Morgunblaðið - 20.06.1975, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 20.06.1975, Qupperneq 15
MÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JUNI 1975 15 Við höfum haft samband við Rannsóknarstofnun landbún- aðarins og beðið þá um að hefja á þessu sumri tilraunir til að skera úr um áburðargildi skarna hér hjá okkur. Hingað til hefur borgin notað svo til allan skarnann frá sorp- eyðingarstöðinni, en þó selt nokkuð til einstaklinga. Skarn- inn hefur áburðargildi að þvf leyti, að í honum er fosfór og köfnunarefni, en ákaflega litið af kalí. Gildi hans er líklega fyrst og fremst fólgið i þvi, að hann mildar okkar köldu og ófrjóu jörð, og breytir gerð jarðvegsins. Þar með virðist hann gera gróðri auðveldara fyrir að safna til sín þeim áburði, sém borinn er í mold- ina. Tilraunin, sem hefst nú í sumar, ætti að skera úr því, hvort skarni getur orðið mark- aðsvara i stærri stil en nú er. — Það var ákaflega fróðlegt að kynnast þessari hlið mála í Bandaríkjunum, hélt Þórður áfram frásögn sinni. Ég hitti vísindamenn frá Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins í því landi. Þeir sögðu mér m.a., að við ræktun í Bandaríkjunum, sem mest hefur byggzt á tilbún- um áburði, hafi þeir nú orðið varir við vissan skort á snefil- efnum í uppskerunni. Þeir vildu halda því fram, að það væri vafamál hversu lengi væri hægt að rækta jörð án þess að gefa henni nokkuð lífrænt efni til baka, og lausnin getur orðið sú, þegar til Iengdar lætur að breyta sorpi og jafnvel skolpi í áburð. Markmið okkar hér með fyrrgreindum tilraunum hjá Rannsóknarstofnun landbún- aðarins ásamt mælingum og sundurgreiningu á sorpi, er að fá haldbærar niðurstöður um það, að hve miklu leyti við eig- um að stefna að endurvinnslu sorps. — En hvað um skolpið. Hvaða útvegur er þar? — Það skal tekið fram, að vandi okkar á þvi sviði er eng- inn í líkingu við það, sem stór- þjóðir búa við. I Philadelphiu kynntist ég þessum vanda eins og hann getur einna verstur orðið. Borgin stendur við Dela- Wareána, sem er á litinn eins og mórauð á í leys- ingum hér heima. Þar sá ég skolphreinsistöð sem er komin nokkuð til ára sinna, og að henni berst meira skolp en stöðin var hönnuð fyrir. Borgir ofar við ána voru farnar að menga ána meira en svo, að hægt væri að hreinsa úr henni neyzluvatn. Því var komizt að samkomulagi við þær um að tengja skolpkerfi þeirra þessari stöð. Piladelphia hefur því stað- ið andspænis því að þurfa að stækka skolphreinsistöðina Land er fyrir hendi á mýrar- fláka við hliðina á stöðinni, en í þennan mýrarfláka höfðu menn um árabil losað botnfall- ið, sem til féll í stöðinni. Síðan var því hætt og nú er botnfall- inu dælt í pramma, og farið með það 50 milur út á sjó úti fyrir strönd Delawarerxkis, og þvi hent í Atlantshafið. Vart verður langt að bíða þess, að bannað verði að henda slfku botnfalli i sjóinn. Með þetta í huga hefur Umhverfisstofnun Bandaríkjanna bannað Phila- delphiuborg að losa gamla botn- fallið, sem fyrir er í mýrardrag- inu, í sjóinn. Meðan svo er, er ekki hægt að losna við það, og ekki hægt að stækka hreinsi- stöðina, og þar með er komið gott dæmi um það, hvernig öfgar á hvorn veginn sem er, geta