Morgunblaðið - 08.10.1975, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.10.1975, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTOBER 1975 Jóhannes kom Celtic í úrslitin JÓHANNES Eðvaldsson gerir það ekki endasleppt hjá Celtic. í fyrrakvöld skoraði hann eina mark leiksins gegn Partick Thistle í undanúrslitum deildarbikarsins. Celtic er því komið í úrslit keppn- innar og mætir líklega Rangers í síðasta leiknum. Jóhannes átti enn einn stórleikinn í gærkvöldi og fær hvarvetna mikið lof þeirra sem fjalla um leik- inn. (»uðmnndur Þ. Harðarson: Vantar bæði meiri breiíd og betri toppa SUNDFÉLAGIÐ Ægir og I raun- inni annað íslenzkt sundfólk hef- ur nú endurheimt hinn dugmikla þjálfara sinn, Guðmund Þ. Harð- arson, til starfa á ný. Guðmundur hefur sem kunnugt er dvalið við nám og starf I Bandaríkjunum undanfarin 2 ár, þar sem hann hefur m.a. tekið bandarískt íþróttakennarapróf f viðbót við það íslenzka. Þá hefur Guðmund- ur starfað að þjálfun með einum kunnasta sundþjálfara Bandaríkj- anna, Don Gambrill. Hafa þeir þjálfað lið Alabama háskólans i Tuscaloosa og á þeim tíma, sem þeir hafa verið hjá skólanum, hef- ur lið hans skotizt úr 29. sæti á bandaríska háskólameistaramót- inu og upp í 5. sæti. Guðmundur sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að það væri mikið starf framundan, það vant- aði bæði meiri breidd og sterkara fólk á toppinn í sundinu hér um þessar mundir. — Það er mikil vinna framundan i sundinu, en það verður vonandi gaman að takast á við þau mörgu verkefni, sem biða, sagði Guðmundur. Gudmundur Þ. Harðarson er á ný kominn galvaskur til starfa með íslenzku sundfólki. Golfmót á Höfn SÍÐASTA opna golfmót sumars- ins fer fram á Höfn i HornafirSi um næstu helgi. VerSur leikiS á hinum skemmtilega Silfurnesvelli á laugardag og sunnudag. í sam- bandi viS keppnina gefa Flugfé- lag íslands og Hótel Höfn afslátt af ferSum og gistingu. Írsþing LSÍ ÁRSÞING Lyftingasambands ls: lands verSur haldiS 6. desember næstkomandi. Fundarefni venju- leg aSalfundarstörf. Malfundor AOALFUNDUR BorStennisdeildar Vikings verSur haldinn i Víkings- heimilinu viS HæSargarS næst- komandi fimmtudag. Hefst fund- urinn klukkan 20.30. Kirby byrjar ,síðnstn lotn sína með IA í dag Sfmon Unndórsson hinn efnilegi skotmaður KR-inga á þarna hörku- skot að marki iR-inga, en ekki tókst betur til en svo að knötturinn lenti I andliti Sigurðar Svavarssonar eins og sjá má á myndinni. GEORGE Kirby mun ekki þjálfa lið Akurnesinga næsta sumar. Hver ástæðan er fyrir þvf að skyndilega er ákveðið að hann komi ekki til Skagamanna aftur er ekki Ijós. Sumir segja að I ferð Akurnesinga til Kýpur á dögun- um hafi sletzt upp á vinskapinn, aðrir segja að Kirby hafi ekki áhuga á að vera hér á landi við þjálfun, lengur og hvorki hann né Skagamenn hafi ætlað sér að hann yrði nema tvö ár hjá Skaga- mönnum. Til eru þeir sem segja að fjárkröfur Kirbys hafi verið orðnar of miklar til þess að Skagamenn treystu