Morgunblaðið - 20.06.1975, Page 18

Morgunblaðið - 20.06.1975, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1975 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur. Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. simi 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80 Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 40,00 kr. eintakið Utfærsla fiskveiði- lögsögunnar í 200 sjó- mílur er brýnasta verk- efnið, sem Islendingar þurfa að glíma við á næst- unni. Útfærslan í 50 sjó- mílur fyrir þremur árum var mikilvægur áfangi, en þó er ljóst, að þrátt fyrir þá útfærslu hefur ekki að neinu marki dregið úr sókn útlendinga á miðin hér við land. Á sama tíma hefur fiskiskipastóll okkar vaxið allverulega og sóknarþung- inn því einnig aukizt af okkar hálfu. í framhaldi af þessu er rétt að minna á athyglisverðar upplýs- ingar, sem fram komu í við- tali við Sigfús A. Schopka, fiskifræðing, hér í Morgun- blaðinu á þjóðhátíðardag- inn. í þessu viðtali sagði Sig- fús A. Schopka, að á árabil- inu 1968 til 1972 heföi hlut- ur okkar í heildarafla þorsks á Islandsmiðum verið 61%. En þrátt fyrir útfærsluna hefði hlutdeild okkar árið 1973 verið nær hin sama, eða 62%. Hann upplýsir ennfremur, að meðalafli þorsks á miðun- um umhverfis landið hafi verið 471 þúsund lestir árið 1970 en hafi á síðasta ári verið kominn niður í 370 þúsund lestir, þrátt fyrir aukna sókn. Sigfús Schopka segir ennfremur að með friðunaraðgerðum og stjórnun megi auka afrakstursgetu þeirra stofna, sem nú eru ofnýtt- ir, og reikna megi með, að meðalársafli botnlægra tegunda á Islandsmiðum gæti orðið 800 til 850 þús- und lestir, þegar stofnarn- ir hafa náð sér eða rétt við. Árleg veiði nú er u.þ.b. 700 þúsund lestir. Þessir athyglisverðu staðreyndir sýna gleggst, hversu brýnt það er, að við náum sem fyrst fullum yfirráðum yfir 200 sjó- mílna fiskveiðilögsögu. Við eigum með okkar fiski- skipastól að geta nýtt upp á eigin spýtur þá veiðimögu- leika, sem hér eru fyrir hendi. Á hinn bóginn get- um við haft hag af því að tryggja okkur veiði- heimildir annars staðar eins og t.d. í Norður- sjónum. Af þeim sökum verðum við að vera reiðu- búnir til þess að taka upp viðræður við aðrar þjóðir um mjög takmarkaðar veiðiheimildir innan fisk- veiðilandhelginnar. I þess- um efnum sem öðrum þurf- um við að eiga vinsamleg samskipti við aðrar þjóðir. Matthías Bjarnason sjáv arútvegsráðherra ræddi um þetta atriði í við- tali við Morgunblaðið á þjóðhátíðardaginn og sagði þá m.a.: ,,Ég vil láta það koma hiklaust fram, að það er mín skoðun, að við Is- lendingar verðum að færa fiskveiðitakmörkin út í 200 sjómílur með það fyrst og fremst í huga að nýta land- helgina að öllu leyti fyrir okkur sjálfa. Aflamagn botnlægra fiska hefur farið minnkandi á Islandsmiðum þrátt fyrir aukna sókn og því er nauðsynlegt að við nýtum hina nýju fiskveiði- lögsögu að fullu og öllu.“ Þetta er afdráttarlaust það markmið, sem að er stefnt. Á hinn bóginn hefur sjávarútvegsráðherra sagt, að við ættum að vera reiðu- búnir til þess að ræða í fyllstu hreinskilni við aðrar þjóðir um mjög tak- markaða samninga að því er varðar aflamagn, veiði- svæði og samningstíma. Þessi hefur alltaf verið stefna Islendinga við út- færslu landhelginnar. I þessu efni skiptir höfuó- máli, að sú niðurstaða fáist, að verulega dragi úr sókn og afla erlendra þjóða á miðunum hér við land. Við verðum að opna möguleika á auknum friðunar- aðgerðum og tryggja okkur sjálfum stóraukna hlut- deild í aflanum, sem veiðist