Morgunblaðið - 03.12.1975, Side 1
32 SÍÐUR
277. tbl. 62. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
Prontsmiðja Morgunblaðsins.
Landhelgi
Grænlands
í 200 mílur
— náist ekki sam-
staða á Hafréttar-
ráðstefnunni
Kaupmannahöfn, 2. des. Ntb.
DANIR ætla að fallast á að
færa út fiskveiðilögsögu
Grænlendinga í 200 mílur,
ef ekki næst samstaða á
Hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna á næsta
ári um 200 mflna enfahags-
lögsögu strandríkja. Var
þetta tilkynnt formlega að
loknum ríkisstjórnarfundi
í Kaupmannahöfn í dag.
Frá fundi Mao Tse-tung, formanns kfnverska kommúnistaflokksins, og Geralds Fords Bandarfkjaforseta í Peking í gær. Þeir ræddu
saman f tæpar tvær klukkustundir. Fréttamenn vöktu athygli á að Nixon fyrrv. Bandarfkjaforseti og Mao hefðu ekki rætt saman nema f
klukkustund þegar þeir hittust fyrir röskum þremur árum.
Jörgen Peder Hansen
Grænlandsmálaráðherra
sagði að stjórnin hefði
fallist á þá áætlun sem
hann og Grænlandsmála-
ráðið höfðu gengið frá í
fyrri viku um takmörkun
rækjuveiða við Vestur-
Grænland.
Metverð
á fiski
í Bretlandi
AP-fréttastofan greinir frá því
að fiskverð f Bretlandi hafi
aldrei verið hærra en s.l.
mánudag, þegar togarinn
Boston Marauder landaði 41,5
tonn af flatfiski f Fleetwood.
Verðið, sem fékkst fyrir hvert
pund nam sem svarar 116
krónum íslenzkum en fyrir
aðeins þremur vikum fengust
72 krónur fyrir pundið f
Grimsby og var það hæsta verð
fram að þeim tíma.
Þorskur hækkaði um 7 af
hundraði á Bretlandsmarkaði
á mánudaginn. Þá fengust 134
krónur fyrir pundið, og nam
hækkunin 7 af hundraði. Verð
Framhald á bls. 31.
Mao hvatti Ford til að draea úr
áhrifum detente við Sovétríkin
Peking, 2. desember, Ntb.-Reuter.
MAO Tse-tung, formaður kfn-
verska kommúnistaflokksins
mun hafa hvatt Ford Bandaríkja-
forseta til að beita áhrifum sfnum
til að draga úr pólitískum áhrif-
um detente Bandarfkjanna og
Sovétríkjanna, þegar þeir rædd-
ust við f tæplega tvær klukku-
stundir á heimili Maos f dag.
Ford forseti kom til heimilis
Maos ásamt eiginkonu sinni og
dóttur, svo og nánustu ráðgjöfum
sfnum og tók formaðurinn á móti
þeim. Þeir ræddu sfðan saman
eins og áður segir og voru þá
aðeins við nánustu ráðgjafar
þeirra. Ekkert hefur opinberlega
verið sagt frá þvf sem leiðtogun-
um fór á milli.
Fréttastofan Nýja Kína sagði
frá þvi að fundurinn hefði verið
„gagnlegur og rætt af alvöru um
þýðingarmikil málefni." Sérfræð-
ingar um kínversk málefni segja
að þetta orðalag bendi til þess að
Mao hafi hvatt Ford til að gæta
hófs í slökunarstefnu Bandaríkj-
anna gagnvart Sovétríkjunum. A
því er einnig vakin athygli að
frásögn fréttastofunnar gefi vís-
bendingu um að ekki hafi verið
litið á þetta sem formlega
kurteisisheimsókn, þar eð þeir
Kissinger utanríkisráðherra og
Teng Hsiac Ping aðstoðar for-
sætisráðherra hafi verið vWstadd-
Bandarískir blaðamenn hylltust
í fyrstu til að leggja það svo út, að
ekkert var nánar frá fundi Maos
og Fords sagt, að bandarisku full-
trúarnir væru óánægðir með við-
ræðurnar, og teldu að þær hefðu
verið árangurslitlar.
Mao formaður hefur áður i sam-
tölum sínum við ráðamenn frá
Vesturlöndum m.a. Henry
Kissinger og síðan Schmidt
kanslara Vestur-Þýzkalands
varað Vesturveldin við að halda
detente til streitu gagnvart Sovét-
ríkjunum. Kínverskir leiðtogar
hafa einnig líkt Helsinki-
samningnum frá í sumar við
Múnchenarsáttmálann á sinum
tfma.
