Morgunblaðið - 15.01.1976, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976
Tveir af reyndustu mönnum íslenzka körfuknattleikslandsliðsins i baráttu, Kolbeinn Pálsson með knöttinn og
Kristinn Jörundsson.
Körfuknattleikslandsliðið
í undankeppnina í Kanada
FIBA, alþjóðasamband körfuknattleiks-
manna, gleymdi að skrá ísland I undan-
keppni Olympiuleikanna i körfuknattleik, og
þar af leiðandi munu islenzkir körfuknatt-
leiksmenn ekki taka þátt i undankeppninni
sem fram fer i Skotlandi i næsta mánuði.
FIBA tókst hins vegar að bjarga mistökum
sinum með þvi að koma íslendingum inn i
þann riðil undankeppninnar sem fram fer i
Kanada skömmu fyrir Olympiuleikana i
sumar. Ekki er enn vitað með hvaða þjóðum
íslendingar munu leika þar, en sennilega
verða það lið frá Mið- og Suður-Ameríku.
Eiga körfuknattleiksmennirnir því skemmti-
lega ferð fyrir höndum í sumar, og þetta ætti
einnig að opna þeim möguleikann að fylgjast
með Olympiuleikunum, þó að þeir komist
ekki þangað sem keppendur.
Körfuknattleikslandsliðið fær ærin
verkefni í vetur og verður ferðin til
Kanada hápunktur vertíðarinnar hjá
því Eins og frá er skýrt á öðrum stað
mun landsliðið leika við Breta í
Laugardalshöllinni 7 og 8 febrúar
n.k. Næsta verkefni á dagskrá þess
verða svo tveir landsleikir við Portúgal
sem koma hingaö i heimsókn i april-
byrjun Þessu næst mun svo íslenzka
landsliðið taka þátt í Polar Cup-
keppninni, en eins og kunnugt er þá er
þar um að ræða Norðurlandamót. Fer
mótið fram í Kaupmannahöfn að þessu
sinni í lok apríl. íslendingar hafa jafnan
staðið sig vel í þessu móti og er þess
að vænta að svo verði einnig nú Þriðja
sætið í keppninni er ugglaust það sem
að verður stefnt, þar sem litlir mögu-
leikar munu á sigri yfir Svíum og
Finnum en báðar þessar þjóðir eiga
körfuknattleikslandslið sem eru í
fremstu röð
20 leikmanna
landslið valið
ÍSLENDINGAR leika tvo landsleiki í körfuknattleik við Breta i Laugardals
hollinni 7. og 8. febrúar n.k. og hefur nú landsliðsnefnd KKl valið tuttug
manna hóp til þeirra leikja. Verður það brezka Ólympíuliðið sem hinga
kemur, en það mun vera mjög sterkt og hefur búið sig vel undir undankeppr
ina. Er talið að Bretarnir eigi allgóða möguleika á að komast i lokakeppnina
Kanada, ekki sizt vegna þess að þeir hafa nú í liði sinu nokkra Bandaríkj<
menn, sem keyptir hafa verið til Bretlands á undanförnum árum og haf
fengið brezkan þegnrétt.
Flestir leikmanna brezka liðsins eru
úr Lundúnaliðinu Sutton Crystal
Palace, en lið þetta hefur náð mjög
góðum árangri að undanförnu og er
þegar komið í átta-liða úrslitin í
Evrópubikarkeppni meistaraliða
Leikmennirnir sem þeir Gylfi
Kristjánsson, Páll Júlíusson og Einar
G Bollason, en þeir skipa landsliðs-
nefnd KKÍ, hafa valið til leikjanna við
Breta eru eftirtaldir:
Stefán Bjarkason, UMFN
Gunnar Þorvarðsson, UMFN
Jónas Jóhannesson, UMFN
Jón Sigurðsson, Á
Guðsteinn Ingimarsson, Á
Birgir Örn Birgis, Á
Björn Magnússon, Á
Kolbeinn Pálsson, KR
Bjarni Jóhannesson, KR
Eiríkur Jóhannesson, KR
Árni Guðmundsson, KR
Kristján Ágústsson, Snæfelli
Kristinn Jörundson, ÍR
Kolbeinn Kristinsson, ÍR
Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR
Jón Jörundsson, ÍR
Bjarni Gunnar Sveinsson, ÍS
Torfi Magnússon, Val
Arngrímur Thorlacius, Fram
Framarar eiga nú í fyrsta sinn mann
landsliðshópi í körfuknattleik, en ai-
hygli vekur að leikmenn landsliðsins
eru úr öllum félögunum sem leika í 1.
deildinni.