leitt mannskepnuna. Það er sem sé líka hægt að vera með öfgar í viðleitninni við að vernda umhverfið og mjög auð- velt að fara út í öfgar í mengun. En þarna er sem sagt á ferð mikið vandamál, hvernig á að losna við þetta. Ein aðferð er sú sem reynd hefur verið, að blanda þetta botnfall með kalki, og nota kalkið sem bindi- efni. Þanni má pressa teninga, sem notaðir eru sem undirbygg- ing í vegagerð. En þetta er ekki einhlít lausn, því vegagerðinni eru líka takmörk sett, þar sem svo geysilega mikið magn af þessu botnfalli er þarna. Þetta ér sem sagt mikill hnútur fyrir Philadelphiu. I Washington fræddist Þórð- ur af starfsmönnum Umhverf- isstofnunar um það, sem þeir eru með á prjónunum. I til- raunastöð landbúnaðarins í Beltsville rétt fyrir utan Washington eru þeir t.d. í sam- vinnu við Marylandríki með til- raun til að breyta botnfalli frá skolphreinsistöðvum í áburð. Aðferðin er sú, að þeir leggja út viðarkurl á flata jörð, síðan koma vörubílar með botnfallið og sturta því yfir viðarkurlið, sem liggur í löngum görðum. Hjólaskóflur með tætara fram- an á aka fram og aftur og hræra þessu saman.Við það fæst hröð gerjun og mikill hiti, og á þremur vikum er þetta orðið að mold, sem er alveg lyktarlaus, og hefur mikið áburðargildi. Síðan er þessi mold borin á akra, og fara fram tilraunir með ræktun á ýmsiss konar nytjajurtum, korni, grænmeti o.s.frv. Niðurstaðan virðist vera sú, að í fyrsta lagi fæst úr þessu ákaflega góður áburður, en menn verða að vera á verði gegn málmum, sem í skolpinu eru, einkum þungamálmunum cadmium og zinki. Það virðist þurfa að líða u.þ.b. ár þangað til jarðvegurinn hefur náð réttri uppbyggingu að nýju, þannig að slíkir mámar bindist í honum, og fari ekki nema í hóflegu magni f uppskeruna. — Ennfremur sá ég skolp- hreinsistöð í Seattle í Washing- tonriki, nýtízkulegt mannvirki, byggt árið 1966, segir Þórður Þorbjarnarson. Hér kvað við svolítið annan tón. Seattle er girt á aðra hönd af Puget-flóa, sem er langur og djúpur fjörð- ur og inni í miðri borginni er síðan Washington stöðuvatnið. Þarna var orðin mjög slæm mengun, sem fólk varð mjög vart við vegna þess að þarna nær byggðin alveg fram á strönd, og menn stunda mikið siglingar og annað sport. Sveit- arfélögin þarna, ásamt Seattle, ákváðu að hafa samvinnu um dýrar framkvæmdir til að bæta úr þessu ástandi. Var lagður á sérstakur skattur til að fjár- magna þessar framkvæmdir, nokkurs konar notendaskattur, sem nemur um 2'A dollar á meðaleinbýlishús á mánuði. Þessi ákvörðun var tekin með almennri atkvæðagreiðslu. Reist var nýtízkulég skolp- hreinsistöð, sem stendur á skaga út í Puget flóann í mjög fallegu umhverfi. Þarna fer fram svo kölluð fyrsta hreins- un, sem tekur um 70% af líf- rænum efnum úr skolpinu. Af- gangsvatnið er svo „klórerað" og sett þannig út í sundið á um 230 feta dýpi. Botnfallinu er dælt í stóra tanka og látið gerjast þar án þess að loft komist þar að. Við það myndast mjög mikið magn af metangasi, sem notað er til að knýja allar þessar geysi öflugu dælur sem nauðsynlegar eru í stöðinni. Þéttbýli þarna er ákaflega víð- lent, og þarna rignir nokkuð mikið, og þannig getur rignt í einum borgarhluta, þótt sól