Morgunblaðið - 23.12.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.12.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975 19 Afbólum og pestum á Islandi SÖGUFÉLAGIÐ hefur nýlega gefiS út Menningu og meinsemdir — ritgerðasafn um mótunarsögu Islenzkrar þjóðar og barðttu hennar við hungur og sóttir eftir Jón Steffensen prófessor. Meginhluti bókarinnar er óbreytt endurprentun i eldri greinum en þó er I bókarhluta þeim sem höfundur nefnir Vöxtur og sótt að finna tvær greinar, sem ekki hafa verið prentaðar áður. Eru þetta greinarnar „Bólusótt á íslandi" og „Pest á íslandi" en hin slðamefnda kemur á Islenzku samtlmis því sem hún birtist á ensku I Nordisk Medicinhistorisk Arsbok. Verður hér á eftir leitast við að draga fram kjama þessara greina beggja. í grein sinni um Bólusótt á fslandi segir prófessor Jón Steffensen að Islenzkar heimildir um bólusótt eigi nokkurri sérstöðu að fagna meðal hliðstæðra heimilda þjóða, og beri þar aðallega þrennt til. Bólnasótt, bóla eða bólusótt hafi frá upphafi verið notað I Islenzku um veriola og enga aðra farsótt, sem auðveldi mjög að rekja feril hennar aftur I aldir. f annan stað hafi aldrei fyrir daga kúabólusetningar verið það mikið þéttbýli hérlendis, að sjúk- dómur eins og bóla, sem láti eftir sig ævilangt ónæmi, gæti Ilenzt hér og þvl orðið að barnasjúkdómi. Hins vegar hafi það viðast hvar verið orðin staðreynd I gamla heiminum, þegar haldgóðar lýsingar á sjúk- dóminum voru fyrst festar á bókfell. Af þeim sökum séu islenzku bólu- sóttarfaraldrarnir fátiðari, en að sama skapi þyngri en I þeim löndum, þar sem bólan var landlæg. f þriðja lagi sé fsland eyja. langt frá næsta byggða bóli, og auðveldi það einnig mjög að átta sig á upptökum sóttarinnar. Jón dregur saman heimildir sínar i lok greinarinnar og segir þar: „það hefur komið i Ijós, að frá þvi bólusótt kemur fyrst fyrir i islenzk- um heimildum á siðari hluta 13. aldar og alla tlð síðan, er það eða styttingarheitið bóla aðeins notað sem sérheiti á variola, án samkurls við mislinga eða aðrar bráðar út- brotasóttir, þar með talda sárasótt. Og það eru engar haldgóðar heimildir fyrir þvi, að nokkurt annað heiti I málinu hafi verið notað sam- hliða bóluheitunum. Það eru öruggar heimildir fyrir þvi, að bólusótt hefur i 21 skipti gengið á fslandi, og eru þeir faraldrar teknir saman í töflu 5 ásamt þvi helzta, sem um þá er vitað. f þau skipti, sem einhver deili eru sögð á bólufaraldri, má ráða, að hann hafi farið um mestallt landið, og ér langliklegast, að svo hafi verið um alla þá, sem gengu, áður en kúabólusetning hófst, nema faraldurinn 1766 Hann fór aðeins um Vestfirði, sem eflaust kemur til af þvi að faraldurinn 1761—64 mun ekki hafa komið á þá, og fimm ár er sýnilega of skammur timi til að búa I haginn fyrir nýjan faraldur um allt landið. Þess er niu sinnum getið, á hvaða árstima faraldur berst til landsins. og koma þar allar árstiðir við sögu nema vetur (vor i 3 skipti, sumar 4 og haust 2). Það er eins og vænta mátti á þeim árstima, þegar sigling til landsins var mest, hvort heldur var um kaup- eða fiskiskip að ræða. Fyrir 1600 er aðeins vitað um einn bólufaraldur, hvaðan hann barst til landsins, nefnilega þann, sem gekk 1379—80. Hann kom á kaupförum frá Noregi, og er mjög liklegt, að það sama eigi við um alla þjóðarinnar. Um síðara atriðið er við eftirfarandi að styðjast: Árin 1696—1702 eru öll hungurfellis- ár, sem fækka þjóðinni um 4000, og 1 706 er enn mannfall af vaneldi. Eftir stóru bólu og til 1741 er ekkert Glefsur úr tveimur áður óbirtum greinum í ritgerðabók Jóns Steffensens prófessors, ,Menning og meinsemdir .tf faraldrana fyrir þann tlma, þvi að þá eru öll aðalviðskipti okkar við Noreg og erlend