Morgunblaðið - 06.06.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1975
7
I--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1
Sr. Bernharð Guðmundsson — Addis Abeba
„Blönduð ”hjónabönd
Við vorum í skemmtilegu
samkvæmi um daginn. Þarna
voru 10 hjón samankomin.
Samræðurnar voru fjörugar og
maturinn góður. En skyndilega
varð mér ljóst, að eitthvað var
framandlegt við samkvæmið.
Þá kom í ljós, að allar konurnar
voru hvitar,en allir herrarnir
Eþíópar nema ég. Þarna var
samankominn þéttur vinahóp-
ur hem hélt saman vegna sér-
stöðu sinnar.
Nú hafa allar þessar konur
yfirgefið landið með börn sín
og farið heim til Svíþjóðar.
Aðstæðurnar bæði pólitískar og
félagslegar hafa orðið þeim
um megn. En menn þeirra eru
hér kyrrir og fá trúlega ekki
burtfararleyfi.
Allir þessara kunningja
minna hafa hlotið margra ára
háskólamenntun i Evrópu eða
Bandaríkjunum. Hugsunarhátt-
ur þeirra er því að flestu leyti
vestrænn. Þar við bætist, að
heimili þeirra eru vestræn og
heimilismálið er sænska eða
enska. Lífsmáti þeirra er því á
flesta lund vestrænri, þannig
eru þeir að vissu marki útlend-
ingar í eigin landi. Hins vegar
njóta þeir ekki þeirrar frið-
helgi og undanþágu, sem út-
lendingar fá. Þeir eru Eþíópar
á ytra borði og i opinberum
bókum og verða að lifa við það.
Auðvitað er hlutskipti
kvenna þeirra stórum erfiðara.
Fæstir eiginmannanna eiga
menntaða foreldra, þannig að
konurnar geta sjaldnast tjáð sig
við tengdafjölskylduna, þar
sem amharinjan er yfirtak
erfitt mál. Samskiptin felast
því í brosum og bukki og vand-
ræðalegum smáorðum. Fram-
andi hegðun kvennanna er
óskiljanleg fjölskyldunni. I
þjóðfélagi sem hér, þar sem
konan á að þegja og ekki hafa
sig í frammi, verður hegðun
evrópsku kvennanna yfirmáta
gróf og drottnunargjörn.
Hér eru fjölskyldutengslin
miklu víðari en vestra.Það
þykir sjálfsagt að frændur og
frænkur búi þar sem húsrými
og matur er nægur. Það er því
erfitt fyrir unga konu sem bjó
ein með manni sínum i lítilli
stúdentaíbúð áður fyrr í Sví-
þjóð til dæmis, að verða nú að
deila húsi sínu með fjölda ætt-
menna hans, sem hafa vægast
sagt allt aðrar matar— og
hreinlætisvenjur, en hún hefur
vanizt.
Það er þvi ekki furða, að
þessar fjölskyldur haldi saman,
sem einnig dregur lausn vanda-
málsins á langinn. Meðan þau
halda sifellt saman, verða þau
útlendingar i eþiópísku þjóð-
félagi. Og nú eru konurnar sem
fyrr segir farnar heim. Menn
þeirra voru flestir Eritrear og
þegar upp kom kvitturinn um
að reistar hefðu verið fanga-
búðir í útjaðri Addis, þar sem
setja ætti alla menntamenn af
Eritreakyni, þoldu þær ekki
lengur við, og lái þeim hver
sem vill.
En samstarfsmaður minn,
sem einnig er kvæntur
evrópskri konu, leggur mikla
áherzlu á, að vandamálið skap-
ist ekki af því að hjónin séu af
sitt hvorum litarhætti heldur af
mismunandi menningarbak-
grunni. Það er sama vandamál
og í vestrænum heinti. Þar eru
skilnaðir algengir af þeim
orsökum og enginn tekur til
þess. En ef „blandað" hjóna-
band leysist upp, þá gellur við í
hverju horni. aha, hvað sagði ég
i
Vinur minn getur trútt um
talað. Kona hans talar
amharinju og hafði starfað
lengi hérlendis áður en þau
giftust og þekkti land og þjóð.
