Morgunblaðið - 04.06.1975, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.06.1975, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JUNÍ 1975 12 iisiMbtfrífr Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsía Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80 Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Bráðabirgðalög ríkis- stjórnarinnar um lausn kjaradeilu starfs- manna í ríkisverksmiðjun- um þremur, Áburðarverk- smiðjunni, Kísiliðjunni og Sementsverksmiðjunni, hafa þegar leyst úr brýn- asta áburðarskortinum og komið i veg fyrir frekari töf á öflun hráefnis fyrir Kísiliðjuna, en hún hefði getað þýtt alvarlega stöðv- un á rekstri verksmiðjunn- ar næsta vetur. En mestu máli skiptir þó, að lögin hafa komið skriði á sjálf- ar samningaviðræðurnar, sem komnar voru í sjálf- heldu í síðustu viku. Þessi bráðabirgðalög gerðu einmitt ráð fyrir, að aðilar deilunnar gætu hald- ið áfram samningaviðræð- um og hugsanlegt sam- komulag myndi þá koma í stað ákvörðunar kjara- dóms. Það er viðurkennt, að íhlutun í vinnudeilur með löggjöf er ávallt neyðarúrræöi. Þess vegna var staðið skynsamlega að þessari löggjöf með því aö halda opinni leið til samninga en afstýra um leið því ófremdarástandi, sem af þessu langvinna verkfalli hafði hlotizt. Engum blandast hugur um, að ríkisstjórnin átti ekki annarra kosta völ en skerast í leikinn, er samningaviðræður höfðu staöið í þrjá mánuði og verkfall í 3 vikur. Þegar sáttasemjari lýsti yfir því á fimmtudagsmorgun að frekari sáttatilraunir myndu ekki bera árangur að óbreyttum aðstæðum stóðu mál þannig, að ríkis- stjórnin hafði hækkað til- boð sitt upp í 814% meðal- talskauphækkun en verka- lýðsfélögin neituðu með öllu að hreyfa sig frá kröf- unni um rúmlega 20% meðaltalshækkun. Ljóst var því, að svo mikió bar á milli, að með engu móti var unnt að láta þar við sitja með hliðsjón af því alvar- lega ástandi, sem leitt hafði af þessu verkfalli. Eins og málum var komið var einsýnt að áburðar- skorturinn myndi hafa mjög alvarlegar afleiðing- ar í för með sér í mörgum sveitum landsins. Tafir á ölfun hráefnis fyrir Kísil- iðjuna hefðu getað valdið langvinnri rekstrarstöðv- un og sementsskorturinn hefur þegar valdió töfum í byggingarframkvæmdum. Eftir að bráðabirgðalögin voru sett hófst þegar á sunnudag vinna við að dæla kísilgúr úr Mývatni og á mánudag var byrjað að afgreiða áburð og sement. Það er því alrangt, þegar því er haldið fram, að bráðabirgðalögin séu dauður bókstafur. Þvert á móti hafa þau leyst úr brýnustu vandkvæðunum, er hlotizt höfðu af verkfall- inu. Það hefur aldrei verið markmiðið meö slíkri laga- setningu, hvaða ríkis- stjórn, sem átt hefur hlut að máli, að beygja einn eða annan til hlýðni. Tilgang- urinn getur aðeins verið sá að koma í veg fyrir veruleg áföll, þegar i óefni er kom- ió. Dagblaðið Þjóðviljinn ræðir fjálglega um þaö, að ríkisstjórnin hafi gefið eft- ir og verkalýðshreyfingin unnið sigur eins og blaðið kallar það. Þetta lýsir eink- ar vel því stríðsæsingavið- horfi, sem nú einkennir öll skrif Þjóðviljans. Þessari fullyrðingu er slegið fram í forsíðufyrirsögn áður en nokkur maður veit hvaða kjarabætur starfsmennirn- ir i verksmiðjunum fá annað hvort með kjara- dómi eða frjálsum samningum. Það er með öðrum orðum ekki áhyggjuefni Þjóðviljans hver kjaraniðurstaðan verður, heldur hitt hvort takast megi að koma upp stríðsástandi milli ein- stakra verkalýðsforingja og ríkisstjórnarinnar, hvort tala megi um tap eða sigur. Endanleg kjarabót launþeganna virðist engu máli skipta, enda byrjað að tala um tap og sigur áður en hún er fengin. Sannleikurinn