sér til að ráða við þær. Hvað um það, Kirby kem- ur til landsins I dag og mun hann sjá um undirbúning lA fyrir leik- ina við Dynamo. Sjálfsagt er eitthvað til í öllum þessum getgátum þvi að nú er skyndilega ákveðið að Kirby verður ekki áfram. Gunnar Sigurðsson formaður Knatt- spyrnuráðs Akraness sagði í viðtali við Morgunbiaðið í gær að ástæðurnar fyrir þvl væru fyrst og • fremst persónulegir hagir Kirbys. — Okkur er eftirsjá i Kirby, sagði Gunnar, og ekki bara okkur heldur almennt Islenzkri knattspyrnu. — Annars finnst mér að KSÍ hafi á freklegan hátt sniðgengið George. Kirby, sem mér finnst hæfastur þeirra erlendu þjálfára, Tekst KR að snúa á Víkingana íkvöld? SlÐUSTU leikir Reykja- víkurmótsins í handknatt- leik fara fram í Laugar- dalshöllinni í kvöld. Fyrst leika Þróttur og ÍR um 5. sætið í mótinu og hefst sá leikur klukkan 20.15, en strax að þeirri viðureign lokinni mætast Víkingur og KR í úrslitaleiknum. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að Víkingar skuli vera i úrslitum, en hitt vekur meiri at- hygli, að mótherjar þeirra eru KR-ingar. Til að komast í úrslitin þurftu þeirtað leggja 1. deildarlið- Reykjavíknrmót í blaki REYKJAVÍKURMEISTARAMÓTIÐ I blaki, karla og kvenna, fer fram i fþróttahúsi Háskólans dagana 6., 17. og 25. nóvember næstkomandi. Þitttökutilkynningar ásamt 25oo króna þátttökugjaldi þurfa að berast til Blakráðs Reykjavíkur fþróttamiS- stöðinni i Laugardal fyrir 15. október nk. in Fram og Ármann að velli og sömuleiðis iR-inga. Hver er kom- inn til með að segja að KR- ingarnir bæti ekki enn einni skrautfjöðrinni í hattinn I kvöld og vinni Viking. Það er orðið langt siðan KR- ingar urðu Reykjavíkurmeistarar síðast og Víkingar hafa aðeins af einum Reykjavíkurmeistaratitli að státa. Hins vegar hafa Víking- ar I ár bæði orðið Islandsmeistar- ar innanhúss og utan, en félagið hafði ekki áður unnið til þeirra titla. sem hér hafa starfað, hélt Gunnar áfram. — Ýmsir þeirra erlendu þjálfara, sem hér hafa starfað hafa gengið inn og út hjá KSl að eigin geðþótta virðist manni, en að mlnu mati hafa þessir menn búið yfir mun minni hæfileikum en Kirby. George Kirby hélt til Englands að loknum leiknum við Kýpur- mennina, en hann er aftur vænt- anlegur hingað til lands I dag. Mun hann unirbúa liðið fyrir leiki IA I Evrópukeppni meistara- liða gegn Dynamo Kiev, en það lið vann I fyrradag Bayern Munchen 2:0 I meistarakeppni meistaraliða og vann því leikina samanlagt 3:0. Ætla Skagamenn að leika heima- leik sinn á Akranesi og hefur bæjarstjórnin I því sambandi heitið þeim miklum stuðningi, m.a. gefið eftir vallarleigu. Unglingaliði boðið til Lmemborp' FRÁ ÞVl var skýrt í Morg- unblaðinu fyrir nokkru að íslenzku unglingaliði í knattspyrnu hefði verið boðið að taka þátt í knatt- spyrnumóti I Svíþjóð næsta sumar. Nú hefur KSl borizt annað bréf þar sem öðru íslenzku ungl- ingaliði er boðið að taka þátt í knattspyrnumóti í Luxemburg um næstu páska. Er það félagið Wiltz, sem nú efnir í fimmta skipti til móts sem þessa og verða þátttökuliðin alls fjögur. Væntanlega eitt frá Luxemburg og hin frá Is- landi, Hollandi, Danmörku, Þýzkalandi eða Belgíu. Leikmenn liðanna verða allir að fera fæddir eftir 1. ágúst 1957. Þau félög sem kynnu að hafa áhuga á þessu boði eru vinsam- legast beðin að hafa sam- band við skrifstofu KSÍ sem allra fyrst. 