Morgunblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. OKTÖBER 1975
5
Norðursjórinn:
Bezti sölu-
dagurinn í
langan tíma
ÁTTA sfldveiðiskip seldu afla f
Danmörku f fyrradag og fengu öll
sæmilegt verð fyrir aflann. AIIs
seldu skipin 253.8 tonn fyrir 15.2
milljónir krðna og meðalverðið
var f kringum 57 krðnur fyrir kg.
Er þetta bezti söludagur sfldveiði-
skipanna f langan tfma.
Skipin sem seldu voru þessi:
Loftur Baldvinsson EA seldi
14.5 lestir fyrir 846 þús. kr. og var
meðalverðið kr. 58.32, ennfremur
seldi skipið bræðslusíld fyrir 798
þús. kr.,- Þórður Jónasson EA
seldi 22.8 lestir fyrir 1.3 millj. kr.
og var meðalverðið. 58.33, Albert
GK seldi 53.2 lestir fyrir 2.9 millj.
kr. og var meðalverðið kr. 55.88,
Fifill GK seldi 25.4 lestir fyrir 1.4
millj. kr. og var meðalverðið kr.
55.45, Þorsteinn RE seldi 46 lestir
fyrir 2.5 millj. kr. og var meðal-
verðið kr. 55.65, Hilmir SU seldi
49.4 lestir fyrir 2.8 millj. kr. og
var meðalverðið kr. 57.84, Hrafn
GK seldi 25.1 lest fyrir 1.4 millj.
kr., meðalverðið var kr. 56.20 og
Magnús NK seldi 17.4 lestir, með-
alverð kr. 59.24.
Kvenfélag Kópavogs:
Betri umbúðir
um kartöflur
A FUNDI hjá Kvenfélagi Kópa-
vogs sem haldinn var 21. sept. s.l.
var einróma samþykkt að senda
áskorun til Grænmetisverzlunar
landbúnaðarins um að vanda bet-
ur til sölu á kartöflum og láta þær
í strigabundna bréfpoka. Er þeg-
ar búið að senda þessa áskorun.
Ennfremur má bæta við að kart-
öflur hafa verið svo til óætar allt
s.l. uppskeruár og ekki útlit fyrir
að þær verði betri þetta.árið, svo
það er mjög tímabært að flokka
þær betur en gert hefur verið.
Fór tvær
veltur við
Grindavík
BÍLVELTA varð á Grindavíkur-
veginum um kl. 5 síðdegis s.I.
miðvikudag er Varnarliðsbíll sem
í voru 4 tæknifræðirtgar fór út af
veginum. Ekki urðu alvarleg slys
á mönnum, en bíllinn fór tvær
veltur. Tveir mannanna voru
fluttir í sjúkrahús.
Bólusetn-
ing gegn löm-
unarveiki
HEILSUVERNDARSTÖÐ
Reykjavíkur hefur ákveðið að
taka aftur upp ónæmisaðgerðir
gegn mænusótt og verða þær
framvegis i Heilsuverndarstöð-
inni á mánudögum klukkan
16.30—17.30.
Skúli Johnsen borgarlæknir
sagði í viðtali við Morgunblaðið
að eðlilegt væri að fólk léti bólu-
setja sig gegn mænusótt á 5 ára
fresti, því Salk-bóluefnið sem not-
að væri hérlendis, entist vart
lengur svo gagn væri að. Salk
bóluefnið er dauðar veirur, en
hins vegar hefur Sabin-bóluefnið
sem byggist á lifandi veirum ekki
verið notað hér. Borgarlæknir
kvað þurfa að endurtaka ónæmis-
aðgerðina á því sem næst 5 ára
fresti allt að 50 ára aldri, en
ónæmisaðgerðin er ætluð Reyk-
víkingum 20 ára og eldri og er
hún ókeypis.
Nýtt jakkafatasnið — Riffluð flauelisföt
herra og dömu — Kuldastuttjakkar dömu
og herra — Bulitt gallabuxur —
Flauelsbuxur — Ný snið — Kápur með
og án hettu — Dömu- og herrapeysur —
Blússur — Leðurjakkar — Leðurstuttjakkar o.m.fl.
L^EKJARGÖTU 2
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
TjJjlHp áfSSm. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKS.NS
* (y.n) KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SIMI FA SKIPTIBORÐI 28155