Morgunblaðið - 08.10.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1975
Þórdís Björnsson
Bilger—Minning
ÞEGAR Margrét Stephensen
landshöfðingjadóttir eignaðist
yngsta barnið sitt þann 8. júní,
1922, orti maður hennar Guð-
mundur Björnson landlæknir:
Þú ert yndið mitt yngsta og bezta
Þú ert ástarljósið mitt nýtt
Þú ert sólrún á suðurhæðum
Þú ert sumarblómið mitt frftt.
Þú ert Ijósið, sem lifnaðir sfðast
Þú ert löngunar minnar hlfn,
Þú ert allt, sem ég áður þráði,
Þú ert ósk, þú ert óskin mfn.
Þau skírðu dótturina Þórdfsi
Ósk og varð hún sólargeisli á
heimili þeirra og fimm eldri
bræðra. Gælunafnið Lída festist
við hana.
Eftir dauða Guðmundar 1937,
urðu mæðgurnar sérstaklega sam-
rýndar, en Margrét dó 1946.
Lída var ljóshærð, nett og kven-
leg. Hún hafði skemmtilega
kímnigáfu og var mjög vel gefin. I
skóla fóru orð af hennar skarpa
reiknisheila og hún útskrifaðist
úr stærðfræðideild Mennta-
skólans í Reykjavík vorið 1941.
Að loknu heimspekiprófi í
Háskólanum vann hún i tvö ár
sem einkaritari Kristins Stefáns-
sonar lyfsölustjóra. Þetta var á
stríðsárunum, þegar erfitt var að
fara til útlanda til framhaldsnáms
og þegar þúsundir ungra manna i
einkennisbúningum dvöldu á
Islandi.
Eitt sumarkvöld 1943 var Lída
kynnt fyrir ungum liðsforingja,
sem var búnaðarverkfræðingur
að mennt, Arthur Samuel Bilger.
Þau felldu strax hugi saman.
Skömmu síðar var hann sendur til
Englands. Þegar hann fékk sitt
fyrsta frí, flaug hann til Reykja-
víkur og þau giftu sig 4. marz
1945. I veglegri brúðkaupsveizlu í
Oddfellowhúsinu, sagði Helgi
Bergs, eldri, i sinni ræðu, að hann
væri viss um, að brúðurin yrði
mjög góð landkynning fyrir Is-
land, hvar sem hún færi. Ég veit
að svo hefur reynzt.
Að heimsstyrjöld lokinni
bjuggu ungu hjónin í Pennsyl-
vaniu, þar sem Art vann sem
búnaðarráðunautur fyrir ríkið.
En í byrjun Kóreustriðsins var
hann kallaður aftur í herinn. Nú
fylgdi fjöldi erfiðra en æfintýra-
legra ára, með sífelldum flutning-
um og aðskilnuðum, en um leið
Skemmtilegum endurfundum og
ferðalögum. Það reynir mikið á
menn, konur og börn að aðlagast
hverjum nýjum stað og Bilgerfjöl-
skyldan bjó víðsvegar um Banda-
rikin, á Okinawa og f Þýzkalandi.
En Lida kvartaði ekki. Hún var
alltaf hamingjusöm, ef hún gat
verið með Art og syninum Eric
Gesti, serh fæddist 1948. Gestur
var skáldanafn föður hennar.
Hún útbjó þeim hlý og smekkleg
heimili, hvar sem þurfti.
Lída fór að engu óðslega og gat
verið sjálfri sér nóg ef þurfti. En
alls staðar eignaðist hún vini, sem
hún hélt tryggð við. Hún las mik-
ið, prjónaði og saumaði, og var
afbragðs bridgespilari. Hvað sem
hún gerði, gerði hún vel.
Art fór úr hernum 1967 og vann
þá í Chicago. en þau hjónin flutt-
ust í úthverfi Washington, D.C.
fyrir fjórum árum siðan og þar
vinnur Art fyrir hermálaráðu-
t GUÐNI INGVARSSON, matsveinn frá Vestmannaeyjum, andaðist í Borgarspítalanum að morgni 5 október Minningarathöfn fer fram í Fíladelfíukirkju, fimmtudag kl. 1 3 30 t Konan mín, STEINUNN PÁLSDÓTTIR, Fögrubrekku 1, Kópavogi verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 9 okt. kl. 10.30 Fyrir hönd ættingja.
Guðbjörg Magnúsdóttir og aðrir vandamenn. Jón Þorvaldsson.
t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KAI ANDERSEN, Hólmgarði 26. sem andaðist 1 október, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 10 október kl. 1 3.30 Ágústa Andersen, börn, tengdabörn og barnabörn. t Bróðir okkar, STEFÁN THORARENSEN, úrsmiður, frá Akureyri verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 9. okt. kl. 1.30. Margrjet Þórðardóttir, Gunnar Thorarensen.
t Ástkær eiginkona min, móðir systir mágkona og tengdadóttir ANNA VlOALÍN PÁLSDÓTTIR. Dunhaga 1 7 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1 0 október kl. 3 e.h. Fyrir hönd aðstandenda Valdimar Hildibrandsson. t Útför systur minnar ÖNNU M. JÓNSSON, ekkju Einars Jónssonar, myndhöggvara . verður gerð frá Kristkirkju 1 Landakoti fimmtudaginrr 9. þ.m. kl. 10 árdegis. Franciska Gunnarsson
t Þökkum af alhug auðsýnda samijð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐFINNU GUÐMUNDSDÓTTUR, frá Mið-Fossum Kristln Pétursdóttir, Jón Glslason, Þorsteinn Pétursson, Ásta Hansdóttir, Rúnar Pétursson, Guðný Jónsdóttir og barnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og einlægan vinarhug við andlát og útför mannsins mins, föður og tengdaföður, afa og langafa, ERLENDAR SIGURÐSSONAR skipstjóra, Hverfisgötu 98. Guðrún Hálfdánardóttir, dætur, tengdasynir og afabörn.
neytið. Þeirra fallega heimili er i
Alexandriu, Virginiu.