fiskiskip ekki farin að sækja á miðin hér við land. Kringum aldamótin 1400 hefjast verzlunar- viðskipti við Englendinga, og þeir taka að venja komur slnar til lands- ins, bæði I verzlunarerindum og til fiskveiða. Þar sem báðir pestar- faraldrarnir berast hingað frá Bret- landseyjum (sjá bls. 334), má telja liklegt, að það eigi einnig við um báða bólufaraldrana, sem gengu hér á 1 5. öld. Þeir fjórir bólufaraldrar, sem gengu á 16. öld, hafa senni- lega flutzt til landsins með þýzkum og enskum skipum, því báðar þessar þjóðir höfðu sig mjög i frammi hér á landi þá. Eftir að einokunarverzlun Dana á íslandi hefst 1602, er þeim einum leyfð hér verzlun, en þð er það aðeins tvisvar, að dönsk kaupför flytja bólusótt til landsins (sjá töflu 5). Það eru langtíðast erlendar fiski- duggur, sem verða til þess að bera veikina til landsins, enskar á 17. öld, hollenzkar á 18. öld og þá siðustu frönsk fiskiskúta. Við ákvörðun tfmalengdar milli bólufaraldra er öruggast að miða við upphafsár þeirra, þvl það mun vera það ár, sem heimildir greina, sé faraldursins aðeins getið við eitt ár, eins og tiðast er um þá faraldra, er gengu fyrir 1 600. En það er vist, að bólufaraldur, sem fer um mestallt landið, deyr aldrei út á sama ári og hann hefst, og oftast er óöruggt. hvenær honum lýkur. Þegar þannig er reiknað, sést af töflu 5, að 15—52 ár eru á milli upphafa faraldranna. sem fara yfir mestallt landið, I sjö skipti 15—20 ár, tvö 21—30 ár, sex 31—40 ár og þrjú 41—52 ár. Af bólufaröldrum á 17. og 18. öld (öðrum en þeim 1766) virðist enginn þeirra hafa skemmri viðdvöl Bólufaraldrar á fslandi. Ár Kom inn i landið Upprunaland 1240 ? ? 1291 ? 7 1310 ? ? 1347—48 Sunnanlands ? 1379—80 ? Noregur 1431 ? ? 1472 ? ? 1511 —12 ? ? 1555—56 ? ? 1 573 ? ? 1590 ? ? 1616—17 Sandur, Snæfellsnes England 1635—37 Dýrafjörður, Vestfirðir England 1655—58 Dýrafjörður, Vestfirðir England 1670—72 Arnarfjarðardalir, Vestfirðir ? 1707—09(171 1) Eyrarbakki, Suðurland Danmörk 1 741—43 Norðfjörður, Austurland Holland 1761—64 Langanes, N-Austurland Holland 1766 Súgandafjörður, Vestfirðir Holland 1785—87 Hafnarfjörður, S-Vesturland Danmörk 1839—40 Vestmannaeyjar, Suðurland Frakkland en um tvö ár og lengst um 3Vi ár, og er þá gert ráð fyrir, að ungbarna- bólan 1711 sé sérstakur faraldur, að vísu sprottinn upp úr þeim 1707—1709, en eftir allt að árs hléi bólulausu. Engin ástæða er til að ætla, að nokkur hinna fyrri faraldra hafi haft öllu skemmri við- dvöl en tvö ár. Útbreiðsluhraði bólusóttar um landið er sýnilega mjög háður árs- tiðabundnum ferðalögum fólks i sambandi við atvinnuhætti og alþing. Um vorið og fyrri part sumars er fólksstraumurinn úr verstöðvum i sveitina, en á haustin og snemma vetrar gengur fólks- straumurinn i gagnstæða átt. 8. júli eiga menn að vera komnir til þings, og því lýkur venjulega á tveim vik- um Bóla, sem berst til landsins um vor og fyrri hluta sumars, mun að öðru jöfnu breiðast örar út en sú, sem hefst að hausti til. Ennfremur mun sótt, sem tekur land á afskekkt- um stöðum, berast séinna um landið en sú, sem hefst í stærri verstöðvum og verzlunarplássum. Annað veigamikið atriði fyrir út- breiðsluhraða bólunnar er, hve margir eru næmir fyrir henni eða með öðrum orðum, hve langt er, siðan næsti faraldur á undan var á ferðinni. Um faraldrana 1573, 1655—58, 1670—72 og 1761—64 er tekið fram, að þeir fari hægt yfir, og um tvo þeirra, 1761—64 og 1655—58, er kunnugt. að viðdvöl þeirra á landinu er sú lengsta, sem vitað er um, eða 3 og 316 ár. Allir þessir 4 faraldrar koma 15—20 árum eftir upphaf næsta faraldurs á undan, og eru þá ekki nema 27—37% af þjóðinni næm fyrir bólu. Mannfall af bólu mun aðallega ráðast af þremur atriðum, sýkingar- mætti