Morgunblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1975 14 AMEGAS MILLILENDING ^ER STÓRKOSTLEG HLJÓMPLATA SEM FÆST ÍÖLLUM HLJÓMPLÖTU- VERZLUNUM Dr. Richard Beck: Sól er yfir Sandy Bar Kveðja send á aldarafmæli Nýja Islands að GimK Sögunnar heiði himinn hvelfist yfir þessari hátíð. Húmþungur var sá himinn að sönnu ósjaldan í liðinni tíð, og sérstaklega á hinum allra fyrstu landnámsárum, þegar harmaskýin grúfðu þyngst yfir þessari sögurfku byggð. En nú, með öld að baki, sveipar himin hennar bjartur ljómi sigurvinn- inga þeirra landnámsmanna og landnámskvenna, sem hér háðu sina örlagaþungu og hetjulegu baráttu, hvernig, sem á móti blés. Nú er sól yfir Sandy Bar. Spámannleg orð sonar þessarar byggðar, sem gert hefir hana ódauðlega í kvæðum sínum og leitt hana til öndvegis í íslenzkum bókmenntum, eru sigursöngurinn sannleiksþrungni og áhrifamesti, sem hljómar í eyrum þúsundanna á þessum degi: Vonir dána mikilmagnans mega færa áfram vagn hans, verða að liði, vera gagn hans, visa mönnum í hans far. Rætast þær i heilum huga hvers eins manns, er,|vildi duga, og nú kenndur er við landnám allt í kringum Sandy Bar, hefir lagt sér leið að marki landnemanna á Sandy Bar. Þökk og heiður sé frumherjun- um, sem hér gengu sigrandi af hólmi, og öllum þeim, fyrr og síðar, sem hafa fylgt þeim í spor og borið manndómsmerkið fram til nýrra sigra. Megi þessi svip- mikla og fagra byggð blessast og blómgast um ókomin ár og halda áfram að vera traust vígi islenzkri tungu og menningarerfðum vor- um. Það mælum við hjónin bæði af heitum og heilum huga. Gleðilega landnámshátfð! o Diskó — Restaurant — Diskó — Restaurant — Goði Sveinsson velur lögin í kvöld Opið alla daga frá kl. 8 e.h. nema miðvikudaga. Gestir athugið: Snyrtilegur klæðnaður. Diskó — Rest — Diskó — Rest — Diskó — STORDANSLEIKUR I STAPA O a . r.... jy 31 H ° PYs’lWl | KypLp Diskótek Áslákur Gamanleikurinri góðkunni sýndur í Austurbæjarbíói til ágóða fyrir Húsbyggingarsjóð Leikfélagsins. Skemmtið ykkur og hjálpið okkur að byggja leikhús. Miðnætursýning Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30 Aðgöngumiðasalan í Austurbæjarbíói er opin frá kl. 16.00 I dag. Sími 11384. Aðeins örfáar sýningar vegna þess að BESSI BJARNASON er á förum til útlanda IVIÐ BYGGJUM LEIKHÚS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.