Morgunblaðið - 08.10.1975, Page 3

Morgunblaðið - 08.10.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1975 3 — Ljósm. Brynjólfur. VlSINDANEFND ATLANTSHAFSBANDALAGSINS hefur setið fundi í Reykjavik og skoðuðu fundarmenn f gær m.a. rannsóknaskipið Bjarna Sæmundsson. Myndin er tekin við það tækifæri og er Nóbelsverðlaunahafinn dr. Rabi fyrir miðju á myndinni. Vísindmefnd Atlantshafsbanda- lagsins á fundi í Reykjavík VÍSINDANEFND Atlantshafsbandalagsins hefur setið á fundi 1 Reykjavík og rætt vísindastarfsemi Atlantshafsbandalagsins og ýmsa rannsóknar- starfsemi á þess vegum. Hefur fundurinn hér > einkum f jallað um orkumál og skort á hráefnum I framtíðinni. Voru settar á stofn sérstakar nefnd- ir, sem á næstu árum eiga eftir að fjalla um orku- og hráefnaskortinn I veröldinni, sem er og verður svo ofarlega á baugi. Fundi visindanefndar sitja frammámenn í vís- indum, einn frá hverju aðildarríkjanna. Fundinn í Reykjavik sóttu ýmsir þekktir vísindamenn. Má þar nefna Nóbelsverðlaunahafann bandaríska, Rabi. Komu fulltrúar til landsins sl. laugardag. A sunnudag fóru þeir til Gullfoss og Geysis og stönzuðu við Irafossvirkjun, þar sem þeir voru fræddir um orkumál íslendinga. Einnig heim- sóttu þeir rannsóknarstofnanir hér og siðdegis i gaér fóru þeir um borð i rannsóknaskipið Bjarna Sæmundsson, þar sem Jakob Jakobsson tók á móti þeim. Eiginkonur nokkurra þeirra voru með þeim og tók Ragnhildur Helgadóttir alþingis- maður og formaður forsætisnefndar Norður- landaráðs á móti þeim i gær. Fulltrúar Islands á fundinum voru dr. Guðmundur Sigvaldason og Gunnar Björnsson. Lánasjóður íslenzkra námsmanna í fjárþörf; Sjóðinn vantar á 3. hundrað milljónir króna til að standa við allar skuldbindingar sínar LANASJÖÐUR fslenzkra nán\s- manna þarf 347 milljónir króna til þess að geta staðið við skuld- bindingar sínar fram til áramóta, að þvf er Sigurjón Valdimarsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, tjáði Mbl. I gær. Til ráðstöfunar hefur sjóðurinn aðeins 121 milljón króna og 100 milljón króna láns- heimild, sem ekki hafa fengizt peningar í. Þessar fjárupphæðir samanlagðar, 221 milljón, er I rauninni það sem sjóðurinn átti að hafa til ráðstöfunar samkvæmt fjárlögum og vantar þá 126 milljónir, sem er raunveruleg fjárþörf umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir. Sigurjón Valdimarsson sagði að gert hefði verið ráð fyrir því, að 100 milljónir til viðbótar framlagi á fjárlögum nægði til þess að full- nægja lánaþörfinni í stað 290 milljóna, en sakir þess að éinhver afgangur er frá fyrra ári skortir ekki 190 milljónir króna heldur 126 milljónir umfram lánsheim- ildina. Sigurjón sagði að sjóðs- stjórnin hefði ekki fengið viðhlít- andi svör frá yfirvöldum um það, hve mikla fjármuni hún myndi fá til ráðstöfunar og liggur málið nú til athugunar hjá ríkisstjórn. Eins hefur verið farið fram á 100 milljón króna lán hjá bönkunum, samkvæmt heimild Alþingis og þaðan hefur enn ekki fengizt endanlegt svar. Er þar allt óvíst og sagði Sigurjón að stjórn sjóðs- ins hefði fengið von um helming þess fjár sem sótt hefði verið um eða 50 milljónir króna. Sjóðsstjórn Lánasjóðsins getur ekki tekið úthlutun lána fyrir, fyrr en” fyrir liggur úr hve miklu hún hefur að spila. Námsmenn alls staðar í heiminum eru nú orðnir fjárlitlir. Einnig sækja fjárgæzlumenn nemenda mjög á, þar sem þeir hafa gengið i fjár- skuldbindingar til þess að geta sent nemendum peninga og víxlar falla í bönkum. Sagði Sigurjón að ástandið væri