Morgunblaðið - 06.06.1975, Side 20

Morgunblaðið - 06.06.1975, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNl 1975 Baader-Meinhof- réttarhöldunum enn frestað Stuttj'art. V-Þýzkalandi 5. júní. —AP Réttarhöldunum yfir fjórum af leiðtogum stjórnleysingja- hreyfingarinnar Baader-Meinhof í V-Þýzkalandi var í dag enn frestað til nk. þriðjudags, 10. júní, til þess að Andreas Baader gæti fengið sér nýja verjendur. Þrfr lögfræðingar höfðu tekið að sér vörn i máli hans en er að réttar- höldum leið var ákveðið að banna þeim að taka þátt i réttarstörfum, þar eð talið var að þeir hefðu tekið þátt í störfum hreyfingar- innar: Fjórmenningarnir hafa verið í fangelsi frá þvi að þeir voru handteknir fyrir þremur ár- um. Þeir eru ákærðir fyrir morð, morðtilraunir, bankarán og sprengjutilræði. Minnkandi atvinnuleysi í V-Þýzkalandi NurnberK, V-Þýzkalandi, 5. júní. AP ATVINNULEYSI minnkaði nokkuð í V-Þýzkalandi í sl. mánuði eða úr 4,7% i 4,4%. Alls var um 1 milljón verkafólks at- vinnulaus um sl. mánaðamót. At- vinnuleysi varð hið mesta um 16 ára skeið í febrúar eða 5,2%. Leiðrétting Prentvilla var í grein Ölafs Björnssonar, prófessors, í Morgunblaðinu i gær. Þar sagði: „Þess hefur lika verulega gætt undanfarin ár, ef litið er á spari- fjármyndun í bönkum og spari- sjóðum, að almenningi er það f vaxandi mæli ljóst, að það er ekki skynsamlegt eignaráðstöfun að eiga sparifé." Þarna átti að standa: „þess hefur líka verulega gætt undanfarið ár, o.s.frv." Vitni vantar MIÐVIKUDAGINN 4. júní var ekið á bifreiðina R-1139, þar sem hún stóð við Mjósund í Hafnar- firði. Bifreiðin er af gerðinni Volkswagen 1300 árgerð 1972, gulrauð að lit. Gerðist þetta milli klukkan 17 og 17.30. Vinstra aft- urbretti var dældað. Tjónvaldur- inn stakk af án þess að gera að- vart. Hefur rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði mikinn hug á að ná tali af honum svo og vitnum. — Fjármálaráð- herra Framhald af bls. 2 þegar samningarnir voru undir- ritaðir. Með þessum rökstuðn- ingi ákveður Kjaradómur að kr. 4.900 skuli ná til alls launastiga BSRB og BHM frá 1. mai 1975 að telja. Ég legg áherzlu á að forsend- ur kjaradóms fyrir því að lyfta hinu svonefnda „þaki“ eru að þeir aðilar sem stóðu að sam- komulaginu frá 26. marz 1975, sem fól i sér að margnefnt ,,þak“ var sett í launahækkun- ina, hafa með samkomulagi frá 23. maí í reynd lyft þessu „þaki.“ Sú ákvörðun kjaradóms að gera lagfæringar á launastig- um færa allmörgum félags- mönnum BSRB og BHM nokkra kjarabót umfram þær kr. 4.900 sem almennt eru ákveðnar. Kjaradómur telur þessa lag- færingu nauðsynlega til þéss að halda ákveðnu millibili milli launaflokka en láglaunaupp- bótin frá 1. október 1974 hafði þær afleiðingar að launamunur milli 15. og 16. launaflokks 1 launastiga BSRB var orðinn innan við kr. 100 á mánuði. Jón Rögnvaldsson, formaður launaráðs Bandalags háskóla- manna, sagði að raunverulega fælist ekkert annað f þessum dómi, en að starfsmenn hins opinbera væru nú að fá þær bætur er aðrar launastéttir hefðu þegar fengið. Það mætti kannski segja, að ekki hefði verið von á öllu meiru en samt sem áður væru þeir BHM-menn heldur óhressir yfir því að ákvæði dómsins um bætur skyldu ekki gilda frá 1. marz sem hefði verið eðlilegra f alla staði. Jón