Morgunblaðið - 08.10.1975, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.10.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1975 13 Flugrán út um þúfur í Manila Manila, 7. október. Reuter. VOPNAÐUR Filippseyingur rændi flugvél frá flugfélagi Filippseyja með 65 farþegum og fimm manna áhöfn skömmu fyrir lendingu f Manila f dag en gafst upp á fiugveliinum átta tfmum sfðar. Hann krafðist þess að flogið yrði með hann til Libýu. Flugvélarræninginn sleppti far- þegunum í smáhópum og engan þeirra sakaði. Hann sagði að starfsmenn leyniþjónustunnar hefðu rænt dóttur sinni á föstu- dag og gafst upp þegar yfirmaður ríkislögreglunnar, Fidel Ramos hershöfðingi, sem samdi við hann, fullvissaði hann um að yfir- völd mundu gera allt sem þau gætu til að leysa vandamál hans. Maðurinn heitir Carmilo Morales, 2.3 ára, og var kurteis og sfbrosandi. Hann var vopnaður skambyssu og handsprengju. Flugvélin kom frá bænum Davao á Suður-Filippseyjum og stóð á flugbrautinni allan þann tfma sem samið var við hann. Hsinhua segir frá mótmælum í Ósló EVROPUMOT: — Evrópumeistaramóti í pípureykingum er nýlokið í London. Sigurvegarinn var Viris Vecchi frá Ítalíu. Hann hélt glóðinni i pípu sinni logandi i tvær klukkustundir, þrjátíu og átta mínútur og fjórtán sekúndur. Samkvæmt reglum mótsins höfðu keppendur fimm mínútur til að fylla piþuna og eina mínútu til að kveikja i. Til þess fengu þeir aðeins að nota tvær eldspýtur. Italirnir voru grunaðir um að hafa brögð í frammi og virtust hafa litla ánægju af reykingunum en dómararnir komust að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu farið eftir bókstaf mótsreglnanna. 10 gíslar heilir á húfi eftir 8 tíma umsátur „NORÐMENN mótmæla sovézk- um eldflaugatilraunum á Bar- entshafi,“ segir fréttastofan Hsin- hua og vitnar f fréttir frá Ósló. Hópur fólks efndi til mótmæla- aðgerða fyrir utan sovézka sendi- ráðið f Ósló og hrópaði „sovézkar eldflaugatilraunir á Barentshafi eru ógnun við Noreg“ og „berj- umst gegn strfðsundirbúningi risaveldanna", segir Hsinhua. Fréttastofan segir enn fremur, að í málgagni norskra marxista og leninista, „Stéttabaráttunni", hafi birzt harðorð mótmæli frá Stjórnarmynd- únartilraunir Finna hafnar Helsinki 7. október — NTB. KÖNNUNIN á möguleikum fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar f Finnlandi hófst f gær með viðræð- um við Urho Kekkonens forseta við tvo stærstu þingflokkana, sósí- aldemókrata og alþýðudemó- krata. Báðir þingflokkarnir voru fylgjandi samsteypustjórn sósfal- demókrata, alþýðudemókrata og Miðflokksins. A fundínum var lagt til að þingforseti, Vieno Jo- hannes Sukselainen stjórni könn- uninni, sem búizt er við að taki langan tíma, unz stjórnarmyndun- arviðræðurnar sjálfar geta loks hafizt. Embættismannastjórnin mun að öllum líkindum sitja út þennan mánuð, ef ekki lengur. Kekkonen ætlaði að ræða við aðra þingflokka í dag. flokki þeirra vegna sovézku til- raunanna, sem séu „bein ögrun við Noreg“. Hsinhua vitnar f mótmælin, þar sem segir að tilraunirnar „beri vott um vaxandi stríðshættu í Evrópu“, að þær séu „viðvörun um að Norðurlönd geti orðið skot- mark árása sovézkra sósíalimper- ialista", að þær sýni greinilega að „Sovétríkin séu herskátt risa- veldi, sem noti fallbyssupólitík og árásarstefnu til að ná fram heims- yfirráðum,“ og að „vinnandi stétt- ir og framfarasinnað fólk geti ekki lengur lokað augunum fyrir stríðshættunni, sem stafi frá So- vétríkjunum". Fréttastofan vitnar einnig f ræðu Fostervolls landvarnaráð- herra, þar sem hann