Morgunblaðið - 04.06.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JUNl 1975
15
Heilsugæzlustöð
Suðurnesja opnuð
í Keflavík
Starfslið hinnar nýju heilsugæzlustöðvar við opnunina (talið frá
vinstri): Kjartan Ólafsson héraðslæknir, Kristján Sigurðsson,
Hreggviður Hermannsson, Eyjólfur Eysteinsson, Sigurður S.
Magnússon, Erna Björnsdóttir, Bjargey Einarsdóttir, Auður Jóns-
dóttir, Guðmundur Jónmundsson, Guðjón Klemenzson, Arnbjörn
Ólafsson og Jóhann Einvarðsson bæjarstjóri í Keflavík.
Heilsugæzlustöð
Suðurnesja var opnuð í
Keflavík 24. maí s.l. Þá
hafði undirbúningur að
opnuninni staðið í um
það bil ár og sá stjórn
Sjúkrahúss Keflavíkur-
læknishéraðs um hann,
en sveitarfélög á Suður-
nesjum munu annast
rekstur heilsugæzlu-
stöðvarinnar.
Heilsugæzlustöðin er til húsa
á neðri hæð hússins nr. 18 við
Sólvallagötu. Hér er um að
ræða bráðabirgðahúsnæði, en í
framtíðinni er gert ráð fyrir að
heilsugæzlustöð verði í öðrum
áfanga nýbyggingar Sjúkra-
húss Keflavíkurlæknishéraðs.
Breytingar á húsnæðinu voru
nauðsynlegar til að þar gæti
farið fram rekstur heilsugæzlu-
stöðvar og hófust framkvæmdir
í janúar s.l. Kostnaðurinn við
endurbæturnar nemur um 8
millj. króna, og eru þá ýmis
tæki meðtalin í þeirri upphæð.
Skv. lögum um heilsugæzlu-
stöðvar frá 1974 er starfssvið
þeirra sem hér segir: Almenn
læknisþjónusta, vaktþjónusta
og vitjanir til sjúklinga. Enn-
fremur læknarannsóknir, sér-
fræðileg læknaþjónusta, tann-
lækningar og heilsuvernd, sem
skiptist i mjög marga þætti. I
upphafi verður ekki hægt að
veita alla þá þjónustu, sem ráð
er fyrir gert í heilsugæzlustöðv-
nm, en stefnt verður að því að
svo geti orðið svo fljótt sem
auðið er.
Allir læknar í Keflavíkur-
læknishéraði munuxstarfa við
stöðina, en þeir eru Kjartan
Ólafsson héraðslæknir, Arn-
björn Ólafsson, Guðjón
Klemenzson, Hreggviður Her-
mannsson og Kristján Sigurðs-
son, en hjúkrunarkonur eru
Erna Björnsdóttur og Auður
Jónsdóttir. Læknaritari er
Bjargey Einarsdóttir.
Innan tíðar verður komið á
mæðra- og ungbarnavernd í
stöðinni og mun dr. Sigurður S.
Magnússon, sérfræðingur í
kvensjúkdómafræðum, og Guð-
mundur Jónmundsson, barna-
læknir, annast þá þjónustu.
Stjórn stöðvarinnar skipa, Jó-
hann Einvarðsson, bæjarstjóri í
Keflavik, sem er formaður, Al-
bert K. Sanders, sveitarstjóri í
Njarðvik, Finnbogi Björnsson,
oddviti, Garði, Alfreð Alfreðs-
son, sveitarstjóri Sandgerði,
Jósep Borgarsson, oddviti,
Höfnum, Svavar Árnason, for-
seti bæjarstjórnar Grindavikur,
og Guðmundur Hauksson,
sveitarstjóri Vatnsleysustrand-
arhrepps. Framkvæmdastjóri
er Eyjólfur Eysteinsson.
Jes Einar Þorsteinsson arki-
tekt annaðist endurskipulagn-
ingu húsnæðis heilsugæzlu-
stöðvarinnar.
