Morgunblaðið - 20.06.1975, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JUNl 1975
Sellóleikarinn, terracotta, eitt verka Gerðar Helgadóttur á sýningunni.
Myndhöggvarafélagið í Reykjavík:
Fjölbreytt listsýn-
ing í Keflavík
I IÐNSKOLANUM f Keflavík
stendur nú yfir listsýning Mynd-
höggvarafélagsins f Reykjavík.
Sýning þessi var opnuð 14. júnf
s.I. og lýkur sunnudaginn 22. júnf
n.k. og er hún opin daglega kl. 16
til 22. A sýningunni eru 135 verk
en sýnendur eru 32.
Sýning þessi er mjög fjölbreytt
en á henni eru t.d. höggmyndir,
olíumyndir, vatnslitamyndir,
grafík, glermyndir, teikningar og
teppi. Þær greinar myndlistar,
sem ekki eiga fulltrúa á þessari
sýningu eru mósaikverk og al-
Gjöf til Litlu-Grundar
NÝLEGA afhenti Kristján Mikael
Jónsson í Edmonton 1 Albertaríki
i Kanada gjöf til Litlu-Grundar,
kr. 43.075.— til minningar um
hálfsystkini sín, Mörtu S. Jóns-
dóttur, Ölöfu Jónsdóttur og Stef-
án B. Jónsson. —
Concorde í heimsókn
BREZK-franska þotan hljóðfráa,
Concorde, lenti á Keflavíkurflug-
velli kl. 7.55 í gærmorgun, en vél-
in var á venjulegu æfingaflugi. 1
Keflavík haföi vélin frekar
skamma viðdvöl, því þaðan fór
hún aftur kl. 9.17 til Dakar í Af-
ríku. Þá leið átti hún að fljúga á
tvöföldum hraða hljóðsins og í 56
þúsund feta hæð.
Flaug til Venusar
Moskva 14. júni Reuter
SOVÉTRlKIN skutu í dag á loft
flaug, sem á að fara til reiki-
stjörnunnar Venusar, og er það
önnur flaugin á fáum dögum.
Aftur á móti hefur mjög fátt verið
upplýst um hver aðaltilgangur
þessara rannsóknarferða er, en
talið er að kapp verði lagt á hita-
rannsóknir.
AL(,I,VSIN(,ASÍMINN ER:
^22480
J 3H*rj)iinblaí>iö
frescomyndir. Menntamálaráð Is-
lands styrkir sýningu þessa af því
fé, sem veitt er til listkynningar,
en einnig styrkir Keflavíkurbær
sýninguna.
Myndhöggvarafélagið hefur áð-
ur haldið svipaðar sýningar, þó
ekki jafn fjölbreyttar, í Vest-
mannaeyjum, á Isafirði og á Ak-
ureyri. Þá efndi það til útisýning-
ar í Austurstræti I Reykjavík í
fyrrasumar. Næsta verkefni fé-
lagsins verður að koma upp úti-
sýningu I Austurstræti á næsta
ári og er það von félagsins að þar
verði á ferðinni góð sýning.
Sem kunnugt er fékk Mynd-
höggvarafélagið aðstöðu á Korp-
úlfsstöðum og hefur nú verið unn-
ið að gerð aðstöðu en þessa stund-
ina vantar fjármagn. Þarna verð-
ur aðstaða til að vinna að gerð
stórra verka. Þá verða þarna einn-
ig tvær litlar fbúðir ætlaðar fyrir
erlenda gesti.
Á sýningunni í Keflavík er
Gerður Helgadóttir, myndhöggv-
ari heiðursgestur sýningarinnar
og vill félagið á þennan hátt
heiðra minningu þessarar merku
listakonu og eru fimm verk henn-
ar á sýningunni.
FÉLAG Islendinga f London
minntist þjóðhátfðarinnar 17.
júnf s.l. með samkomu að St.