kvað þó aðaiatriðið, að ekki hefði verið fjallað um hluta af kröfum BHM, þ.e. vísi- tölubæturnar, og dómurinn hefði ekki gert neina grein fyr- ir því hvers vegna hann fjallaði ekki um þær. „Við finnum enga eðlilega skýringu á því hvers vegna mennirnir hliðra sér hjá að fjalla um þetta, sem er raunar aðalatriðið í kröfugerð okkar en það hljóðaði upp á að fá vfsitölubætur samkvæmt gömlu vísitölunni eða öllu held- ur þeirri vísitölu, sem í gildi á að vera — frá 1. júní að telja. Haraldur Steinþórsson, fram- kvæmdastjóri BSRB, sagði, að þær bætur sem BSRB væri að fá með þessum Kjaradómi bættu þó ekki nema hluta af þeim verðhækkunum, sem orðið hefðu. Hins vegar væri viðmiðun um upphæðir yfir í kjarasamninga verkalýðsfélaga eins og lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna gera ráð fyrir, svo að það væri þvf kannski ekki við að búast að þessi dómur væri mikið á aðra lund heldur en raun bæri vitni meðan opinberir starfsmenn byggju við svo ófullkominn samningsrétt og væru háðir gerðardómi. Þetta væri eigin- lega niðurstaða stjórnar BSRB um dóminn. — Suez Framhald af bls. 17 og eldsneytissparnaðar sem það hefur í för með sér. Fréttamenn segja að Port Said hafi nú verið með öðrum brag en áður, en eftir styrjaldirnar siðustu var hún nánast orðin draugaborg og íbúarnir 250 þús- und talsins höfðu langflestir flúið. Nú hefur borgin verið byggð upp á ný og sjá íbúar fram á hið mesta blómaskeið við að taka á móti skipum sem leggja inn á skurðinn og svo þeim sem koma úr suðurátt. — Fékk rós Framhald af bls. 36 komu þær með stærðar blóm- vönd og færðu Björgvin, jafn- framt því sem þær næidu rós i hnappagat á jakka hans. Astæðan fyrir þessu var sú, að konurnar voru að þakka Björgvin fyrir að hafa sam- þykkt þá kröfu þeirra að barnshafandi konur hjá verk- smiðjunum fengju fæðingaror- lof. Ef menn halda að á samn- ingafundum standi deiluaðilar yggldir á svip hvor gegn öðr- um, ætti þessi litla saga að leiðréttaþann misskilning. — Samkomulag Framhald af bls. 36 samninganefndar ríkisins, sagði að það væri öllum fulltrúum ríkis- ins og Kísiliðjunnar h.f. mikið á- nægjuefni að samningar skyldu takast við þessi 15 félög, sem að samningunum stóðu. Hann kvað mjög mikilvægt að svipuð kjör giltu í öllum verksmiðjunum og hann kvað Fulltrúana sannfærða um að samningurinn hefði góð áhrif á það andrúmsloft, sem nauðsynlegt er á hverjum vinnu- stað. Nauðsynlegt væri að laun- þegarnir væru ánægðir með þau launahlutföll, sem giltu í verk- smiðjunum. Skúli Þórðarson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sem var sérstaklega að semja fyrir starfsfólk Sementsverksmiðjunn- ar, lýsti ánægju sinni með-mála- lyktir. Hann sagði að launahækk- unin hefði ekki verið aðalatriði þessara samninga, heldur sam- ræming milli stéttarfélaganna og verksmiðjanna allra. Almennir verkamenn fá greitt samkvæmt 1. til 6. launaflokki en iðnaðarmenn og ménn við stjórnun samkvæmt 7. og 8. Iaunaflokki. Óskar Ólafsson, trúnaðarmaður í Áburðaverksmiðjunni, sagðist eftir atvikum mjög ánægður með samninginn. Hann sagði að samn- ingamenn hefðu vitað fyrirfram að ýmis vandamál væru í vegin- um, en allir hefðu lagzt á eitt um að leysa þau. Stefnt var að því að færa hlunnindi yfir á alla starfs- menn og kvað hann