Eins og fyrr segir mun
Heilsugæzlustöð Suðurnesja
þjóna öllu læknishéraðinu, en
gert er ráð fyrir læknamóttöku
í Grindavík og Sandgerði og
e.t.v. í Garði og Vogum að auki.
Nú er unnið að breytingum á
húsnæði i Grindavík og Sand-
gerði fyrir slíka starfsemi og er
gert ráð fyrir því, að þeim verði
lokið á þessu ári.
Undirbúningi við fyrsta
áfanga nýbyggingar sjúkra-
hússins í Keflavík er nú lokið.
Er áfanginn tilbúinn til útboðs,
en vegna endurskoðunar, sem
fram fer á fjárveitingum úr
ríkissjóði hefur enn ekki feng-
izt heimild til að hefjast handa,
enda þótt gert hafi verið ráð
.fyrir framkvæmdum á fjárlög-
I um ríkis og sveitarfélaga.
Sumarstarf
barna og
unglinga á
Nesinu
SUMARSTARF Æskulýðsráðs
Seltjarnarness er að hefjast og
verður nú í auknu og breyttu
formi frá því sem verið hefur
undanfarin ár. Þrjú íþrótta- og
leikjanámskeið verða fyrir börn á
barnaskólaaldri, starfræktir
verða skólagaróar fyrir börn
9—12 ára, haldið verður sund-
námskeið og efnt verður til
tveggja siglinganámskeiða fyrir
unglinga 12 ára og eldri. Siglinga-
námskeiðin eru nýlunda, en ráðið
stefnir að því að byggja upp sigl-
ingaklúbb á Seltjarnarnesi á
næstu árum.
Innritun á námskeiðin fer fram
í Mýrarhúsaskóla kl. 10—16 og
lýkur á miðvikudag.
Skipavík
sameinuð
vélsmiðju
SKIPASMÍÐASTÖÐIN Skipavik
og Vélsmiðja Kristjáns Rögn-
valdssonar í Stykkishólmi hafa
verið sameinaðar í eitt fyrirtæki,
sem mun starfa undir nafninu
Skipasmíðastöðin Skipavik hf.
Var sameiningin liður í fjárhags-
legri endurskipulagningu Skipa-
víkur sem hófst á sl. hausti fyrir
forgöngu Byggðasjóðs og
Búnaðarbankans, en er nú lokið.
Öllum sveitarfélögum á Snæfells-
nesi var gefinn kostur á aðild að
félaginu, en þau höfnuðu því öll,
nema Stykkishólmshreppur.
Hið sameinaða fyrirtæki mun
leggja megináherzlu á viðgerðar-
þjónustu við bátaflota Breiðfirð-
inga og annarra, en einnig mun
það annast nýsmíði fiskiskipa úr
tré og síðar meir einnig úr stáli.
Starfsmenn fyrirtækisins verða
um 50. Fyrirtækið hefur á leigu
dráttarbrautirnar í Stykkishólmi.
sem geta tekið upp skip allt að 300
lestum.
Stj órn arfoi m að ur fy ri rtæ k i si n s
er Ölafur Kristjánsson, en fram-
kvæmdastjóri Haíldór S. Magnús-
son.
Örlítil forvitni
gæti komið sér vel
Því að ef þú ert að gera gangskör að
breytingum á baðinu,
i eldhúsinu eða kemur til með að
þurfa þess, þá vertu örlítið forvitinn
og kynntu þér BUFLON veggklæðn-
ingu.
BUFLON kemur í staö veggflísa, það
er vatnsþétt vinyl efni, sem auövelt
er að setja upp, og er bæói hagkvæm-
ara í innkaupi og uppsetningu en
hvers konar veggflísar.
BUFLON er þenslulaust, brennur
ekki og er ónæmt fyrir blettum.
BUFLON hefur verið rannsakaó og
fengið viðurkenningu frá aöilum
sem eru í nánu sambandi við
frönsku og ensku neytendasamtökin.