Morgunblaðið - 20.06.1975, Page 34

Morgunblaðið - 20.06.1975, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JUNI1975 KR-Víkingur leika í kvöld Einn leikur verður í I. deild f knattspyrnu f kvöld. Þá mætast KR og Vfkingur á Laugardalsvell- inum og hefst leikurinn klukkan 20. Staða liðanna á mótinu eftir fyrstu umferðirnar er sú, að KR situr á botninum með tvö stig, en Víkingur hefur hlotið fjögur stig. Bæði þessi lið hafa fram að þessu verið lin í markaskoruninni, Vík- ingur hefur skorað tvö mörk en KR hefur enn ekki skorað mark. Meðfylgjandi mynd tók Frið- þjófur f leik Fram og KR á dögun- um. KR-ingar hafa stillt sér upp vegna aukaspyrnu Framara. I veggnum eru frá vinstri Haukur Ottesen, Guðmundur Yngvason og Hálfdán örlygsson, en fjær má sjá Jón Pétursson miðvörð fram í gæzlu Ólafs Ólafssonar. „Aragrúi njósnara á hverjum leik” — segir Jóhannes Eðvaldsson. Mörg lið hafa talað við hann en allt er enn óráðið Valur — ÍBV 2:2: „JU, það er rétt, Celtic hafði samband við mig og spurðist um það hvort ég hefði áhuga á atvinnumennsku. Eg játti þvf að sjálfsögðu en meira hefur ekki gerzt ennþá,“ sagði Jóhannes Eðvaldsson við blaða- mann Mbl. sem náði tali af hon- um f Holbæk f gær. Annars var Jóhannes þögull um hugsanlega atvinnu- mennsku sfna, sagði að þau mál kæmust ekki á hreint fyrr en seinna í mánuðinum. Hlé væri í knattspyrnunni víðast hvar f Evrópu um þessar mundir og notuðu liðin tækifærið og fylgd- ust náið með dönsku knatt- spyrnunni. „Það er aragrúi „njósnara" á hverjum einasta leik hérna og margir hafa haft samband við mig og leitað eftir því hvort ég væri tilbúinn að fara út f atvinnuknattspyrnu. Félögin fara sér hægt í sakirnar og ég endurtek, að á þessu stigi er ekkert ákveðið hvað verður. Ég hef eins og áður mikinn áhuga á því að gerast atvinnu- knattspyrnumaður og ef ég fæ freistandi tilboð þá slæ ég til.“ Jóhannes sagði, að Holbæk myndi leika gegn Vanlöse á sunnudaginn og væri búizt við mörgum „njósnurum" þangað bæði til að fylgjast með honum og dönskum leikmönnum sem hugsanlega fara í atvinnu- mennsku. Jóhannes var ófáan- legur til að nefna ákveðin félög í þessu sambandi, en íþróttasíð- an hefur frétt það eftir öðrum leiðum, að nokkur stórlið muni íylgjast með Jóhannesi á næst- unni, þar á meðal hollenzku meistararnir P.S. Eindhoven sem eru að leita sér að mið- verði. Þá munu væntanlega mörg lið fylgjast með Jóhann- esi er hann leikur með Holbæk gegn Telstar í Amsterdam 5. júlí n.k. í Toto-bikarkeppninni. VALUR og IBV skildu jöfn á Laugardalsvellinum I gærkvöidi 2:2. Þetta þýðir að Valur er f efsta sæti með 7 stig en Vestmannaey- ingar hafa fimm stig. Tveir menn úr þessum liðum eru efstir og jafnir á markaskoraralistanum eftir leikinn í gær, þeir Guðmundur Þorbjörnsson, Val, og Örn Óskarsson, IBV, báðir með fjögur mörk. Báðir skoruðu I gær- kvöldi, Örn reyndar bæði mörk Eyjamanna. Eftir markalausan og tfðindalausan