Morgunblaðið - 20.06.1975, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.06.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNt 1975 21 VALDIMAR J. MAGNUSSON: A TlMUM mikilla sviptinga í þjóðfélaginu vegna kjarabaráttu launþega fer ekki hjá því að hinn almenni áhorfandi leiði hugann að kjarabaráttu undanfarinna ára og möguleikum á hverjum tima til að veita auknar kjarabætur og tryggja kaupmátt þeirra. HVAÐHEFUR AUNNIZTA UNDANFÖRNUM ARUM? Ef litið er til baka yfir 10 ára tímabil kemur i Ijós að meðaltals- laun verkamanns hafa 7,5 faldast miðað við (meðaltalslaun) 1964. Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað frá 1. janúar 1964 5,8 falt, og er því kaupmáttar- aukning 30% á þessu tímabili miðað við 1. maí s.I. ao i» ♦ ® —> V) ■2 K ?7» 5 3 Vfsiti launa = E £ « S £ 1964 100 100 0 1965 115 112 2,7% 1966 137 122 12,3% 1967 145 131 10,7% 1968 156 145 7,6% 1969 180 187 +3,7% 1970 225 211 6,6% 1971 260 225 15,6% 1972 344 248 38,7% 1973 404 303 33,3% 1974 607 433 40,2% 1975 757 577 31,2% Af meðfylgjandi töflu um Hug- leið- ingar um kjaramál en með mestu ellilífeyrisréttind- um bæri honum 60% af 27.818 kr. meðallaunum sínum siðastliðin 5 ár, eða 16.691 á mánuði í ársbyrj- un 1975, ef hann hætti störfum, sem samkvæmt þvi eru aðeins 32,7% launa í síðasta starfsmán- uði. Miðað við sama hraða verðbólg unnar mundi kaupmáttur þessa lífeyris skerðast um 67% á næstu fimm árum og kaupmáttur hans jafngilda 5.600 kr. á verðgildi í ársbyrjun þessa árs, eða 11% af siðustu mánaðarlaunum launþeg- ans. Þróunin mundi síðan halda áfram i sömu átt og eyða þeim réttindum í reynd að fullu á 10—12 árum, sem til hefði verið stofnað með samanlögðum greiðslum í 30 ár. Nú hafa forustumenn launþega viðurkennt þessa staðreynd með þvi að krefjast þess af ríkisvald- breytingar á vísitölu launa og visi- tölu framfærslukostnaðar, sem teknar eru upp úr Hagtlðindum, má sjá þær breytingar sem verða á kaupmætti launa til hækkunar og lækkunar á umræddu tlmabili. EkK.i er ólíklegt að hægt væri að útbúa sambærilega töflu yfir af- komu þjóðarbúsins á sama tíma til að leiða getum að þvi hver hafi verið raunveruleg geta þess til raunhæfra kjarabóta. Ef litið er frekar á töfluna má sjá hægfara breytingar á tímabil- inu 1965—1971 sem þó endur- speglar efnahagsörðugleika þjóð- arinnar á árunum 1968 og 1969, síðan virðist stigið risastökk fram á við á árinu 1972, sem þó virðist ekki hafa tekizt að viðhalda á árinu 1973. Arið 1974 endurspegl- ar febrúar-samningana, sem allir voru sammála um að hefðu verið algjörlega óraunhæfir, og því ekki eðlilegt að kaupmáttur þeirra héldist. Allt það sem hefur verið ritað og rætt um þessi mál á undan- förnum árum hefur gengið í þá átt, að benda á þær afleiðingar sem ákvæði um sjálfkrafa hækk- un kaups til samræmis við hækk- un verðlagsvísitölu hefði í för með sér. Allir launþegar þekkja þann vítahring sem skapazt hefur sem afleiðing þessa, þ.e. kaup- hækkanir — sjálfvirk hækkun landbúnaðarvara — aðrar verð- hækkanir — hækkun framfærslu og kaupgjaldsvisitölu — hækkan- ir launa með eða án verkfalla — gengislækkun. Þar sem allur almenningur hef- ur um langt árabil gengið i lífsins skóla og lært verðbólgu-hagfræði efnahagskerfis okkar, ættum við að vera orðin velmenntuð á þessu sviði. öllum hugsandi borgurum hlýtur að vera ljóst, að rauntekjur almennings hljóta að ákvarðast af ytri aðstæðum svo sem aflabrögð- um, viðskiptakjörum okkar á er- lendum mörkuðum, bæði þess sem við seljum og hins sem við þurfum að kaupa, tiðarfari og ýmsu öðru. Launakjör sem ekki taka mið af