Morgunblaðið - 03.12.1975, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
22
Áslaug Björnsdóttir
Borgarnesi - Kveðja
Hinn 18. nóv. 1975 fór fram
kveðjuathöfn í Borgarneskirkju.
Kvödd var Áslaug Björnsdóttir
húsfrú í Borgarnesi. Kirkjan var
þéttskipuð, og fór öll athöfnin
fram vel og virðulega.
Áslaug var fædd 18.8. 1909 að
Brautarholti í Haukadal. For-
eldrar hennar voru Guðrún Ólafs-
dóttir og Björn Jónsson smiður.
Hún fluttist ung með foreldrum
í Borgarnes og hefur átt þar
heima síðan.
Árið 1931 giftist hún Ólafi
Guðmundssyni bifvélavirkja.
Hófu þau búskap á Brákarbraut
1. og hafa búið þar síðan. Þau
eignuðust tvær dætur: Aðal-
björgu, gifta Jenna R. Ólasyni,
fulltrúa hjá Vegagerðinni í
Borgarnesi, og Birnu, gifta Guðm.
Inga Waage byggingameistara.
Á fyrstu búskaparárum sínum
stundaði Ólafur akstur a.m.k. á
sumrin. Sumarið 1935 var ég i
vegavinnu upp á Holtavörðuheiði.
Þá kynntist ég þeim hjónum
fyrst. Ólafur ók þá vörubifreið, en
Áslaug var ráðskona hjá einum
vinnuflokknum. Áslaug var lag-
leg kona, há og grannvaxin.
Svipurinn hreinn, brosið elsku-
legt og kom glampi í augun er
hún sagði frá því, sem henni var
hugstætt.
Árið 1942 fluttumst við hjónin í
Borgarnes. Þá endurnýjuðust
kynni mín við þau hjón. Þau
Áslaug og Ólafur áttu hlýlegt og
snoturt heimili, sem gott var að
koma á. Þar ríkti hljóðlát gleði
sem yljaði gestum, og ekki voru
veitingar sparaðar.
Svo samhent virtust mér þau
vera, að ekki yrði á betra kosið. Á
sumrin fóru þau oft á bílnum
sínum og söfnuðu sjaldgæfum
blómum og steinum. Myndir voru
teknar af sérkennilegum stöðum
og skoðaðar er heim kom, f góðu
tómi.
Margt blómið kom Áslaug með
til konu minnar, sem kunni vel að
meta það, þar sem hún er blóma-
unnandi.
Áslaug og Ólafur áttu lítinn en
vel hirtan blómagarð. Þar dvöldu
þau oft og hlúðu að viðkvæmum
jurtum, fylgdust með þroska
þeirra eða hnignun og ræddu um,
+
Móðir okkar.
GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR,
Hléskógum við Vatnsveituveg,
andaðist í Borgarspitalanum 2 desember
Börnin.
t
Eiginmaður mmn,
ÓLAFUR D.S JÓHANNESSON,
kaupmaður
Grundarstíg 2,
andaðist í Landspitalanum 1 desember
Guðrún Sigurðardóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir
GUÐRÚN ERLENDSDÓTTIR
frá Geirmundarbæ, Akranesi,
sem lést 26 nóv verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudaginn 4
des kl 2
Þeim sem vildu mmnast hinnar látnu er bent á sjúkrahús Akraness
Kristinn Gfslason,
börn og tengdabörn.
Bróðir okkar.
HALLDÓR GUÐJÓNSSON
frá ísafirði
sem lézt af slysförum þann 26 nóv. s.l. verður jarðsettur frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 4 þ m kl 3 e h
Systkinin og aðrir aðstandendur.
t
Inmlegar þakkir sendum við öllum er auðsýndu okkur samúð og vináttu
við fráfall BJÖRNS E JÓNSSONAR,
verkstjóra,
Bogahlíð 15.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á sjúkradeild A-4 Borgarspitalans
fyrir frábæra hjúkrun og umönnun í veikindum hans
Vilborg ívarsdóttir
og aðrir vandamenn
t
Öllum sem sýnt hafa okkur hlýhug og vináttu við fráfall föður okkar,
tengdaföður og afa.
JÓHANNESAR EINARSSONAR,
bónda
Ferjubakka
færum við okkar bestu þakkir
Börn. tengdabörn og barnabörn.