fyrri hálfleik færðist fjör í leikinn í þeim seinni og hann bauð áhorfendum upp á fjögur mörk. 1 bæði skiptin tóku Eyjamenn forystuna en Valsmenn jöfnuðu sfðan metin. Verður jafntcflið að teljast rétt- lát úrslit þessa leiks. Valsmenn voru þó ívíð beittari aðiiinn og hefðu verið nær því að sigra. Það rigndi i Laugardalnum i gærkvöldi og völlurinn var því erfiður fyrir leikmennina, renn- blautur og sleipur. Mátti sjá þess merki að þeir ættu erfitt með að hemja boltann við þessar aðstæður. Valsmenn voru mun sterkari í fyrri háifleiknum og fengu 2—3 þokkaleg færi, flest eftir hornspyrnur Alberts Guðmundssonar sem voru mjög hættulegar. Eyjamenn fengu aðeins eitt umtalsvert tækifæri í hálfleiknum. Það var þegar Örn Óskarsson komst einn inn fyrir vörn Vals eftir að mistök höfðu átt sér stað en Örn missti boltann , of langt frá sér og Sigurður mark- vörður náði að bjarga í horn. Mörkin Seinni hálfleikurinn byrjaði með meira fjöri og á 51. mínútu komst Atli Eðvaldsson í gott færi en skaut framhjá. Brátt fóru atburðir að gerast hinum megin á vellinum og á 55. mínútu komst Haraldur Júlíusson í dauðafæri en hugðist gefa boltann á örn en Sigurður markvörður sá við hon- um og hirti boltann. Hann barst út á miðjuna, þaðan út á vinstri kantinn til Haralds Júlíussonar. Hann gaf fallega sendingu inn í teiginn og Tómas Pálsson skallaði boltann í stöngina. Af henni skoppaði boltinn út til Arnar sem skoraði með þrumuskoti, 1:0 fyrir IBV. Ekki liðu nema 5 mínútur þar til Valsmenn höfðu kvittað. Her- mann Gunnarsson gaf fyrir frá hægri, Ingi Björn reyndi að ná boltanum fyrir miðju marki en tókst ekki að hemja hann. Boltinn barst til Atla Eðvaldssonar sem skallaði að marki. Skalli hans var hálfmisheppnaður en það var lík- lega hans lukka því Ársæll mis- reiknaði boltann og i netið fór hann. Jafnt, 1:1. Enn liðu 5 mínútur. Þá fékk Örn Óskarsson boltann rétt fyrir utan vítateig. Hann vippaði hon- um yfir Vilhjálm bakvörð Vals og inn í teiginn. Síðan hljóp hann eftir boltanum og renndi honum framhjá Sigurði markverði og í netið. Sigurður var allt of seinn út úr markinu i þetta skiptið og verður markið mikið til að skrif- ast á hans reikning. 2:1 fyrir IBV. Og nú liðu 15 mfnútur. 80. mínútan kom og á henni jöfn- unarmark Vals. Bergsveinn Alfonsson átti skot að marki. Ársæll henti sér niður f hornið en Á efri myndinni sést Atli Eðvaldsson jafna 1:1 með skalla og á þeirri neðri sést örn Óskarsson skora annað mark sitt og IBV. boltinn fór i varnarmann IBV og breytti við það um stefnu. Ársæll var úr jafnvægi og var þvf hjálparlaus er boltinn small í fót- um hans og þaðán út í markteig- inn þar sem Guðmundur Þor- björnsson stóð og gat ekki annað en skorað. Jafnt aftur, 2:2. Þetta urðu lokatölurnar en bæði liðin fengu fleiri tækifæri f þessum fjöruga hálfleik. Til dæmis átti Hermann mjög gott skot að marki eftir aukaspyrnu en Arsæll varði skot hans