Morgunblaðið - 18.04.1975, Síða 33

Morgunblaðið - 18.04.1975, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRlL 1975 33 / LJkið á.grasfletinum ■*2& vr j — Menntakerfið I 36 Ég var eina manneskjan sem þekkti hann eins og hann var í raun og veru. Og sem hún stóð þarna með roða í kinnum og þrjóskuglampa i augum hugsaði ég með mér að hún væri réyndar reglulega lag- leg. Þetta fór henni ólikt betur en vera þögul og undirgefin. — Hugsa sér að það skuli hafa verið Lou, sem gerði það. Því að það hefur sjálfsagt verið hún, eða hvað? — Ja, lögreglustjórinn stendur í þeirri trú og hann hlýtur að vita það, sagði ég þurrlega. En hún varð ekki vör við hæðn- istóninn í rödd minni. — Ég er fegin þvi... Ég hef ver ið svo hrædd.. . Hrædd við hvað. Hún þagnaði kviðin á svip, þegar hún kom auga á Börje Sundin, sem kom stikandi yfir flötina og svo hvarf hún sér i einum grænum hvelli af vett- vangi. — Bévaður kötturinn! Stórskor- ið andlit Sundins var gremjulegt. — Hann veiðir fugla. —Alls ekki, svaraði ég særð. — Við höfum stóran garð heima og Thotmes hefur aldrei lagt sér fugl til munns. Kannski mús, því er hún vön, en hvað fugla snertir þá sekkur hún ekki dýpra en flamingóaáts og ibisa. Sundin horfði spyrjandi á mig, en virtist gan veginn sannfærð- ur. Hann situr að minnsta kosti þarna inni á milli trjánna og ef ég væri með byssu myndi ég ekki hika við að kála honum — og það get ég sagt yður hreint út! Ég dró Thotmes fjúkandi reið fram undan trjánum og bar hana inn i dagstofuna; þar henti ég henni heldur hranalega á gólfió og braut þar með bæði upp fyrir- lestur um fornsögu Egypta og greinaflokk um hernaðarmál. Ofurstinn sem var bæði fölur og þreytulegur bandaði frá sér hend- inni og gaf til kynna að hann hefði — eins og margir karlmenn — hina mestu andúð á köttum. En Margit Holt varð aftur á móti frá sér numin og sagði eins og hún væri að tala við barn: — Allamalla, en hvað hann er sætur! Hann er lítill og magur eins og kettlingur. En hún er kannski bara kettlingur? Thotmes er guðdómleg og tima- laus. Það kom stríðnissvipur á föður minn bak við þykk gleraug- un. — Það er staðreynd að ég fann hana i þrjú þúsund ára gam- alli konungsgröf og bæði ég og aðstoðarmenn mínir erum fúsir að sverja að gröfin var þrællokuð þangað til við brutumst inn í hana. Margit sagði tilgerðarlega „ji minn“ nokkrum sinnum, en þegar hún síðan horfði á pabba ljóm- andi augum og bað hann að segja sér meira úm þessa gröf reis ég snarlega á fætur og kvaddi. Skap- ið hafði ekki batnað hætishót og ég var einhverra hluta vegna örg út í allt — veðrið, Skóga og þetta andrúmsloft sem 'þarna ríkti. Eg var reið út af því að Thotmes hafði ætlað að veiða fugl og að rangur aðili hafði verið handtek- inn fyrir morð. Það var eitthvað bogið við þetta allt — ekki aðeins taugarnar í mér heldur lika þessa stöðu sem við vorum í og ég sá enga leið til að breyta henni að sinni. Ofurstinn sem ætlaði að fara inn í bæinn til að sækja bilinn sinn fylgdist með okkur, þegar við fórum, og einhvern veginn fannst mér hálft i hvoru hann væri mér þakklátur