Morgunblaðið - 03.10.1975, Qupperneq 1
314. tbl. 63. árg.
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Callaghan ber
blak af Soares
Blackpool, 2. október. Reuter. AP
JAMES Callaghan utanrfkisráð-
herra fór hörðum orðum um árás-
ir vinstrisinna á portúgalska
sósfaiistaforingjann Marioa
Soares á þingi Verkamanna-
fiokksins í Blackpool f dag. Hann
kvaðst hafa illan bifur á tilraun-
um til að ófrægja Soares.
Callaghan veifaði bæklingi,
sem hefur verið dreift á þinginu,
þar sem dregið er f efa að Soares
sé f raun og veru sósfalisti.
Callaghan gagnrýndi einnig grein
f málgagni flokksins, Labour
Weekly, þar sem gefið er f skyn,
að kosningarnar f Portúgal hafi
verið haldnar of snemma, að þjóð-
in hafi ekki vitað hvernig hún
ætti að kjósa og að sósfalistar
mundu tapa ef kosið væri nú.
Sjálfur kvaðst Soares fagna þvi
að fá tækifæri til að ræða við
andstæðinga sína í Bretlandi.
„Við lifum erfiða tíma í Portúgal
og stöndum frammi fyrir sárs-
aukafullum vandamálum," sagði
hann. Hann taldi öfga óumflýjan-
lega í byltingarástandi,
Aðalritari flokksins, Ron Hay-
ward, hvatti eindregið til einingar
i flokknum og skoraði á hópa
lengst til hægri og vinstri að
hætta að senda frá sér yfirlýs-
ingar um viðkvæm mál úr skúma-
Konungur
tilkynnir
útfœrslu
Ósló, 2. október. Reuter.
ÓLAFUR konungur sagði f há-
sætisræðu sinni í dag, að
Norðmenn stækkuðu fljótlega
fiskveiðilandhelgi sfna og
lýstu yfir 200 mflna efnahags-
lögsögu.
Ilann sagði hins vegar, að
Norðmenn héldu öllum
leiðum opnum f þeirri við-
leitni sinni að tryggja afkomu
sjómanna, vernda náttúruauð-
lindir og verja fiskveiðihags-
muni.
Norðmenn hafa gefið f skyn
að undanförnu, að þeir séu
hættir við ráðagerðir sfnar um
að færa út landhelgina úr 12
mflum í 50 og að þeir muni f
þess stað einbeita sér að samn-
ingaviðræðum um 200 mflna
efnahagslögsögu.
Slfkar viðræður yrðu fyrst
og fremst við Breta, sem eru á
móti hvers konar einhlióa út-
færslu, og Rússa
skotum eða frá fundum utan ráð-
stefnusalarins. Hann sagði, að
allir væru sammála um að meiri-
hlutinn ætti að ráða, ekki þeir
sem drægju sig saman úti í horni.
Harðar deilur á þinginu hafa
valdið svo mikilli beizkju að allar
vonir um einingu eru roknar út í
veður og vind að sögn frétta-
ritara. Deilurnar sýna hvað það
er erfitt að knýja fram sósíal-
istískar breytingar og ráðast um
Ieið gegn verðbólgu og samdrætti,
segja þeir.
Andrúmsloftið í Blackpool hef-
ur valdið óvissu sem talið er að
hafi átt sinn þátt í því að pundið
seldist á lægra verði en nokkru
sinni á peningamörkuðum í dag.
Því er spáð að þess sé skammt að
bíða að það seljist fyrir minna en
tvo dollara. í dag féll pundið í
2.0270 dollara.
Gjaldeyrisvarasjóður Breta
minnkaði um 145 milljón dollara í
5.859 milljón dollara í september
að sögn fjármálaráðuneytisins í
dag. Vitað er að Englandsbanki
hefur notað varasjóði til að
styrkja pundið á peningamörkuð-
um.
Seinna neitaði Harold Wilson
þvf f sjónvarpsviðtali, að deilur
andstæðra hópa um baráttu
stjórnarinnar gegn verðbólgunni
á þinginu í Blackpool sköðuðu
flokkinn. Hann gerði lítið úr heit-
um umræðum, sem hafa farið
fram á þinginu, og sagði, að
verkalýðshreyfingin hefði aldrei
staðið eins sameinuð.
AP-simamynd.
Fjölskyldur þriggja lögreglumanna, sem voru myrtir á Spáni, við útför þ'eirra i
gær.
Lögregla gerir hróp
að forsætisráðherra
Madrid, 2. október. AP. Reuter.
HRÖP voru gerð að Carlos Arias
Navaro forsætisráðherra í dag og
þess krafizt, að hann segði af sér
þegar hann mætti ásamt allri
stjórn sinni við útför þriggja
lögreglumanna, sem voru skotnir
til bana f gær. Utförin snerist upp
f tilfinningaþrungin mótmæli
hægrimanna, sem hrópuðu
„Dauði yfir kommúnistum" og
„Engar fleiri náðanir".
Við útförina voru 4.000 manns,
þar á meðal margir lögreglu-
menn. Flestir vottuðu hinum
föllnu lögreglumönnum hinztu
virðingu með því að heilsa að fas-
istasið þegar þeir gengu fram hjá
kistum þeirra. Ættingjar þeirra
fleygðu sér með ópum á kisturnar
Her Portúgals vissi
um byltingaráformin
Lissabon, 2. október. Reuter. AP.