Ermins hotel f London. Ræðu-
maður dagsins var Birgir Kjaran
og f fróðlegu erindi gerði Hann
sérstaklega að umtalsefni dvöl
þekktra Islendinga f Lundúnum
fyrr á tímum, allt frá Agli Skalla-
grfmssyni til þeirra er núlifandi
muna. A samkomunni afhenti
sendiherra tslands f London,
Nfels P. Sigurðsson, Magnúsi
Magnússyni rithöfundi og sjón-
varpsmanni riddarakross fálka-
orðunnar, sem forseti Islands hef-
ur sæmt hann fyrir landkynning-
arstarf og fl. Var Magnúsi sam-
fagnað og árnað heilla með viður-
kenningu þessa, sem hann þakk-
aði og kvaðst taka við sem fslend-
ingur búsettur f Skotlandi.
Að borðhaldi loknu spiluðu fé-
lagar úr hljómsveitinni Change
— Iþróttir
Framhald af bls. 34
barðist vel og reyndi sífellt að
byggja upp spil, auk þess sem
hann var að vanda hættulegur
innf og við vítateiginn. Ekki
reyndi mikið á Guðmund Þor-
björnsson en hann vann vel úr því
sem hann fékk. Vörnin hafði lifið
að gera i fyrri hálfleik en I þeim
seinni lenti hún stundum í erfið-
leikum þegar Eyjamenn fóru að
sækja stlfar.
Miklu meira mæddi á Ársæli i
marki IBV en kollega hans Sig-
urði Dagssyni og hlutverkinu skil-
aði Arsæll með prýði, ef mark
Atla er þó undanskilið. I vörninni
vakti Valþór Sigþórsson athygli,
hann virðist vaxa með hverjum
leik. Þá átti Örn sinn bezta leik í
sumar. I heild má segja að Vest-
mannaeyjaliðið sé að ná sér á
strik eftir slæma leiki I byrjun
mótsins.
I STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur 19. júní. Is-
landsmótið 1. deild. Valur — IBV
2:2 (0:0).
Mörk Vals: Atli Eðvaldsson á
60. minútu og Guðmundur Þor-
björnsson á 80. mínútu.
Mörk IBV: Örn Óskarsson á 55.
og 85. minútu.
- Unnið af kappi
Framhald af bls. 3
þannig að hægt verði að hleypa
vatni á aðalæðina i ágúst-
september. Þá verða þar tengd
inn á öll þau hús sem tilbúin
verða á þeim tíma f vesturbænum,
eða um 60% húsanna.
Þriðji áfanginn er svo norðan
Borgarholtsbrautar og vestan
Urðarbrautar og er nú langt kom-
ið með að leggja hitaveituna i
aðalgöturnar — Holtagerði og
Skólagerði. Siðasti áfanginn er
norðan Borgarholtsbrautar en
austan Urðarbrautar. Þetta svæði
er búið að bjóða út og hefðu átt að
vera hafnar þar framkvæmdir
fyrir u.þ.b. hálfum mánuði, en
verkið hefur tafizt. Munu fram-
kvæmdir þar hefjast nú næstu
dagana.
— Profumo
Framhald af bls. 17
Skopmyndateiknarinn og rit
höfundurinn Osbert Lancaster
var sleginn til riddara. Skop-
myndir hans hafa birzt árum
saman á forsíðu Daily Express.
Peter Ustinov var einn
margra leikara sem voru
heiðraðir og fær titilinn COBE.
Þann titil fengu einnig tveir úr
hópi annarra blaðamanna sem
voru heiðraðir: A.M. Rendel,
sem nýlega hætti störfum hjá
The Times þar sem hann
skrifaði lengi um milliríkjamál,
og John Russek, listagagnrýn-
andi sem nú starfar við The
New York Times.
Ýmsir íþróttamenn voru
einnig heiðraðir, svo og átta
sem unnu við björgunarstörf
éftir slysið í Moorgate-
járnbrautastöðinni.
og var dansað af miklu fjöri fram
eftir nóttu eftir ágætri hljómlist
þeirra félaga.
Formaður félagsins, Ólafur
Guðmundsson, stjórnaði samkom-
unni en undirbúningur var í
höndum félagsstjórnar, sem í eru
auk formanns Hulda Whitmore,
Helgi Ágústsson, Hans Kr. Arna-
son og Tryggvi Pálsson.