fyrir að leysa upp samkvæmið. Hann virtist vera bæði óstyrkur og órólegur og honum var augljós léttir að því að komast undir bert loft. Þegar við gengum út um hliðið kom Elisabet Mattson út úr húsi bróður síns, við námum staðar og skiptumst á nokkrum orðum við hana. Hún var ákaflega föl og skjálfandi þótt hún hefði sveipað fallegu hvitu ullarsjali um herðar sér. — Ég var hjá Yngve, sagði hún hjálparvana. — Hann er alveg örvita af hryggð. Ég veit ekki hvað við getum gert fyrir hann. Margit Holt kom á móti okkur og fagnaði okkur mjög hjartan- lega. Hún var ósköp mjó og veik- byggð að sjá — það var sýnna núna en þegar hún sat. Hún var enn í bláa kjólnum sinum, en hún var ögn hýrari en síðast. Við hlið hennar virtist ofurstinn enn stærri og kraftalegri en ella. Agneta bar fram kaffi í dýrind is postulínsbollum og við töluðum auðvitað um Lou. — Þetta hljóta að vera hræðileg mistök, sagði ofurstinn áhyggju- fullur. — Lou er sérkennileg stúlka og uppreisnargjörn og ég er ekki viss um að siðferðishug- myndir hennar falli i sama farveg og ýmissa annarra, en ég trúi þvi tæpast að hún hafi myrt Tommy. Margit kipraði munninn saman i vandlætingu. — Ég er nú ekki sérlega hrifinn af henni Lou, enda þótt hún sé í fjölskyldunni — já, Yngve og Wil- helm eru náskyldir og ég hef alltaf haft áhyggjur af því að hún hefði slæm áhrif á Agnetu litlu, þessa elsku, en ég hef aldrei getað imyndað mér . .. . Er það virki- lega satt, að hún hafi verið þar .. . þar sem morðið var framið þarna um nóttina? En sá hún þá ekki eitthvað sem gæti leitt til þess að máiið upplýstist? Við sögðum frá hinum ýmsu verum, sem hefðu verið þarna á ferli bak við trén og frá Thotmes III sem hefði setið vörð við likið og verið yfirnáttúruleg á svipinn. Agnetu leió greinilega mjög illa meðan við vorum að tala um þetta og Margit greip tækifærið til að ræða það, sem var sennilega ástæðan fyrir boðinu. — Þetta er ákaflega sérkenni- legt nafn sem þið hafið valið! Thotmes III. Það var hann sem var giftur Hatschepsut, var það ekki? Ein af fyrstu konum sögunnar sem getur sér frægð. Ég hef séð myndir af henni einhvers staðar. En þér Ekstedt prófessor Framhald af bls. 4 nemendur Stýrimannaskólans, Vélskólans, Búnaðarskólans á Hvanneyri og Tækniskóla Islands fá einnig lánað úr sjóðnum, auk ýmissa, sem eru í fagskólum er- lendis. A s.l. ári 'fengu þessir hópar u.þ.b. 52 milíjónir króna lánaðar hjá LIN, en alls lánaði sjóóurinn um 403 m.kr. það ár. Kemur hér fram sú stefna, að veita i sífellt ríkari mæli náms- mannahópum sem ekki eru i hó- skólanámi rétt til opinberar námsadstoðar. Ekki er ætlunin með þessari grein að amast vió skrifum um menntamál á Islandi. Þvert á móti er það orðió tímabært að hefja skynsamlegar umræður með þvi markmiði að koma menntakerf- inu i vióundandi horf. Það verður hinsvegar að vera lágmarkskrafa til þátttakenda í slíkri umræðu að þeir láti ekki annarleg sjónarmið ráða afstöðu sinni og forðist að bera rangfærðar staóreyndir á borð fyrir alþjóð. Með fyrirfram þakklæti. Virðingarfyllst, f.h. S.H.I. og SlNE