Morgunblaðið - 18.04.1975, Page 36
ÆNG/R"
Aætlunarstaðir:
Blönduós — SÍKlufjörrtur I (ijöKur — Hólmavík
Búöardalur — Keykhólar I Hvammsian^i —
Flateyri — Bildudalur | Stykkishólmur — Rif
Sjúkra- »k leiguflug um allt land
Slmar: 2-6060 & 2-60-66.
RUCIVSinCDR
^r^*22480
FÖSTUDAGUR 18. APRlL 1975
Isbjörn-
inn segir
upp kaup-
tryggingu
23 stúlkna
íslendingum boðið að landa loðnu
í Norglobal og á Nýfundnalandi
EFTIR því, sem fleiri tog-
arar stöðvast, vegna verk-
falls undirmanna minnkar
vinnan í frystihúsum og
fiskverkunarstöðvum. Á
næstunni má búast við að
mörg frystihús, sérstak-
lega á SV-landi og á Akur-
eyri, verði að segja kaup-
tryggingu starfsfólks síns
upp, ef verkfallið leysist
ekki meó skjótum hætti.
Fram hefur komið í
Morgunblaöinu, að Kirkju-
sandur h.f. hefur orðið að
segja kauptryggingunni
upp og i gær var kaup-
tryggingu kvenfólks í
frystihúsi Isbjarnarins
sagt upp.
Páll Guðmundsson verkstjóri
sagði þegar við höfðum tal af hon-
um, að hér hefði verið um að ræða
23 stúlkur, sem væru fastráðnar.
Þeim hefði verið tilkynnt um leið
dð þær fengju alla vinnu sem til
félli, en það er fyrst og fremst við
bátafiskinn. — Það er bara svo
tregur afli hjá þeim, sagði Páll.
Þá sagði hann, að enginn karl-
maáur hefði fram til þessa óskað
eftir fastráðningu hjá fyrirtæk-
inu. Þeir hefðu ávalit fengið
næga vinnu. Hún myndi nú
minnka hjá þeim eins og kven-
fólkinu meðan á verkfallinu
(Jr borgarlífinu.
— LJósm.: Friðþjófur.
EIGENDUR norska bræðslu-
skipsins Norglobal hafa sýnt mik-
inn áhuga á áframhaldandi sam-
vinnu við tslendinga, og hafa þeir
nú gefið fjðrum fslenzkum loðnu-
skipum kost á að landa loðnu f
Norglobal á Nýfundnalandsmið-
um f vor og sumar. Frekar má
reikna með að einhver fslenzk
skip haldi þvf til Nýfundnalands f
næsta mánuði, en þar hefur fyrir-
tæki sýnt áhuga á að fá fslenzk
skip í viðskipti.
Vilhjálmur Ingvarsson hjá ts-
Björgunarskipið
til Húsavíkur
Húsavík, 17. apríl —
BREZKA dráttarskipið Lifeiine
kom til Húsavíkur um klukkan 15
í dag ‘og liggur hér við bryggju.
Það mun bíða hér til morguns, en
þá eru væntanlegir sérfræðingar
með flugvél frá Reykjavik og
verður þá farið á strandstað i
Flatey og úr þvi skorið, hvort
brezka björgunarfélagið muni
reyna að bjarga Hvassafellinu.
— Fréttaritari.
birninum h.f. sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann f
gær, að forráðamenn Norglobal
hefðu boðið þetta fyrir skömmu.
Gera þeir ráð fyrir þvf, að jafn-
hliða fslenzku skipunum muni 6
norsk loðnuskip landa f Nor-
global, þannig að veiðiskipin
verði alls 10. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvað greitt verður
fyrir hvert kg, en fslenzku skipin
munu fá sama verð og þau
norsku.
Það kom fram í samtalinu við
Vilhjálm, að nauðsynlegt er fyrir
veiðiskipin að vera með flot-
vörpuútbúnað, þar sem loðnan við
Nýfundnaland á það til að vera
nokkuð dreifð. Islenzk skip, sem
hafa bæði flotvörpu og hringnót
um boró eru ekki mörg, en þau
eru Börkur, Sigurður, Eldborg og
nýju skipin sem keypt hafa verið
frá Noregi.
Norglobal mun halda frá
Noregi á tímabilinu 10.—15. maí
og ættu því veiðarnar við
Nýfundnaland að geta hafist á
tímabilinu 20.—25. mai. Þess má
geta að um borð í Norglobal er
fullkomið nótaverkstæði og enn-
fremur góð aðstaða til viðgerða á
fiskleitartækjum. Þá geta skipin
fengið þar vatn og olíu.
Verður fyrirkomulagi á
greiðslu olíustyrks breytt?
VIÐSKIPTARAÐUNEYTIÐ er
nú að senda frá sér gögn varð-
andí síðustu olíustyrksgreiðslu
ársins 1974, en það er desem-
bermánuð, janúar og febrúar.