Islendingafélagið heldur al-
mennar samkomur 17. júní,
þorrablót og Islenzkar jólatrés-
samkomur barna um áramót. Þá
skipuleggur það einnig hópferðir
eftir því sem við verður komið og
á síðasta ári ferðuðust þannig um
100 manns til Islands til þátttöku
I þjóðhátíðarhöldunum og einnig
I jólaheimsóknir. Fjöldi fyrir-
spurna og óska um upplýsingar
varðandi Island berast félaginu
og er þeim sinnt bréflega, með
viðtölum eða erindaflutningi.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
aðgerða gegn árás og yfirtöku
kommúnista á útvarpsstöð
kaþólskra í Portúgal. Mörg
þúsund vinstri menn gerðu þegar
aðsúg að þeim og særðust 12
kaþólskir menn í átökunum áður
en þeim tókst að flýja til biskups-
hallarinnar. Mikil spenna rikir nú
i Lissabon og segja stjórnmála-
fréttaritarar ógerning að spá um
framvindu mála.
— Ford
Framhald á bls. 20
flokksstjórnin hefði samþykkt
kort yfir endanleg landamæri
Israels eftir friðarsamninga við
Araba, sem Rabin forsætisráð-
herra væri skyldugur að virða svo
og aðrir ráðherrar flokksins í
rikisstjórninni. Helztu atriði
kortsins eru á þá leið, að innan
landamæranna eru Golanhæðir
og Gazasvæðið, Jórdania verður
öryggislandamæri Israels, mögu-
leikunum á samningum um yfir-
ráð yfir vesturbakka Jórdanár er
haldið opnum svo og yfir Sharm
E1 Sheikh á suðurodda Sinai-
eyðimerkurinnar og mjórri land-
ræmu við austurströnd Aqaba-
flóa. Fréttamenn telja að kort
þetta eigi eftir að verða opinbert
kort ríkisstjórnar landsins, þar
sem Verkamannaflokkurinn ráði
lögum og lofum innan stjórnar-
innar, en hins vegar þarf meiri-
hluta I þinginu til að samþykkja
það og þar hefur flokkurinn ekki
meirihluta. Astæðan fyrir því að
kort þetta er lagt fram er talsverð
gagnrýni á stjórn landsins undan-
farið fyrir að hafa ekki lagt fram
ákveðnar tillögur að friðarsamn-
ingum við Araba.
Sarmi sagði, að ef Arabarikin
höfnuðu þessu korti algerlega
myndi slitna upp úr friðarum-
leitunum, en sagði að ef Arabar
kæmu með einhverjar gagn-
tillögur myndu ísraelar að sjálf-
sögðu kanna þær.
— Evensen
Framhald af bls. 1
Knut Frydenlund utanríkis-
ráðherra Noregs sagði í Lund-
únum I gær, að loknum við-
ræðufundi sinum með James
Callaghan utanríkisráðherra
Breta, að Norðmenn undir-
byggju nú útfærslu i 200 míl-
ur, og myndu innan skamms
hefja viðræður við aðrar þjóðir
um útfærsluna. Hann sagði
ekki hvenær af útfærslunni
gæri orðið.
— Fjárfestinga-
banki
Framhald af bls. 1
hafa embættismenn siðan unnið
að útfærslu hennar og á fundin-
um i dag lá endanleg tillaga fyrir,
sem nú hefur verið samþykkt.
Hugmyndin um þennan banka
hefur mætt nokkurri andstöðu
meðal stjórnarandstöðuflokkanna
á Norðurlöndunum og hefur
Hægriflokkurinn i Noregi
einkum verið andvigur hugmynd-
inni.
- Tannlækningar
Framhald af bls. 2
leitast við að gera við tennur I 13
ára börnum, eftir þvf sem aðstæð-
ur leyfa. Skðlabörn, sem f vetur
voru f 7. bekk (13 ára börn ) og
enga tannlæknaþjónustu hafa
fengið hjá skólatannlækningum,
skulu hafa samband við þann
skólatannlækni, sem þau voru hjá
f 6. bekk f viðkomandí skóla til að
fá staðfest, hvort unnt verði að
veita þeim tannlæknaþjónustu
hjá skólatannlækni eða hvort þau
megi snúa sér til tannlækna 'utan
skólatannlækninganna.