frábærlega vel út við stöng. Þjóðhátíðarmótíð: - Unga fólk- ið 1 sviðsliósinu seinni daginn UNGT og upprennandi frjáls- fþróttafólk vakti mesta athygli á seinni hluta Þjóðhátfðarmótsins sem fram fór á Laugardalsvellin- um á miðvikudagskvöldið. Má nefna telpna- og meyjamet 14 ára stúlku úr IR, f hástökki, Þórdfsar Gfsladóttur, sem stökk 1,62 metra, 110 metra grindahlaup Jóns Sævars Þórðarsonar úr IR 15,4 sek., og spjót- og kringlu- kastsárangur Þráins Hafsteins- sonar, 57,78 og 45,12 metrar. Annars bar mótið nokkurn keim af þvf að nokkuð af okkar bezta frjálsfþróttafólki er erlendis ennþá. Sigurvegarar I einstökum greinum uröu þessir: KARLAR: SPJÓTKAST: m Elías Sveinsson, tR 61,84 5000 METRA HLAUP: mfn Hafsteinn óskarsson, IR 17.32,4 STANGARSTÖKK: m Elías Sveinsson, IR 4,10 400 METRA HLAUP: sek. Sigurður Sigurðsson, A 50,4 LANGSTÖKK: m Stefán Hallgrímsson, KR 6,72 1500 METRA HLAUP: mfn. Magnús Einarsson, UBK 4.15,6 Einar Guðmundsson, FH 4.15,6 KRINGLUKAST: m Hreinn Halldórsson, HSS 49,52 110 METRA GRINDAHLAUP: sek. Stefán liallgrímsson, KR 15,4 Valbjörn Þoriáksson, lR 15,4 100 METRA HLAUP: sek. Sigurður Sigurösson, A 10,9 4x 100 METRA BOÐHLAUP: sek. Sveil UMSK 46,9 KONUR: 1500 METRA IILAUP: mfn. Inga Bjarnadóttir, FH 5.34,5 IIASTÖKK: m Þördfs Gfsladóttir, tR 1,62 SPJÓTKAST: m Arndfs Björnsdóttir, UBK 34,18 100 METRA HLAUP: sek. Erna Guómundsdóttir, KR 12,7 400 METRA HLAUP: sek. Sigrún Sveinsdóttir, A 62,0 KULUVARP: m Asa Halldórsdóttir, A 10,85 4x100 METRABOÐHLAUP: sek. A-sveit Armanns 51,1 Þá má geta þess að lokum, að Magnús Haraldsson FH setti piltamet í 5000 metra hlaupinu, hljóp á 18.20,4 mfnútum. VALUR: Sigurður Dagsson 2, Vilhjálmur Kjartansson 1, Grfmur Sæm- undsson 2, Magnús Bergs 2, Dýri Guðmundsson 3, Bergsveinn Álfonsson 2, Atli Eðvaldsson 2, Ingi Björn Albertsson 1, Hermann Gunnarsson 3, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Albert Guðmundsson 3, Kristinn Björnsson (varam.) 1. IBV: Arsæll Sveinsson 3, Haraldur Gunnarsson 2, Einar Friðþjófsson 1, Valþór Sigþórsson 3, Friðfinnur Finnbogason 2, Snorri Rútsson 1, Örn Óskarsson 3, Þórður Hallgrfmsson 2, Haraldur Júlfusson 2, Sveinn Sveinsson 2, Tómas Pálsson 2, DÓMARI: Magnús Pétursson 3. Liðin Liðin náðu sjaldan að sýna tilþrif við þessar erfiðu aðstæður en barátta liðanna í seinni hálf- leik var til fyrirmyndar. I Valslið- inu náðu framlínumennirnir oft góðum köflum. Einkum skapaðist oft spil í kringum þá Albert og Hermann. Sá fyrrnefndi er geysi- legt efni og sá síðarnefndi lék annað hlutverk en svo oft áður, Framhald á bls. 20 Texti: Sigtryggur Sigtryggsson Myndir: Friðþjófur Helgason. Heimsmet BRUCE Furniss, 18 ára Banda- rfkjapiltur, setti nýtt heimsmet f 200 metra skriðsundi á móti sem fram fór á Long Beach í fyrra- kvöid. Synti hann vegalengdina á 1,50,89 mín. Örn skoraði tvisvar og tryggði IBV stig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.