Halldór Finn boga-
son — Arndal
eins og um börn væri að ræða. —
En nú urðu þáttaskil.
Áslaug veiktist, lá fyrst heima,
en var svo flutt til Reykjavíkur,
og þar dó hún 11. nóv. s.l.
Ólafur fór suður með henni og
var þar þangað til yfir lauk.
Blómin sem sprungu út í vor
eru nú fölnuð. En næsta vor, er
sól hækkar á lofti, lifna þau aftur
og gleðja unga og aldna.
Aslaug er látin. Margir munu
sakna hennar. Við kona mín þökk-
um henni góð og löng kynni. Inni-
Iega samúð viljum við tjá Ólafi
vini okkar, dætrum þeirra,
tengdasonum og barnabörnum.
Hermann Búason
Mikil slysaalda hefur snert
okkur óþyrmilega. Mig setti
hljóða, þegar tengdadóttir mín
hringdi i mig og tilkynnti mér, að
Halldór bróðir sinn hefði farist í
bílslysi þann sama dag. Ég gat
varla trúað þessu, en þetta var sár
staðreynd. Þessi stóri og efnilegi
drengur var dáinn aðeins átján
ára að aldri. Hörmulegir atburðir
eru ekki lengi að gerast. Aðeins
fáum stundum áður höfðu for-
eldrar hans kvatt hann frískan og
hressan uppi í Borgarfirði á leið
sinni til Reykjavikur. Þau voru
rétt nýkomin þangað, þegar þeim
barst þessi voðalega harmafregn.
Halldór var fæddur 8. maí 1957
sonur hjónanna Guðnýjar
Halldórsdóttur og Finnboga
Arndal. Þau búa að Árdal i
Andakílshreppi, en Halldór var
einkasonur þeirra hjóna, en þau
eiga jafnframt þrjár dætur.
Ég hitti Halldór fyrst, þegar
hann var 14 ára. Hann var stór og
karlmannlegur eftir aldri, og
óraði engan, að hann væri yngri
en tvitugur. En í honum bjó ein-
læg barnssál, þótt stór væri. Vafa-
laust hefur það oft verið erfitt,
Minning:
Bragi Ólafsson,
verkfrœðingur
Vitur maður sagði eitt sinn:
„Lifi maður lengi er óhjákvæmi-
legt að þurfa að kveðja ýmsa af
samtíðarmönnum sínum." Þegar
ég heyrði lát kunningja míns,
Braga Ólafssonar verkfræðings,
sem lézt á ferðalagi f London ný-
lega, rifjuðust upp fyrir mér
kynni mín af mjög skemmtilegum
persónuleika. Við vorum sam-
starfsmenn á teiknistofu Lands-
smiðjunnar 1948—49. Bragi var
með sérstökum hætti heillandi f
starfi, mjög hugmyndaríkur og
vakti áhuga samstarfsmanna
sinna, létt skap var honum með-
fæddur eiginleiki, en þó innan
þess ramma, að starfið sat alltaf f
fyrirrúmi. A þessum árum var
unnið við hringsenu Þjóðleik-
hússins, mikið og tæknilega erfitt
verk, var þetta eitt fyrsta verk-
efni Braga á verkfræðisviðinu, en
hann leysti verkefnið á mjög
skemmtilegan hátt, en slíkur er
háttur þeirra, sem kunnáttu og
hæfileika hafa til hlutanna. Bragi
var yngri maður en ég, þó gat ég
mikið af honum lært, mun það
vera eitt stærsta lífshnoss að vera
samvistum við slíka menn. Is-
lenzka þjóðin getur af ýmsu
státað, miklir hæfileikamenn
hafa lifað og starfað með þjóð
vorri og undarlegt má telja, að þó
iðnaður og tækni hafi ekki verið
snar þáttur í fslenzku þjóðlífi,
höfum við eignazt nokkuð marga
afburðamenn á því sviði, og var
Bragi Ólafsson einn í þeirra hópi.