ytri aðstæðum þjóðfélagsins hljóta að skapa verðbólgu, og sú verðbólga hlýtur að verða því stórfelldari sem kjarasamningar eru óraunhæfari. Hinu sjálfvirka kerfi má likja við mann sem tekið hefur lán með okurvöxtum, um tíma ræður hann við að borga vextina, en siðan minnka tekjur tímabundið, og þá skeður annað tveggja lánadrott- inninn fellst á að lækka vextina til samræmis við greiðslugetu skuldarans, eða skuldarinn verð- ur gjaldþrota. Þetta dæmi má færa upp á þjóð- félagið og ríkisstjórnir þess; hvað skeður þegar framleiðslukostnað- ur er umfram það sem fæst fyrir framleiðsluna? Hið innbyggða kerfi vixlverk- andi kaupgjalds og verðlags leiðir óhjákvæmilega til að gengisfell- ingar verði næsta árvissar. HIN LAUNATENGDU GJÖLD Auk beinna launahækkana, sem orðið hafa á undanförnum árum, hefur jafnframt verið sam- ið um óbeinar kjarabætur svo sem tilfærslu á milli launaflokka, framlög í ýmiss konar sjóði verka- lýðsfélaganna o.s.frv. Sum þess- ara atriða eru ekki tekin með í samanburði á launum milli ára, þannig að óbeinar kjarabætur ættu því að leggjast við og hækka vfsitölu launa. Ljóst er að súmt þessara kjara- bóta er launþegum mikils virði, en annað fremur til þess fallið að gera forustu verkalýðsfélaganna að sjálfskipuðum fjárhaldsmönn- um launþegans. 1 fréttabréfi Kjararannsókna- nefndar frá janúar s.I. er gerð grein fyrir kauptöxtum og launa- tengdum gjöldum atvinnurek- enda af launum til þriggja starfs- hópa i þjóðfélaginu, þ.e. iðjufólks. hafnarverkamanna og prentara. um beint eða í ýmsa sjóði í þeirra þágu. Ástæða er til að efast um hag- nýtt gildi þessara sjóða fyrir laun- þegana og erfitt að sjá kosti þess fyrir þá, að þessar upphæðir renni i sjóði í stað þess að greiða þær sem bein laun til launþeg- anna og láta þeim sjálfum eftir að ráðstafa fjármununum fremur en þeim fjárvörzlumönnum sem varðveita þessa fjármuni fyrir þeirra hönd. EFASEMDIR UM HAGKVÆMNI LlFEYRISSJÓÐA Samkvæmt gildandi reglum um lifeyrissjóði greiða atvinnurek- endur 6% af launum til sjóðsins á móti 4% frá launþegum. Réttindi sjóðsfélaga aukast i hlutfalli við þann tima, sem sjóð- félagi hefur greitt iðgjöld til sjóðsins, t.d. eru ellilífeyrisrétt- indi 12,5% eftir 10 ár og aukast 1 60% á 30 árum. Nokkuð aðrar reglur gilda um örorku, ekkna- bætur og lifeyri barna. Reglur um greiðslu ellilifeyris eru þær, að upphæð ellilifeyris miðast við meðaÞak launa 5 sið- ustu starfsár sjóðfélaga og þann hundraðshluta sem hann hefur áunnið sér, eða hæst 60% eftir 30 ára þátttöku. Þessar ellilífeyris- greiðslur standa síðan óhreyttar í krónutölu árum saman þrátt fyrir verðbólgu. Tafla 1 Kauptaxtar og álögur. Kaupgreiðslur. 1. Taxtakaup 2. Gr. kaffitfmar 3. Gr. helgidagar 4. Orlof Kaup á virka vinnustund samkvæmt samningi Aðrar greiðslur. 5. SjúkrasjóAur 6. Slysabætur 7. Veikindakaup 8. Lffeyrissjóðir 9. Orlofsheimilasjóóur 10. Slysatrygging I 11. Fæðingarstyrkur kvenna 12. Atvinnuleysistryggingasjóður 13. Lffeyristryggingar 14. Slysatrygging 11 15. Launaskattur 16. Iðnaðargjald 17. Félagsgjald 18. Iðnlánasjóðsgjald 19. Aðstöðugjald Samtals Alögur á taxtakaup % Alögur á virka vinnustund Hlutfallstölur 1. Taxtakaup 2—3. Kaffit. og hd. 4. Orlof 5—14. Félagsmálagj. 