Unglingar, 14 — 15 ára, hafa
aftur á móti rétt til að leita hvers
þess tannlæknis, sem er aðili að
samningi við tryggingarnar (sér-
fræðingar I tannréttingum eru
það ekki), en þurfa að leggja út
Vel heppnuð samkoma
r
Islendinga í London
kostnaðinn gegn endurgreiðslu
að fullu hjá S.R.
Reikningar fyrir tannviðgerðir
13 ára barna, sem skólatannlækn-
ar geta ekki annað og heimilað
hefur verið af skólatannlæknum
svo og reikningar 14 og 15 ára
barna, sem nú hefur verið heimil-
að að leita til annarra tannlækna,
sbr. hér að framan, verða við
framvfsun greiddir að fullu hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavfkur.
— Indira
Framhald af bls. 17
skurðinum en samkvæmt honum
er henni bannað að gegna opin-
beru embætti í sex ár. Lögfræð-
ingar hennar segja að þeir muni
fyrst i stað einbeita sér ao því að
fá þennan frest framlengdan.
Lögfræðingar Raj Narain, sósía-
listaforingjans sem stefndi frú
Gandhi, fóru hins vegar fyrir rétt
í dag f Allahabad til að reyna að
fá hnekkt úrskurðinum um 20
daga frestinn. Þeir segja að frú
Gandhi hafi fengið frestinn á
röngum forsendum þar sem því
hafi verið haldið fram að hann
væri nauðsynlegur svo að
Kongressflokkurinn gæti kosið
nýjan leiðtoga en I þess stað hafi
flokkurinn notað frestinn til að
sameinast um frú Gandhi.
— Skyldu-
sparnaður
Framhald af bls. 3
yfir 20% af sparimerkjunum hafi
ekki komið I leitirnar við síðustu
árslok.
„Meginhluti þessara verðmæta
er sparendum sennilega
glataður,“ segir ríkisskattstjóri,
„annaðhvort týndur eða farinn
forgörðum á annan hátt, enda er
erfitt fyrir suma unglinga að
botna í „kerfinu" eða gera sér
grein fyrir raunverðmæti merkj-
anna.“
— Flugliða-
samningar
Framhald af bls. 36
ir að því að koma slíkum allsherj-
arsamningum við flugliða í kring
en hins vegar yrði slikt ekki gert
nema með samþykki viðkomandi
stéttarfélaga. Benti örn á, að þótt
Flugleiðum tækist að koma síð-
asta gildisdegi allra þessa samn-
inga á sama dag, líkt og nú væri
miðað við 1. febrúar á næsta ári,
þá væri það þó undir hælinn lagt
og færi eftir mati hvers þessara
stéttarfélaga hvenær þau vildu
semja. Félögin gætu t.d. dregið
samningana von úr viti, t.d. með
þvi að gera svo háar kröfur að
útilokað væri að koma til móts við
þær en síðan þegar kæmi nær að
háannatímann gætu fulltrúar
þessara félaga boðað verkfall með
litlum fyrirvara í skjóli óbilgirni
fyrirtækisins. Benti Örn einnig á,
að sumir af þessum hópum væru
auk þess i þeirri aðstöðu að hafa
önnur en engu áhrifaminni ráð en
verkföll til að knýja fram kröfur
sinar.
Morgunblaðið leitaði ennfrem-
ur álits Jóns H. Bergs, formanns
Vinnuveitendasambands Islands,
á samningunum við flugmenn en
hann vildi ekkert láta hafa eftir
sér um þá.
— Lögbann
Framhald af bls. 2
mannafélagsins var völlur-
inn upphaflega leigður
Vængjum um mitt sumar
1971 og var leigutíminn
eitt ár. Uppsagnarfrestur
var eitt ár. Hestamanna-
félagið telur sig hafa sagt
samningum upp með lög-
legum fyrirvara og kveðst
hafa óskað eftir viðræðum
við Vængi um nýjan samn-
ing, án árangurs. Grípur
félagið nú til fyrrnefndra
aðgerða til að knýja fram
úrslit í málinu og nýja
leiguskilmála.