HERSTJÓRNIN f Norður-
Portúgal hefur tekið undir þær
ásakanir sósfalista, að vinstrisinn-
aðir öfgamenn hafi reynt að gera
byltingu f sfðustu viku með stuðn-
ingi vinstrisinnaðra herdeilda.
Talsmaður öryggisþjónustunnar,
Copeon, sagði hins vegar að við-
búnaður 100.000 stuðningsmanna
sósfalista og miðflokksins PPD
væri liður f vandlega skipulagðri
„hræðsluáróðursherfcrð“.
Azevedo Dias majór, talsmaður
herstjórnarinnar í Oporto, sagði
fréttamanni Reuters, að ástandið
væri mjög alvarlegt. Hann sagði,
að flokkur sósíalista væri ekki að
koma orðrómi á kreik. Herinn
hefði undir höndum upplýsingar
um að áform hefðu verið uppi um
byltingu vinstrihópa með stuðn-
ingi nokkurra herdeilda. „Bylt-
ingin virðist hafa misheppnazt
vegna almenns viðbúnaðar sem
gripið var til.“ sagði hann.
Hann sagði að samtök stuðn-
ingsmanna kommúnista og
vinstrisinnaðra öfgamanna, FUR,
virtust hafa verið viðriðin bylt-
ingartilraunina. I FUR er minnst
einn stjórnmálaflokkur, PRP-
BR, sem hefur játað að hann hafi
á að skipa vopnuðum sveitum, og
Azevedo Dias majór nefndi þessi
samtök sérstaklega.
Ásakanir norðurherstjórnar-
innar hafa aukið klofning íbúa
svæðanna fyrir norðan og sunpan
höfúðborgina Lissabon. Yfirmað-
ur miðherstjórnarinnar, Franco
Charais hershöfðingi, sem er
einna valdamestur þeirra hóf-
sömu herforingja er nú ráða lög-
um og lofum í stjórnmálahreyf-
ingu heraflans, MFA, hefur ó-
vænt flutt aðalstöðvar sínar
lengra norður á bóginn.
Sósíalistar telja líklegt, að
flokkur þeirra birti gögn sem
sanni að bylting hafi verið ráð-
gerð og gefa í skyn að henni hafi
verið afstýrt vegna náinnar sam-
vinnu flokksins við norður-, suð-
ur- og miðherstjórnina. Stuðn-
ingsmenn sósíalista og PPD voru
á verði í nótt við skrifstofur blaða
og útvarpsstöðvar og herinn hef-
ur sett upp tálmanir á vegum sem
liggja frá Lissabon til að leita að
vopnum.
Framhald á bls. 20
og aðrir reyndu að hefja kist-
urnar á loft. Athöfninni var sjón-
varpað.
„Við krefjumst réttlætis, ekki
náðunar,“ hrópaði reiður
lögreglumaður. „Farðu í ferða-
lag,“ hrópaði annar að forsætis-
ráðherranum. „Ef þú hefur ein-
hverja sómatilfinningu ættir þú
að segja af þér.“
Gamall blástakki úr hreyfingu
falangista lagði fimm rauðar rós-
ir, sem eru tákn hreyfingarinnar,
á kisturnar og hrópaði: „Félagar,
þið, sem hafið fallið í baráttu við
hryðjuverkamenn. Ég færi ykkur
þessar fimm rósir í nafni falang-
ista, sem munu hefna ykkar.“
Stjórnmálafréttaritarar segja,
að síðustu árásir skæruliða og
gagnrýni erlendis frá geti haft
öfug áhrif og neytt stjórnina til að
efna til fleiri réttarhalda. Þéir
segja að síðustu atburðir hafi
fært stjórnmál á Spáni inn á rót-
tækari brautir.
50 vinstrisinnar, þar af nokkrir
úr samtökunum FRAP, voru
handteknir í gær þegar þeir komu
frá útför félaga þeirra. Nokkrir
menn úr aðskilnaðarhreyfingu
Baska voru einnig i þessum hópi.
Franihald á bls. 20
Ford fagnar
keisaranum
Washington, 2. okt. Reuter.
HIROHITO Japanskeisari var
formlega boðinn velkominn til
Bandarfkjanna við hátfðlega
athöfn hjá Hvíta húsinu f dag.
Hann kallaði sfðari heims-
styrjöldina „hörmulegt millispil"
f samskiptum Japans og Banda-
rfkjanna f ræðu, sem hann hélt
við komuna.
Seinna sagði keisari í ræðu,
sem hann hélt í opinberri veizlu,
að hann harmaði sfðari heims-
styrjöldina og þakkaði um leið
Bandaríkjamönnum fyrir hjálp
þeirra við viðreisn Japans eftir
strfðið. Hann sagði, að „óbornar
kynslóðir mundi minnast veg-
lyndis og velvildar hinna banda-
rfsku sigurvegara."
Ford forseti minntist ekki á
stríðið þegar hann tók á móti keis-
aranum og minntist f þess stað
langrar sambúðar Bandaríkja-
manna og Japana er hófst með því
að Bandaríkjamenn tóku fyrstir
allra þjóða upp stjórnmálasam-
band við þá 1860. Hann kvað
heimsóknina „táknræna fyrir
Framhald á bls. 20
Ford forseti og Hirohito keisari
við komu keisarans til Hvfta húss-
ins.