Morgunblaðið - 06.06.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.1975, Blaðsíða 1
36 SIÐUR 125. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 6. JUNl 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kýpurfundir: Útlit betra en búizt var við Vinarborg 5. júni — Reuter. AP GRUNNUR LAGÐUR AÐ SIGRI — Jóhannes Eðvaldsson fyrirliði íslenzka landsliðsins skorar fyrra mark Islands í landsleiknum í gærkvöldi og leggur þar meðgrunninn að óvæntum en verðskulduðum sigri yfir Aust- ur-Þjóðverjum 2:1. Nánar á íþróttasíðum blaðsins. ' uí»m.Mbi.Fri«wófurHei*«»on. FYRSTA fundi leiðtoga Kýpur- T.vrkja og Kýpur-Grikkja með Kurt Waldheim, framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, eftir að ákveðið var að hefja Kýpurvið- ræður að nýju, lauk í kvöld og virtist útlit ekki eins drungalegt og þegar fundurinn byrjaði. Komu þeir Clerides og Denktash báðir harla glaðlegir af fundinum en vildu ekki tjá sig utan þess að þeir ætluðu að hittast aftur á moFgun. Talsmaður S.Þ. sagði að andrúmsloftið á fundinum hefði verið gott og vinsamlegt og fund- urinn hefði verið einkar nytsam- legur. Denktash lagði fram ýmsar hug- myndir varðandi lausn málsins og verða þær teknar til umfjöllunar á morgun. London 5. júni.AP. Reuter. t KVÖLD var þvf spáð að mikill meirihluti brezkra kjósenda myndi greiða atkvæði með áfram- haldandi aðild að Efnahags- bandalagi Evrópu eða um 68%, en þrátt fyrir bjartsýni stuðnings- manna bandalagsins rfkti þó nokkur óvissa manna á meðal, þar sem niðurstöður skoðanakannana hafa iðulega reynzt óáreiðanlegar f Bretlandi. Kjörsókn var víða mjög mikil strax í morgun og munu alls um Sorsa ekki trúaður á stjórn jafnaðarmanna og kommúnista i bráð Helsir.ki 5. júni.NTB. KALEVI Sorsa, forsætisráðherra Finnlands, sagði f dag að hann væri ekki trúaður á að samstarf gæti tekizt f rfkisstjórn milli sósfaldemókrata og kommúnista að loknum kosningunum f Finn- landi, sem eiga að fara fram dag- ana 21. og 22. september næst- komandi. Sagði Sorsa þetta í ræðu sem hann flutti á flokksþingi sósfal- demókrata í dag. Hann staðhæfði að sósialdemókratar og Miðflokk- urinn væru þeir sem hægast ættu með að axla byrðar og ábyrgð af ríkisstjórnarstarfi, þrátt fyrir ýmsan skoðanaágreining milli þessara flokka, sem komið hefur fram á síðustu mánuðum. Sorsa sagði, að hann hefði ekki gefið upp alla von um að hinir tveir stóru verklýðsflokkar i land- inu gætu tekið sæti saman í rikis- stjórn á nýjan leik. Hann kvaðst telja að nú væri það hins vegar mikilvægt fyrir kommúnistana að halda flokki sinum saman og byggja hann upp innan frá ekki síður og þar sem stjórnarstörf Framhald á bls. 20 69% hafa neytt atkvæðisréttar sins, þegar kjörstöðum var lokað kl. 22. Atkvæðatalning hefst i fyrramálið og er fyrstu talna að vænta milli kl. 9 og 10 árdegis. og endanegar niðurstöður liggja lík- lega ekki fyrir fyrr en síðdegis á morgun, föstudag. Kosið er í 68 kjördæmum og alls eru um 40 milljónir manna á kjörskrá. Harold Wilson, forsætisráð- herra, kaus á kjörstað skammt frá þinghúsinu og sagði fréttamönn- um, að hann teidi ekki að skoð- anamunurinn innan flokks hans um afstöðu til EBE-aðildar myndi verða til neins tjóns. Var Wilson reifur og hinn bjartsýnasti. Margaret Thatcher, leiðtogi íhaldsflokksins, sem studdi Wil- son í baráttunni, sagði á kjörstað i Chelsea: „Þetta er mikill dagur i Bretlandi. Það er ákaflega mikil- FORINGJAR KOMA A KJÖRSTAÐI: Tll hleKri er m.vnd af leiðtoga Ihaldsflokksins. Margaret Thateher, tekin eftir að hún greiddi atkvæði. A mvndinni til vinstri sést forsætisráðherra Breta, Harold Wiison, og Mary kona hans koma til að greiða atkvæði. AP-mynd. vægt að niðurstaðan verði „já“.“ Thatcher bar merkið „Bretland Framhald á bls. 20 Waldheim ávarpaði leiðtogana og hvatti þá til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að finna grundvöll sem hægt væri að byggja á lausn Kýpurmálsins. Skömmu áður hafði Clerides, leið- togi Kýpur-Grikkja, hótað því að hann gengi af fundi og héldi heim ef Kýpur-Tyrkir héldu fast við það að halda atkvæðagreiðslu á sunnudaginn á hernumdum svæð- um%ínum á Kýpur, þar sem stað- fest verður stofnun sérstaks ríkis þeirra. Denktash lýsti þvi yfir að hann hefði ekkert umboð til að stöðva þjóðaratkvæðið og sýndust mönnum blikur á lofti um fram- hald viðræðnanna, ef svo héldi fram sem horfði á tímabili. Er talið öruggt að Waldheim hafi lagt mjög eindregið að Clerides og Denktash að einbeita sér að því að leysa málið og leitt þeim fyrir sjónir hversu alvarlegt mál það væri færu fundirnir nú út um þúfur. Portúgal: Ætluðu Maoistar að drepa herforingja? Klögumálin ganga á víxl og ástandið œ ótrgggara í landinu Lissabon 5. júni Reuter. TALSMAÐUR portúgalska hers- ins ásakaði ( dag hóp maoista um að hafa haft á prjónunum að myrða nokkra af leiðtogum byltingarráðs landsins. Um svip- að leyti gáfu kommúnistar út yfirlýsingu þar sem þeir sögðu að upp hefði komizt um gagn- byltingaráform ihaldssamra her- foringja. Enn sprakk sprengja I Lissabon, höfuðborg landsins, I nótt, sú þriðja á þremur dögum. Fréttastofufregnir segja, að skemmdir hafi ekki orðið umtals- verðar og enginn hafi slasazt og virðist ekki um skipulagðar að- gerðir að ræða. Þó gætir nokkurs ótta um að slfkar gerðir kunni að vera upphaf hryðjuverka og skemmdarstarfsemi á báða bóga. Ásökun herforingja um fyrir- ætlanir maoistanna kemur í kjöl- far handtöku 450 maoista í síð- ustu viku, en þeir risu þá gegn | aðalsamtökum sínum. Enn sitja 1 um 300 maoistar i haldi. Tals- menn hersins segja að látið hafi verið til skarar skríða gegn mao- Framhald á bls. 20 Kjörsóknin í Bretlandi talin hafa verið um 69%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.