Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 16
16
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNl 1975
IJr bók Roberts Conquest:
Hin ægilega ógnarstjórn: Hreinsanir
Stalíns á fjórða áratnpum
Fangabúðir í Archangelsk: Enginn var óhultur.
þjóSfélagshópur gat framar verið
óhultur fyrir hinni óvæntustu
valdnlðslu. Þessari þróun virðist
hafa verið fagnað af utanfiokks-
mönnum. Viða i bókmenntum,
sem fjalla um fangelsi og
einangrunarbúðir á þessum tima,
má finna frásagnir þess efnis, að
það hafi kætt hina óbreyttu fanga,
þegar fyrrverandi kvalari úr
N.K.V.D. (rússnesku leynilögregl-
unni, eldri útgáfu K.G.B.) eða
flokksvélinni birtist í fangaklefa
eða vinnubúðaskála.
Úr kaflanum:
Meistari ógnarstjórnar
Silalegt og kaldranalegt yfir-
bragð og harka einkenndu hinn
langa feril Stalíns, og minnir það
helzt á skriðjökul. sem hægt og
sigandi leitar auðveldustu leiðina
niður hlíðar og flatir yfir Alpadal.
Þessi sérkenni eru þó aðeins hluti
heildarmyndarinnar. Einstöku
sinnum — einkum snemma á
starfsferli hans — brast honum
rósemi og tilfinningarnar, sem
héldu honum föngnum og réðu
gerðum hans, komu i Ijós.
Ógnarstjórn hans virtist aldrei
fylgja skiljanlegu mynstri. Dóttir
hans telur það eitt af höfuðein-
kennum hans. „þegar hann hafði
vikið einhverjum úr hópi nánustu
vina frá sér og skipað honum i
fylkingu með óvinum sinum,
þýddi ekkert að reyna framar að
tala um þá persónu við hann".
Enginn vafi leikur á þvi, að Stalin
var einkar langrækinn og unni sér
engrar hvildar fyrr en hann hafði
komið fram áætluðum hefndum.
En það getur þó einungis skýrt
hluta af manndrápunum, sem
hann fyrirskipaði, þvi hann lét
Fimm milljónum var tortúnt í
hnnprsneyð einræðisherrans
Brezki rithöfundurinn og fræðimaðurinn Robert Conquest mun tala
á sameiginlegum hádegisverðarfundi Varðbergs og Samtaka um
vestræna samvinnu, sem efnt er til að Hótel Sögu á morgun. Hann
fjallar þar um efníð: Vandi vesturvelda. Conquest er viðkunnur fyrir
skrif sín og skáldskap og er að auki talinn einn fremsti fræðimaður um
Sovétrikin, sem nú er uppi Morgunblaðið birtir i dag og á morgun
glefsur úr hinu fræga riti hans Hin ægilega ógnarstjórn: Hreinsanir
Stalins á fjórða áratugnum Það skal þó tekið fram, að hér er aðeins
gripið niður i bókina og að meira að se'gja þeir kaflar, sem hér eru
birtir, eru stórlega styttir.
Úr kaflanum:
Inngangur:
Rætur ógnarstjórnar
Með miklu betur undirbúnu
áhlaupi með samtvinnuðu
miskunnarleysi og efnahagslegu
ofbeldi var komið á nærri algjör-
um samyrkjubúskap i meginhluta
landsins i árslok. 1932. Óll and-
staða var brotin á bak aftur með
einfaldri aðferð. Ef bóndi fram-
leiddi einungis nóg til eigin fram
færslu og átti ekkert umfram til að
láta rikinu í té, sneru embættis-
menn sveitarfélagsins, sem koma
áttu á samyrkjubúskap, dæminu
við. Hver einasti kornsekkur var
tekinn úr kornhlöðunni og seldur
til útflutnings, en hungursneyð
svarf að. Smjör var flutt úr landi,
meðan kornabörn dóu úr mjólkur
skorti.