Árni Óðinsson frá Akureyri var
undanfari á Mullersmótinu og náði
hann töluvert betri tima en kepp-
endurnir.
ELLEFTA Múllersmótið á skíðum fór
fram um síðustu helgi við Skíða-
skálann í Hveradölum Er þarna um að
ræða sveitakeppni í svigi og að þessu
sinni mættu þrjár sveitir til leiks, frá ÍR,
Ármanni g KR
Veður var hið fegursta er keppnin fór
fram, sólskin og nokkurt frost, þannig
að skíðafæri var hið ákjósanlegasta
Keppt var í fjórða sinn um Mullers
styttuna og fóru leikar svo, að sveit
Ármanns bar sigur úr býtum Tími
hennar var 257,5 sek Sveit KR varð í
öðru sæti á 266,5 sek og sveit ÍR fékk
tímann 292,2 sek
Sex menn voru í hverri sveit, en tími
fjögurra beztu var reiknaður í sigur-
sveit Ármanns voru það Guðjón Ingi
Sverrisson, Steinunn Sæmundsdóttir,
Kristján Kristjánsson og Tómas Jóns-
son.
Eftir keppnina fór fram verðlaunaaf-
hending í Skíðaskálanum og þar sleit
Leifur Múller mótsstjóri mótinu. Braut-
arstjóri í keppninni var Haraldur Páls-
son
Fyrir hád^gi á sunnudaginn lagði
stjórn Skíðafélags Reykjavíkur blóm-
sveig á stalla þeirra L.H Múllers og
Kristjáns Ó Skagfjörð, en stallar þessir
eru rétt fyrir ofan Skíðaskálann í Hvera-
dölum
Á sunnudaginn bauð Skíðafélagið
einnig upp á trimmgöngu fyrir
almenning á svæðinu fyrir framan
Skíðaskálann og annaðist hana Páll
Guðbjörnsson Voru þar margir skíða-
göngumenn á ferð allan eftirmiðdag-
inn. Ætlunin er að trimmganga þessi
verði endurtekin á næstunni.
(Jrslitin í gærkvöldi
Valnr - Fram 21:15
VALSMENN standa mjög vel að vígi
í 1. deildinni i handknattleik eftir að
hafa lagt Framara að velli, 21:15, í
gærkvöldi. í leikhléi var staðan 9:5
og gerðu Valsmenn reyndar út um
leikinn í lok fyrri hálfleiksins er þeir
skoruðu 5 mörk gegn 1 á stuttum
tíma. Leikur þessi var ekki eins góð-
ur og vonazt hafði verið til, mikil
barátta var að visu framan af, en
undir lokin var leikurinn likari skot-
keppni en handknattleik.
Mörk Vals: Guðjón 5, Bjarni 3,
Jóhann 3, Þorbjörn 2, Jón 2, Stefán
2, Steindór, Gunnsteinn, Gunnar og
Jóhannes 1 hver.
Mörk Fram: Pálmi 8, Hannes og
Magnús 2 hvor, Árni, Pétur og
Gústaf 1 hver.
írmann - Grótta 20:18
ÁRMANN krækti sér i 2 dýrmæt stig
i 1. deild karla i gærkvöldi, er liðið
vann Gróttu með 20 mörkum gegn
18. Eftir þessi úrslit er staða Gróttu
orðin mjög slæm og er liðið eitt á
botninum með 4 stig. Ármann hafði
forystu allan leikinn i gærkvöldi og
var munurinn mestur 4 mörk, í leik-
hléi var staðan 11:8. Undir lokin
náði Grótta að minnka muninn niður
i 1 mark, en sigri Ármenninga varð
ekki ógnað.
Mörk Ármanns: Pétur 6, Hörður
H. 5, Friðrik 3, Björn 2, Hörður K. 2,
Jón og Jens 1 hvor.
Mörk Gróttu: Árni 6, Hörður 4,
Halldór 3, Magnús 2, Axel, Georg og
Björn 1 hver.
Valskonurnar unnn líka
VALUR vann Fram i 1. deild kvenna
með 10 mörkum gegn 9 i gærkvöldi,
staðan var 6:4 fyrir Fram í leikhléi.