Olíustyrkurinn verður fyrir
þriggja mánaða tímabil 2400
krónur á einstakling eða 800
krónur á mánuði. Þessir
mánuðir, sem nú verður greitt
fyrir eru köldustu mánuðir árs-
ins.
Þá mun í undirbúningi að
breyta tilhögun á greiðslu olíu-
styrks, en stærri sveitarfélög,
sem hafa ekki hitaveitu, hafa
mjög kvartað undan mikilli
skriffinnsku I sambandi við
styrkgreiðslurnar.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Þórhall Helgason hjá
Isfelli h.f. sem gerir út Sigurð RE
4 og spurði hann hvort nokkur
ákvörðun hefði verið tekin um að
senda skipið á Nýfundnalands-
mið. Hann sagði, að málið hefði
lítið verið rætt enn, en það gæti
vel komið til greina. Ef úr yrði
færi Sigurður af stað i síðari
hluta maímánaðar eða i byrjun
júní.
Upphaflega hefði verið ákveðið
að senda skipið til veiða í Norður-
sjo, en irettir þaðan væru ekki
beint glæsilegar. Því væri sá
möguleiki vel fyrir hendi að
senda skipið á loðnuveiðar við Ný-
fundnaland. Það væru fleiri en
eigendur Norglobals, sem vildu fá
loðnu úr islenzkum skipum, því
fiskmjölsverksmiðja í Nýfundna-
landi hefði sent fyrirspurnir um
hvort hægt væri að fá islenzk
loðnuskip i viðskipti.
Veiðitiminn við Nýfundnaland
er yfirleitt ekki mjög langur, oft-
ast nær um 8 vikur.
stæði. En vonandi rikti þetta
ástand ekki lengi.
Siglfirzk rœkja
til Blönduóss
Siglufirði, 17. apríl —
TVEIR rækjubátar lönduðu
hér f dag á fjórða tonni af
rækju eftir stuttan útivistar-
tfma. Rækjan fer öll til
vinnslu á Blönduósi, en rækju-
verksmiðjan þar sækir rækj-
una bátunum að kostnaðar-
lausu. — M.J.
Erfiðleikar verktakans við Sigöldu:
Lofar að flytja inn fjármagn til fram-
kvæmdanna — og standast áætlun
LANDSVIRKJUN hefur fallizt á
að veita byggingaverktakanum
Energoprójekt fjárhagslega fyrir-
greiðslu f formi seinkunar á af-
borgunum verktakans á fyrir-
framgreiðslu Landsvirkjunar
honum til handa f upphafi fram-
kvæmdanna, auk þess sem fé það,
sem haldið er eftir af mánaðar-
reikningi verktakans, verður
lækkað, en þó að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum af verk-
takans hálfu og gegn fullnægj-
andi bankatryggingu — segir f
fréttatilkynningu, sem Mbl. barst
f gær frá Landsvirkjun. Jafn-
framt segir, að Energoprójekt
hafi heitið að flytja inn fjármagn
til að tryggja öruggan framgang
byggingarframkvæmda við Sig-
ölduvirkjun, svo að þeim megi
Ijúka á tilsettum tíma.
Til þess að fá nánari skýringar
því við hvað er átt, sneri Mbl. sér í
gær til Agnars Friðrikssonar,
skrifstofustjóra Landsvirkjunar.
Agnar sagði að upphafleg samn-
ingsupphæð venk^Energoprojekt
við Sigöldu hafoi numið um 2.700
milljónum króna á gengi þess
tíma, er samningurinn var undir-
ritaður. A meðan verktakinn var
að koma sér fyrir við Sigöldu og
að undirbúa sig undir fram-
kvæmdir, veitti Landsvirkjun
honum lán samkvæmt útboðs-
gögnum að upphæð 90% af út-
lögðum kostnaði hans vegna
Framhald á bls. 20
Bátakjarasamningarnir:
Enginn fundur boðaður
Tölur um fjölda
sjómanna á kjörskrá
liggja ekki fyrir
SAMNINGAFUNDUR milli út-
gerðarmanna og Sjómanna á báta-
flotanum var haldinn í gær.
Fundurinn var fremur stuttur og
hefur ekki verið boðaður nýr
fundur. Eru samningamálin nú
öll í hnút eins og Jón Sigurðsson,
formaður Sjómannasambandsins,
orðaði það f viðtali við Mbl. f gær.
Verkfall skellur á á bátaflotanum
á miðnætti aðfararnótt 23. aprfl,
sem er næstkomandi þriðjudag.
Samningafundur með sjómönn-
um á stærri skuttogurum hefur
verið boðaður á þriðjudag. en
þegar hafa stöðvazt á annan tug
togara vegna verkfallsins.
I atkvæðagreiðslunni, sem fram
fór um samkomulag samninga-
nefnda sjómanna og útgerðar-
manna, greiddu samtals 443 sjó-
menn atkvæði. Mbl. spurði Jón
Framhald á bls. 20