Hungursneyðina má beinlinis
skrifa á reikning Stalins. Árið
1932 var uppskeran 12% minni
en í meðalári. Það var langt frá því
að gefa tilefni til hungursneyðar.
Sá hluti uppskerunnar. sem tek-
inn var frá bændum, jókst hins
vegar um 44%. Afleiðingin varð
og gat ekki orðið önnur en
hungursneyð. E.t.v. er þetta i eina
skiptið i mannkynssögunni. sem
hungursneyð er algjörlega af
manna völdum.
Hér getur einnig einu meiri-
háttar hungursneyðarinnar, sem
stjórnvöld hafa sýnt skeytingar-
leysi eða afneitað með öllu, og
jafnvel tekizt að verulegu leyti að
dylja fyrir almenningi í heiminum.
Þetta varð með mjög óheppilegum
hætti og magnaði andstæður i
stjórnmálum, sem eru enn við
lýði. Að sjálfsögðu var ekki unnt.
að viðhalda fullkominni leynd.
Það var altalað i Moskvu og bað
kom fyrir að lágt settur stjórnar-
ráðsstarfsmaður ræddi málið við
útlending.
Á Vesturlöndum urðu auðvitað
fyrst og fremst þeir, sem af hug-
myndafræðilegum ástæðum eru
helztu andstæðingar ráðstjórnar,
til að gripa upplýsingarnar og
kynna þær. Vinstrisinnar og jafn-
vel miðflokkamenn brugðust við
með mjög algengum en vanhugs-
uðum og óheppilegum hætti. Þeir
sefjuðu sjálfa sig með þvi, að frá-
Stalín: Langrækinn og hefni-
gjarn
sögnin væri ósönn eða (sem er
mun varf ærnislegra sjónarmið)
mjög ýkt. Stjórn Ráðstjórnarrikj-
anna hafði ekki viðurkennt neitt.
Þrjátiu árum siðar var hulunni
aðeins lyft i dagblöðum i Ráð-
stjórnarrikjunum. Í greinaflokkn-
um „Menn eru ekki englar" dreg-
ur höfundurinn Ivan Stadnyuk
þessa sögu saman i eina sétningu:
„Karlarnir dóu fyrst, síðan börnin
og loks konurnar."
Eins og alltaf þegar yfirvöfd vilja
hvorki veita upplýsingar né leyfa
aðgang til rannsóknar á viðeig-
andi skjalasöfnum er erfitt að
meta fjölda fórnarlambanna.
Vandlegt mat á öllum áætlunartöl-
um, og öllum greinargerðum
bendir til þess. að um 5 milljónir
manna hafi látizt úr hungri eða af
sjúkdómum vegna hungurs.
Encyclopaedia Britannica getur
aðeins einnar hungursneyðar, sem
hefur reynzt mannskæðari (í Kína
1877—8).
Stalín sagði Churchill siðar frá
því. að nauðsynlegt hefði reynzt
að hafa afskipti af 10 milljónum
sjálfseignarbænda, „þorri" þeirra
hefði verið „þurrkaður út" en aðr-
ir fluttir til Síberfu. Meira en 3
milljónir þeirra virðast hafa hafn-
að i þrælkunnarvinnubúðum, en
þeim fjölgaði mjög mikið um
þessar mundir.
