Morgunblaðið - 15.01.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976
21
fclk í
fréttum
+ Maðurinn sem er að þreifa fvrir sér þarna
á mvndinni virðist ekkert lítið ánægður með
sig, enda er þetta enginn annar en Burt
Reynolds að fremja hlutverk suðræns
kvennaflagara f nýrri kvikmvnd sem hann
stjðrnar sjálfur og nefnist „Gator“. Og henni
virðist vel vært f klónum á bósanum,
stúlkunni þeirri arna, enda þótt ekki sé hún
nú beinlínis kappklædd. Hún heitir Lauren
Hutton og er þarna í sfnu fyrsta „meiri
háttar hlutverki". Leikur hún fréttamann er
fæst við rannsóknarlögreglumál og lætur
hendurstanda fram úr ermum f starfi sínu,
þó ekki alltaf eins berlega og mvndin hér
til hliðar sýnir. Þetta er fyrsta kvikmvndin
sem Revnolds leikstýrir og verður hún
væntanlega tilbúin til sýningar á næsta ári.
Um samstarf leikstjóra og leikara sagði
Lauren Hutton: „Hann var alltaf fús að fall-
ast á hugmyndir leikaranna; og þar var ég
jafnvel ekki undanskilin." Og hvernig gekk
að mvnda ástarsenuna? „Ég bað án afláts um
endurupptökur," segir Lauren, „og revndar
var það eina atriðið sem tekið var oftar en
einu sinni.“
+ Saumsprettur
+ Upp á síðkastið hefur mikið mætt
á fötum Elvis Preslevs, ekki sfður
en honum sjálfum. Átrúnaðargoðið
er komið á fimmtugsaldur og hefur
mikið verið á sjúkrahúsum til Iækn-
inga vegna taugaálags og offitu. Um
daginn hélt hann hljómleika fvrir
60.000 aðdáendur sfna — og eitt
atriðið, óvænt aukanúmer, olli
öllum skaranum óstöðvandi hlátur-
kasti. Þegar söngvarinn fetti sig og
bretti og hringsnerist sem óðast,
rifnuðu þröngar buxurnar hrein-
lega utan af honum. Elvis lét ekki
slá sig út af laginu, mjakaði sér með
gætni út af senunni og smevgði sér f
nýjar brækur.
BO BB & BO
•//0-/2 ^6
^TG/AjhJD rn
+ Richard Nixon lét í for-
setatfð sinni hlera sfmann
hjá Henrv Kissinger eftir
jólaárásirnar á Hanoi 1972
af ótta við að Kissinger
gagnrýndi þær í viðtölum
við fjölmiðla. Þetta kom
fram í skrifum bandarfsku
hlaðamannanna Jack And-
erson og Les Whitten fvrir
skömmu.
\
ARABIA^,
HREINLÆTISTÆKI
- i i —' a
Finnsk
gæöavara
'*]5\igcfincicivöruverzlunit\^^
BJÖRNINN:
Skúlatúni 4. Sími 25150. Reykjavik
Félög Sjálfstæðismanna,
Bakka og Stekkjahverfi og
Fella- og Hólahverfi.
OPIÐ HÚS
verður að Seljabraut 54, laugard. 17. janúar frá kl. 21:00 (Húsnæði
Kjöts og Fisks 2. hæð).
Félagareigum saman ánægjulega kvöldstund i skemmtilegu húsnæði
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið.
Félög Sjálfstæðismanna í
Bakka og Stekkjahverfi og
Fella- og Hólahverfi.
Árshátíð
sjálfstæðisfélag-
anna í Austur-
Skaftafellssýslu
verður haldin að
Hótel Höfn laugar-
daginn 17. janúar
og hefst með borð-
haldi kl. 19.30.
Þorramatur á borðum
Ræður flytja alþingismennirnir: Pétur Sig-
urðsson og Sverrir Hermannsson
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Mörg fleiri skemmtiatriði verða flutt, frum-
samdar gamanvísur o.fl
Allir velkomnir.
Stjórnirnar.
Mosfellssveit —
Kjalarnes — Kjós
1. Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ingólfsson
Kjósarsýslu heldur skemmtifund í Hlégarði
föstudaginn 1 6. janúar kl. 21.
Dagskrá:
1. Skemmtiatriði, Kristinn Bergþórsson
syngur lög eftir Sigfús Halldórsson
2. Ávarp. Matthias Á. Mathiesen. fjármála-
ráðherra.
3 Bingó m.a. vinninga er :«írótii óiarlanda
Sjálfstæðisfólk mætið vel uy takið neð ykkur
gesti. Stjórr.in.
Rangæingar
Síðasta umferð í 3ja kvölda spilakeppm sjálf-
stæðisfélaganna í Rangárvallasýslu verður i
Hellubíói föstudaginn 16. janúar n.k. kl.
21.30 Friðjón Þórðarson. alþingismaður
flytur ávarp. Dans að lokinni keppni.
Sjálfstæðisfélgöin
Sjálfstæðisfélögin
á Selfossi
halda almennan félagsfund í Sjálfstæðishús-
inu að Tryggvagötu 8, Selfossi,
laugardaginn 1 7. þ.m. kl. 1 4.
Fundarefni:
alþingismennirnir Ingólfur Jónrson og Stein-
þór GestSson ræða stjórnmálaviðhorfin.