skíni í öðrum. I borginni er holræsakerfi, sem ekki skilur regnvatn frá öðru skolpi eins og háttar til í eldri hverfum Reykjavíkur. Því getur hol- ræsakerfið fengið ákaflega mikla álagstoppa. Og til að þurfa ekki að hleypa óhreins- uðu vatni út á álagstímum, hafa þeir komið upp tölvustýringu í sambandi við sjálfvirkar lokur í skolpkerfinu, og geta geymt þannig í sjálfu kerfinu skolp á meðan regnskúrir standa yfir. Þótt ótrúlegt sé, þá er þessi skolphreinsistöð svo falleg á að sjá og hreinlega um hana gengið að mest minnir á lista- safn. Ökunnugur myndi ekki hafa hugmynd um þá starfsemi sem þarna fer fram. — Og þá að lokum, Þórður, hvað er verið að gera hér til að losna við skolp frá þéttbýlis- svæðunum á viðunandi hátt? — Okkar vandi er í höfuð- Framhald á bls. 35 Franciskus-systra spítalinn I Stykkishólmi: Spltali, síðar barnaheimili og smábarnaskóli. - Nú væntanleg heilsugæzlumiðstöð fyrir Vesturland. - f spftalanum er einnig prentsmiðja kaþólsku kirkjunnará íslandi. Franciskus-systur minnast 40 ára starfs á Islandi UM þessa helgi minnast Franciskusystur i Stykkishólmi þess aS siSari hluta sumars eru liSin 40 ár frá því að fjórar systur ( reglunni stigu á land ( Stykkis- hólmi og hófu þar rekstur Franciskusspítalans. Þar með hófst það starf sem systurnar hafa unnið sleitulaust slðan, þjóðþrifa- og mannúðarstarf sem allir lands- menn komnir til vits og ára þekkja meira eða minna — þó eðlilega mest fólkið ( byggðunum á Snæfellsnesi. I Franciskusspit- alanum eru sjúkrarúm fyrir 45 sjúklinga, og þar eru nú 20 lang- vistarsjúklingar frá Kleppi. Spitalinn stendur nú á tíma- mótum, þvf framundan eru breyt- ingar og liggur nú fyrir að spítalinn verði heilsugæzlu- miðstöð fyrir Vesturland. Á þess- um tímamótum munu margir fulltiða Snæfellingar og fleiri minnast fyrstu systurinnar sem veitti hinum fámenna systrahópi forstöðu og varð fyrsta priórinnan við spitalann en það var systir Amanda. i tilefni þessara tímamóta kom Mbl. að máli við systur Hildigunni — Hildegunde eins og hún var skirð i heimalandi sinu, Hollandi. Hún hefur um árabil verið priórinna spitalans og farið af henni sérstakt orð. Hún skýrði svo frá i viðtali þessu, að Francisku- systur hefðu ákveðið að minnast þessarar 40 ára fslandsvistar reglusystranna með því að draga fána að hún og flagga fyrir sjálfum okkur." „Við vonumst fastlega til þess að biskup okkar dr. Hinrik Frehen, sem áður var prestur i reglu Montfortana, geti komið þvi við að syngja hámessu i kapellunni i spitalanum. Að öðru leyti verður afmælisins ekki minnzt á okkar vegum." Systir Hildigunnur sagði að Franciskus- reglan — sem er starfandi 1 tug- um þjóðlanda og telur i allt um 9000 systur, hefði frá stofnun byggt lif sitt og starf á fordæmi heilags Franz frá Assisi. — Nú eru i Franciskusreglunni hér og starfandi við spítalann 10 syst- ur frá Belgiu, tvær frá Hollandi og loks er bráðlega von á kanadiskri systur. Systir Hildigunnur benti á, að i bók Oscars rithöfundar Clausens „Á fullri ferð," væri mikinn fróðleik að finna um að- draganda þess að Franciskussyst- ur reistu spitalann. Hann getur þess að upphaflega hafi verið um þetta rætt þegar á árunum 1928—1930. Segir Oscar