Úr kaflanum:
Stalín hreiðrar um sig
Okkur hættir sennilega til þess
að sjá sumar viðfelldari gerðir
hinna föllnu foringja i dýrðar-
Ijóma. Þegar Isaac Deutscher —
eða jafnvel Arthur Koestler —
lýsa örlögum stjórnarandstæðing-
anna i Ijóma harmleiks, er rétt að
minnast þess, að þessir sömu
menn viluðu ekki fyrir sér meðan
áhrifa þeirra gætti að láta drepa
hópa af andstæðingum sínum i
stjórnmálum til þess eins að
tryggja varanleg völd flokks síns
þrátt fyrir almenna andstöðu. eins
og fram kom i réttarhöldunum yfir
Bukhanin. Þeir höfðu að engu
marki mótmælt réttarhöldum, þar
sem utanflokksmenn hlutu refsi-
dóma byggða á skipulögðum Ijúg-
vitnaleiðslum. Fáir þeirra höfðu
beitt sér fyrir neinu, sem liktist
lýðræðisreglum, jafnvel ekki inn-
an flokksins (það er reyndar
athyglisvert, að hinar fáu undan-
tekningar, eins og t.d. Sparanov,
komu aldrei fram i opinberum
réttarhöldum).
Á næstu árum þurrkaði Stalín út
siðustu leifar mannúðar. Enginn
bæði lífláta vini og óvini, bæði
menn sem hann þekkti næsta litið
og persónulega keppinauta. Sá,
sem hafði einhvern timann móðg-
að hann, lifði örugglega ekki af
ógnaröldina, og ekki heldur sá
sem Stalin hafði séð ástæðu til að
svívirða, eins og t.d. Bauman.
Ógnarstjórn Stalins fellur þó i
skiljanlegt mynstur, ef litið er á
hana sem aðferð til áhrifa á múg,
sem tölf ræðilega aðferð fremur en
uppgjör einstaklinga. Það mætti
Khruchschov. Stjórnaði
hreinsun í Úkraínu.
leggja Stalín í munn þau rök fyrir
hreinsununum, að ógnhrifum yrði
fyrst náð, þegar búið væri að taka
höndum og skjóta tiltekinn hluta
sérhvers þjóðfélagshóps, þeir sem
eftir lifðu myndu þá hafa látið
kúgast til möglunarlausrar undir-
gefni.
Úr kaflanum:
Aðförin að hernum.
Khrushschov sagði svo frá:
„Þegar Yakir var skotinn hróp-
aði hann: „Lengi lifi flokkurinn,
lengi lifi Stalin!" Stalín var sagt
frá þvi, hvernig Yakir hefði brugð-
ist við dauða sínum, bölvaði þá
Stalin honum."
Khrushschov greindi frá setn-
ingunni „Lengi lifi Stalín!" eins
og í henni fælist aðdáun á Stalin.
Það er áreiðanlegt að hershöfð-
ingjarnir voru ekki svo einfaldir að
halda að Stalin ætti enga sök á
örlögum þeirra. Yakír var gamal-
reyndur kommúnisti og hafði til
að bera þá hæfileika sem þurfti til
að leika listir stjórnmálamanna á
dauðastundinni.
En það er miklu nærtækara að
ætla, að hann hafi haft fjölskyldu
sina i huga. Það hefði ekki verið
henni í hag, ef hann hefði á þess-
ari stundu hreytt fúkyrðum eða
notað tækifærið til að lýsa við-
bjóði sinum. Hann var búinn að
tala máli þeirra í síðasta sinn.
Daginn áður en hann var skotinn
sendi hann Voroshilov svohljóð-
andi bréf:
Til K. Ye. Voroshilov. Ég bið þig
og skírskota til margra ára heiðar-
legrar þjónustu i Rauða hernum,
að þú sjáir til þess, að fjölskylda
min, sem er varnarlaus og full-
komlega saklaus. hljóti umönnun
og aðstoð. Ég hefi beint samhljóða
beiðni til N.l. Yezhov.
Yakir, 9. júnl 1937.
