Morgunblaðið - 04.06.1975, Page 3

Morgunblaðið - 04.06.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JUNl 1975 3 í STUTTU MÁLI Landhelgisbrot GNÁ — þyrla Landhelgisgæzl- unnar, stóð í gær vb. Sigurð Jónsson SU—150 frá Breið- dalsvík að ólöglegum veiðum unj 0,6 sjómílur fyrir innan 3ja mílna mörkin út af Alviðru. Þegar Mbl. hafði síðast fréttir hafði skipstjóri á Sigurði Jóns- syni ekki svarað köllun stjórn- stöðvar Landhelgisgæzlunnar og lá þar af leiðandi ekki fyrir til hvað hafnar bátnum yrði stefnt. Stolið úr sumarbústað BROTIST var inn í sumar- bústað við Meðalfellsvatn ein- hverntínra í siðustu viku. Er bústaðurinn númer 10. Vmsu var stolið úr bústaðnum, jn.a. Cresent Marine utanborðs- mótor, 4 hestafla, hvítum og svörtum að lit, laxastöng og tveimur Abu-veiðihjólum, regnkápu, veiðitösku með öllum útbúnaði og gaseldunar- tæki. Ef einhverjir hafa séð slíka hluti í umferð við óvenju- legar aðstæður-eru þeir beðnir að hafa samband við rannsókn- arlögregluna í Hafnarfirði. Prófumaðljúka í HJ. Prófum í Háskóla Islands á þessu vori er nú að mestu lokið og lætur nærri að samtals hafi verið leyst um 6000 prófverk- efni. En að meðaltali tekur hver einstaklingur 3 til 4 próf. Þó getur tala prófa farið upp i 7. Þessar upplýsingar fékk blaðið hjá Friðrik Sigurbjörns- syni, prófstjóra í Háskóla ís- lands. Prófin hófust þann 28. apríl s.l. og lýkur 9. júní n.k. Vegna hins takmarkaða húsnæðis Háskólans, hefur í nokkrumtil- fellum orðið að taka Súlnasal Hótel Sögu á leigu fyrir próf. Ekki er enn vitað endanlega hve margir Ijúka lokaprófi frá H.Í. i vor, en flestir útskrifast væntanlega frá Verkfræði- og raunvisindadeild eða um 50, frá Læknadeild útskrifast um 30 og frá Viðskiptadeild um 15. Fátœklegar síldar- sölur í Danmörku Fimm skip seldu síldarafla í Danmörku í gærmorgun og fengu öll nema eitt mjög lélegt verð fyrir aflann. Óskar Magnússon AK seldi 21,7 tonn fyrir 283 þús, kr., meðalverð kr. 13.08, Fífill GK seldi 13,4 tonn fyrir 400 þús. kr. meðal- verð 29,86, Jón Finnsson GK seldi 23,3 lestir fyrir 325 þús. kr., meðalverð kr. 13,97, Þor- steinn RE seldi 22,1 lest fyrir 292 þús. kr., meðalverð kr. 13.23 og Gísli Arni RE seldi 33, 5 lestir fyrir 2,7 millj. kr., meðalverð kr. 69,79. Sjómannadagur á Akranesi Akranesi — 3. júní. Sjómannadagurinn fór hér fram á hefðbundinn hátt. Á laugardag sýndi björgunar- sveit Slysavarnafélagsins björgun við höfnina með flug- línutækjum og þyrlan Gná var einnig notuö til að sýna björg- unaraðferðir. Þá fór fram kappsund í Bjarnarlaug sama dag. Að morgni sunnudags var gengið að minnismerki sjó- manna og lagður að þvi blóm- sveigur. Þá var haldið i kirkju og hlýtt á messu hjá sr. Birni Jónssyni. Þar voru þeir Elías Guðmundsson skipstjóri og Magnús Kristófersson frá Götuhúsum, fyrrverandi sjó- maður, heiðraðir. Ýmsar skemmtanir og íþróttir fóru frani á Langasandsbökkum. Um kvöldið var dans og gleð- skapur aö Hótel Akranesi. — Júlíus. Tillaga borgarstjóra: Hluta þjóðargjafarinnar varið til uppgræðslu í borgarlandinu A.m.k. 100 skólanemendur fengu þannig atvinnu í sumar VEGNA slæmra horfa í atvinnu- málum skólafólks í Reykjavík, svo sem kemur fram á öðrum stað í blaðinu, hefur borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson, sett fram ákveðnar tillögur til að auka atvinnumöguleika þessa unga fólks í sumar og hefur hann ritað landbúnaðarráðherra bréf þess efnis, þar eð f tillögum sínum gerir Birgir tsleifur ráð fyrir að hluta af fjárhæð þjóðargjafarinn- ar svonefndu verði varið til upp- græðslu lands I nágrenni Reykja- víkur, sem skólafólkið gæti þá starfað við. 1 samtali við Morgunblaðið sagði borgarstjóri, að nú biðu mörg og brýn verkefni hvað snerti uppgræðslu lands í nágrenni Reykjavíkur, bæði í landgræðslu og skógrækt, og vitnaði til viðvörunarorða Ingva Þorsteinssonar að Hólsheiðin væri óðfluga að blása upp. Borgarstjóri kvaðst i tillögum sfn- um til landbúnaðarráðherra, Halldórs E. Sigurðssonar, hafa nefnt töluna 30 milljónir kr., sem yrði varið til þessa uppgræðslu- starfs og með því taldi borgar- stjóri ljóst að a.m.k. 100 manns gætu fengið vinnu við þennan starfa. Borgarstjóri kvaðst hafa hitt landbúnaðarráðherra sjálfan, síð- an hann sendi ofangreint bréf, og kvað ráðherra hafa tekið mjög vel í þessar tillögur. Hins vegar er starfandi sérstök nefnd