Faðir Braga, Ólafur Magnússon
kaupmaður, sem kenndur var við
fyrirtæki sitt Fálkann h.f., var
mikill dugnaðar- og ráðdeildar-
maður, nýtni og reglusemi voru
honum í blóð borin, enda fyrir-
tæki hans í flokki þeirra sem bezt
orð fer af, var það honum mikil
gæfa, að synirnir tóku við góðu
búi og ekki rýrðist það í þeirra
höndum. Bragi varð forstjóri
Fálkans eftir að hafa starfað
nokkur ár í Landssmiðjunni, Vél-
smíðjunni Héðni og Iðnþróunar-
stofnun Islands, hvar hann var
fyrsti framkvæmdastjóri og
mótaði þá stofnun í upphafi. Fálk-
inn h.f. er því fyrirtæki, sem nú
starfar í öðrum ættlið og munu
ekki mörg íslenzk fyrirtæki vera
rekin þannig, að rismeiri verði f
öðrum ættlegg. Haraldur, bróðir
Braga, er nú aðalforstjóri fyrir-
tækisins.
Nú að leiðarlokum sendi ég
bróður Braga Haraldit mínar inni-
legustu samúðarkveðjur og bið
ættmönnum öllum Guðs bless-
unar. Þar sem góðir menn fara
eru Guðs vegir.
Aðalsteinn Jóhannsson.
þegar togast hefur á barnssálin og
karlmaðurinn. Halldór var sér-
lega gjafmildur og hjálpfús. Jafn-
vel hefur hann verið of gjafmild-
ur stundum. Hann var sívinnandi,
en átti samt lítið sjálfur.
Ég kynntist Halldóri best,
þegar hann dvaldi hjá systur
sinni í Hafnarfirði og stundaði
nám f Flensborgarskóla. Það var
mikill samgangur og var Halldór
ætíð aufúsugestur. Alltaf var
hann reiðubúinn að hjálpa, bæði
mér og börnum mínum. Það var
sama hvort þurfti að smíða eða
mála, eða gera við reiðhjólin
barnanna. Aldrei gleymi ég gleði
Halldórs, þegar hann var að gera
innkaupin fyrir jólin. Þrátt fyrir
lítil auraráð þurfti helst að gefa
öllum.
Halldór var stór og sterkur, en
hann var líka sérlega handlaginn,
og held ég að flest hafi farið
honum vel úr hendi. Hann átti
það jafnvel til að sitja á kvöldin
og sauma út. Fagrir útskornir
munir eru til eftir hann siðan í
skóla.
Þrátt fyrir ungan aldur var
hann búinn að reyna margt. Hann
hafði ekki slitið barnsskónum,
þegar hann fór til sjós, var á tog-
urum, varðskipum og bátum.
Hann var gjarnan sem aðstoðar-
maður í vél, til aðstoðar f eldhúsi
og síðar matsveinn, og kom sér þá
vel það, sem hafði lærst heima.
En hann hafði hug á að verða
vélstjóri, en það var sjórinn sem
heillaði hann mest.
I haust brá Halldór sér í tima-
bundna vinnu við sláturhúsið í
Borgarnesi, en þar var hann við
vinnu þegar hann lést. Þessi upp-
talning sýnir að margt var búið að
reyna af ekki eldri manni, énda á
hann ekki langt að sækja dugnað.
Ég vil með þessum fátæklegu
kveðjuorðum þakka Halldóri vin-
áttu hans og einlægni, hjálpsemi
hans og tryggð. Okkur öllum þótti
vænt um hann, og eigum erfitt
með að sætta okkur við að þessi
ungi og efnilegi piltur skuli vera
horfinn okkur.
Ég bið Guð að hugga og styrkja
foreldra Halldórs og systur í
þeirra miklu sorg, einnig ömm-
urnar og Jónu í Borgarnesi, sem
öll sakna hans svo mikið.
Jarðarförin fór fram laugar-
daginn 25. október, og þótti okkur
hjónum leitt að geta ekki verið
við þá athöfn og fylgt Halldóri
síðasta spölinn á leið sinni inn í
þann góða heim, sem bfður okkar
allra.
Ragna.
+
Móðir okkar
ODDNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bollagötu 7, Reykjavfk
andaðist á Vífilsstaðaspítala 1
desember s I
Synir hinnar látnu.
+
Útför bróður okkar
JÓHANNS GUDNASONAR,
er lést 26 nóvember, fer fram
fimmtudaginn 4 desember kl
1 3 30 frá Fossvogskirkju
Systkinin.
t
VALDIMAR KJARTANSSON
Stórholti 39
andaðist í Borgarspitalanum 2
des
Fyrir hönd barna okkar og
móður hins látna
Christlna Kjartansson