Á afrit sitt ritaði Voroshilov:
„Yfirleitt dreg ég iefa heiðarleika
óheiðarlegra manna." Voroshilov
10. júni 1937. Yakir tókst ekki að
bjarga fjölskyldu sinni. Eiginkona
Yakirs, „náinn förunautur I tutt-
ugu ár" var tafarlaust send i út-
legð til Astrakhan ásamt syninum
Pétri og þau svipt vegabréfum. I
borginni Volga rákust þau á fjöl-
skyldu Tukhachevskys,
Uborevichs, Gamarniks o.fl. Afi
Péturs hafði falið dagblöðin fyrir
móðurinni, þar sem sagt var frá
ákærunum á hendur Yakir. Hún sá
þau fyrst, þegar eiginkona
Uborevichs sýndi henni þau.
Dagblöðin höfðu birt falsað
bréf sem var eignað frú Yaktr. i
bréfinu átti hún að hafa afneitað
eiginmanni sinum. Hún bar mót-
mæli fram við N.K.V.D., en þeir
ráku hana burt.
í byrjun september var hún sið-
an handtekin. Hún var siðan tekin
af lifi og ásamt henni eiginkonur
tveggja bræðra Yakirs og sonur
annars þeirra svo oq fleiri ættingj-
ar. Heimildir segja frá konu, systk-
inabarn við Yakir, sem dæmd var í
10 ára fangelsi 1938. „Pési"
litli, sem há var 14 ára var send-
ur á uppeldisheimili. Tveimur vik-
um siðar komu menn frá N.K.V.D.
að næturlagi og námu hann á
brott. Hann dvaldist siðan mörg ár
I fangelsum og vinnubúðum. i
þrælkunarvinnubúðum norður við
heimskautsbaug hitti hann af
hendingu fyrrverandi aðstoðar-
mann föðurins, sem sagði honum
nákvæmlega frá handtöku hans.
Þegar Khruchscov heimsótti
Kazakhastan 1961, náði Pétur
Yakir tali af honum,; „Hann
spurði mig um föður sinn. Hvað
átti ég að segja honum?" Um það
leyti er Yakir var handtekinn og
tekinn af lífi hafði Khruchschov
kallað hann „þorpara, sem vildi
greiða götu þýzkra fasista".
Úr kaflanum:
Landauðn í Úkraínu.
. . . Undirnefnd á vegum stjórn-
málanefndar flokksins kom til
Kiev i ágúst 1973. Nefndin var
skipuð þeim Molotov,
Khruchschov og Yezhov og höfðu
þeir á að skipa öflugri sveit „úr-
vals lögreglumanna" úr N.K.V.D.
(rússnesku leynilögreglunni, siðar
K.G.B.). Á fundi miðstjórnar
Kommúnistaflokks Úkrainu lagði
Molotov til, að Kossior,
Petrovsky, Lyubchenko og fl. yrði
vikið úr stöðum sinum og úr mið-
stiórninni en Khruchschov kosinn
aðalritari miðstjórnar Kommún-
istaflokks Úkrainu.
Úkrainumenn neituðu að verða
við þessum óskum, þrátt fyrir að
Molotov hringdi til Stalíns og
flytti staðfest fyrirmæli hans. Að
lokum lagði Molotov til að Úkra-
inumenn sendu stjórnmálanefnd
sina til sameiginlegs fundar með
stjórnmálanefnd Ráðstjórnarrikj-
anna.
Sumir fulltrúar úkraínsku sendi-
nefndarinnar virðast hafa verið
handteknir þegar við komuna til
Moskvu. Aðrir komu að visu aftur
til Úkrainu, en hurfu siðan hver af
öðrum. Stalin brást skjótt og
harkalega við hinni misheppnuðu
tilraun, sem gerð var til að bregða
fæti fyrir hann á flokksþinginu i
febrúar-marz næstliðnum. Þegar
Úkrainumönnum tókst nú a.m.k.
um stundarsakir að veita honum
raunverulega andspyrnu, reitti
það hann til miklu heiftúðugari
reiði. Innan árs var búið að hand-
taka alla stjórnmálanefndina,
skipulagsnefndina og allt fram-
kvæmdaráð flokksins i Úrkaínu
Framhald á bls. 27