Morgunblaðið - 29.08.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 29. AGUST 1975
13
Þýzkukennaranám-
skeið á Laugarvatni
Þýzkukennarar á Laugarvatni.
STOFNUNIN Goethe-Institut I
Miinchen, sem hefur það hlutverk
að vinna að viðgangi þýzkrar
tungu erlendis, bauð Félagi
þýzkukennara á íslandi síðast-
liðinn vetur að standa í sumar
straum af námskeiði fyrir þýzku-
kennara hér, og var það haldið á
Laugarvatni dagana 18.—23.
ágúst undir nafninu ARBEITS-
TAGUNG ZUR METHODIK UND
DIDAKTIK DES DEUTSCH-
UNTERRICHTS. Þátttakendur
voru 25 auk tveggja kennara frá
Goethe-Institut, þeirra Johanns
Heins og dr. Gerhards Trapp, og
þýzka sendikennarans í Háskóla
tslands, dr. Egons Hitzler. Johann
Heins kennir í Goethe-Institut f
Stokkhólmi, en var áður f Brasilíu
og víðar. Hann kom hingað til
lands sfðastliðinn vetur f kynnis-
ferð og ferðaðist þá milli skóla-
staða og tók þátt í kennslu. Dr.
Gerhard Trapp kennir í kennara-
háskóla í Ósló, en var áður f Kal-
kútta á Indlandi og víðar. Dr.
— Ritsmíð
Cæsars
Framhald af bls. 11
bogann og örina, slöngvuna og
netið. — Loks hafði hann fundið
tvo baráttufélaga, tvo ágæta vini,
óviðjafnanlega og trúa til
dauðans: hundinn og hestinn.
Heimilishundurinn var orðinn að
verði bjálkahússins og veitti
honum öryggi heimaarinsins."
Sé það eðli hundsins eftir sex til
sjö þúsund ára sambúð með
manninum að vera frjáls, er það
þá ekki eðli mannsins að vera
villtur og ala aldur sinn í hellum
og skútum?
Hvað sjúkdómum f hundinum
viðvíkur held ég, að óhætt sé að
treysta áliti fjölda lækna, sem
m.a. kom fram í yfirlýsingu i
öllum dagblöðum borgarinnar
fyrr í sumar.
Sé maður svo sjúklega hræddur
við að veikjast af þeim sjúk-
dómum, sem sumpart hafa aldrei
borizt til landsins (hundaæði) og
á hinn bóginn hefur því sem næst
verið útrýmt (sullaveiki), tel ég,
að sá hinn sami ætti að leita
hjálpar dr. Jakobs Jónassonar því
hann er, eins og kunnugt er, sér-
fræðingur f geðsjúkdómum.
Með lögum skal land byggja og
ólögum eyða. — Löggjafinn ætti
hverju sinni að sjá svo um, að þau
lög, sem sett eru séu svo mannleg
að ekki verði úr þeim ólög.
26. Sgúst 1975.
Steinunn Jónsdóttir
(Víðihvammi 16, Kópavogi)
.Verium
BBgróóur]
verndum'
landfgg/
Egon Hitzler kom hingað frá
Þrándheimi fyrir ári, en þar starf-
aði hann sem þýzkukennari. Á
dagskrá námskeiðsins voru fyrir-
lestrar og umræður um bók-
menntir, kennsluefni og -aðferðir,
gérð æfinga, dæmingu prófúr-
lausna, mat og mælingu á þyngd
texta með svokallaðri LlX-aðferð,
kennslubækur og fleira. Einnig
var fjallað um sérvanda þýzku-
kennara og -nemenda á Islandi,
sem vegna fjarlægðar frá hinu
þýzka málsvæði eru I mun erf-
iðari aðstöðu en kollegar þeirra á
Norðurlöndum, hvað þá á megin-
landi Evrópu.
Þátttakendur námskeiðsins,
sem voru frá ýmsum tegundum
skóla, bæði gagnfræðaskólum,
verzlunarskóla, menntaskólum og
Háskóla Islands, voru áhugasamir
og samtaka og samvinna þeirra
mjög góð. Er ráðgert að halda
námskeið með líku sniði árlega
framvegis, helzt á stað, þar sem
allir geta dvalizt, enda reyndist
Laugarvatn hinn ákjósanlegasti
staður og fyrirgreiðsla öll til
fyrirmyndar á Eddu-hótelinu.
Á meðan námskeiðið stóð yfir,
barst bréf þess efnis, að væntan-
legur væri í haust farandsendi-
kennari, „Reiselektor", sem mun
dveljast hér sex vikur og ferðast
milli skóla, þýzkukennurum til
leiðbeiningar og ráðuneytis.
Þess má geta, að síðastliðinn
vetur voru þýzkukennarar hér-
lendis milli 80 og 90 og nemendur
um 6000.
Stjórn Félags þýzkukennara
skipa: Baldur Ingólfsson, for-
maður, Stefán Már Ingólfsson, rit-
ari, og Annemarie Edelstein,
gjaldkeri. Meðstjórnendur eru
Franz Gíslason og Magnús Krist-
Síðasti dagur útsölunnar
í HERRADEILD
herraföt peysur
stakir jakkar denimsett
skyrtur
IJR DÖMU- OG
BARNAEATADEIED
kvenkjólar
pils
peysur
í SKÓDEIED
herraskór
kvenskór
barnaskór
blússur
buxur
barnafatnaður
inniskór
strigaskór
stígvél
— Áklæðabútar — Nlght and day
sængurverabútar —
— Islenzkar og erlendar úrvalsvörur
á lágu verði
33* 33“
Austurstræti.
Auglýsing um afgreiöslutíma
matvöruverzlana í Reykjavík
og nágrenni
Verzlanir vorar verða áfram lokaðar á laugardögum
og gildir þessi ákvörðun til októberloka
Félag matvörukaupmanna,
Félag kjötverzlana,
Kaupgarður,
Vörumarkaðurinn,
Hagkaup,
Mjólkursamsalan í Reykjavík