svo að orði um Alfred Jensen listmálara, sem segir sérlega vel og lifandi frá, að hann hafi rakið fyrir hlustendum tengsl sín við hið islenzka söguland, — om sin tiiknytning til det islendske sagaland... Vera má að einhver lesenda Mbl. geti skýrt frá því nánar hver Alfred Jen- sen listmálari er og tengsl hans við ísland?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.