Morgunblaðið - 20.06.1975, Side 1

Morgunblaðið - 20.06.1975, Side 1
36 SÍÐUR 136. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 20. JtJNÍ 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sendiherra Banda- ríkjanna í Zaire var rekinn úr landi CIA sakað um að hafa stutt byltingartilraun Kinshasa Zaire 19. júnl Reuter. Rfkisstjórnin ( Afrfkurfkinu Zaire hefur rekið sendiherra Bandarfkjanna úr landi f kjölfar fregna um ad bandarfska leyni- þjónustan CIA hafi staðið að baki misheppnaðri byltingartilraun gegn Mobuto Sese Seko forseta landsins. Var sendiherrann, Dean Hinton, sem gegnt hefur emb- ættinu sl. 4 ár, kallaður á fund f utanrfkisráðuneytinu f Kinshasa f gærkvöidi og hann beðinn að vera úr landi á laugardag. Talsmaður bandariska utan- ríkisráðuneytisins, Robert Ander- son, sagði að Bandaríkjastjórn harmaði þessar aðgerðir f ljósi mikilvægra og góðra samskipta landanna og neitaði eindregið ásökunum Zaireblaðsins Salongo, sem skýrði frá því að CIA hefði staðið að baki hinni misheppnuðu tilraun. Sagði talsmaðurinn að Bandaríkjastjórn æskti þess að fá að kanna þær sannanir, sem stjórnin í Zaire hefði. Mobuto for- seti sagði í ræðu á fjöldafundi í dag, að hann hefði óyggjandi sannanir fyrir því að rifflum með langdrægum kíkjum og hljóðdeyf- um hefði verið dreift meðal Zaire- búa, sem að tilræðinu stóðu, en nefndi ekki hverjir eða hvaða þjóð hefði staðið að baki. Bandaríska stórblaðið New York Times skýrði frá því i dag að CIA hefði á árunum fyrst eftir 1960 ekki aðeins gælt við áætlanir um að myrða Fidel Castro forseta Kúbu, heldur einnig bróður hans Raoul Castro og náinn vin hans, Che Guevara. Blaðið hefur eftir ónefndum manni, sem segist hafa haft beinan aðgang að áætlunun- um, að þær hafi verið gerðar í sambandi við Svínaflóainnrásina vegna þess að Bandarikjamenn og kúbönsku útlagarnir, sem að inn- rásinu stóðu, hafi verið hræddir um að þremenningunum tækist að þjappa kúbönsku þjóðinni saman til gagnbyltingar. Skv. heimild New York Times kom þessi hugmynd fyrst upp er Eisenhower var enn forseti Bandaríkjanna og Nixon varafor- seti, en Svinaflóainnrásin var gerð rétt eftir að Kennedy tók við forsetaemhættinu. Brennandi bfll fyrir utan höll erkibiskupsins f Lissabon. Sfmamynd AP. Reiptog öryggissveitanna og herforingja um Republica Kommúnistar hafa það enn á sínu valdi Evensen í Washington Washington 19. júní AP. JENS Evensen, hafréttarmála- ráðherra Noregs, kom f dag til Washington frá Kanada til við- ræðna við bandarfska ráða- menn um 200 mflna efnahags- lögsögu. Evensen ræddi í gær við kanadfska ráðherra um málið, en ekkert var látið uppi um viðræðurnar að þeim lokn- um. Viðræðurnar f Washing- ton standa f dag og á morgun og heldur Evensen að þeim loknum heim á leið. Hann hef- ur þegar rætt við sovézka, brezka og fslenzka ráðamenn um 200 mílurnar. Framhald á bls. 20 Lissabon, 19. júnf. AP — Reuter. BYLTINGARRAÐ hersíns í Portúgal gaf f dag út yfirlýsingu, þar sem sagði að þeir menn, sem hefðu staðið að baki ólátunum f landinu undanfarið stefndu að þvf að koma á fót alræðisstjórn öreiganna f landinu og lýsti sig andvíga slfkum stjórnarháttum. Var f yfirlýsingunni sagt, að stjórnin styddi lýðræðisstjórn margra flokka. Byltingarráðið hefur setið á fundum frá því á föstudag og höfðu margir óttazt að að þvf væri komið að ráðið bannaði starfsemi stjðrnmála- flokkanna í landinu, en þessi yfir- lýsing bendir ekki til að svo sé, en hins vegar kemur ráðið aftur saman til fundar á morgun. Prentarar við dagblað jafnaðar- manna, Republica, héldu yfir- ráðum sínum yfir bækistöðvum blaðsins í dag, er hermenn úr öryggissveitum Iandsins hleyptu þeim inn i bygginguna í morgun, en meinuðu jafnaðarmönnum, blaðamönnum og flokksleiðtog- um, inngöngu. Jafnaðarmenn hafa mótmælt þessum aðgerðum harðlega en bíða enn átekta til að gefa byltingarráðinu möguleika á að standa við loforð sin um að Republica verði afhent jafnaðar- mönnum á ný og að útvega prent- urunum vinnu við önnur blöð, sem flest eru rekin af ríkinu. Mikið reiptog er milli