Systkini hans eru öll með æðri
menntun og þekkja til
vestrænna lífshátta. Ég fæ ekki
betur séð, en þetta hjónaband
sé eins og þau gerast bezt í
vestrænum sið.
Og vinur minn bætti við.
—Eðli málsins samkvæmt hlýt-
ur að vera meiri spenna í
„blönduðum“ hjónaböndum, en
ætli þau séu ekki lika meira
spennandi!
Núll komma
ekki neitt
Sú persónudýrkun,
sem dagleg skrif Þjóð
viljans leggja drög að,
kemur m.a. fram I óljóst
tilgreindum afrekum
Magnúsar Kjartanssonar
I orkumálum I ráðherra-
tlð hans. Sé ofan í
saumana farið á ráð-
herraferli hans I orku-
málum finnst hinsvegar
ekkert bita stætt. Engin
ný löggjöf var sett um
ný orkuver eða orku-
öflun allan hans ráð-
herraferil. Löggjöf um
Sigölduvirkjun og Lagar-
fossvirkjun var sett af
viðreisnarstjórninni og
hlutur Magnúsar I þvl
efni var sá einn, að
fylgja fram löggjöf og
verkefnum sem hann
tók við. Norðurllna fólst
I orðskrúði einu í hans
ráðherratFð; fram-
kvæmdir komu ekki til
fyrr en nýr ráðherra tók
við störfum hans.
Stefnumörkun um nýja
stórvirkjun á Norður-
landi kom heldur ekki til
fyrr en eftir stjórnar-
skipti. Víðtækar orku-
rannsóknir á Austur-
landi eru og ákvörðun
nýrrar ríkisstjornar.
Kröfluvirkjun er einnig
ákvorðun núverandi
rfkisstjórnar.
Eina umtalsverða
verkefni hans var sættir
[ málum Laxárvirkjunar,
sem sumir telja þó að
hafi sízt orðið til að flýta
orkuöflun i Norðlend-
ingafjórðungi. Helzta
viðfangsefni hans sem
orkuráðherra virðist
hafa verið að undirbúa
jarðveg fyrir járnblendi-
verksmiðju í Hvalfirði og
samningsgerð við Union
Carbide [ þvl efni. Þv(
verkefni skilaði Magnús
nær þvl á framkvæmda-
stig. Það er tlmanna
tákn að þessu eina við-
fangsefni, sem hann
sinnti ! raun, afneitar
hann, en hælir sér I há-
stert fyrir hitt, sem hann
lét vera að gjöra, þrátt
fyrir þjóðarnauðsyn,
sem þróun orkumála I
veröldinni gerði enn
brýnni. Þjóðviljinn ætti
að birta afrekaskrá ráð-
herrans I löggjöf um
orkuöflun og jarðvarma-
virkjun. Hefðu t.d.
ákvarðanir um hitaveit-
ur á Suðurnesjum og ná-
grannabyggðum Reykja-
vfkur verið teknar einu
til tveimur árum fyrr, en
raun varð á, hefði þjóð-
arbúið og viðkomandi
þegnar þess sparað um-
fangsmiklarfjárhæðir !
erlendum gjaldeyri og
öðlast raunhæfa kjara-
bót mun fyrr en ella.
Niðurstaðan í orkuafrek-
um ráðherrans fyrrver-
andi nálgast þvl núll
komma ekki neitt.
Þjóðarsam-
staða um höfuð-
viðfangsefnin
Þau þrjú atriði sem
varða mestu um framtlð
og velferð íslenzku þjóð-
arinnar í dag, og krefjast
þjóðarsamstöðu, eru: út-
færsla fiskveiðilögsögu
okkar i 200 m!lur, enn
frekari nýting innlendra
orkugjafa, bæði til
almenningsnota og at-
vinnuuppbyggingar, og
siðast en ekki sizt, að
leysa aðkallandi efna-
hagsvanda, innfluttan
og heimatilbúinn, á þá
lund, að rekstur at-
vinnuvega okkar og
verðmætasköpun i þjóð-
arbúinu verði áfram
tryggð, og vá atvinnu-
leysins forðað frá dyrum
landsmanna. Sundrung
og innbyrðis átök á ör-
laga- og erfiðleikatimum
gætu haft enn alvarlegri
afleiðingar fyrir fram-
tiðarheill þjóðarinnar en
hafis, snjóflóð og eld-
gos. Að stefna að sliku
sjálfsskaparvíti, vegna
pólitískrar eða hags-
munalegrar togstreitu,
stefnir afkomu lands-
manna og efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar i
bráða hættu. Mál er að
linni sjálfsskaparvltum
og hugað sé að heilræði,
sem svo var orðað:
„Litla þjóð, sem átt !
vök að verjast. vertu ei
við sjálfa þig að
berjast."