hér við land. Því takmarki höfum við ekki náð með útfærslunni i 50 sjómílur. Mikilvægt er þvi að hraða aðgerðum vegna þeirrar útfærslu, sem nú stendur fyrir dyrum. I ávarpi sínu til þjóðar- innar á 17. júní sagði Geir Hallgrímsson forsætisráð- herra m.a. um landhelgis- málið: „Þótt þróun haf- réttar hafi gengið okkur í vil, er lokaniðurstaða haf- réttarráðstefnunnar ekki fengin. Við kunnum því að mæta andstöðu, en það höf- um við fyrr reynt. Mark- mið okkar er að fá raun- verulega viðurkenningu sem flestra þjóða á yfirráð- um okkar yfir 200 sjómílna fiskveiðilögsögu. Styrkur þjóðarinnar út á við bygg- ist ekki sízt á því að við sýnum öðrum þjóðum sam- heldni okkar og getu til þess að leysa sjálfir vanda okkar inn á við.“ Víst er að á miklu veltur nú sem fyrr að þjóðin standi einhuga og samhent að því mikilvæga verkefni, sem framundan er. Með út- færslu fiskveiðilandhelg- innar í 200 sjómílur er verið að reka eina af mikil- vægustu stoðunum undir efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Efnahags- örðugleikarnir að undan- förnu ættu að hafa fært mönnum heim sannin um mikilvægi þessa máls. Enginn má því láta bilbug á sér finna þó að á móti blási. En nú sem fyrr hljótum við að stefna að friðsam- legri lausn á þessari ára- tugagömlu þrætu um fisk- veiðiréttindin. Markmið okkar er skýrt og augljóst og frá þvi verður ekki hvikað. En vitaskuld erum við aðeins menn að meiri, ef við stöndum svo að verki, að þessu takmarki verði náð í sátt við aðrar þjóðir. Æsingarnar geta verið jafn hættulegar úr- tölunum. Þá staðreynd er nauðsynlegt að hafa í huga. Æsingarnar jafn hættulegar úrtölunum ih 'e/ /77/ liSi \æi k n in ga, r * 1 J 1 NÆSTU blöðum Morgunblaðsins munu birtast greinar um heimilislækningar, sem skrifaðar eru af nokkrum velþekktum læknum. Að beiðni ritstjóra Morgunblaðsins rita ég nokkur formálsorð. Með sanni má segja að heimilislækningar hafi verið stundaðar frá alda öðli. Fyrr á tfmum voru slfkar lækningar nefndar húsráð, sem reynslan hafði kennt alnienningi, þénanleg við ýmsum meinsemdum. Þeir aðilar er gáfu húsráð voru læknar þeirra tíma. Síðan er þekking jókst myndaðist stétt lærðra manna þ.e. læknastéttin, sem sakir kunnáttu leysti betur vanda sjúklinga en greinargott alþýðufólk gat gert. Allt fram á þennan dag hafa læknar starfað sem einyrkjar. Eins og annar einyrkjabúskapur í flestum atvinnu- greinum hlýtur slfkur rekstur að standa höllum fæti gegn hópsamvinnu. Hér kemur til að einn maður býr ekki yfir allri þeirri þekkingu er læknisfræðin hefur fram að bjóða og einnig að margar aðrar heilbrigðis- stéttir hafa haslað sér völl á sviði heilbrigðisþjónust- unnar við hlið lækna. Á ýmsum sviðum hafa þessar stéttir þekkingu fram yfir lækna og geta jafnframt unnið mörg störf er læknar sinntu áður. Þessi þróun hefur orðið m.a. til þess að upp hafa risið heilsugæslustöðvar þar sem margir læknar starfa við hlið hinna ýmsu heilbrigðisstétta. Vissulega verður þessi breyting ekki á einum degi og ýmsir eldri læknar hafa eðlilega viljað hafa allan vara á. Ljóst er þó að gegn þessari breytingu á heilbrigðis- þjónustunni er ekki hægt að sporna. Rfka áherslu ber þó að leggja á, að ofannefnd breyting verði ekki til þess að sambönd fólks við eigin heimilislækna rofni meira en góðu hófi gegnir. Við álftum að svo muni ekki verða en m.a. í þeim tilgangi eru eftirfarandi greinarflokkar ritaðir. Ól. Ólafsson. Upphaf skipidegra kekninga á Is- landi og þróun heimiUslækninga eftir Jón Gunnlaugsson lækni Aðeins fimmtung þess tíma, sem þjóðin hefur lifað í landinu, hefur hún getað leitað til læknis, ef sjúkdóm eða slys bar að hönd- um, og þó miklu styttri tíma, sem hægt er að tala um verulega þjón- ustu í þeim efnum. LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ STOFNAÐ_____________________ Margir tímamótadagar eru í sögu lands og þjóðar. 