sagði meðal annars að æfingar Rúss’a á Bar- ensthafi hefðu vakið ugg. MAO Tse-tung lfkti Helsinki- samningnum við Munchen- samninginn 1938 þegar hann ræddi við Edward Heath fyrrver- andi forsætisráðherra f Peking á dögunum. Heath sagði í grein f Daily Ex- press eftir heimkomuna að Mao hefði oft minnzt á Miinehen- samninginn þegar þeir töluðu um Helsinki-samninginn. Mao átti ekki við það að með New York, 7. október. AP VOPNAÐUR maður, sem hélt 10 manns f gfslingu f banka f Green- wich Village á Manhattan og kvaðst vera stuðningsmaður Symbionesiska frelsishersins og aðdáandi Patricia Hearst, gafst upp f dag eftir átta tfma umsátur. Gfslana sakaði ekki. Maður þessi, Ray „Cat“ Olsen, samningnum hefðu Rússar fengið frjálsar hendur til að ráðast á Kína heldur að Evrópubúar hefðu gefið Rússum frjálsar hendur með samningnum til að auka áhrif sín á Vesturlöndum sagði Heath. Heath kvaðst hafa minnzt við- ræðna sem hann átti við Konrad Adenauer kanslara fyrir tíu árum þegar Mao gerði honum grein fyr- ir ráðagerðum Rússa. hafði krafizt þess að fá 10 milljón dollara f gulli og flugvél til að komast undan. Hann krafðist þess ennfremur að ungfrú Hearst og þrfr félagar hennar yrðu látin laus úr fangelsi. Það eina sem hann hafði upp úr krafsinu voru 6 bjórdósir sem hann fékk sendar. Sex gíslanna voru starfsmenn bankans og fjórir viðskiptavinir hans. Olsen sleppti þeim smám saman og síðustu þrír gíslarnir sluppu ómeiddir þegar samninga- maður lögreglunnar dreifði at- hygli hans og aðrir lögreglumenn sem höfðu laumazt inn í bankann réðust aftan að honum og af- Vopnuðu hann. Greenwich Village líktist vopnuðum herbúðum meðan á umsátrinu stóð. Olsen taldi lögreglunni trú um að hann hefði vopnaðan félaga sér við hlið og sagði í símtali við blaðamenn fyrir utan að gíslunum hefði verið stillt upp í röð svo að auðvelt yrði að skjóta þá. „Við erum vel vopnaðir. Það getur verið að ég deyi en þá deyja þeir líka,“ sagði hann. Fyrst f stað hélt Olsen því fram að hann stæði í tengslum við Symbionesiska frelsisherinn, sem rændi Patricia Hearst og gerði hana að stuðningsmanni sínum. Seinna sagði hann að hann hefði aðeins „fengið þessa flugu í höfuðið". Slökkt var á götuljósum meðan á íumsátrinu stóð og allt hverfið var einangrað. Skyttur lögregl- unnar miðuðu byssum sínum að bankanum og rúmlega 100 lögreglumenn tóku þátt í um- sátrinu. Rússar semja um vináttu við A-Þjóðverja Bonn, 7. október. Reuter. NÝR vináttusamningur Sovét- rfkjanna og Austur-Þýzkalands var undirritaður f dag f Moskvu en f Bonn var sagt að vestur-þýzka stjórnin mundi halda áfram bar- áttu sinni fyrir friðsamlegri sam- einingu Þýzkalands. Framhald á bls. 27 Mao líkti Helsinki við Miinchen 1938 Ræða Croslands HÉR fer á eftir ræða sú sem brezki ráðherrann Anthony Crosland hélt f Grimsby á föstudag. Fyrir tveimur árum gerðu Bretar og Islendingar samning, sem batt að minnsta kosti um stundarsakir enda á deilu um fiskveiðiréttindi á Norður- Atlantshafi. Samningurinn átti að fjarlægja orsök stöðugrar deilu landa okkar. Hann átti einnig að tryggja réttindi brezka sjávarútvegsins — bæði togaraflotans sjálfs og þeirra karla og kvenna I hafnarbæjun- um, sem eru háð afla togaranna hvað atvinnu snertir. Samningurinn við íslendinga rennur út 13. nóvember og þó eru ekki einu sinni hafnar alvarlegar viðræður milli ríkis- stjórnanna um, hvað eigi að koma f staðinn. Það stafar ekki af því, að brezka ríkisstjórnin hafi annað hvort neitað að semja eða verið treg til þess að hefja viðræður. Forsætisráð- herrann