Morgunblaðið - 23.12.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975
21
Iðunn Steinsdóttir við sprungna vegginn f stofunni. Ljósmvndir
Mbl. Friðþjófur.
Svavar Aðalsteinsson frá Húsavfk er hér við bíiskúr hússins
Reykjahlfð, sem eyðiiagðist nokkuð af vöidum jarðhræringanna.
Bílskúrinn skrapp það mikið frá húsinu að hægt var að koma
fingrum á milli.
igumynd-
ngum kafla
að ræða framhald fram-
kvæmda við Kröflu. Er
þar um að ræða, annars
vegar undirbúning sem
ekki á sér stað á staðnum
og hins vegar undirbún-
ingsvinnu á staðnum. Að
sögn Stefáns Arnþórs-
sonar jarðfræðings hefur
ekki verið tekin ákvörð-
un út frá athugunum síð-
ustu daga og gengur
allur undirbúningur eðli-
lega, en eftir er að ræða
málin betur.
Með umbrotunum sem
leiddu til eldgossins hafa
orðið hreyfingar á landi
allt frá Kelduhverfi og
suður í Bjarnarflag eða á
allt að 40—50 km löngum
kafla, en á þessu svæði
hafa orðið jarðsig os
sprungumyndanir í þeim.
Framhald á bis. 27
Hraunið í þessu gosi er basfskt
helluhraun og munurinn á þessu
gosi og venjulegu Heklugosi er sá
aö þetta gos er miklu minna en í
upphafi, meiri aska fylgir Heklu-
gosum og súrara berg. Hér er
næstum aðeins um vatn að ræða.
Það er óvenju mikið gas í hraun-
inu hér, vetni og aðrar tegundir
sem loga fagurlega. Hraunmagnið
er hins vegar mjög litið, varla
meira en 200—300 þús. rúmmetr-
ar. Hraunið hér hefur augsýni-
lega komið upp á fyrstu klukku-
tímunum í samfelldri spýju og
síðan ekki meir. Um 2 km eru á
milli nyrsta og syðsta enda
sprungunnar, en á aðeins 500—
700 m bili hefur sprungan látið
eitthvað á sér kræía. Hraun hefur
runnið á tveimur stöðum á um
Dr. Sigurður Þórarinsson á gosstað.
„Tel minni líkur á
öðru gosi en hitt”
— segir dr. Sigurður Þórarinsson
A GOSSPRUNGUNNI við Bruna-
borg norðan undir Leirhnjúk
hittum við Sigurð Þórarinsson að
máli þar sem hann var að kanna
gosstöðvarnar.
„Mér lízt svo á,“ sagði Sigurður,
„þótt mögulegt sé að gos geti kom-
ið upp annars staðar, að það verði
nú ekki og byggi ég það á reynslu
minni og brjóstviti. Hitt er svo að
það eru líkur fyrir því miðað við
gamla reynslu og miðað við hina
tíðu jarðskjálfta er þetta einnig
mögulegt, en þó tel ég minni líkur
á gosum norðar, vegna þess hve
jarðskjálftarnir eru norðarlega.
Þess ber þó að gæta að þegar
gaus í Sveinagjá 1875 í febrúar
opnaðist hver sprungan eftir aðra
fram i ágúst.
100—200 m löngu svæði á hverj-
um stað. Hættuna á alvarlegum
hreyfingum tel ég mjög litla, en
það geta opnast nýjar sprungur
og vissulega er margt óvisst á
þessu svæði. I gosinu 1725 kom
ekkert hraun að ráði fyrr en eftir
tvö ár og þá stóð hraunrennslið i 2
ár og skilaði um 700 millj. rúm-
metrum af hrauni. I því hraun-
rennsli fóru Reykjahlíðarbæirnir,
en kirkjan slapp.“
upp í loftið með mikium þrýstingi.
r'
taunraninn til vinstri er um 300 m
hraunraninn sést fjær vinstra megin
ri hraunrananna heitir Brunaborg.
Rætt við Iðunni Steinsdóttur um skemmdir á heimili hennar af völdum jarðskjálftanna
t laust eftir kl. 4 á laugardag, en sfðan hefur
iprunguna.
I REYKJAHLIÐ við Mývatn
voru .tfðar jarðhræringar á
laugardag og eitt hús skemmd-
ist talsvert í jarðskjálftunum.
Var það hús Iðunnar Steins-
dóttur og Björns Friðfinnsson-
er forstjóra Kfsiliðjunnar og
formanns almannavarna á
staðnum.
Bílskúr áfastur íbúðarhúsinu
losnaði frá húsinu að neðan,
veggur í stofu gekk út um eina
2 sm að neðan og nokkrar fleiri
sprungur komu.
„Við tókum fyrst eftir
sprungunni á laugardagskvöld-
ið,“ sagði Iðunn í spjalli við
Morgunblaðsmenn," en eftir
það hélt hún áfram að smá-
víkka í kippunum sem komu
aðfaranótt sunnudags. Þetta er
nú ef til vill ekki undarlegt, því
kunnugir segja að sprungan
sem Stóragjá er í, liggi í gegn
um húsið hér og virðist hún
eitthvað hafa gengið til f
þessum hrinum. Bflskúrinn
hefur losnað frá húsinu
að hluta, en það er verst að
stofan fylgir með og það er
vont að fá þetta í stofuna svona
rétt fyrir jólin. Hræðsla?
Nei, ég hef ekki orðið vör við að
fólk á staðnum sé hrætt, það
tekur þessu mjög rólega. I sum-
ar voru hér oft smáhreyfingar,
en engar f líkingu við þá sem
stækkaði húsið okkar að neðan.
Annars bíð ég bara eftir næsta
jarðskjálfta, þá getur vel verið
að sprungni veggurinn, smelli
aftur f liðinn."
„Bíð eftir næsta jarðskjálfta,
svo veggurinn smelli í liðinn”