Morgunblaðið - 29.08.1975, Page 5

Morgunblaðið - 29.08.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGUST 1975 5 Heldur Smith nýjan fund? Salisbury 27. ág. Reuter Ntb. IAN Smith, forsætisráðherra Ródesfu hefur á prjónunum nýja ráðstefnu með leiðtogum afrfskra þjóðernissinna eftir að fundirnir við Viktorfufossa fóru út um þúfur. Mun Smith ætla að halda ráð- stefnu með 250 ættarhöfðingjum í landinu og hirða ekki um að hafa samband við afríska þjóðarráðið sem tók þátt í fundahöldunum nú á dögunum. Hafa ýmsir afrískir hópar lýst stuðningi við þessa hugmynd Smiths, en stjórnarand- stöðuflokkur hvítra manna f Ródesfu dregur f efa að Smith komi þessu í kring. Stjórnmálafréttaritarar telja að breytingar verði á forystuliði í afriska þjóðarráðinu, en í því eru tvær þjóðernishreyfingar. Kviknaði í Eyjabáti ELDUR kom upp í vélbátnum Gunnari Jónssyni frá Vestmanna- eyjum um kl. 21 í gærkvöldi þegar báturinn var staddur um 10 sjómílur vestur af Vestmanna- eyjum á leið vestur með landi. Skipverjum tókst fljótlega að slökka eldinn, en skipið gat ekki siglt fyrir eigin vélarafli eftir brunann. Vélbáturinn Arnar frá Þorlákshöfn kom Gunnari Jóns- syni til aðstoðar, og tók bátinn i tog. Bátarnir voru væntanlegir til Vestmannaeyja skömmu eftir miðnættið. Leikflokkur Þjóðleik- hússins kominn heim NÝLEGA komu Ieikflokkur og kór Þjóðleikhússins heim úr ferð sinni til Kanada og Bandarfkj- anna, en ferðin var farin f tilefni af 100 ára afmæli Islendinga- byggðar vestra. I frétt frá Þjóðleikhúsinu segir, að ferðin hafi á allan hátt tekizt vel, en þetta er f fyrsta sinn sem leikhúsið sýnir utan Evrópu. I leikförinni tóku þátt 13 leikarar, 32 söngmenn og tveir tæknimenn, en auk þess voru með i förinni Vilhjálmur Hjálmarsson mennta- málaráðherra, Sveinn Einarsson Þjóðleikhússtjóri og Carl Billich, sem stjórnaði söngnum. Eins og þegar hefur komið fram í fréttum hafði Gunnar Eyjólfsson leikari tekið saman sérstaka dagskrá til flutnings fyrir Vestur-íslendinga. Þar á meðal voru kaflar úr leikrit- um eftir Halldór Laxness, Matthías Jochumsson, Jón Thor- oddsen og Davið Stefánsson. Við opnun húss Stephans G. Stephanssonar söng kórinn lög við Ijóð skáldsins og Herdís Þor- valdsdóttir og Baldvin Halldórs- son Iásu upp ljóð. Alls kom leik- flokkurinn fram 16 sinnum vestra, þar af sex sinnum á elli- heimilum. Óskað var eftir því við forráða- menn hópsins, að komið yrði aftur á Islendingaslóðir þar vestra, en af því mun tæplega geta orðið fyrr en haustið 1976. <tlr frétí frá Þjóðleikhúsinu). LÆKJARGÖTU 2 SIIVII 21800 HIN FRÁBÆRA OG MARGUMTALAÐA SUMAR- ÚTSALA SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ EFTIR HEFST í DAG í 4 VERZL- UNUM SAMTÍMIS FATN AÐUR - SKÓR - HLJÓMPLÖTUR / 40%—60% AFSLÁTTUR^WKr^ í einlægni sagt, þú skalt ekki láta þessa frábæru útsölu fram hjá þér fara. Það eru sko allt nýjar og nýlegar vörur, ekkert drasl. Og svo veit ég með vissu, að það var framleitt beint á útsöluna. Stakar buxur og föt til að valda þér ekki . vonbrigðum. Þetta er sem sagt stórkostleg útsala. ATH.VEL: OPIÐ Á LAUGARDAG TIL HÁDEGIS LÁTIÐ EKKIHAPP ÚRHENDISLEPPA TIZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 SÍMI18660 LAUGAVEG66 SÍMI 13630 LAUGAVEG20a SÍMI12330

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.