mjög alvarlegt, því að menn ættu I raun að geta gengið að starfsemi sjóðsins sem bláköldum veruleika sem ekki ætti að vera eins og eins konar happdrætti. Sjóðsstjórnin hafði gert ráð fyrir þvl að fjárþörf sjóðsins yrði á árinu 780 milljónir króna, en alþingi afgreiddi fjár- lög með því að veita sjóðnum 680 milljónir króna og sfðan að gefa henni 100 milljón króna láns- heimild, sem hann sagði að væri nánast skipun til bankanna um að lá sjóðnum téða upphæð. Bank- arnir telja sig ekki geta lánað þessa upphæð vegna útlánatak- markana ríkisstjórnarinnar. Lánasjóðurinn gerði viðvart um að til vandræða horfði þegar f vor og alvarlegt áminningarbréf var skrifað 10. júlí, en þrátt fyrir það hafa stjórnvöld velt vandanum á undan sér. Sigurjón Valdimars- son sagði að það væri í raun skelfilegt, hver afstaða allt of margra aðila í þjóðfélaginu væri til sjóðsins. Hann kvað i raun betra að námsmenn fengju held- ur minna úr að spila, heldur en að eiga það. yfir höfði sér að það stæðist aldrei timalega, hvenær lánunum væri úthlutað. Kvenmaður á þungavinmi- vélanámskeiði á Siglufirði Siglufirði 6. október. HÉR VAR haldið námskeið í með- ferð þungavinnuvéla um s.l. helgi. Námskeiðið sóttu 60 manns, úr Skagafirði, Siglufirði og víðar. Méðal þeirra er sóttu námskeiðið var einn kvenmaður. I kvöld hefst hér Kvöldskóli Siglufjarðar, en þar verður kennd enska, bók- færsla og vélritun. Aðsókn að kvöldskólanum var það mikil, að ekki komust allir að, sem vildu. Annað slíkt námskeið verður haldið eftir áramót. Bezta veður var á Siglufirði i dag. — mj. Fjölmörg mál á málaskrá iðnþings 36 IÐNÞING íslendinga verður haldið 1 Reykjavfk dagana 8.-11. október n.k. Iðnþingið verður sett á Hótel Sögu miðvikudaginn 8. október kl. 14.00. Sigurður Kristinsson málarameistari, forseti Landssambands iðnaðar- manna, mun setja þingið og enn- fremur mun Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra flytja ávarp. Sérstakir heiðursgestir Lands- sambands iðnaðarmanna munu verða viðstaddir þinghaldið. Eru það þeir Adolph Sörensen múrarameistari, formaður systur- samtaka Landssambandsins í Danmörku. Stig Stefanson optikermeistari og þingmaður, sem jafnframt er formaður hlið- stæðra samtaka í Sviþjóð og Eivind Halle framkvæmdastjóri norsku samtakanna. Þingfundir munu fara fram I fundarsal Ddmus Medica, Egils- götu 3, Reykjavik. Fjölmörg mál eru á málaskrá iðnþings að þessu sinni, m.a. verk- og tæknimenntun, iðnþróun og efnahagsmál og ýmis aðstöðumál Framhald á bls. 27 Aðalfundi Prestafélags HÓLASTIFTIS lokið Akureyri, 7. október AÐALFUNDI Prestafélags Hóla- stiftis lauk f kapellu Akureyrar- kirkju um hádegi á sunnudag. Fundarmenn og eiginkonur þeirra sátu sfðan hádegisverðar- boð sóknarnefnda Akureyrar — og Lögmannshlfðarkirkna á Hótel KEA. A félagssvæðinu, sem er hið forna Hólastifti eru nú 28 þjónandi prestar og sátu 20 þeirra fundinn. I sambandi við fundinn embættuðu 22 prestar 1 11 kirkjum við Eyjafjörð á sunnudaginn. 1 upphafi aðalfundarins minnt- ist formaður séra Björns O. Björnssonar, sem lézt 29. septem- ber, en hann tók virkan þátt í störfum félagsins um árabil. Fundarmenn risu úr sætum I virðingar- og þakkarskyni við minningu hans. Aðalmál fundarins voru starfs- hættir kirkjunnar og urðu miklar umræður um það efni. Framsögu höfðu séra Tómas Sveinsson, Sauðárkróki, og séra Þórhallur Höskuldsson á Möðruvöllum f Hörgárdal. Þetta mál var til um- ræðu á síðustu prestastefnu og starfar sérstök starfsháttanefnd á vegum hennar, sem þegar hefur unnið mikið og gagnlegt starf við tillögugerð um starfshætti kirkj- unnar f samræmi við kröfur nú- tímans. Samþykkt var svohljóðandi til- laga frá séra Árna Sigurðssyni á Blönduósi: „Aðalfundur Prestafé- lags Hólastiftis haldinn á Akur- eyri dagana 4. og 5. október 1975, skorar á kirkjumálaráðherra að flytja frumvarp til laga á Alþingi um endurreisn Hólabiskupsdæm- is.