bóluveirunnar, fjöldi þeirra, sem næmir eru fyrir henni, og al- mennum viðnámsþrótti þjóðarinn- ar gegn sjúkdómnum hverju sinni. Það er aðeins I tveimur bólufaröldr- um, sem vitað er með sæmilegu öryggi um mannfallið, þ.e. stóru bólu 1707—09, er 26,4% ibú- anna létust úr veikinni, og faraldrin- um 1 785-—87, er tæp 4% létust úr bólu Faraldrarnir 1741—43 og 1761—64 voru vægir, og mun ekki fjarri lagi að áætla manndauð- ann I þeim 2—216% ibúanna (sjá bls. 309), og minni manndauða en þvl mun ekki hægt að gera ráð fyrir i neinum þeim bólufaraldri, sem fer um mikinn hluta landsins. Það er lærdómsrikt að bera saman faraldr- ana 1707—09 og 1741—43. l' þeim má gera ráð fyrir, að álika mikill hluti þjóðarinnar hafi verið næmur fyrir bólu, þar sem líkur timi er liðinn frá upphafi næsta faraldurs á undan, eða 37 og 34 ár. Þrátt fyrir það er vart hægt að hugsa sér meiri mun á þyngd sóttanna, sem þá ætti að byggjast á hinum tveim þáttun- um, mismun á sýkingarmætti veir- unnar oo mismiklum viðnámsþrótti ár, sem ég hef talið örugglega um mannfall af vaneldi að ræða, en vafasöm eru talin árin 1718, 1723 og 1738 (sjá kaflann um hungur- sóttir). Þegar tafla 5 er athuguð nánar, kemur I Ijós, að um 1555—56 verða greinileg þáttaskil i henni. Fyrir þann faraldur liða að jafnaði liðlega 39 ár á milli upphafsára þeirra, en eftir 1555—56 aðeins 23 ár að meðaltali. Heimildirnar eru i heild meiri og betri um yngra timabilið en það eldra, en þegar það þarf að koma 5—6 nýjum faröldrum inn I raðir þeirra eldri til að ná sömu tlmalengd milli þeirra og á yngra timabilinu, mun erfitt að skrifa mismuninn eingöngu á reikn- ing heimildaskorts. Um miðja 1 6. öld verða siðaskipti hér á landi, og þeim fylgdi, að verulegur hluti af auði og veldi kirkj- unnar komst i hendur konungs, sem þá jafnframt hófst handa um að hnekkja verzlun Englendinga og Hansakaupmanna á Islandi og koma henni á danskar hendur, sem og tókst til fullnustu með einokunar- verzluninni 1602. Fyrir siðskiptin ráku Englendingar og Hansakaup- menn hér umfangsmikla verzlun i harðri samkeppnisbaráttu. Þeir höfðu hér vetursetu og gerðu út héðan fjölda fiskibáta, mannaða fs- lendingum. Konungur lét gera fiski- bátana upptæka og bannaði alla verzlun útlendinga á íslandi. Þessu svöruðu Englendingar með aukinni útgerð frá heimahöfnum á fslands- mið og ólöglegum samskiptum enskra sjómanna við fslendinga. Afleiðingin varð meðal annars tiðari bólusóttarsmitun." Pestir á íslandi Prófessor Jón segir i grein sinni um pestir að það sé eitt af þvi sérstæða i háttum þess sjúkdóms, að hann komi fyrir I tveimur mynd- um, sem séu svo ólikar að útliti og háttum að ætla mætti að um óskylda sjúkdóma væri að ræða en ekki að sjúkdómsvaldurinn væri hinn sami I báðum myndunum. Annars vegar er kýlapest, sem er langtiðasta myndin, og nánast mjög litt smitandi þvi að sýkillinn þurfi að komast beint inn i holdið til að smita Auðkenni hinnar myndar- innar, iungnapestar, er lungna- bólga. sem eftir sólarhrings veikindi lýsir sér oftast með hósta og miklum blóðlituðum uppgangi. f þessari mynd segir prófessor Jón að pestin sé bráðsmitandi þvl að í uppgangin- um sé grúi pestarsýkla, sem þyrlist með hóstanum út i umhverfið og geti með andrúmsloftinu borizt til lungna nærstaddra. Dánartala i lungnapest er yfirleitt talin 100% og alla jafnan er öllu lokið áður en 4 sóttarsólarhringar eru taldir. Jón sýnir fram á, að hvergi i islenzkum sagnfræðiritum komi fram minnsti efi um að sóttir þær sem gengið hafi hér á 15. öld hafi verið sama kyns og sú er fór um Norðurálfu á árunum 1347 — 51 og siðar hlaut nafnið svarti dauði. Hann segir að fornar islenzkar heimildir geti nánar þriggja pestarfaraldra. þótt hinn