herforingj- 'anna og öryggissveitanna, Copcon, og um leið og herfor- ingjarnir hafa lýst blaðið I hönd- um jafnaðarmanna hafa foringjar úr Copcon afhent prenturum lykl- ana að byggingunni. Er mjög erfitt að gera sér grein fyrir þvi sem þarna er að gerast. Portúgalskir hermenn fluttu í dag um 700 kaþólikka á brott und- ir vernd frá höll erkibiskupsins i Lissabon, sem höfðu flúið þangað undan æstum múgvinstri manna, sem gerði aðsúg að þeim. Kaþólikkarnir, flestir konur, urðu fyrir aurkasti og hrópuð voru að þeim gifuryrði, er þeim var ekið burtu í herbílum. Umsátrið hófst, er kaþólikkarnir reyndu að efna til mótmæla- Framhald á bls. 20 Rekur í átt til stríðs 99 r í Miðausturlöndum ’ ’ - segir Ford Minneapolis. Minnesota, 19. júni AP. FORD Bandarfkjaforseti sagði f dag f viðtali við blaðið Minnea- polis Tribune, að hreyfingin f Miðausturlöndum væri í átt til nýrrar styrjaldar og sagði forset- inn, að ef ekki tækist að stöðva þá hreyfingu yrði strfðið sem I kjöl- far fylgdi alvarlegra en nokkru Stofnun Norræna fjárfest- ingarbankans var samþykkt Stokkhólmi, 19. júni. NTB. • samstarfsrAðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sfnum i Stokkhólmi í dag stofn- skrá fyrir Norræna fjárfestingar- bankann og óskuðu þess jafn- framt, að bankinn gæti tekið til starfa 1. júlf á næsta ári. S’tofnfé bankans var ákveðið 400 milljón- ir sænskra króna og leggja Svíar til 45%, Danir 22%,Norðmenn og Finnar 16% hvor þjóð og Islend- ingar 1%. Er gert ráð fyrir að bankinn láni í fyrsta áfanga allt að 5 milljörðum sænskra króna, og er vonazt til að hann geti fjár- magnað mikinn hluta starfsemi sinnar með lánum frá olíufram- leiðsluþjóðunum. % Útlán bankans eiga að vera til fjárfestingar- og útflutningsáætl- ana, þar sem Norðurlöndin eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta. Ráðherrarnir lögðu á fundinum áherzlu á að fjárfestirigarþörf Norðurlandanna væri mjög mikil og mörg þeirra væru háð utanað- komandi fé til að standa straum af fjárfestingaráætlunum sínum. Þar sem áherzla er lögð á að bank- inn geti tekið til starfa 1. júli 1976, er liklegt að Norðurlanda- ráð þurfi að koma saman til auka- fundar í haust til að samþykkja stofnun bankans endanlega. Aætlunin um stofnun bankans var tekin upp á fundi forsætisráð- herra Norðurlanda í janúar sl. og Framhald á bls. 20 sinni fyrr og f kjölfar þess myndi koma algert og lamandi olfubann. Segir blaðið að þessi ummæli for- setans komi á óvart i Ijósi við- ræðna hans við Sadat Egypta- landsforseta i Austurriki fyrir skömmu og við Rabin forsætis- ráðherra Israels f Washington f fyrri viku. I viðtalinu sagði forsetinn orð- rétt að því er blaðið hermir: „Astandið f Miðausturlöndum er mjög hættulegt og gæti sprungið út í hörð átök hvenær sem er, og því lengur sem við látum reka án þess að hafast að, þeim mun hættulegri verður kveikjuþráður- inn. Við vinnum nú að lausn með öll Arabaríkin í huga þvi að ný styrjöld gæti orðið miklu verri en Yom Kippur stríðið, það yrði blóðugra, kostnaðarsamara og myndi óhjákvæmilega leiða til nýs olíusölubanns. Þess vegna verður að gera eitthvað, við get- úm ekki unað við stöðvun i samn- ingaumleitunum.“ I viðtalinu sagði forsetinn einnig, að enginn skyldi láta sér detta til hugar, að Henry Kissing- er léti af embætti áður en kjör- tímabil hans rennur út i janúar 1977. Meir Sarmi, aðalritari Verka- mannaflokks Israels, sagði að Framhald á bls. 20 Liggur rússneski björninn á línunni? Washington 19. júní Reuter. WASHINGTONBLAÐIÐ Washington Star sagði i dag að starfsmenn sovézka sendiráðs- ins í Washington hleruðu hugsanlega landssímasamtöl innan Bandaríkjanna. Sagði jlaðið að það hefði það eft- ir embættismönnum að Sov- étmenn gætu komizt inn i ör- bylgjusendingar gegnum loft- net á þak sendiráðsins. Um 70% bandariskra langlínusím- tala fara eftir örbylgjum. Þá sagði blaðið að Bandarikja- menn reyndu að gera slíkt hið sama í Moskvu, en símakerfið þar væri svo tæknilega lélegt, að það væri miklu erfiðara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.