17. júli 1760 er einn þeirra. Þann dag ríður Bjarni landlæknir Pálsson frá Þingvöllum heim til sín að Bessa- stöðum. Hann hafði þá daginn áður fengið birt embættisskilriki sin á Alþingi, en veitingu fyrir embætti sínu hafði hann fengið í Kaupmannahöfn þá um veturinn. Bjarni var fyrsti Islendingur- inn, sem jokið hafði embættis- prófi í læknisfræði, Abraham íslenzkra lækna, eins og prófessor Guðmundur Hannesson orðaði það. En áður en hann lauk em- bættisprófi, hafði hann lengi fengizt við lækningar hér á landi, sérstaklega í rannsóknarferðum sínum um landið með Eggert Ólafssyni, því að hann hafði frá unga aldri verið hneigður fyrir að líkna sjúkum. Þar með var hinn sjálfsagði réttur íslenzkra karla og kvenna, sem fengizt höfðu við lækningar, úr gildi fallinn, en sú fylking var stór, allt frá ókrýndum konungi þeirra, Hrafni Sveinbjörnssyni. FYRSTI SJUKLINGURINN En allri vegsemd fylgir vandi nokkur. Bjarni reið ekki einn frá Þingvöllum. Magnús Gíslason, amtmaður, hafði beðið hann að taka þaðan með sér sjúkling, Eyjólf Jónsson úr Rangárvallasýslu. Eyjólfur Jónsson var því fyrsti sjúklingur- inn, sem íslenzkum Iækni var falinn til umsjár. Frá þeim tíma er því samband þeirra, hins sjúka og læknisins. Nú hefur það varað í 214 ár og aldrei rofnað, þótt á ýmsu hafi gengið og leið oft torsótt. Hvað hrærzt hefur í huga Bjarna landlæknis, er hann reið frá Þingvöllum með hinn sjúka mann, sem amtmaður hafði falið honum til lækningar, vistunar og umönnunar, er hvergi skráð. En hann hefur hlotið að hugsa til aðstöðunnar, sem ekki gat verið uppörvandi. Hann þá ókvæntur og húsakynni á gamla valds- mannssetrinu hin hrörlegustu og sízt til þess fallin að hýsa sjúka. En ekki var úr háum söðli að detta. Fyrir voru í landinu aðeins gömlu holdsveikraspítalarnir, hinar ömurlegustu vistarverur, skjól nokkurra hinna verst settu af umkomulausum holdsveikum, þeirra, sem ekki gátu flakkað, og þó aldrei nema lítils hluta þeirra. Þannig hófst þá starf hins fyrsta lærða læknis á Islandi, mikils gáfu- oglærdómsmanns, en um fram allt öðlings og mann- vinar. Hann var þá maður á bezta aldri, margfróður með brennandi áhuga á hvers konar viðreisn landsins. Hann hlaut að vita af kynnum sínum af landi og þjóð, að hverju hann gekk, svo langt sem mannleg framsýni getur skyggnst inn í óráðna framtíð. Og hlutu ekki margra augu að mæna til hans og vonir margra að vera bundnar honum, sem einn hafði þekkinguna og einn var út- nefndur til þess að líkna hinum sjúku. FJÖLGUN LÆKNA_________________ 1 skipunarbréfi var Bjarna meðal annars falið að annast læknakennslu og útskrifa a.m.k. 4 lækna, einn fyrir hvern lands- fjórðung, og því starfi auðnaðist honum að ljúka, auk þess sem hann kenndi 11 öðrum ungum mönnum læknisfræði að ein- hverju leyti og 15 ljósmæðrum. Hann hafði auk þess hjá sér sjúklinga, fyrst á Bessastöðum og svo ætið þau 16 ár sem hann starf- aði i Nesi, allt til dauðadags. Þar kom hann upp sérstöku húsi fyrir hina sjúku, raunverulega fyrsta vísí að almennu sjúkraskýli á ís- landi. Hann ferðaðist líka mikið til þess að vitja sjúkra og segir í ævisögu hans, „að trautt héldu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.