er sá, að í þessu efni er spurningin ekki um tap eða sigur. Það sem máli skiptir er að fá niðurstöðu í kjaradeilunni og hleypa á ný lífi í starf- semi þessara verksmiöja. Það sýnir gleggst, hversu mikla áherzlu ríkisstjórnin lagði á, að þessi kjaradeila sem aðrar yrðu leystar með samningum aðila, að sér- staklega var tekið fram, að frjálsir samningar gætu komið í stað kjaradóms. Það var þannig ákveðið um leið og bráðabirgðalögin voru sett, að kjaradómur yrði óþarfur, ef samkomu- lag tækist á frjálsum grundvelli. Það er því ein ánægjulegasta staóreyndin við þessa lagasetningu, að hún opnaði að nýju grund- völl til frjálsra samninga. Að hinu leytinu er það vitaskuld áfall fyrir lýðræðisþjóð, þegar nokkr- ir forystumenn verkalýðs- samtakanna hafa frum- kvæði að þvi að virða lög landsins að vettugi. Og það var lika áfall, þegar þing- menn stjórnarandstöðunn- ar lýstu yfir stuðningi við þessi lögbrot. Alþýðuflokk- urinn hefur að vísu dregið nokkuö í land í því efni. enda hafa þessi vinnu- brögð mætt andstöðu þorra fólks í landinu. Hafi ein- hverjir beðið ósigur í þessu máli eru það þeir verka- lýðsforingjar sem ætluðu aö viröa lögin að vettugi og efna til stéttastríðs í valda- baráttu en ekki hagsmuna- baráttu fyrir launþega. Það er ákaflega hættu- legt, ef nota á kjaradeilur þær, sem nú standa yfir, til flokkspólitiskrar hólm- göngu án þess að gæta að því hver verður endanleg niðurstaða í kjaramálum launþega eins og Þjóðvilj- inn hefur nú opinberað. Það er engin von til raun- hæfs árangurs, ef þetta viðhorf á að verða allsráð- andi. Bráðabirgðalögin hafa leyst brýnasta vandann Ströngustu efnahagsráðstafanir í Portúgal frá byltingunni: 30% aukaálagning á innfluttar vörur Lissabon, 3. júní — Reuter. PORTÚGALSSTJ0RN hefur birt víota'kan lista yfir innfluttar vör- ur sem liigd veröur á 30% auka- álagning til ársloka, og cr tilgang- urinn sá aö reyna aö stemma stigu við geigvænlegri gull- og gjaldeyrisþurrö. Nær lisli þessi til na'i' allra innfluttra vara, þ.á m. flestra hráefna og neyzluvara, en hins vegar ekki olíu. Aðrar bensínvörur vcrða þó skattlagðar á þennan hátt. Listinn nær til Minniháttar lögbrot CIA Washington, 3. júní. Reuter. Rannsóknarnefnd sú sem Ford Bandaríkjaforseti skipaði í jan- úar sl. til að rannsaka starfsemi handarísku lcyniþjónustunnar CIA hefur nú lokið störfum og hefur formaður hennar, Nelson Roekefeller varaforseti, gengið frá skýrslu til forsetans. 1 henni kemur fram, að starfscmi CIA hafi í sumum tilvikum verið ólög- leg, en aldrei verið um meirihátt- ar lögbrot að ra>ða. Roekefeller sagði að ekkert í skýrslunni myndi koma illa við forsetann. Rockefeller sagði að i skýrsl- unni væru ýtarlegar tillögur nefndarmanna um aðgerðir til að koma í veg fyrir að starfsmenn CIA brytu lög í framtíðinni. Nefndin var skipuö eftir að ásak- anir á hendur CIA birtust i bandarískum dagblöðum um njósnir uni almenna borgara heima fyrir, en skv. stofnskrá CIA er starfsemin takmörkuð við erlend ríki. hluta eins og falsks skeggs og altarisbrauðs allt (il hifreiða. Þetta eru slröngustu efnahagsráð- stafanir frá valdatöku hersins í fyrra og ríkisstjórnin hefui beðið almcnning um „tímabundnar fórnir" Meðal varnings á lista þessum má nefna kjöt, egg, ost, sinnep, salt, smjörlíki, flesta ávexti, barnamat, súkkulaði, kex, áfengi tóbak, ilmvötn, eldspýtur, fatnað, efnavörur, málma, tirnbur, byggingarefni, gler, vefnaðarvör- ur, útvarpstæki, plötuspilara, seg- ulbönd, mótorhjól, úr, gleraugu, ryksugur og fleiri rafmagnstæki fölsk skegg, harpsíkord, salernis- pappír, jólaskraut, svipur, saum- nálar, hjólaskautar