launalið samninganna aldrei hafa verið aðalatriði, heldur samræming milli hinna ýmsu starfshópa. Kvaðst Óskar ánægður með sam- stöðu starfsmannanna frá upp- hafi til enda deilunnar. — Mjölverð Framhald af bls. 2 til US $ 3,15 pr. próteineiningu, með tafarlausri afskipun, en að þessu sinni hafa Perúmenn ekki viljað selja á þessu verði enn sem komið er. Fiskmjöl frá Afriku, sem geymt hefur verið í fljótaprömmum i Hamborg, hefur nýlega verið selt á US $ 3,31 pr. próteineiningu til afhendingar strax. Próteininni- hald er 64%. Norskt fiskmjöl er ekki boðið til sölu að sinni. Birgðir eru tak- markaðar vegna hins lélega loðnuafla á síðustu vertið (nam 485 þús. tonnum á móti um 625 þús. tonnum i fyrra). Kaupendur eru áhugalausir um kaup, nema þeir eigi völ á vildarkjörum. Norsildmel hefur selt nokkurt magn til Bretlands til afskipunar strax á £ 1,67 (US $ 3,83). Síðustu sölur héðan á loðnu- mjöli eru US $ 3,50 fyrir einingu af eggjahvítu í tonni cif. eða til- svarandi verð í sterlingspundum, með afhendingu í júní og júli. Eftir því sem næst verður komizt, eru nú óseldar birgðir af loðnu- mjöli innan við eitt þúsund tonn og einnig hverfandi litlar útseld- ar birgðir af þorskmjöli og öðru fiskmjöli í landinu. Lýsisverð á erlendum mörkuð- um hefur nú fallið niður í 270-280 dollara tonnið cif, en s.l. haust komst verðið upp í 600 dollara tonnið á þeim birgðum, sem fyrir hendi voru I Rotter- dam/Hamborg.“ — EBE Framhald af bls. 1 áfram í Evrópu“ í barmi sér þegar hún kom á kjörstað. Anthony Benn, iðnaðarmálaráð- herra, sem hefur verið hvað harð- skeyttastur talsmaður þess að Bretar greiddu atkvæði gegn veru í EBE sagði við fréttamenn á kjör- stað: „Brezka þjóðin hefur orðið i dag. Meðan hún neytir réttar síns að kjósa, bíðum við og hlýðum á hvað hún segir.“ Edward Heath, fyrrverandi for- sætisráðherra, var glaður í bragði þegar hann kom af kjörstað, en tjáði sig ekki við fréttamenn. Það var á valdatíð hans, að Bretar gengu í Efnahagsbandalagið. Skoðanakannanir sem hafa ver- ið birtar eru allar á þá lund að yfirgnæfandi meirihluti kjósenda muni telja það eftirsóknarverðara að vera áfram í Efnahagsbanda- laginu. Niðurstöður hafa verið flestar á þá leið að frá 61% til 73,7% myndu vilja áframhald- andi aðild. Aftur á móti segja andstæðingar Efnahagsbanda- lagsins að Bretar muni glata sögu- legu frelsi sinu og þingræði, ef þeir verði áfram í bandalaginu. Einn þeirra sem berst gegn EBE- aðild, Neil Marten kosningastjóri þeirra, sagði í dag: „Við höfum fyllstu trú á að almenningsálitið hafi verið að breytast okkur í hag. Það hefur verið að gerast nú síð- ustu 36 klukkustundirnar." Þetta er í fyrsta skipti sem alls- herjarþjóðaratkvæðagreiðsla af þessu tagi er haldin I Bretlandi og segja fréttastofur að þvi sé að mörgu leyti erfitt að segja um hvernig þetta fyrirkomulag muni reynast. Eins og fyrr segir var kjörsókn víða mjög mikil. Aftur á móti bár- ust þær fréttir bæði frá Skotlandi og Norður-írlandi að þar hefði kjörsókn verið slæm og var af- ieitu veðri kennt um að nokkru. Jafnari og þéttari var kjörsókn i hinum þéttbýlu héruðum á Suð- vestur-Englandi. I fréttum frá Brussel i kvöld sagði að aðildarríki EBE fylgdust mjög gaumgæfilega með gangi mála í Bretlandi og öll helztu blöð í EBE-ríkjunum