Val tókst að jafna fljótlega i byrjun
seinni hálfleiksins og er 5 mínútur
voru til loka leiksins var enn jafnt,
10:10. Siðasta mark leiksins og
sigurmark Vals gerði Sigrún
Guðmundsdóttir minútu fyrir leiks-
lok. Sigrún var mjög drjúg i þessum
leik og gerði 7 af mörkum Vals.
Helga Magnúsdóttir skoraði mest
fyrir Fram, eða 4 mörk. Eftir þennan
sigur stendur Valur bezt að vigi í 1.
deild kvenna.
Dregið í Evrópu
JÓHANNES Eðvaldsson og félagar hans I Celtic voru sæmilega heppnir er
dregið var um það í Zurich i gær hvaða lið leiða saman hesta sína í 8-liða
úrslitum Evrópumótanna i knattspyrnu. Eiga þeir að leika gegn Sachsenring
Zwickau, en það lið er rétt um miðja 1. deildina austur-þýzku. Annars leika
mörg mjög sterk lið saman i næstu umferð. Nefna má Benfica — Bayern
Munchen, og Borussia — Real Madrid.
Eftirtalin lið drógust saman:
Evrópukeppni meistara
Benfica —Bayern Múnchen
Dynamo Kiev — St. Etienne
Hadjuk Split —
PSV Eindhoven
Borussia Mönchengladbach
— Real Madrid
Evrópukeppni
bikarmeistara
Celtic — Sachsenring Zwickau
Eintracht Frankfurt —
Sturm Graz
FC den Haag —
West Ham
UEFA-keppnin
Dinamo Dresden —
Liverpool
Brugge — Milan AC
Barcelona — Levski Spartak
Hamburger SV —
Stal Mielec
Þá var einnig dregið um það hvaða
lið eiga að leika saman I Evrópu-
keppni landsliða:
Holland — Belgia
Sþann — V-Þýzkaland
eða Grikkland
Júgóslavía — Wales
Tékkóslóvakia —
Sovétrikin.
Arnarmótið
Hin árlega keppni um Arnarbikarinn
i borðtennis, Arnarmótið, fer fram í
Laugardalshöllinni, laugardaginn 24
janúar n.k. og hefst mótið kl. 15.30.
Auk þess að vera keppni um hinn
veglega Arnarbikar er mótið punkta-
mót, og verður keppt í einum opnum
flokki
Þátttökutilkynningar þurfa að berast
til Árna Siemsen Álftahólum 6, sími
73295, fyrir 21 janúar n.k.
Einar FriðþjóÉsson
anstnr á Eskifjörð
Einar Friðþjófsson, leikmaður
með ÍBV-liðinu I knattspyrnu
undanfarin ár, hefur nú ráðið sig
sem þjálfara hjá Austra á Eskifirði.
Einar hefur verið einn traustasti
leikmaður ÍBV liðsins og er ekki
að efa að liðinu verður að honum
mikill missir, en jafnframt þvi ætti
lið Austra að verða sterkara næsta
sumar, þar sem Einar mun leika
með þvi.
Þá er Þróttur á Neskaupstað
búinn að ráða Magnús Jónatans-
son frá Eskifirði sem þjálfara
næsta sumar. Önnur félög á
Austurlandi hafa enn ekki ráðið
sér þjálfara, en a.m.k. eitt þeirra,
Huginn á Seyðisfirði. hefur aug-
lýst eftir þjálfara.
FH-ingum bætist liðsanki
Tveir ungir og stórefnilegir knattspyrnumenn hafa nú gengið yfir i
raðir FH-inga. Eru það Magnús Teitsson úr Stjörnunni og Andrés
Kristjánsson, sem leikið hefur með Fram i knattspyrnu. Magnús og
Andrés eru báðir 19 ára gamlir og Magnús einn af unglingalandsliðs-
mönnunum frá síðasta ári. Magnús hefur tvö síðustu keppnistimabil
verið ein styrkasta stoð 3ju deildar liðs Stjörnunnar. Að sjálfsögðu er
það mikil blóðtaka fyrir Stjörnuna að missa Magnús, sem auk þess
hefur misst markvörð sinn, Þorvarð Þórarinsson. yfir i Fram. en hann er
einnig unglingalandsliðsmaður.