Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNI 1975
Harðfenni
átúnum
Mjófirðinga
Mestu snjó-
þyngsli að
vori í 25 ár
Á ÁKVEÐNUM stöðum á
Austurlandi er enn feikn
mikið af snjó síðan í vetur og
hefur ekki verið svo mikill
snjór á þessum árstíma í ára-
tugi eða allt síðan snjóaárið
mikla 1951.
Meðfylgjandi myndir eru
frá Mjóafirði, en Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamála-
ráðherra tók myndirnar í
heimabyggð sinni og eru þær
annars vegar frá páskum og
hins vegar til samanburðar
frá því eftir hvítasunnu, eða í
maílok.
Fáa mánuði á ári er unnt
að komast akandi landleiðina
til Mjóafjarðar, en áformað er
að bæta þar úr því að Mjói-
fjörður er einn fegursti
fjörður Austfjarða og þangað
ættu landsmenn að geta ekið
eins og til annarra sérstæðra
staða á landinu.
Sá feikn mikli snjór sem
enn hefur verið i norðanverð-
um Mjóafirði í vor er gamall
snjór eða síðan í janúar. Á
bæjartúnum byggðarinnar í
kring um Brekku var allt upp
í margra metra þykkur snjór
um miðvetur. „Þetta er því
löngu orðinn harður
gaddur," sagði Vilhjálmur á
Brekku i samtali við Morgun-
blaðið, »,en það eru engin
dæmi um svona snjóþyngsli
síðan 1951 og þá horfði allt
öðruvísi við. Þá snjóaði allt
fram á sumardaginn fyrsta
og þá var allur snjór nýlegur
þegar hann grotnaði niður í
sumrinu, en síðasti snjórinn
hvarf þá ekki fyrr en 1. ágúst
úr túngarðinum. Nú er bara
að bíða og sjá hverju fram
vindur, en það er eiginlega
ekki hægt að lýsa þessu með
orðum, því að þetta er svo
ótrúlegt á þessum tíma þegar
vorið fer um hlað í flestum
byggðum landsins."
Myndin til vinstri er tekin um páskana og sýnir snjóbreiðurnar þá. Mishæðir og hólar
í hliðum voru horfin undir samfellda sléttu mjallar. Á miðri mynd er bærinn Brekka,
en í fjarska sér til Ekrutinds.
Myndina til hægri tók Vilhjálmur í maílok. Lengst til vinstri á myndinni sést til
Brekku í sortanum og Ekrutindur er hulinn skýjaþykkni, en myndin sýnir vel þau
miklu snjóþyngsli sem eru þarna norðan fjarðarins og kominn júní.
Ljósmyndir: Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku.
Munurinn norðan og
sunnan fjarðar. Báðar
myndirnar eru teknar sama
dag í maílok. Sú snjólétta
sunnan fjarðar, en sú snjó-
þunga norðan, en sú mynd
er tekin af Þrælatindi rétt
utan við Brekku.
Hægri myndin er frá
páskum í Mjóafirði. Ekru-
tindur er til vinstri og
Þrælatindur til hægri.
Lengst til vinstri eru úti-
húsin á Brekku og til hægri
er bærinn Brún.
Myndin til vinstri er tekin í
maílok. Frá vinstri er
Brekka, þá Brún og niðri
við sjóinn á miðri mynd er
bærinn Kastali. Ekrutindur
er í fjarska.