Morgunblaðið - 03.10.1975, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.10.1975, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. OKT0BER 1975 10 Aðrennslisskurðurinn að stöðvarhúsinu, sem verið er að reisa. t skurðinum sjást aðrennsiispipurnar þrjár, ein fyrir hvern rafal. Næst er háspennuvirki f smíðum. ljúka malbikunarfram- kvæmdum á stíflunni áður en vetur gengur f garð. Zakula framkvæmda- stjóri tjáði blaðamanni Mbl., að veðurfar réði því að nokkru, hvort takast myndi að ljúka mal- bikunarframkvæmdum, en stefnt er að því að þeim verði lokið 1. nóvember, en áfram yrði haldið, ef veður leyfði og að tilskyldu samþykki verkalýðs félaga. Starfsfólki Energopró- Sigölduframkvæmdir: * H Stíflan malbikuð lónsmegin. Ef myndin prentast vel má sjá valtara f hallanum, en hann hangir f togvindu, sem er uppi á stfflunni. Stíflan nær fullgerð Nokkrir starfsmenn og gestir Energoprójeckt. Frá vinstri Rögnvaldur Þorláksson, verkfræðingur Landsvirkjunar, Zakula, framkvæmda- stjóri Energoprójeckt, Guðjón Jónsson, formaður félags járniðnaðar- manna, Þórir Danfelsson, framkvæmdastjóri Verkamannasambands- ins, Pétur Pétursson, starfsmannastjóri Energoprðjeckt og Guðmund- ur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar. LOKIÐ er við að fylla uþp í skarðið, þar sem Tungnaá fellur í gegnum Sigöldu og hefur þar nú risið allmyndarleg stifla, sem á að mynda uppi- stöðulón og fallhæð fyrir orkuverið í Sigöldu. Fyrir 4 þúsund árum brast aldan, og myndað- ist þetta skarð. Má greini- lega sjá á landslaginu, að áður hefur verið þarna allmikið stöðuvatn, sem kallað hefur verið Króks- vatn. Mun nú myndast, er botnlokum við stífluna hefur verið lokað, stöðu- vatn á ný, sem verður 1,4 milljón rúmmetrar og um 15 ferkílómetra að stærð. Júgóslavneska verk- takafyrirtækið En- ergoprójeckt, sem stað- ið hefur að fram- kvæmdum við Sigöldu fyrir Landsvirkjun, bauð blaðamönnum og for- ystumönnum í verkalýðs- hreyfingunni í Sigöldu í tilefni þess, að stíflan er nú svo til fullgerð. Efnið í stífluna er að mestu fengið úr aðveituskurði, sem grafinn hefur verið í gegnum Sigöldu . og að stöðvarhúsinu, sem verið er að reisa. Efnið í stífl- una er samtals um 290 þúsund rúmmetrar. Lengd stíflunnar er um 970 metrar og breidd hennar efst er 5 metrar. Mesta hæð hennar er 43 metrar og hallinn lóns- megin er 1 á móti 1,8. Lónsmegin er stíflan malbikuð með tveimur malbikslögum og verður malbikið samtals 53 þús- und fermetrar, en þegar hafa verið malbikaðir 42 þúsund femetrar. Gerð stíflunnar hófst árið 1974, en áður hafði ýmis undirbúningsvinna átt sér stað. Skarð var þó skilið eftir í stíflunni svo að unnt yrði að vinna áfram og varð um tíma aö veita Tungnaá úr sínum gamla farvegi. 8. septem- ber var ánni síðan aftur veitt í gamla farveginn og fylling skarðsins i stíflunni hófst og tók aðeins 3 vikur. Verklegur fram- kvæmdastjóri Energo- prójeckt, L. M. Zakula, sagði að gert hafi verið ráð fyrir því að fyll- ing skarðsins, sem var í stíflunni, myndi taka um þrjá mánuði, en allt var þó gert til þess að flýta verkinu og tókst með góðri samvinnu við starfsfólkið að ljúka fyll- ingunni á þremur vikum. Á nú að freista þess að jeckt, sem hefur mánaðar uppsagnarfrest, hefur öllu verið sagt upp, þar sem ógerningur verður að vinna þar í vetur. Mun vinna aftur hefjast þar efra með vor- inu. Zakula sagði að hann væri mjög ánægður með gang verksins og stöðvar- húsið væri nú brátt að komast í það ástand að unnt verður að setja á það þakið. Þá mun ætlun- in að setja niður fyrstu vélina í októberlok. Er það 50 megawatta rafall, en endanlega eiga þeir að verða þrír og möguleiki á að koma hinum fjórða fyrir. Júgóslavinn sagði að samvinnan við íslend- ingana hefði verið mjög góð, eftir að samkomulag tókst í júlílok milli Ener- goprójeckt, sem er auka aðili að VSl og ASÍ og verkalýðsfélaganna í Rangárvallasýslu. Síðan tókst að setja niður deil- urnar, þá hefur ríkt al- gjör friður í Sigöldu. I Sigöldu vinna nú 82 Júgóslavar, 450 Islend- ingar og eru þetta allt starfsmenn Júgóslav- anna. Ennfremur eru þar starfsmenn Landsvirkj- unar, Þjóðverjar, Portúgalir og Rússar — og er því samanlagður fjöldi manna, sem vinnaj Sigöldu um 650 til 700. Zakula sagði að þessi framkvæmd væri ein af þeim minnstu, sem Energoprójeckt hefði tekið að sér. Fram- kvæmdin í Sigöldu væri virt á 30 milljónir Banda- ríkjadollara, en stærsta framkvæmdin væri í Perú og væri hún virt á 200 milljónir dollara. Energoprójeckt stendur einnig í framkvæmdum víða í Afríku. Fyrirtækið hefur ekki staðið í mörg- um stórframkvæmdum í Vestur-Evrópu. Ef ekkert kemur upp á óvænt, á Sigölduvirkjun að geta tekið til starfa á næsta ári. Séð ofan af stíflunni. Langmestur hluti þess svæðis, sem sést á myndinni fer undir hið nýja Króksvatn. Jarðýta, sem hangir I togvindu, svo aö hún geti farið niður f hallann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.