15—19. Skattar Samtals 68,0 8,6 6.4 11,6 5.4 Hafnar- Prent- Iðja verkam. arar kr. kr. kr. 209,90 207,60 302,03 17,24 17,05 24,91 9,26 9,16 14,94 19,70 19,48 29,78 256,10 253,29 371,66 2,56 1,50 3,72 1,28 1,77 6,40 6,33 19,94 15,37 15,20 22,30 1,28 0,63 0,93 0,99 1,46 0,90 0,20 1,50 1,50 1,50 5.07 5,07 5.09 1,32 1,32 0,65 8,96 8,87 13,01 0,51 0,74 2,56 2,03 1,97 1,52 2,21 3,04 3,29 4,42 308,66 302,26 449.04 47,1 45,6 48,7 20,5 19,3 20,8 (68,9) 68,7 (68.9) 67.3 (67,5) (8.4) 8,7 (8,4) 8,9 (8,6) (6,4) 6,4 (6.8) 6.6 (7.2) (11,7) 11,5 (11,3) 12,2 (12,6) (4,6) 4,7 (4,6) 5.0 (4,1) 100,0 (100,0) 100,0 (100,0) 100.0 (100,0) Af þessum töflum má sjá að atvinnureksturinn greiðir stórum meira en það sem beint rennur i vasa launþegans sjálfs. Flest öll þessi gjöld eru tengd taxtakaup- inu sem prósenta, og fylgja því þeim breytingum launa sem breyting á kaupgjaldsvfsitölu mælir fyrir um. Liðirnir 1—14 eru laun og launatengd gjöld greidd launþeg- Hér skal nefnt eitt dæmi um meðallaun gjaldkera II sam- kvæmt kauptaxta V.R. síðastliðin fimm ár: 1970 17.186 1971 20.388 1972 24.957 1973 31.096 1974 45.463= meðallaun 27.818 Þessi launþegi hafði 51.060 í laun siðasta mánuð ársins 1974, inu, að þeir sem greiða iðgjöld i frjálsa lifeyrissjóði sitji við sama borð og opinberir starfsmenn, sem þýðir það eitt að hið opinbera verðtryggi hina frjálsu lifeyris- sjóði í einni eða annarri mynd. öllum ætti að vera ljóst að það gerist ekki nema rikissjóði séu tryggðar skatttekjur til slíks, og hverjir myndu greiða það nema launþegar sjálfir.I raun er aðeins verið að fara fram á hækkaðan ellilifeyri úr hendi ríkissjóðs. Eru lífeyrissjóðirnir þá ekki orðnir óþarfir milliliðir? Það eru vissulega fleiri hliðar á þessu máli en sú sem dregin er upp hér að framan, og þá helzt sú er lýtur að lánveitingum lífeyris- sjóðanna. Sú verðtrygging sem sjóðfélögum er sköpuð er aðgang- ur að óverðtryggðum lánum, sem varið er til að eignast verðtryggð verðmæti t.d. eigið húsnæði. Þeir lífeyrissjóðsgreiðendur sem geta notfært sér lánsfyrirgreiðslur, sem endurbættar eru með verð- minni peningum hafa vissulega fengið nokkuð til baka, en jafn- framt á kostnað þeirra sem ekki höfðu tækifæri (eða áræði) til að notfæra sér lán, svo og á kostnað kaupmáttar lífeyris að starfsdegi loknum. (Þess ber að geta, að þeir sem greiða í lífeyrissjóð ríkis- starfsmanna fá einnig lánafyrir- greiðslur). Það er í öllu falli ekki bæði hægt að verðtryggja lifeyrissjóð- ina og lána þá án vísitöluákvæða. FYRIRKOMULAG AGREIÐSLUM ORLOFS Sá háttur hefur viðgengizt á undanförnum árum, að ýmsum launþegum hefur verið greitt or- lof með orlofsmerkjum, og nú sið- ast liðið ár inn á sérstaka reikn- inga hjá Pósti og Síma. Hugmyndin bak við þetta fyrir- komulag var sú, að launþeginn fengi ekki orlof sitt útborgað fyrr en eftir 1. maí ár hvert, og skyldi hann þá fara í sumarfri. A þenn- an hátt væri tryggt að launþeginn eyddi ekki aurunum fyrirfram, en notaði þá til þess að standa straum af þvi að taka sér hvíld. Þetta fyrirkomulag veitir þó enga tryggingu fyrir þvi að laun- þeginn noti þessa fjármuni til þess aó standa straum af orlofi sinu. Ef kaupgeta launþegans af launum er ekki fullnægjandi til þess að hann geti framfleytt sér og sinum, er hún brúuð með tíma- bundinni skuldasöfnun, sem greidd er þegar heimilt er að taka út orlofsféð. Það sem skiptir þó mestu er að launþeginn fær einu sinni á ári þá krónutölu sem atvinnurekandinn hefur smátt og smátt verið að greiða inn á orlofsreikninginn á heilu ári, án þess að neinir vextir eða verðtrygging komi til. Kaupmáttur orlöfsins hefur þvi rýrnað í meðförum vegna verð- bólgunnar i þjóðfélaginu og vaxtaleysis. Væri nú ekki eðli- legra að láta launþegana sjálfa taka orlofið ásamt launum sinum, og treysta þeim sjálfum til að leggja til hliðar af laununum ef þeir hafa getu til i stað þess að setja” „sjálfskipaða" fjárhalds- menn, til höfuðs þeim. Auk þess