og utanríkisráðherr- ann hafa báðir hvatt embættis- bræður sína á Islandi til að hefja viðræður um nýjan samn- ing. Brezkur ráðherra fór til Reykjavfkur fyrir þremur vik- um í þeirri von og trú, að samn- ingaviðræður væru í þann mund að hefjast, en komst aðeins að raun um, að ríkis- stjórn Islands hafði engar til- lögur fram að færa um fisk- veiðiréttindi eftir 13. nóvember. Ég vil gera ríkisstjórn Is- lands eitt eða tvö atriði ljós. Það fyrra er, að ef nýr samning- ur milli landa okkar verður ekki undirritaður 13. nóvem- ber, getur enginn vafi leikið á þvf samkvæmt alþjóðalögum, að brezkir sjómenn hafa rétt til veiða hvar sem er umhverfis Island upp að 12 mílna mörkum frá íslenzku ströndinni. Þann rétt hafði Alþjóðadómstóllinn í Haag staðfest, og hann er ekki hægt að afnema einfaldlega með því að ríkisstjórn Islands tilkynni, að hann sé ekki til. I öðru lagi var samningurinn, sem Bretar samþykktu fyrir tveimur árum, síður en svo við- unandi f alla staði frá okkar sjónarmiði. Hann var málamiðl- un og til þess ætlaður að tryggja hagsmuni beggja land- anna og virða óskir beggja ríkisstjórna. Ég er þeirrar skoðunar, að allt mæli með því að nýr samningur verði undirritaður og það fljót- lega. Sá samningur verður að varðveita réttindi þeirra brezku togaraeigenda og skip- stjóra, sem vilja veiða á hefð- bundnum miðum. Þessi hefð- bundnu mið ná til svæða, sem eru innan við þau 50 mílna mörk, sem rfkisstjórn Islands hefur lýst yfir einhliða og eftir eigin geðþótta að séu lokað haf- svæði sem hún eigi og enginn annar. Við biðjum ekki ríkisstjórn Islands um forréttindi, og við væntum þess ekki að hún undirriti samning, sem er hag- stæður Stóra Bretlandi og Island hefur engan hag af. Alþjóðadómstóllinn hefur úrskurðað, að við höfum hefð- bundin réttindi á miðum, sem Islendingar staðhæfa nú, að til heyri þeim einum. Þessi rétt- indi verður að tryggja og varð- veita. EBE hefur ákveðið, að Anthony Crosland samningur, er heimili tollfrjáls- an innflutning íslenzkra afurða til Efnahagsbandalagsins, geti því aðeins tekið gildi, að fisk- veiðideilur Islendinga og Efna- hagsbandalagslandanna verði til lykta leiddar. Islendingar hafa því töluverðan efnahags- legan ávinning af því að fallast á viðtekin réttindi brezkra tog- ara til að veiða, þar sem þeir hafa veitt f hundruð ára. Ég vona því, að viðræður um nýjan samning hefjist bráðlega, og ég vona, að ríkisstjórn Is- lands gerir sér engar rangar hugmyndir um þann ásetning brezku ríkisstjórnarinnar að varðveita réttindi fiskiflota okkar. Auðvitað viljum við sanngjarna og réttláta samn- inga, en þeir verða að vera sanngjarnir gagnvart brezku þjóðinni ekki síður en íslenzku þjóðinni. Enginn samningur getur verið sanngjarn, ef hann gerir brezka togara óstarfhæfa, brezka sjómenn atvinnulausa og styttir vinnutíma karla þeirra og kvenna í Grimsby, Hull og Fleetwood, er byggja afkomu sína á þeim. Brezkur sjávarútvegur verður og mun halda áfram veiðum innan 50 mílna frá strönd íslands. Hann verður að hafa rétt til að veiða fastan og ákveðinn ársafla. Hann mun vissulega virða vernduð svæði, þvi brezkir sjó- menn sjá sér sjálfir mikinn hag í því að tryggt sé, að ofveiðí sé ekki stundað á Norður- Atlantshafi, en þeir hafa ský- Iausan rétt til að snúa aftur til þeirra miða, þar sem þeir hafa stundað veiðar f fimm hundruð ár. íslenzka ríkisstjórnin ætti ekki að vera í nokkrum vafa um þann ásetning brezku rikis- stjórnarinnar að tryggja þessi réttindi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.