Þó að Lída missti foreldra sfna
ung að aldri, voru islenzku
ræturnar djúpar. Hún talaði og
skrifaði móðurmálið án lýta, þó að
oft liðu ár, án þess að hún hitti
íslending. Hún sýndi syninum
landið, þegar hann var unglingur
og í fyrrasumar fóru þau hjónin í
tveggja vikna heimsókn til
ættingja og vina á Islandi og
höfðu mikið gott og gaman af.
Siðast liðinn marz kenndi hún
krabbameins og barðist hetjulega
á móti þeim sjúkdómi, en lézt 5.
september á Walter Reed her-
spftalanum, í Washington, D.C.
Kveðjuathöfn fór fram í Fort
Myer kirkjunni, sem stendur í
Arlington kirkjugarðinum og þar
hvila hennar jarðnesku leifar.
Minningarræðuna hélt séra
Alfred Saeger, að viðstöddu fjöl-
menni. Hann er lúterskur prest-
ur, sem þjónaði í mörg ár á Kefla-
víkurflugvelli.
Art hefur misst meira en orð fá
lýst, þvi að samstilltari hjón hefi
ég aldrei þekkt. Eins syrgja hana
sonurinn Eric Gestur, efnaverk-
fræðingur, kona hans Candice
barnakennari og litlu börnin
þeirra tvö, sem búa í Pittsburgh,
Pennsylvanfu.
Vinir Lidu í Bandaríkjunum
samhryggjast Art og fjölskyldu
hans, svo og bræðrum, fjölskyldu
og vinum á Islandi.
Ég mun sakna hennar mikið, og
okkar skemmtilegu samveru-
stunda. Adda.
— Bréfaskólinn
Framhald af bls. 10
tónlistarfræðsla Atla Heimis
Sveinssonar, Að hlusta á tónlist,
komi út á snældum..
Margt fleira er i bígerð i sam-
bandi við þessa endurskipulagn-
ingu á starfsemi bréfaskólans og
er ætlunin að hún geti þjónað sem
bezt áhugamálum þeirra samtaka
sem að honum standa, auk alls
almennings, en auk ASl og SlS
eiga nú aðild að bréfaskólanum
Farmanna- og fiskimannasam-
band Islands, Kvenfélagasam-
band Islands, BSRB og Stéttar-
samband bænda. Skólastjóri er
Sigurður A. Magnússon. Um 2000
manns stunda nú nám við
skólann.
STEFÁNS
HALLGRÍMSSONAR,
bifreiðastjóra,
Skólabraut 45, Seltjarnarnesi,
verður gerð frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 9 október kl.
1 5.00.
Magnea Guðjónsdóttir,
Hólmgrlmur Guðjón
Stefánsson,
Sigurjón Stefánsson,
Jón Stefánsson,
Guðbjörg Aðalheiður
Stefánsdóttir,
Ingibjörg Halldórsdóttir,
og barnabörn.
Vinsamlega birtiS eftirfarandi smáauglýsingu
í Morgunblaðinu þann: .................
<ill_______L—J___I__I__I__I__I__L_J---1 I---1 I__I__I_I Fyrirsögn 150
I I I I I__I__I__I__I I I I I I_I___I_I__I_I__l__J__I__I_I__I___I I 300
I I I I I I I__I__I__I__I__I I I I I I I__I__I_I__I__I_I__I__I__I 450
I I I I I I I I__I__I__I__I_I___I_I__I__I__I__I__I_I__I__I_I__I__L__I 600
I I I I I_I__I__I__I__I--1--1-1___I_I__I__J__I__I__I_I__I__I_I__l__\__I 750
I___I__I_I__I_I__I__I__I__I__I--1-1---\-1__I__\__I__I__I_I__\__I_I__I__I__I 900
I I I I I I I I l I__I__I__I__I_I___I_I_I__I__I__I__\__I_I__I_|__| 1050
Hver lína kostar kr. 1 50 Meðfylgjandi er greiðsla kr....................
v y y> ‘ Athugið Skrifið með prentstöfum og < „ setjið aðeins 1 staf í hvern reit. , Áríðandi er að nafn, heimili t .77.4 A£/*0' r jZíAWt /U> TfiJr-.A X. ZJA- 1
b J./A Me/t.a. ,/sus ./ &*/ua st/si- '
}» a&nv/t,. //f.J.i/.,/ yy^r//?/x/ ^
l .‘'/’/’.tyó./rf.M/e / S./ftA 9ácaA •<
og sími fylgi. . . * r J
Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
REYKJAVÍK. HAFNARFJÖRÐUR:
KJÖTMIOSTÖÐIN, Laugalæk 2, SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS LJÓSMYNDA- OG GJAFAVÖRUR
Háaleitisbraut 68, KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahlíð 45- HÓLAGAROUR, Lóuhólum 2—6 SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Reykjavlkurvegi 64, _47 VERZLUN ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR, Suðurgötu 36,
Álfheimum 74, KÓPAVOGUR
ÁRBÆJARKJÖR, Ásgeirsbúð, Hjaliavegi 2 *
Rofabæ 9 Borgarbúðin. Hófgerði 30
NAFN: .................................. ....
HEIMILI: ....................................SÍMI:
Eða senda I pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.