er launþeginn miklu betur fær um að gæta þess að orlofsféð sé þannig innt af hendi en pappírs- kerfið, sem byggt hefur verið ut- an um þennan launalið. VEIKINDAKAUP Það hefur löngum verið viður- kennt að veikindafrí væri misnot- að. I hugum sumra launþega eru þetta áunnin réttindi sem nauð- synlegt er að taka út, og þá undir yfirskyni veikinda (t.d. höfuð- verkur, kvef eða eftirstöðvar óreglu). I slíkum tilfellum er auð- vitað um misnotkun að ræða. Aðr- ir launþegar láta sig hafa að mæta til vinnu misjafnlega vel fyrir- kallaðir, og þá jafnvel sársjúkir, án þess að það sé metið við þá. Raunhæfara væri að greiða launþegum þann kostnað sem at- vinnuveitendur hafa af þessum samningslíð, en láta launþegan- um eftir að kaupa sér sjálfur tryggingarvernd fyrir meiriháttar veikindum og slysum t.d. umfram viku. Þá væri og eðlilegt að draga saman i einn lið sjúkrasjóð, slysa- bætur, og slysatryggingar I og II. HVERNIG ER UNNT AÐAUKA KAUPMÁTTLAUNA? Miðað við það ástand sem ríkir í þjóðfélaginu og núverandi stöðu þjóðarbúsins er ljóst að kaup- máttur launa hlýtur tímabundið að fara minnkandi. Sú staðhæfing forustumanna launþega að ekkert sé að marka fullyrðingar vinnuveitenda um að ekki sé svigrún til kjarabóta, þar sem slíkt hafi alltaf verið sagt, en samt hafi fengizt fram kauphækk- anir, verður að skoðast í ljósi stað- reynda. Jafnoft hafa kauphækk- anir leitt til verðbólguólags og gengisfellinga. Það er sjálfsagt rétt, að sumar atvinnugreinar eru betur settar en aðrar, en það breytir ekki þeirri staðreynd að kjarabætur geta ekki miðazt við þær greinar atvinnulífsins sem bezta afkomu hafa hverju sinni. Þau ummæli birtust i einhverju dagblaðanna i vetur, höfð eftir forseta ASt, að þótt Alþýöusam- bandinu stæði til boða fullar bæt- ur þeirrar kjaraskerðingar sem væri orðin, þá væri ljóst að hún mundi aðeins skapa aðra koll- steypu efnahagskerfisins, og þvi yrðu launþegasamtökin að sætta sig við leiðréttingu í áföngum. Nú hafa verið settar fram kröf- ur um fullar verðbætur í þeim kjarasamningum sem standa yfir, þrátt fyrir upplýsingar, sem liggja fyrir um stöðu atvinnuveg- anna og horfur í markaðsmálum erlendis. Er raunverulega verið að vinna að hagsmunum launþega, eða er bara verið að fara aðra kollsteypu? Aukinn kaupmáttur launa verð- ur ekki tryggður nema hægt verði að koma i veg fyrir að hann fari út í verðlag. Allar launahækkanir sem knúð ar verða fram umfram greiðslu- getu atvinnuveganna, hljóta að fara aftur út i verðlag með til- heyrandi vixlhækkunum, ef at- vinnurekstur á ekki að stöðvast. Það er því mál að launþegasam- tökin endurskoði ýmislegt af þvi sem gert hefur verið á undanförn- um árum og athugi hvort óbeinar kjarabætur nýtist launþegum eins vel og efni stóðu til á sínum tima. Það mætti t.d. auka kaupmátt launa um 10% með því að stöðva greiðslur i íifeyrissjóði tímabund- ið eða þangað til hagvöxtur leyfir kjarabætur með eðlilegum hætti. Auk þess má koma betur fyrir bæði orlofsgreiðslum og veikinda- réttindum. Rikissjóður yrði að sjálfsögðu að veita þeim aukna kaupmætti, sem þannig áynnist skattfrelsi. Sú leiðrétting sem á þennan hátt fengist frani mundi ekki fara út i verðlagið. Hún hefði ekki kostnaðarauka i för með sér fyrir atvinnuvegina. Slik raun- hæf kaupmáttaraukning launa gæti orðið sá blóðgjafi sem stöðv- aði niðursveiflu efnahagslifsins. Slikur raunhæfur kaupmáttur gæti stuðlað að jafnvægi, aukinni eftirspurn vöru og þjónustu og þar með aukinni eftirspurn vinnuafls, og auknum tekjum til handalaunþegum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.