1. deild Islandsmótsins í knattspyrnu: Áhorfendum fœkkaði en tekjurnar jukust AHORFENDUM að leikjunum f 1. deild Islandsmótsins I knattspyrnu fækkaði um 11% I sumar frá þvf sem var sumarið 1974. Þótt ótrúlegt kunni að virðast fækkaði áhorfendum mest f Keflavfk og á Akranesi þrátt fyrir það, að sfðarnefnda félagið stóð sig bezt allra félaganna f 1. deildinni. Að meðaltali sáu 953 áhorfend- ur hvern leik f 1. deildinni f sumar, en 1059 árið áður. Akurnesingar fengu mestar tekjur lið- anna í 1. deild, eða tæplega 1800 þúsund krónur. FH-ingar fengu hins vegar minnstar tekjur, tæplega 660 þúsund, og munaði þvf rúmri milljón á tekjum þess liðs sem dró að sér flesta áhorfendur og þess sem fæst fólk horfðí á í sumar. Þeir leikir sem drógu aó sér flesta áhorfendur I 1. deildinni fóru allir fram f Reykjavík og það er athyglisvert að áhorfendum að knattspyrnuleikjum I höfuðstaðnum hefur farið ört fjölgandi. Þannig voru þeir 1031 I fyrra, en 1107 I sumar. Framangreindar upplýsingar eru fengn- ar hjá hinum ötula gjaldkera Knatt- spyrnusambands Islands, Friðjóni Friðjónssyni. Hér fara á eftir tölur yfir aðsókn og tekjur liðanna I 1. deildinni I sumar og breytingar frá 1974, þar sem þær eru fyrir hendi: TEKJUR einstakra félaga f 1. deild 1975: Akranes 1.773.400 þúsund Fram 1.426.197 þúsund KR 1.192.355 þúsund IBK 1.157.825 þúsund Valur 1.129.820 þúsund Víkingur 921. 524 þúsund IBV 780.845 þúsund FH 659.444 þúsund Alls komu inn 14 milljónir 387 þúsund krónur I sumar á leikjum 1. deildar, en 10 milljónir 424 þúsund síðastliöið sumar. Þess ber að gæta að verð aðgöngumiða hækkaði nokkuð I vor. Tekjur félaganna námu samtals 10.4 milljónum I sumar, en 6.5 milljónum I fyrra. Meðaláhorfendafjöldi að leik I sumar var 953 og er það 11% fækkun frá síðast- liðnu sumri, en þá sáu 1059 manns hvern leik að meðaltali. meðaltal meðaltal Staður 1975 1974 breyting Reykjavík 1107 1031 7% Akranes 1003 1153 — 15% Keflavík 1060 1252 — 28% Vestmannaeyjai 596 580 3% Hafnarfjörður 535 — Tekjuhæstu leikir: Fram — IA 356.788 þús. krónur I hlut hvors félags KR — IA 187.582 Valur — IA 148.289 Þeir leikir sem gáfu minnstar tekjur af sér: Valur — FH 23.951 þús. kr. I hlut hvors félags IBV — KR 21.252 FH — Víkingur 3.978 Meðalhagnaður af hverjum leik nam 75.673 krónum til hvors leikaðila. Þess má að lokum geta, að eftir úrslita- leik bikarkeppni KSl kom tæplega hálf milljón f hlut hvors félags, IBK og ÍA. Mesta tapið af einum leik í bikarkeppn- inni var á leik IBV og Þróttar frá Nes- kaupstað eða 207 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.