“ Nokkrar umræður urðu um málið, einkum það atriði, hvar biskup Hólastiftis ætti að sitja og kom fram nokkur ágreiningur um þá hlið málsins. Vegna frásagnar i Morgunblaðinu I dag af umræð- um um frávísunartillögu séra Þórhalls Höskuldssonar óskar for- maður Prestafélags Hólastiftis, séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup, þess getið, að séra Þór- hallur flutti einnig tillögu um að málinu yrði visað til starfshátta- nefndar til leiðbeiningar og ábendingar og snerti frávisunar- tillaga hans þvi meðferð málsins en ekki kjarna þess. Stjórn félagsins var endurkos- in, en hana skipa séra Pétur Sig- urgeirsson vígslubiskup, formað- ur, og auk hans prófastarnir séra Björn Björnsson á Hólum, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Skaga- strönd, séra Sigurður Guðmunds- son, Grenjaðarstað, og séra Stefán Snævarr, Dalvík. Varamaður í stjórn var kosinn séra Gunnar Gislason, Glaumbæ. —Sv.P. Mánaðarfrí 15. október FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur samþykkti einróma f fyrradag að mánaðarfrí í skólum skyidi verða 15. október, en ráð hafði verið fyrir því gert, að það yrði hinn 24. október, sem er síðasti sumar- dagur. Kristján J. Gunnarsson fræðslu- stjóri sagði í viðtali við Mbl., að þar sem tilmæli hefðu komið frá framkvæmdanefnd kvennafris eins og nefndin heitir um að mánaðarfriið yrði ekki 24., var frá því horfið með samhljóða ákvörð- un eins og áður er sagt. Fjallkonurnar hefja vetrarstarfið Áhugaleysi kvenna í hverf- inu á félagsstarfi áberandi m < y Harpa Jósefsdóttir, formaður félagsins, Brynja Friðþjófsdóttir, Guðlaug Wium, Birna Ingadóttir og Laufey Magnúsdóttir. KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurn- ar f Fella- og Hólahverfum í Breiðholti er nú að hefja vetr- arstarfsemi sína. Fundir eru haidnir mánaðarlega og er dag- skráin ýmist til fróðleiks og skemmtunar, nema hvort tveggja sé. 1 fyrra gekkst félagið fyrir námskeiði i „frúarleikfimi", svo og flosnámskeiði og er ætl- unin að efna til slíkra nám- skeiða í vetur, fáist næg þátt- taka. Stjórn félagsins hefur áhyggjur af því hve lítill félags- áhugi virðist vera meðal kvenna í hverfinu. Nú eru um 80 konur I félaginu og hefur fundasókn verið langt frá því sem við mátti búast í svo fjöl- mennu bæjarhverfi. Meðalald- ur félagskvenna er ekki hár — t.d. má nefna, að aðeins eru þrjár konur í félaginu komnar á fimmtugs aldur. Stjórnarkon- ur segjast vera búnar að reyna allar hugsanlegar leiðir til að glæða fundasókn, hafa kynn- ingarfundi, fræðslufundi, skemmtifundi o.fl., en á flest- um fundum eru þó innan við tuttugu konur, þar með taldar stjórnarkonur. Þegar við ræddum við stjórn- ina nú í vikunni kom fram, að nú á að gera nokkurs konar úrslitatilraun með félagsstarfið I vetur. Verði áhugaleysið jafn- áberandi og áður segjast kon- urnar ekki sjá að grundvöllur sé fyrir áframhaldandi starf- semi kvenfélags í hverfinu. Fjallkonurnar halda fundi sína í Fellahelli, þar sem prýði- leg aðstaða er til félagsstarfs, og verður aðalfundur í félaginu um miðjan októbermánuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.