sem hefur með ráðstöfun á þjóðargjöf- inni að gera, svo að landbúnaðar- ráðherra mun hafa sent bréf borgarstjóra áfram til skógræktarstjóra og landgræðslu- stjöra, er báðir eiga sæti i nefnd- inni, til frekari umsagnar. Er nú málið hjá þeim í athugun. brýtur þrjá staura Einn brotnu stauranna. Vörubíll Hveragerði, 2. júní. SlÐASTLIÐINN laugardag kom stór vörubíll frá Vegageróinni hingað og var hann með vinnu- skúr á palii. Hár strompur var á skúrnum og rakst strompurinn á rafmagnslínurnar sem liggja yfir Breiðumörk. Afleiðingarnar urðu Landsliðsnefndarmennirnir, Jens Sumarliðason, Árni Þor- grímsson og Tony Knapp, til- kynntu val landsliðshópsins á blaðamannafundi í gær, en sögðu að liðið yrði ekki valið endanlega fyrr en rétt fyrir leikinn. Auk þeirra tveggja sem nefndir hafa verið eru eftirtaldir í hópnum: Árni Stefánsson, Fram, Sigurð- ur Dagsson, Val, Jón Pétursson, Fram, Jóhannes Eðvaldsson, þær, að þrír staurar brotnuðu og varð stór hluti Hveragerðis raf- magnslaus. Var þetta mjög baga- legt þar sem þjónustufyrirtæki urðu óvirk. Þá gerðist það einnig fyrir helgina hér i Hveragerði að verið var að sprengja rétt við Breiðu- Holbæk, Marteinn Geirsson, Fram, Jón Gunnlaugsson, ÍA, Gísli Torfason, IBK, Björn Lárus- son, IA, Guðgeir Leifsson, Vík- ingi, Karl Hermannsson, IBK, Grétar Magnússon, iBK, Elmar Geirsson, Hertha, Ólafur Júlíus- son, IBK, Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege, Matthías Hall- grímsson, IA og Teitur Þórðarson, tA. Landsliðið var á fundi sl. sunnu- mörk. Rétt hjá er bílaverkstæði Aage Michelsens og í einni sprengjuhrinunni tókust steinar á loft og kom einn þeirra, höfuð- stór, í gegnum þak verkstæðisins. Einn maður var að vinna á verk- stæðinu og sakaði hann ekki en þarna hefði getað farið illa. — Georg. dag, þar sem rætt var um leikinn við Þjóðverjana, og í .gær hittust landsliðsmennirnir svo aftur og fóru þá á æfingu á KR-vellinum. I dag munu þeir svo fara til Þing- valla, eftir æfingu á grasvellinum á Kópavogi, og dvelja þar fram til leiksins á morgun. Litlar upplýsingar hafa borizt um lið Austur-Þjóðverjanna, en þó vitað að þeirkoma hingað með flesta sína beztu menn. Leikurinn á morgun er mjög þýðingarmikill fyrir þá, þar sem þeim nægir ekkert minna en sigur til þess að eiga smávon um sigur í riðlinum, og þar með að komast í undan- úrslitakeppnina, auk þess sem þeim er örugglega full alvara að sýna Islendingum í tvo heimana, eftir þann „skell“ sem þeir fengu í leiknum í Magdeburg í fyrra. Forsala á landsleikinn Forsala aðgöngumiða á landsleik íslands og Aust- ur-Þýzkalands hófst úr tjaldi við Útvegsbanka ís- lands í gær. Sagði Isleifur Þorkelsson, sem sá um miðasöluna, að strax og opnað var hefði verið mikil hreyfing, og kvaðst hann búast við góðri aðsókn að leiknum. Forsölunni við Útvegsbankann verður haldið áfram í dag frá kl. 12.00—18.00 og á morgun verður svo forsala á Laugardalsvellinum frá kl. 13.00. Að þessu sinni verður einnig forsala á þremur stöðum úti á landi. í Verzluninni Óðni á Akra- nesi, í Verzlu'ninni Sport- vík í Keflavík og á Rakara- stofu Björns Gíslasonar á Selfossi. Er ástæða til þess að hvetja fólk til að not- færa sér forsöluna. Færri teknir fyrir ölvunarakstur í ár FRÁ áramótum fram til 1. júní hafði lögreglan í Reykjavík tekið 457 öku- menn grunaða um ölvun við akstur. A sama tímabili I fyrra hafói lögreglan tekið 484 ökumenn fyrir sömu sakir eóa 27 fleiri en I ár. Mun þetta vera í fyrsta skipti i háa herrans tíó aó ekki verður fjölgun grunaðra vegna ölvunaraksturs. 2 NÝœ ILANDSUÐSHOPNIM TVEIR nýir leikmenn koma inn í landsliðshópinn fyrir landsleikinn við Austur-Þjóðverja sem verður á Laugar- dalsvellinum kl. 20.00 á fimmtudagskvöld. Eru það Vals- mennirnir Vilhjálmur Kjartansson og Hörður Hilmars- son. Mjög ólíklegt verður þó að teljast að þeir fái tækifæri til þess að spreyta sig í þessum leik, þar sem sennilegt er að landsliðsnefndin kjósi að tefla fram óbreyttu liði frá leiknum við Frakkland á dögunum. Straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörgum mynztrum f og litum. ra Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina i svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. Samband íslenzkra samvinnufélaga Innflutningsdeild Sambandshúsið Rvík simi28200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.