Morgunblaðið - 20.06.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNI 1975
13
Þórður Jónsson,
Látrum:
Fýkur nú í
flest skjól
SVO sem kunnugt er, var á liðnu
ári sumstaðar úti á landsbyggð-
inni verulega skert símaþjónusta
frá þvi sem var.
Þetta þótti að vonum furðuleg
ráðstöfun, og verulegur snopp-
ungur I andlit okkar dreifbýlis-
fólks, og varð af óánægjuaida um
land allt og miklar umræður.
Þeim lauk að mestu með því að
hæstvirtur póst- og símamálaráð-
herra kom fram I fjölmiðlum og
lofaði að ráða bót á þessu með þvi
að stórauka neyðarþjónustu I
dreifbýlinu, og taldi upp nokkra
staði, sem áttu að fá vörslu alian
sólarhringinn, þar á meðal
Patreksfjörð. Þessu var fagnað,
og orð ráðþerrans tekin trúanleg
svo sem vera bar.
Nú er margan farið að lengja
eftir efndum, og enginn virðist
vita neitt um málið nema orð
hæstvirts ráðherra. Því vaknar sú
spurning, hvort hann hafi ekki
meint þetta, eða hvort hann hafi
bara verið að friða okkur dreif-
býlisfólkið, en því vil ég ekki trúa
fyrr en að fullreyndu.
Flugið er hér mjög mikilvægur
þáttur I okkar samgöngumálum
en eins og vitað er, þá er það
allstaðar mikið háð veðri, ekki
síst úti um landið, og ekki alltaf
hægt að koma eða fara samkvæmt
áætlun, heldur verður að láta vita
hverju sinni um flugið, út frá
hverri flugvallarafgreiðslu, til
þeirra sem ætla að nota flugið
hverju sinni, og þá vitanlega í
gegnum síma.
Nú er gengin í garð sumaráætl-
un Flugfélagsins, og vélar hingað
vestur hafa brottfarartíma frá
Reykjavik kl. 9, alveg á sama tíma
og siminn er opnaður á virkum
dögum. Það er því útilokað að láta
fólk vita um flugið hér i nágrenni
fyrr en eftir að vélin er farin frá
Reykjavik, og þá engin von til að
fólk, sem ætlar að hafa samband
við vélina, nái henni, þ.e.a.s. það,
sem langt á að. Þetta er ein afleið-
ing hinnar skertu símaþjónustu,
sem kemur mun verr við, þar sem
vegurinn sem aka þarf eftir er að
kalla ófær, eins og vegurinn úr
Örlygshöfn um Breiðavík að
Látrum. Er í ráði að biðja sama
hæstvirtan ráðherra að loka
honum fáist hann ekki lagfærður
án tafa. Má því segja að fokið sé í
flest skjól hjá okkur útnesjafólki
með öryggis- og samgöngumál.
Undirritaður ásamt fleirum
hafa þvi nokkurn áhuga á að vita
hvort hæstvirtur ráðherra ætlar
að standa við orð sín um bætta
simaþjónustu, og hvenær. Sendi
ég því hér með háttvirtum al-
þingismönnum okkar Vestfirð-
inga kveðju mina ef þeir mættu
þetta lesa, ásamt vinsamlegri
beiðni um að fá þetta ákveðið
fram, þvi hér er um að ræða stór-
mál fyrir okkur, sem búum fyrir
utan sjálfvirka simakerfið.
Látrum4/5. ’75.
Þórður Jónsson.
Handritasýning
í Árnagarði
STOFNUN Árna Magnússonar
opnaði handritasýningu I Arna-
garði 17. júní. Sýning þessi verð-
ur opin i sumar á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl.
14.00—16.00. A sýningunni eru til
sýnis ýmis þeirra handrita, sem
smám saman eru að berast heim
frá Danmörku. Sýningin er helg-
uð landnámi og sögu þjóðarinnar
á fyrri öldum. 1 myndum eru
meðal annars sýnd atriði úr is-
lenzku þjóðlifi, eins og það kemur
fram i handritaskreytingum.