fyrsti hafi að vlsu ekki gengið á Islandi en hann gefi engu að slður hugmynd um álit innlendra manna á þessari veiki. Fyrsti faralduririn er sá er gekk yfir Evrópu á árunum 1347 — 51 og oftast gengur undir nafninu svarti dauði, þótt sú nafngift verði ekki almenn fyrr en síðar á öldum. Elzta heimild- in um þetta heiti. mors nigra, sé i kvæði frá um 1350 eftir Simon de Covino um pestina er þá gekk i Frakklandi, en I íslenzkum heimild- um.muni heitið „svarti dauði" fyrst koma fyrir I biskupatali Björns á Skarðsá skráðu um 1640 en þar segir: „i Björgvin hafa þesse biskupanöfn fundist á eirne islendskre bok, inn til þess stora eða svarta dauða (sem þá kallaðist) anno 1350." Jón rekur Itarlega islenzkar frá- sagnir af svarta dauða, sérstaklega í Noregi, og segir að hin greinargóða lýsing íslenzku annálanna á veikinni taki af öll tvimæli um, að það hafi verið lungnapest, sem gekk í Noregi, en engar heimildir séu fyrir, að kýlapest hafi jafnframt verið á ferðinni Síðan rekur Jón frásagnir á annálum af komu sjúkdómsins hingað til lands, og segir að með þvi að fella saman heimildir megi með sæmilegu öryggi gera sér i hugar- lund hvernig upphaf pestarinnar hafi verið, ef um pest hafi verið að ræða „Einar Herjólfsson hefur komið skipi sinu i Hvalfjörð siðsumars 1402, og þegar er tekið var til við losun skipsins, munu menn hafa smitazt af pest, þannig að i varn- ingnum hafa leynzt magatepptar flær, sem þá hafa fengið tækifæri til að komast á menn og bita þá Þeir hafa síðan veikzt af kýlapest og einhver þeirra fengið pneumonia secundaria, sem hefur orðið kveikj- an að lungnapestarfaraldrinum Álí Svarthöfðason og sveinar hans eru með þeim fyrstú, sem veikjast af lungnapest. Þeir hafa eflaust komið til Hvalfjarðar á vegum Skálholts- biskups til að kaupa varning Um haustið og fyrri part vetrar gengur pestin sunnan lands, og verður Skálholt mjög hart úti, sem við erað , búast, þvi að þar er fólkið flest, alltaf 100—200 manns, en þar eru að- eins 3 á llfi undir áramótin Ef treysta má þessari frásögn, er sýni- legt, að dánartalan i veikinni hefur verið um 100% og er þá naumast annarri sótt til að dreifa en lungna- pest." Um pláguna síðari, hinn faraldur- inn sem hlaut pláguheiti í Islenzkum heimildum, er getið m.a. i Gott- skálksannál með þessum hætti: „1495 Sótt og plága mikil um allt land nema um Vestfjörðu, svo að hreppar eyddust og sveitir að mestu....." Jón vitnar einnig til Gisla biskups Oddssonar, sem segir sóttina ekki hafa rénað fyrr en um Marteinsmessu og segir Jón að biskup muni þar eiga við nóvember 1495 en heimildir séu örugglega fyrir þvi að sóttin hafi verið I Húna- vatnssýslu eftir 19 janúar 1495 Og hafi hún byrjað I júli 1494, hafi hún aldrei haft skemmri viðdvöl á landinu en 1 7 mánuði eða likt og fyrri plágan. Jón segir ennfremur að i Skandinaviu og Danmörku sé ekki getið pestar um það leyti sem hún gekk hér, en 1494 sé hennar getið I mörgum þýzkum borgum. Hins vegar séu heimildir fyrir þvi að meiri háttar faraldrar hafi ekki verið i Eng- landi á þessum tima, en hingað átti síðari plágan einmitt að hafa borizt með ensku skipi Siðan segir Jón Steffsensson, prófessor: „Eins og fram hefur komið, eru til sæmilegar heimildir um feril beggja plágnanna á fslandi en engar um kyn sóttanna, likt og var um pestina i Noregi 1349—1350. Það vaknar þá eðlilega sú spurning, hvort um lungnapest hafi verið að ræða, sér- staklega i sambandi við smitunar máta hennar. Er það mögulegt að viðhalda veikinni meðal mannfólks ins i 116 ár i jafn strjálbýlu landi og ísland var, þegar menn eru aðeins smitandi 1 —3 daga og þá fárveikir? Ég myndi állta það mjög vafasamt, Framhald á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.