skrifa um þjóðar- atkvæðið i dag og leggja þar áherzlu á nauðsyn þess að sú sam- staða haldist innan bandalagsins sem verið hafi. Lundúnablöðin fjalla mjtíg um kosningarnar og Times segir að það sé hlutverk Breta að þjóna Evrópu sem mest og bezt. Bretum sé nauðsynlegt að fá að leggja fram sinn skerf, ekki síður en hugsa um sinn eigin hag. Hafi vonbrigði gert vart við sig í sam- bandi við umræðurnar umþjóðar- atkvæðagreiðsluna stafi það sennilega af því að of mikið hafi verið einblínt á það, hvað Evrópa gæti gert fyrir Breta og því ekki gefinn nógu mikill gaumur hvað Bretar geti gert fyrir Evrópu. — Keres Framhald af bls. 17 að hann skyldi ekki verða heims- meistari. Sem persóna var hann aðlaðandi, hæverskur maður og prúðmenni hið mesta. Fimmtán ár eru nú liðin síðan við hittumst fyrst á móti, var það í Ziirich og vinningshlutfall hans gagnvart mér er sennilega 5 á móti 1 og svo nokkur jafntefli. Leið okkar lá síðast saman á Tallinmótinu, sagði Friðrik, og enda þótt ég hefði heyrt að hann gengi ekki algerlega heill til skógar hvarflaði ekki að neinum að svo skammt væri til lokanna. — Allt of mikið Framhald af bls. 36 miklu meira úr býtum. Hins vegar hafa þau kerfi þann kost að menn afkasta eitthvað meira, en í mörgum tilvikum hefur verið bent á það, að þeirra álag sé ekkert miklu meira en tímavinnumannsins og því á maður svolítið erfitt með aó sætta sig við það.“ Jón Helgason sagði að þaó gæti verið erfitt fyrir verka- lýðsleiðtoga, sem þyrfti á fundi — eins og baknefndarfundin- um 22. mai — að gera upp við sig, hvort hann ætti að styðja ákveðna kröfugerð eða ekki vegna þess hversu flókið launa- kerfið væri. Fulltrúar almennu verkamannafélaganna væru kannski ekki mjög inni í þvi hvernig kerfi iðnaðarinann- anna væri og ættu því erfitt með að dæma slíkt í einni svipan. Ljóst væri að þarna væri mikill mismunur. Jón kvað ýmsa hafa gert sér grein fyrir þessari hættu og setið hjá við atkvæðagreiðsluna, en frá því hefði ekki verið skýrt eftir fundinn. „Ég held að það sé rétt, sem Guðmundur Garðars- son segir, að t.d. trésmiðir og fiskvinnslufólk á ekki samleið. Hins vegar tel ég að bónuskerfi eigi töluverðan rétt á sér og gat þvi ekki greitt atkvæði á móti þessu. Hins vegar óttast ég, að kominn sé inn í þessa samn- ingagerð sá snjóbolti, sem eng- inn ræður við, og þótt við séum að reyna að klóra í bakkann fyrir þá lægstlaunuðu, þá er það óðar horfiðL“ Runólfur Pétursson, formað- ur Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík, sagðist skilja kröf- ur ASl þannig, að átt væri við bónuskerfi láglaunafólksins í fiskiðnaði t.d. Hins vegar sagð- ist hann líta svo á að þessi ákveðna viðmiðunartala ætti alls ekki að koma inn í útreikn- ing á uppmælingu. Því ætti krafan alls ekki við iðnaðar- menn, heldur aðeins láglauna- fólk með ákvæðisvinnutaxta. Hermann Guðmundsson, for- maður Hlifar í Hafnarfirði, sagði að á síðasta fundi bak- nefndar og 9-manna nefndar- innar hefði baknefndin verið að tryggja meiri jöfnuð milli manna. Þar hefði verið sam- þykkt að taxa 6. taxta Dags- brúnar og fasta krónutölu er úr honum kæmi, er skyldi ganga upp úr og niður úr launastigan- um. „Mér kemur því þessi út- reikningur er Morgunblaðið skýrir frá ákaflega einkenni- lega fyrir sjónir," sagði Her- mann, „og hann stangast algjör- lega á við það sem lagt var fyrir okkur á baknefndarfundinum með útreikningsmeisturum okkar.