Morgunblaðið - 29.08.1975, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.08.1975, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐI©, FÖSTUDAGUR 29. ÁGUST 1975 11 FJÓRÐUNGSÞING NORÐLENDINGA HALDIÐ Á RAUFARHÖFN Fjórðungsþing Norðlendinga, sem er aðalfundur Fjóðungssam- bands Norðlendinga, verður hald- ið á Raufarhöfn I.—3. sept. n.k. Þetta er 17. fjórðungsþingið, sem haldið er. Samkvæmt lögum Fjórðungssambandsins ber að halda f jórðungsþingin til skiptis I héruðum Norðurlands. Þetta er f fyrsta sinn sem fjórðungsþing er haldið í Norður-Þingeyjarsýslu. Á Raufarhöfn er rúmgott hótel og aðstaða til að taka á móti fjöl- mennu þingi. Þingið verður hald- ið f félagsheimilinu Hnitbjörgum og verður sett mánudaginn 1. september kl. 4. e.h. Þingfull- trúar búa á Hótel Norðurljósi, sem er talið stærsta hótel á Norðurlandi. Flugferðir verða til Raufar- hafnar frá Flugfélagi Norður- lands frá Akureyri á mánudag og til baka aftur á miðvikudag eftir þinglok, sem verða síðdegis þann dag. Áætlunarflug er einnig til Raufarhafnar á þriðjudag. Fjórðungsþingið sækja um 90 fulltrúar sveitar- og sýslufélaga á Norðurlandi auk gesta. A þinginu verða flutt framsöguerindi um þau mál, sem eru efst á baugi í byggðaþróun á Norðurlandi. Lárus Jónsson, formaður sam- starfsnefndar um orkumál, ræðir um Norðurlandsvirkjun og skýrir frá undirbúningsumræðum um stofnun sameignarfyrirtækis ríkis og sveitarfélaga á Norður- landi um orkuöflun. Árni Jóns- son, landnámsstjóri ræðir um hlutverk landbúnaðaráætlana i Athugasemd við ritsmíð Cæsars Mar ÞEGAR heimskur maður fer að hugsa ætti hann að forðast að setja hugsanir sínar á þrykk, þvi það er algjör óþarfi að auglýsa heimsku sina. Langloka Cæsars Mars í Morgunblaðinu sunnudaginn 24. ágúst s.l. er raunar svo barnaleg, að hún er tæplega svara verð. — Vesalings maðurinn þekkir sem sé ekkert til þeirra hluta, sem hann er að skrifa um. Samt er það eitt, sem mig langar til að gera athugasemd við í grein Cæsars. Hann segir (þessa gatslitnu setningu): „Hundurinn var upphaflega villt dýr og varla er það líklegt að hann, sem einu sinni rápaði um slétturnar frjáls, vilji nú vera lokaður inni í þröngu herbergi o.s.frv." Nú leyfi ég mér að spyrja: Hvernig voru lifnaðarhættir mannsins, þegar hundurinn rápaði um slétturnar? Ef til vill má ég svara þessari spurningu með því að taka smákafla úr bókinni „Vígðir meistarar“ eftir Edouard Schuré í þýðingu Björns Magnússonar prófessors, en þar segir: „Fjórum til fimm þúsund árum fyrir vort tímabil huldu enn þykkir skógar hið forna skýja- land, er náði allt frá Atlants- hafi norður til íshafanna. Svartir menn höfðu séð þetta meginland rlsa eyju af eyju og nefndu það jörðina, sem fæddist af hafinu. Hversu ólík var þessi Evrópa með sínum grænu hllðum, rökum og djúpum dölum, draumlygnum fljótum, dimmum vötnum og sífelldum skýjaslæðum um fjalla- tindana, þeirra hvíta, sólskrælnaða jarðvegi. — Á grösugum, óbyggðum sléttunum, er að víðaáttu líktust gresjum Argentlnu, var ekkert að heyra annað en ýlfur villidýranna, öskur vísundanna og trylltrn hófadyn frá stórum hjörðum villtra hesta, er þutu áfram með flaksandi föxum. Hvíti maðurinn, er byggði þessa skóga, var ekki lengur hellisbúi. — Hann hafði fundið upp hnífinn og steinöxina, Framhald á bls. 13 byggðaþróun. Guðmundur Öskarsson kynnir byggðaþróunar- áætlun fyrir {íorður- Þingeyjarsýslu, sem nú er á loka- stigi. Reynir Karlsson, æskulýðs- fulltrúi, kynnir æskulýðskönnun fyrir Norðurland, sem er sú fyrsta hér á landi. Sigurður Guðmunds- son, hagfræðingur, ræðir byggða- þróun á Norðurlandi vestanverðu og nýjar leiðir I byggðaáætlunum. Kjartan Jóhannsson rekstrar- verkfræðingur ræðir um stöðu heilbrigðismála á Norðurlandi. Á vegum Fjórðungssambands- ins starfa milliþinganefndir I samgöngumálum, iðnþróun, land- búnaðarmálum, menntamálum, ferðamálum og stofnanámálum. Á þinginu verða nefndaálit þessara nefnda lögð fram og framsögur fluttar fyrir þeim. A síðasta starfsári voru haldnar ráð- stefnur á vegum nefnda sam- bandsins um ferðamál, byggingar- iðnað og æskulýðsmál. Nú eru gerðar tillögur um að haldnar verði á næsta starfsári ráðstefnur um landbúnaðarmál og nýtingu lan'dgrufinsins. Meðal tillagna, sem verða lagðar fyrir fjórðungs- þingið er tillaga um heilbrigðis- málaáætlun, áætlun um uppbygg- ingu stjórnsýslumiðstöðva, um dreifingu opinberrar þjónustu, um iðnþróun, um Norðurlands- virkjun og afstöðuna til stofnunar fræðsluskrifstofa á Norðurlandi. Ennfremur eru lagðar fram tillög- ur um stefnumörkun I .æskulýðs- og ferðamálum, um jöfnun álagn- ingaraðstöðu sveitarfélaganna. Nú I ár eru tímamót I starfssögu Fjórðungssambands Norðlend- inga. Sambandið er elzta starf- andi landshlutasamtök sveitar- og sýslufélaga I landinu. Fjórðungs- samband Norðlendinga átti 30 ára afmæli l4. júlí s.l. Fyrstu stjórn þess skipuðu Páll Þorleifsson, prófastur á Skinnastað, Brynjólf- ur Sveinsson, menntaskóla- kennari, Akureyri, og Karl Krist- jánsson, oddviti, Húsavík. Núver- andi fjórðungsstjórn skipa: Bryn- jólfur Sveinbergsson, oddviti, Hvammstanga, Bjarni Einarsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Heimir Ingimarsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn. Fullar búðir af nýjum vörum, eftir útsölu. Höfum tekið upp, á dömur t.d. kjóla, peysur, pils, samfestinga (úr denim), regnkápur, boli og slétt flauels jakkaföt fyrir dömur. USA gallabuxurnar komnar aftur, einnig INEGA flauelsbuxur i nýju sniði. LEVI'S gallabuxur ávallt fyrirliggjandi, úr ekta denim efni. Leður-jakkar á herra, stuttir og síðir. Einnig fyrir herra, peysur í miklu úrvali, skyrtur, slétt flauelsföt Terylenebuxur fyrir dömur og herra, mörg snið ótrúlegt litaval

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.