o.m.fl. Stjórnin tilkynnti Efnahags- bandalagi Evrópu fyrirfram um þessa ráðstöfun, svo og Erí- verzlunarsamtökum Evrópu, EFTA, og Efnahags- og framfara- stofnuninni, OECD. Ástæðan var sögð greiðsluhalli upp á 275 milljónir sterlingspunda á síðasta ári. Dr. Garret Fitzgerald, forseti ráðherranefndar EBE, sagði í dag að hann harmaði þessa ráðstöfun, en viðurkenndi hana. Hann sagði að Portúgalsstjórn hefði farið fram á viðræður við EBE sern fyrst um hugsanlega efnahags-, landbúnaðar- og iðnaðaraðstoð, og myndi hann leggja til að banda- lagið bætti núgildandi fríverzlunarsamning við Portúgal. Aðstoðarráðherra í Litháen rekinn Moskvu, Koulor. Aðstoðarforsætisráðherra Litháen, Pavel Kulvets, hefur verið vikið frá störfum og er gefið að sök að hafa notað rikisbáknið „til að upphefja orðstír sinn og menntun“ að því er segir í sovézku blaði og er þetta sagt hafa haft margvíslegar afleið- ingar, þar sem ráðherrann hafi ekki sinnt störfum sínum í lands- ins þágu eins og skyldi vegna þess hve upptekirtn hann hefði verið við að breiða út sitt eigið ágæti. KÍNVERJAR VILJA FORD í HEIMSÓKN Peking, 3. júní. AP TENG Hsiao Ping, aðstoð- arforsætisráðlierra Kína FÆKKUN í SÚEZHERLIÐ- INU ALLUMDEILD í ÍSRAEL YITZHAK Rabin, forsætisráð- herra lsraels, hefur tilkynnt að Israelar muni fa-kka í herliði sínu meðfram Sue/.skurðinum í tilefni af þcim sáttatilraunum sem fram fara í deilunni I Mið- austurlöndum og opnun skurðar- ins af hálfu Egypta á fimmtudag. Verða meiri háttar stórskotaliðs- hcrgögn flutt til baka um 32 kíló- metra, og framvarðarsveitum, sem hlutlaust bclti undir stjórn Sameinuðu þjóðanna greinir frá egypzku sveitunum, verði fa-kkað um helming, eða I 3.500 hermenn. Þá verur skriðdrekum fækkað og eldflaugar svo til aiveg fluttar á brott. Tilkynning um þetta kom í þann mund er Sadat Egyptalands- forseti og Ford Bandaríkjaforseti áttu viðræður í gær í Salzburg. Hún var talin merki þess að Israelar vilji halda friðarumleit- unum áfram. Stjórnmálaskýrend- ur í Tel Aviv töldu einnig að henni væri ætlað að bæta pólitískan orðstír Israela, m.a. vegna bess að bandarískir ráða- menn kenndu Israelum um það að sáttatillraunir Henry Kissingers fóru út um þúfur í marz. Harðlínumenn í hermálum I Isra el hafa gagnrýnt þessa ákvörð- un, en Rabin sagði á blaða- mannafundi að þó að í henni fælist nokkur áhætta fyrir Israela, þá væru þeir tilbúnir til að taka þá áhættu i þágu friöar. Helzti hermálaskýrandi Israels, Haim Herzog hershöfðingi, sagði að ákvörðunin hefði enga her- málalega þýðingu/ beldur væri hún táknræn. Frumkvæði hennar er sagt hafa komið frá ísraelska herráðinu. Hins vegar sagði leið- togi stjórnarandstöðunnar, Menachem Begin, að ákvörðun þessi væri „mjög óviturleg“. Engin réttlæting væri fyrir henni á meðan Egyptar neituðu ísraelskum skipu'm um að fara um Suezskurðinn. og einn af valdamestu mönnum landsins, sagði í viðtali við bandariska rit- stjóra, sem eru á ferð um Kína, að kínverska stjórnin myndi fagna komu Fords forseta til Kína í haust, jafnvel þött enginn árang- ur yrðu af heimsókninni. Sagði Ping, að kínverska stjórnin myndi aldrei láta af afstöðu sinni til For- mósumálsins. Hann sagði að endanleg lausn þess væri númer tvö á málefna- lista stjórnarinnar, málið, sem efst væri á baugi, væru full stjórnmálasamskipti við Banda- ríkin og að ríkin skiptust á sendi- herrum. Kröfur Kínverja I For- mósumálinu, eru að Bandaríkja- menn slíti stjórnmálasambandi við Formósustjórn, kalli herlið sitt á brott þ^ðan og slíti öryggis- málasamstarfinu milli þjóðanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.