“ Hermann var þá spurður að þvi hvort hann héldi að forustu- menn verkalýðshreyfingarinn- ar véfengdu þessa útreikninga. Hermann svaraði því til, að hann ætti ekki sjálfur sæti í 9-manna nefndinni og enginn þeirra hefði enn haft samband við sig út af þessu máli. „Jú, en ég verð að halda að þeir geri það,“ sagði Hermann. „Ég held að það hljóti að vera og þess vegna sé þessi dráttur á ýmsu um þessar mundir. 9-manna nefndin hlýtur að vera að skoða þessi mál nánar einmitt núna og það hefur verið boðaður fundur með baknefndinni á mánudag, þar sem þetta mál hlýtur að koma til umræðu." Jón Ingimarsson, formaður Iðju — félags iðnverkafólks á Akureyri — sagði, að sér væri ókunnugt um þessa útreikn- inga en bætti þvi við, að á ráð- stefnu sem haldin hefði verið innan ASl nú sfðast hefði verið talað um að gera eina kröfu um visitöluna, þar sem hún væri mæld inn á sjötta taxta Dags- brúnar og það fengju allir launaflokkar. Jón sagði enn- fremur, að hann hefði þá heyrt á forustumönnum iðnaðar- mannafélaganna, að þeir hefðu viljað láglaunabæturnar sem verkafólkið hefði verið að fá núna — fyrst 3.500 kr. og síðan 4.900 kr. — sem ekki hefði kom- ið á uppmælingartaxtana. Jón sagði, að ef þeir fengju það til viðbótar núna, þá gæti þetta dæmi farið langleiðina upp í 40—50%. Þessu kvaðst Jón hafa verið algerlega andvigur, því að hann teldi það meg- irfatriði að hækka laun hinna lægstlaunuðu. — Aðeins ósamið Framhald af bls. 5 erlendu ferðamönnunum út af flugvallaskattinum, og sagði Sveinn Sæmundsson, að heita mætti daglegt brauð að ferða- menn i flugstöðinni í Keflavík helltu úr skálum reiði sinnar yfir starfsfólkið þar af þessum sökum. — Sorsa Framhald af bls. 1 væru óhjákvæmilega þrúgandi væri nær óhugsandi að flokkur- inn myndi taka þátt i stjórnar- starfi. Sorsa sagði, að vegna mikillar innbyrðis flokkatogstreitú í land- inu hefði það verið ógerningur að fylgja skynsamlegri og kerfis- bundinni efnahagsstefnu og þvi væri rétt og eðlilegt að kjósendur létu í ljós vilja sinn i kosningum. — Portúgal Framhald af bls. 1 istum eftir að samtök þeirra höfðu handsamað þrjá hermenn fyrir fáeinum dögum og að sögn hersins voru þeir pyntaðir. Viður- kennt hefur og verið að sumir maoistanna sem fangelsaðir voru hafi sætt misþyrmingum í fangelsinu. Portucalense, áhrifamesta mál- gagn kirkjunnar í Portúgal, sagði í dag að líkamlegar pyndingar væru látnar líðast í landinu, ekki síður en andlegar. Lét blaðið I ijós furðu sina á því, að yfirvöld skyldu ekki grípa I taumana og stöðva þessa hættulegu þróun. Aftur á móti sögðu kommúnist- ar i vikuriti sinu Avante, að i- haldsöfl í Portúgal hefðu uppi mikla herferð til að reyna að ein- angra kommúnista og brjóta vald hersins á bak aftur. Kom fram i riti kommúnista, að jafnaðar- menn bæru höfuðábyrgð á hvern- ig að væri staðið í þessum málum. Ekki hefur verið til lykta leidd deila jafnaðarmanna við herfor- ingjana < i byltingarráðinu, en jafnaðarmenn hafa hótað að hætta aðild að ríkisstjórninni nema fullt og óskorað leyfi fáist til áhættulausrar útgáfu mál- gagns þeirra, Republica.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.