óskar eftir starfsfólki:
SEYÐISFJÖRÐUR
HVERAGERÐI
INNRI NJARÐVÍK
ÓLAFSVÍK
Umboðsmenn óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu. Mbl. uppl. hjá umboðsmönnum og á afgr.
í síma 10100.
MARKHAM sturtuvagnar
Buröargeta
4.5 tonn.
Burðarmiklir hjólbarðar 10.00 x 16 8 strigalaga
Stálpallur og 43 cm há stál skjólborð.
Sérstaklega hentugir vagnar fyrir verktaka og bæjarfélög.
Eru nú fyrirliggjandi á mjög hagstæðu verði aðeins kr. 247 þús.
Hafið samband við sölumenn okkar sem fyrst.
Globusf
Lágmúla 5. Sími 81555
BáHH&BLAMB ÆSKAM
ÆSKAN er stærsta og fjölbreyttasta barna- og
unglingablaðið á íslandi í dag, yfir 600 blaðsíð-
ur. Æskan flytur ávallt mikið af hollum fróðleik,
innlendum og erlendum, og öðru skemmtilegu
lesefni við hæfi barna- og unglinga.
Síaukinn áskrifendafjöldi hefur gert ÆSKUNNI
kleift að vera seld á ótrúlega lágu verði. Nýr
áskrifandi, sem sendir greiðslu með áskriftar-
pöntun, fær meðan upplag endist einn eldri
árgang blaðsins í kaupbæti. Einnig hefur verið
tekinn upp sá háttur að selja útgáfubækur
ÆSKUNNAR beint af lager til áskrifenda blaðs-
ins langt undir venjulegu verði. Kynnið yður
meðfylgjandi og sannfærist um, að hér er
ekkert ofsagt.
Takmarkið er, að ÆSKAN ávinni sér það traust
og þær vinsældir, að hún verði keypt og lesin á
hverju barnaheimili i landinu.
Sýnið foreldrum ykkar og öðru venslafólki
þessa orðsendingu og fáið leyfi þeirra til að
gerast kaupendur strax í dag. Minnist þess, að
eftir því sem áskrifendum ÆSKUNNAR fjölgar,
verður blaðið stærra og fjölbreyttara. — Tak-
markið er, að ÆSKAN komist inn á hvert
barnaheimili landsins.
Verð árgangs 1 975 kr. 1 500.00.
Með fyrirfram þökk og öruggri vissu um ánægju-
leg viðskipti.
BARNABLAÐIÐ ÆSKAN
Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNAR.
Ég undirrit ...........óska að gerast áskrifandi að ÆSKUNNI.
Nafn: ...........................................................
Heimili: .......................................................
Póststöð: .................... .................................
Afgreiðslan: Laugavegi 56, sími 17336, pósthólf 14,
Reykjavík.
Miðnæturferð
með Akraborg
Kiwanisklúbburinn NES efnir til skemmtisiglingar
sólstöðunóttina 22. júní n.k.
Farið verður frá Reykja-
víkurhöfn (Sprengisandi)
kl. 21.00 laugardaginn
21. júní. Komið aftur kl.
2.00 eftir miðnætti.
Verð miðanna kr. 1.500.-
á mann, innifalinn matur,
„natmad" kl. 24.00.
Veitingar um borð, hljóm-
sveit leikur fyrir dansi.
Stangir og færi fyrir þá,
sem vilja, ef veður leyfir.
Leiðbeinandi Magnús
Valdimarsson, fyrrv. form.
Sjóstangveiðifélags
Reykjavíkur.
Ýmislegt fleira verður
til skemmtunar.
*
Allur ágóði af ferðinni
til líknarmála.
Upplýsingar um farmiða og fl. í síma 16160, 18418 og
15783.
Farmiðar afhentir I Heldverzlun V.H. Vilhjálmssonar s.f.,
Bergstaðastræti 13.
Nefndin
. >qt,ili i*? nnhif if* t! h ;i
• iM.qP. í 1 ófilíjiz íiiXBdöi i.'l i?i■ • i j i»