G. Hallgrimsson. VELVAKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 1 0.30 — 11.30. frá mánudegi til föstudags 0 Vegagerðin og rekstur Fornahvamms Geir Gunnarsson, Þingholts- stræti 27, skrifar: ,,í sjónvarpsviðtali í síðasta mánuði benti Gunnar Jónsson flutningabilstjóri á það, að gisti- herbergi á efri hæð Hótel Forna- hvamms væru innsigluð. Snæ- björn Jónsson, yfirverkfræðingur Vegagerðar ríkisins, sem var til andsvara, leiddi hjá sér að greina frá ástæðunni. Slikt er raunar skiljanlegt, þar sem ástæðan fyrir innsiglingunni er trassaskapur Vegagerðarinnar. Svo er mál með vexti, að rikis- sjóður á Fornahvamm, en leigir Hafsteini Ólafssyni jörðina og byggingar. Samkvæmt samning- um á Vegagerðin að hafa umsjón með hótelinu og sjá um að það sé starfhæft, en á þvi hefur orðið mikill misbrestur. Má nefna sem dæmi, að ekki hefur verið settur löglegur brunaútgangur af efri hæðinni þrátt fyrir ítrekuó til- mæli brunamálastjóra sl. 3—4 ár. Þvi var það, að Brunamála- stofnun rikisins sá sig loks til- neydda til að innsigla gistiher- bergin þar i vetur, einmitt á þeim tima þegar stórhriðar og fann- fergi gerðu ókleift að vinna að viðgerðum og smíðum utanhúss. Þess má þó geta innan sviga, að hægt hefur verið að taka á móti hröktu fölki af Holtavörðuheiði, því í kjallara eru einnig gistiher- bergi og auk þess er hægt að fá fyrsta flokks veitingar. Það er ennfremur staðreynd, að Vegagerðin vinnur leynt og ljóst á móti rekstri Fornahvamms og á þetta ekki sízt við um forráða- menn hennar i Borgarnesi. I stað þess að hafa viðskipti við hótelið í Fornahvammi hafa þeir hent tugum þúsunda í vegavinnuskúr við næsta bæ þar í sveit, sem hitaður er upp alian veturinn og kaupa þeir fæði og aðra aðstöðu á þeim bæ. Einnig hita þeir upp með olíu sæluhús á Holtavörðu- heiði allan veturinn. Þótt allir er til þekkja furði sig á þessu bruðli á sparnaðartímum, þá er þetta þó ekkert hjá þvi, að Vegagerðin skuli vera að byggja vélaviðgerðarhús fyrir milljónir króna í Borgarnesi, þótt annað slíkt sé þar fyrir. Myndi margur telja, að nýja verkstæðið hefði betur verið niður komið norðan Holtavörðuheiðar, t.d. á Hvamms- tanga. Þótt hér hafi einkum verið gert að umtalsefni vanefndir Vega- gerðarinnar við leigutaka Forna- hvamms í sambandi við bruna- varnir, er af nógu að taka og er ólíklegt að hótelstjórinn taki þvi öllu með þögn og þolinmæði. Geir Gunnarsson.“ % Feröin til Senegal1363—4 Skúli Ólafsson, skrifar: Árið 1364 kom floti frá Noregi til Senegal í V-Afrfku (sbr. Kult- ur Fahrplan: Normannen erreich- en u. besiedeln die Senegalmíind- ung (westafr KUste) Henik van Loon nefnir einnig i mannkyns- sögu sinni þennan leiðangur og minnist jafnfram á frásögnina á Gorilla-apanum: manninum. Hærða villi- Ferðasaga Árna frá Geitastekk greinir frá dvöl hans á Kapvede eyjum við V-Afríku. Á bls. 83: Vér gengum lítið uppá landið. Kom mót oss riðandi maður i hnakki. Kona hans reið og i kven- söðli, rétt eins Iagaður og hér brúkast. Hann fortaldi: Uppá landinu væru skikkanlegir bænd- ur. Þar væru stór vötn með sil- ungi laxi, egg af skógarfugli