Morgunblaðið - 20.06.1975, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.06.1975, Qupperneq 36
AUfiLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JRorjjmúblflbiþ FÖSTUDAGUR 20. JUNÍ 1975 Síldveiðar í Norður- sjó stöðvast 23. júní - Búnir að fyUa kvótann Skyldusparnaður unglinga: Um 300 milljónir kr. fara 1 súginn Sjávarútvegsráðuneytið sendi í gær öllum sfldveiðiskipum í Norðursjó orðsendingu sem felur f scr veiðibann á sfld f Norðursjó frá 23. júnf til 1. júlf. Var þetta gert, þar sem kvóti tslendinga er orðinn svo til fullur. Þá héldu útgerðarmenn Norðursjávarskip- anna fund f gær og báru saman bækur sfnar og hvað gera skyldi með skipin á næstunni. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk hjá Jóni B. Jórtassyni fulltrúa i sjávarút- vegsráðuneytinu var Islendingum heimilað að veiða 4800 lestir af síld í Norðursjónum frá áramót- Tveir sáttafundir TVEIR sáttafundir voru hjá sáttasemjara ríkisins í gærkvöldi. Annarsvegar deiluaðilar togaraverk- fallsins og hinsvegar blaða- menn og útgefendur. Ekki var vitað til þess seint í gærkvöldi að neinn árang- ur hefði náðst. Alvarlegt umferðarslys FULLORÐIN kona var flutt á Borgarsjúkrahúsið um kl. 17 í gær eftir að hafa orðið fyrir bíl vestarlcga á Hringbrautinni, ekki langt frá þeim stað, þar sem bana- slysið varð þann 17. júní. Konan mun hafa verið á leið norður yfir Hringbraut rétt vest- an við Gamla Garð, en þar er gangbraut, og var konan fyrir austan hana. Konan lenti fyrir bfl, sem var á austurleið á vinstri akrein. Sjónarvottar sögðu á bíll- inn hefði ekki verið á mikilli ferð. LATA mun nærri að útgjöld Flugleiða aukizt um 200 milljónir króna miðað við eitt ár vegna Nýtt fisk- verð í dag? YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur setið á stanzlausum fundum sfðustu daga. I gær var t.d. haldinn fund- ur fyrir hádegi og annar sfðdegis. Nýr fundur Yfirnefndar á svo að hefjast kl. 9 fyrir hádegi og að sögn eins yfirnefndarmannsins á að reyna að koma verðinu saman á þeim fundi. Ef svo ólíklega fer, að verð- ákvörðunin hefur ekki séð dags- ins Ijós um næstu helgi mun allur Vestmannaeyjaflotinn stöðvast, en stýrimenn þar hafa ákveðið að stöðva róðra vegna seinagangs í verðákvörðunarmálum nú og fyrr á þessu ári. um fram til 1. júlí. Undanfarnar vikur hafa skipin aflað 600—1200 lestir á viku og þann 14. júní var heildarafli skipanna orðinn tæpar 4000 lestir. — Því var ekki annað þorandi en að stöðva veiðarnar um skeið frá og með mánudegin- um 23. júní, sagði Jón. Hann sagði, að eftir sem áður væri bátunum heimilt að veiða sfld vestan við 4. gráðu vestlægrar lengdar, en ekki hefur frétzt um neina síldveiði á þeim slóðum á þessu ári. Samkvæmt samþykkt Norðaustur- Atlantshafsnefndarinnar fyrir skömmu mega Islendingar veiða 19 þús. lestir frá 1. júlí n.k. fram til áramóta 1976. I þessari sam- þykkt er að finna tilmæli, þar sem farið er fram á að tslendingar veiði ekki meir en 6.300 lestir af þessu magni á þessu ári. Ef síldveiðiflotinn fær ekki að veiða meira en 6.300 lestir næstu 6 mánuðina bíður hans geysimik- ill vandi, að vísu mega skipin veiða 12 þús. lestir af síld á Is- landsmiðum í haust. — Útgerðar- menn síldveiðiskipa komu saman til fundar i gær á aðalskrifstofu L.I.Ú og ræddu vandamál skipa sinna. Morgunblaðið leitaði í gær- kvöldi til Kristjáns Ragnarssonar formanns L.t.Ú. og spurði hann hvort einhver ákveðin sjónarmið hefðu komið fram á fundinum. Kristján kvað svo vera, en að hann gæti ekki tjáð sig um málið fyrr en búið væri að gefa sjávar- útvegsráðuneytinu skýrslu um það. Kona féll í sjóinn SÍÐARI hluta dags í gær féll kona í sjóinn við gömlu Verbúðar- bryggjuna við Ægisgarð. Nær- staddur lögreglumaður bjargaði konunni hið bráðasta og var hún flutt á sjúkrahús, en mun ekki hafa orðið meint af volkinu. hinna nýju kjarasamninga við flugliða, þ.e. flugmenn, vélstjóra og flugfreyjur. 