Framhald á bls. 31.
Landhelgismálið:
Vestur-Þjóðverjar ræða við
Breta á NATO-fundinum
SAMKVÆMT fregnum
AP-fréttastofunnar hefur
Hattersley, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bretlands,
Hans-Jurgens Wisch-
newski, aðstoðarutan-
Hryðjuverkin í Hollandi:
Flestir gíslanna enn
í lestinni í gærkvöldi
A.m.k. 2 voru myrtir
en 5 tókst að flýja
Beilen, Amsterdam, Hollandi,
2. des. Reuter. NTB.
— 1 KVÖLD sagði NTB-
fréttastofan frá þvf að fimm af
gíslunum sem eru i farþegalest-
inni við Beilen i Hollandi sem
hryðjuverkamenn rændu fyrr um
daginn, hefðu komizt undan i
skjóli myrkurs. Áður hafði einum
gfslanna tekizt að flýja. Talið er
þó að milli 40 og 50 manns séu
enn f lestinni.
Ræningjarnir skutu f dag tvo
gfslana til bana og hentu lfkum
þeirra út úr lestinni og skutu
sfðan nokkrum skotum á Ifkin.
Myndin er tekin af farþegalestinni sem hryðjuverkamenn rændu við
Beilen í Hollandi f gær. Eins og sjá má er myndin tekin úr allmikilli
fjarlægð þar sem næsta nágrenni var afgirt. Ræningjarnir hentu
tveimur Ifkum út úr lestinni og skutu á þau. Síðar f gærkvöldi tókst
nokkrum gfslanna að komast undan í skjóli myrkurs.
Þeir leyfðu tveimur konum og
tveimur börnum að fara úr lest-
inni til að bera lögreglunni kröf-
ur þeirra. 1 þeim munu þeir
krefjast að fá stóran farþega-
flutningabíl og sfðan flugvél til
umráða og leyfi til að komast úr
landi. Dómsmálaráðherra Hol-
lands Andreas Van Agt sem hafði
vfirumsjón með umsátrinu um
lestina f dag, sagði þó að engar
Framhald á bls. 31.
ríkisráðherra V-Þýzka-
lands, um að miðla mál-
um í fiskveiðideilu
Breta og íslendinga, og
hefur brezka utanríkis-
ráðuneytið sent ráðu-
neytinu í Bonn þau skila-
boð, að haft verði samband
vegna málsins i næstu
viku. Hattersley hefur
jafnframt tekið fram, að
hann muni hafa samband
við V-Þjóðverja komi eitt-
hvað sérstakt fyrir í sam-
bandi við deiluna fyrir
þennan tíma, en að öllu for-
fallalausu muni hann ræða
málið við v-þýzka ráðherra
á ráðherrafundi Atlants-
hafsbandalagsins, sem
haldinn verður í næstu
viku.
Níels P. Sigurösson, sendiherra
Þingforseti Sviss
lézt í slysi
Genf 2. des. Reuter.
FORSETI svissneska kantónu-
þingsins, Gustave Morex, lézt f
dag, þegar bifreið hans rakst á
tré, er hann var að aka áleiðis til
Genfar frá Amnecy f Frakklandi.
Morex var 56 ára að aldri.
Islands í Lundúnum hefur lýst
ánægju sinni með þessa hugmynd
og telur að V-Þjóðverjar eigi mun
hægara en Norðmenn með að
miðla málum í deilunni vegna
aðildar sinnar að. Efnahagsbanda-
laginu. Þá sagði Niels P. Sigurðs-
son: „Ég býst við að fslenzka ríkis-
stjórnin taki tilboði V-
Þjóðverjanna með þökkum, að því
tilskildu að Bretar fari með flot-
ann út úr landhelginni áður en
setzt verður að samningaborði."
Spánn:
Nýr forseti
þjóðþings
Madrid. 2. des. Reuter.
JUAN CARLOS, konungur
Spánar, útnefndi í dag fvrrver-
andi kennara sinn Torcuato
Fernandez Miranda, forseta
þjóðþings Spánar, að því er
tilkvnnt var opinberlega í dag.
Konungurinn valdi Miranda
úr hópi þriggja manna sem
sautján manna ráðgjafaráð
hvatti hann til að sækja f þjóð-
þingsforsetann nýja.
Miranda er íhaldssamur og
fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra. Miranda var forsæt-
isráðherra í níu daga eftir að
Luis Carreiro Blanco var ráð-
Framhald á bls. 31.