frá þvf, að þáverandi sýslumaður, Páll V. Bjarnason, hafi spurt sig hvort hann (Oscar) myndi ekki vilja at- huga möguleikana á þvi, að kaþólska trúboðið vildi reisa spitala i Stykkishólmi og það verður úr að Oscar fer til fundar við þáverandi biskup kaþólsku kirkjunnar, Meulenberg, og reifar málið við hann. Biskupinn skrifar Systir Hildigunnur — fyrrum príórinna. siðar til Vatikansins. Þá hafði þar með höndum málefni kaþólskra á Norðurlöndum van Rossum kardi- náli. Hann hafði komið hingað nokkrum árum áður. Um siðir svarar hann bréfi Meulenbergs biskups og tilkynnir honum að hann hafi falið Franciskussystrum i Brússel að stofna trúboðsstöð með spitala i Stykkishólmi. Hófst nú allumfangsmikill undirbúning- ur spitalabyggingarinnar. Undir- búningi þessum lýkur árið 1933 og fer Meulenberg biskup, eftir að hafa farið vestur einu sinni áður, til að athuga um staðhætti og staðinn fyrir spitalann. Oscar rit- höfundur fer með biskupi vestur og það verður úr að þeir gera samning um smiði spítalans og staðsetningu hans og var Meulen- berg biskup ánægður með staðar- valið. Smiðin hófst svo og var spitalinn tilbúinn árið 1935. — En dráttur á leyfi frá landlækni kom i veg fyrir að hann gæti tekið til starfa fyrr en um það bil ári siðar. — Þannig er greint frá að- dragandanum að byggingu spit- alans „Ég hef sjálf haft mikla ánægju af þvi að starfa hér á islandi," sagði systir Hildigunnur, en hún er nú aðhverfa af landi brott aftur, og um leið og hún hættir sem priórinna tekur hún upp sitt fyrra heiti innan reglunnar, „systir". í þessu samtali sagði systir Hildi- gunnur, að það væri ánægjulegt fyrir Franciskussystur að meðal þeirra er einn ein systranna, sem var meðal hinna fyrstu systra er til íslands komu en það er systir Maria Ernelia. „Franciskussystur hafa á öllum tima siðan við byrjuðum hér á landi verið Guði þakklátar fyrir það hve alltaf hefur valizt gott fólk til að starfa með okkur i spítalanum. Margt af þessu fólki verður okkur og systrunum minum ógleymanlegt, — en við skulum ekki nefna nein nöfn hér eða annarra þeirra fs- lendinga sem verið hafa okkur stoð og stytta. — Við getum að- eins sýnt þakklæti okkar i áfram- haldandi hjúkrunarstarfi i spital- anum. — Nú þegar ný priórinna kemur til landsins og tekur við minum störf- um verður það auðvitað að verða hennar fyrsta verk að fara t islenzkutima til séra Hákonar Loftssonar, eins og við hinar. — Nýja priórinnan heitir Angele Meyen og erfrá Belgiu. Sjálf hef ég tekið sliku ástfóstri við fsland eftir öll þau ár sem ég hefi starfað hér," sagði systir Hildigunnur, sem talar ágæta islenzku, — „að ég leyfi mér að ala þá von i brjósti, að ég eigi eftir að koma hingað aftur til frekari starfa fyrir mina systrareglu við það starf sem hún kann að fela mér hér." Viðeigandi er á þessu afmæli Franciskus-systra að vitna til orða dr. Bjarna Jónssonar yfirlæknis við Landakotsspítalann, er hann viðhafði ( blaðagrein, en hann komst að orði eitthvað á þá leið, að hann þekkti ekkert fólk annað en hinar kaþólsku systur, sem hefði gefið annarri þjóð allt lifs- starf sitt, án þess að ætlast til nokkurs endurgjalds. Sv.Þ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.