1 samtali við Morgunblaðið tók þó Örn John- son, forstjóra Flugleiða, fram að þessi tala væri ónákvæm og I henni fælust einnig ýmis launa- tengd gjöld fyrirtækisins, svo sem vegna lífeyrissjóða, trygg- inga, einkennisbúninga o.fl. Örn var að þvi spurður hvort stjórn Flugleiða teldi verjandi að gera samkomulag af þessu tagi, sem væri langt fyrir ofan alla aðra kjarasamninga á hinum al- menna vinnumarkaði hérlendis — á sama tima og Flugleiðir væru reknar með halla og fyrirtækið þyrfti að leita til ríkisvaldsins um fyrirgreiðslu. Örn svaraði því til, að stjórn Flugleiða teldi þessa samninga fela í sér of miklar launahækkan- ir. Fyrirtækið hefði verið neytt til þess að ganga að þessum samning- um með því að viðsemjendur þess beittu hörðu. ÆTLA má að um eða yfir 300 milljónir króna f spari- merkjum glatist eða fari í súginn með einhverjum hætti og komi þannig tals- verðum fjölda ungmenna, sem gert er að kaupa þessi merki, aldrei að neinum notum. Þessar upplýsingar er að finna í ritinu Til- lögur og greinargerð um staðgreiðslu opinberra Hann benti á, að í tvennum skilningi væri þó þessi rekstur ekki með öllu sambærilegur við annan atvinnurekstur í landinu. Annars vegar væri flugið nánast einustu samgöngurnar við landið og ef einhver af þessum hópum, flugmenn eða einhverjir aðrir hópar innan flugrekstursins í lyk- ilaðstöðu, gripi til vinnustöðvun- ar, væri landið að segja sam- göngulaust við umheiminn, bæði varðandi farþegaflutninga og póstflutninga. Hins vegar væri svo Atlantshafsflugið, sem Örn kvað þess eðlis að þar töpuðust geysilegir fjármunir strax og til stöðvunar kæmi. Þetta hvort tveggja gerði það síðan að verkum að flugliðarnir væru f algjörri sér- stöðu hérlendis varðandi beitingu verkfallsvopnsins. örn sagði það sína skoðun, að gera þyrfti breytingar á vinnulög- gjöfinni svo »5 nlutir af þessu tagi gætu ekki átt sér stað. Örn kvað einnig lang æskilegast, ef hægt yrði að fá fulltrúa allra hagsmunasamtaka flugliða að samningaborðinu í einu lagi. Örn sagði, að raunar stefndu Flugleið- Framhald á bls. 20 gjalda eftir Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkisskatt- stjóra, sem fjármálaráðu- neytið hefur gefið út. I ritinu skýrir rfkisskattstjóri frá þvi, að samkvæmt upplýsing- um Póstmálastjórnarinnar hafi sala sparimerkja á árinu 1974 numið tæpum 1,1 milljarði króna en endurgreiðslur hafi numið tæpum 132 milljónum króna. Upplýsingar um heildarinnlegg sparimerkja á öllu landinu lágu ekki fyrir, en ríkisskattstjóri get- ur þess að af sölu sparimerkja í Reykjavík, að frádregnum endur- greiðslum, á síðastliðnu ári hefðu tæp 75% skilað sér í innleggi sparimerkja. Fjárhæð óframvís- aðra sparimerkja, sem seld voru í Reykjavík á því ári, hafi numið um 139 milljónum króna. Sigurbjörn vitnar einnig til upplýsinga Veðdeildar Lands- bankans um að innstæður skyldu- sparnaðareigenda hafi numið 1.427 milljónum króna I árslok 1974 að meðtöldum vöxtum en ekki verðbótum. Fjárhæð ófram- vfsaðra sparimerkja, sem ættu að vera í umferð, hafi verið talin nema 308 milljónum króna, og 'sennilega megi áætla að um eða Framhald á bls. 20 Verkfalli af- lýst á Fiateyri Vinnudeilan á Flateyri, sem snúizt hefur um kaup og kjör landmanna landróðarbáta virð- ist nú vera til lykta leidd. Eftir sáttáfund í fyrradag með deiluað- ilum ákvað stjórn og trúnaðar- mannaráð Verkalýðsfélagsins Trausta að aflýsa verkfalli hjá bátum f eigu Hjálms h.f. og Odda h.f., en bátar þessara fyrirtækja eru yfir 100 lestir. Ekki er gert ráð fyrir, að róðrar hefjist fyrr en samningarnir hafa verið bornir upp á félagsfundi, sem boðaður var f gærkvöldi. Vestmannaey ekki velkomin í Belgíu SKUTTOGARINN Vestmanna- ey frá Vestmannacyjum mun ekki vera velkominn f belgfska höfn á næstunni og hefur togar- inn verið settur á svonefndan svartan lista þar. Astæðan fyrir þessu er, að skipið lét ekki sjá sig í höfninni f Ostende á fyrir- framákveðnum söludegi, sem var f byrjun þessarar viku. Eftir þeim upplýsingurp, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, þá var ákveðið að togarinn seldi f Belgíu þegar allt útlit var fyr- ir verkfall á íslandi og var sölu- dagur ákveðinn 17. júní. I Belgíu var fastlega gert ráð fyr- ir komu togarans og undirbún- ingur allur I samræmi við það og hafði nokkurn kostnað í för með sér. Þar sem togarans var að vænta var öðrum skipum vís- að frá með sölu á umræddum degi, þvf talið var að nægur fiskuryrði ámarkaðnum. Síðan kom söludagurinn og skipið lét ekki sjá sig og rétt í þann mund, sem það átti að koma til Belgíu kom skeyti frá útgerð skipsins um að togarinn kæmi ekki, heldur landaði heima. Vegna þessa atviks hafa við- komandi stjórnvöld í Belgíu kvartað meðal annars við við- skiptaráðuneytið og bent á að svona mistök megi ekki koma fyrir. Flugliðasamningarnir nýju kosta Flugleiðir 200 milljónir Vorum neyddir til að ganga að þess- um samningum, segir Örn Johnson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.