Sama niður-
staða í sam-
vinnuverzlun
Timinn segir ! gær:
„Þv! miður er nú hart !
ári hjá kaupfélögum
... vandamál, eins og
minni veltuhraði, og þar
af leiðandi meiri vöru-
birgðir og vaxtakostn-
aður, rýrnun á rekstrarfé
vegna gengisfellinga,
svo eitthvað sé nefnt.
Hér er verzlunin höfð (
huga, en annar rekstur,
sem samvinnufélögin
hafa með höndum, hefur
ekki megnað að bæta
stöðu þeirra, sökum
aukins tilkostnaðar."
„Verzlunargróðinn",
sem mörgum verður tið-
rætt um, og nýttur er !
orði til að skapa
innbyrðis átök þjóðar-
innar, virðist þv! orðin
tóm, hvort heldur sem
er hjá samvinnuverzlun
eða einkaverzlun.
Viljirðu Pop og/eða soft rock
Elton John Captain Fantastic
James Taylor Gorilla
Bee Gees Ný, stórgóð plata
Michael Murphy Blue Sky
Billy Joel Street Life Serenade
John Mark Song for a Friend
Carly Simon Playing Possum
John Denver Greatest Hits
John Denver Live
John Denver Back Home Again
Albert Hammond Allar
Arlo Guthrie og Pete Seeger Live
Bob Dylan Blood on the Tracks
Earl Scruggs Revue 25th Aniversary Vol 1.
(Þarna koma m.a. fram Dylan, Choen, Billy Joel, Joan
Baez, Roger McGuinn o.fl.)
Viljirðu þungt og/eða þróað rock
Bachmann Turner Overdrive Four Wheel Drive
lan Hunter lan Hunter
Edgar Winter Jasmine Nightmares
Doobie Brothers Stampade
Z.Z. Top Fandango
Black Oak Arkansas Aint Live Grand
Ace An Ace Album
Steely Dan Kathy Lied
Rich Derringer Spring Fever
Aerosmith Toys in the Attic
Kansas Song for America
Status Quo On the Level
Phil Manzanera (Roxy Music) Dimond Head
Chicago VIII
Lynard Skynard Nuthin' Fancy
Nazareth Hair of the Dog
Viljirðu Soul-músík (ýmis form)
MFSB Ufiiversial Love
Earth, Wind & Fire Thats the Way of the World
O'Jays: Surrvival
Tramps: Tramps
Hot Chocolate: Cicero Park
Minnie Riperton Adventures in Paradise
Barrabas: Hi Jack
Kokomo: Kokomo
Minnei Riperton: Perfect Angel
Avarage White Band: A.W.B.
B.T. Express: Express
Ramsey Lewis: Sun Goddess
Steve Wonder: Innervision
Steve Wonder: Fullfillingness
Sértu með greindarvísitölu yfir 210
Weather Report Tale Spinnin
Wayne Shorter Native Dancer
ling Grimson U.S.A.
Tangerine Dream Rubycon
Stanley Clarke Stanley Clarke
Viljirðu viðhalda minningunum
Ýmsir: American Graffitti
Ýmsir: More American Graffitti
Ýmsir aðrir: History of Britis Rock Vol 1
Ýmsir aðrir: History of British Rock Vol. 2
Beatles: Allar (Bandarísku útgáfurnar)
Ýmsir gamlir: Rock On (Urval frá 1 950—'63).
Mikið af ofantöldum plötum eru einnig fáanlegar í
kassettum og 8-rása spólum.
Einnig ný sending af litlum plötum.
i
Sími13008.