í mengd með öðrum landgæðuin, kvikfénaður i mengd, so hér á vantar ekkert utan þá kristilegu trú. 1 Senegal, austan svokallaðra Kong-f jalla, þ.e. á hásléttunni búa Man-ding eða Mande sem eru ljós- ari á hörund en strandbúarnir, og Tuarekar, sem áður bjuggu viða um Sahara, eru nú uppflosnaðir vegna þurrkanna miklu og illa komnir. Túarekar eru áberandi norrænir á margan hátt, bæðí út- liti og einnig eru kvenréttindi þar i líkingu við það, sem var hér á Söguöld. Þeir voru áður kristnir, en hafa tekið upp Múhameðstrú, að nafninu til, en þó eru vopn þeirra og margir hlutir þeirra með krossmörkum. Smjör og osta- gerð og margt fleira I búskapar- háttum Túareka minnir á norræn áhrif, og geri ég ráð fyrir að liðs- flutningar frá Norðurlöndum 1363—64 til Senegal, sem var kallaður vesturós Nilarfljóts í Eg- yptalandi hafi verið liður í áætlun kirkjunnar, að komast til Jerúsal- em um Egyptaland, en þangað sendi kirkjan flota 1365 og var Alexandria hertekin og henni haldið nokkurn tima, en liðsauki frá Senegal barst enginn, þar sem var við, og frá vesturheimi barst enginn liðsauki, þó að e.t.v. hafi verið gert ráð fyrir, þvi Ameríka var talin vesturhluti Afriku. Magnús Eiriksson konungur norðursins tók við ríki i Sviþjóð, þegar Eirikur sonur hans andað- ist (drepinn af eitri) en Svíaríki var svikið undan Magnúsi og hann var látinn sitja i fangelsi nokkur ár og þau urðu ævilok hans, að hann gerði upptækt skip Hólastóls og skipið týndist og kom lik hans eins á land, og kalla menn hann helgan, liklega fyrir allt trúboðs vafstrið. Islendingar hafa náð umtals- verðum árangri i hjálparstarfi I Afriku, þrátt fyrir litil fjárútlát, og fjárhagsgeta okkar er ekki uppá marga fiska eins og er, og getum við þess vegna ekki borgað okkar hlut í samhjálpinni sem Norðurlönd standa að, en við gæt- um e.t.v. komið að liði með tækni- lega aðstoð ef Norðurlöndin hæfu samstillt átök til hjálpar Túarek- um. Hér er ekki átt við neinn Imyndaðan skyldleika við Túa- reka, heldur hitt, að þessi þjóð- flokkur er framvörður i nytjun hins mikia landssvæðis, sein nú er að blása upp, og gera verður ráð fyrir, að aðgengilegra sé að koma Túarekum að liði, þar sem kven- réttindi eru virt, vegna þess að menntun kvenna i vanþróuðum löndum er talín koma að margfalt meira gagni þar. Þær kenna börn- unum og öðru heimilisfótki, en karlmennirnir aftur á móti menntast fyrst og fremst sem ein- staklingar. Skúli Ölafsson." Electrolux Frystikísta 410 Itr. Electrolux Frystlklsta TC 145 410 litra Frystigeta 28 kg á dag. Sjálfvirkur hitastill- ir (Termostat). Öryggisljós með aðvörunarblikki. Hraðfrystistill- ing. Plata með stjórntökkum. Lás á loki. Tvær körfur. Skilrúm. Útbúnaður, sem fjarlægir vatn úr frystihólfinu. Segullæsing. Fjöður, sem heldur lokinu uppi. 83? SlGeA V/öGA £ itLVtmi ! ARMULA 1A. SIMI 86112. REVKJAVIK. BOSCH RAFKERFI í BÍLINN HASPENNII KEFLI Fyrir flestar tegundir bifreiða BOSCH VARAH LUTAVE RSUIN BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚIA 9 SÍMI 38820

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.