Morgunblaðið - 18.02.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976
13
Japanir neita með
öllu að hafa þegið
mútur frá Lockheed
Tókíó 17. febr. Reuter.
FJÖRIR framkvæmdastjórar
japanska stórfyrirtækisins Maru-
beni neituðu i dag undir eiði, að
þeir hefðu nokkru sinni átt þátt
f eða þegið greiðslur frá banda-
rfska stórfyrirtækinu Lockheed
og yfirframkvæmdastjóri Maru-
beni, Taiichiro Matsuo, íhugaði
málsókn gegn Lockheed.
Carl Kotchian, framkvæmda-
stjóri Lockheed, sem sagði af sér í
fyrri viku, sagði við yfirheyrslur
„Lengstu
þrjár
mínút-
urnar”
féll fyrir borð á
Islandsmiðum,
en bjargaðist
Fishing News segir nýlega
frá giftusamlegri björgun eins
hásetans á togaranum Boston
Crusader á Islandsmiðum um
daginn.
Ian Fisher, sem er 22 ára
háseti, ætlaði að losa kaðal, sem
fests hafði á polla á dekkinu
þegar ætlunin var að setja út
veiðarfærin. Þá vildi svo til, að
kaðallinn vafðist utan um fót
hans, varpan fylgdi með og dró
hann með sér fvrir borð.
Ian Fisher segir svo frá at-
burðinum:
„Varpan dró mig með sér
niður í djúpið. Ég hlýt að hafa
marað á um það bil eins faðms
dýpi. Kaðallinn var vafinn um
lærið á mér — ég er enn með
skrámurnar — en svo gat ég
sparkað af mér bússunum.
Loftið í sjógallanum mínum
skaut mér upp á yfirborðið.
Lungun voru orðin algjörlega
loftlaus, en vegna kuldans
hóstaði ég og kúgaðist, svo að
ég ætlaði aldrei að ná andanum.
Ég sá skipið strax og þá létti
mér heldur betur.“
„Ég fann hvernig fæturnir á
mér dofnuðu upp af kuldanum
og hugsaði um það eitt að kom-
ast út úr þessu áður en ég fengi
krampa. Mitt lán var það, að
strákarnir um borð gerðu ná-
kvæmlega það, sem þeir áttu að
gera. Það var ekkert fum á
þeim og þeir stóðu svo sannar-
lega í sínu stykki. Þeir voru
stórkostlegir."
„Hefði þeim ekki farizt þetta
eins vel úr hendi og raun var á,
þá hefði þetta orðið mitt
siðasta. Þeir köstuðu til mín vír
og ég hékk á þessari líftaug
minni þegar þeir hífðu mig um
borð. Þetta voru lengstu þrjár
mínúturnar, sém ég hefi upplif-
að.“
„Svo fóru þeir með mig undir
þiljur, ég komst úr vosklæðun-
um og i sturtu. Svo fór mér nú
að hlýna þegar skipstjórinn var
búinn að gefa mér nokkra sopa
af rommi.“
Þegar atburður þessi gerðist
var sjávarhiti undir frostmarki,
en þó var veður fremur milt,
miðað við það, sem algengast er
á þessum árstíma. Daginn áður
hafði verið mun kaldara i veðri
og líkur á björgun hefðu því
verið minni.
Þrátt fyrir þetta óhapp er Ian
Fisher ótrauður og ekki á því
að halda sig frá miðunum við
Island, að því er Fishing News
segir.
hjá bandarískri þingnefnd 6.
þessa mánaðar, að forráðamenn
Marubeni hefðu ráðlagt sér að
greiða mútur til japanskra emb-
ættismanna ef Lockheed ætlaði
að gera sér vonir um að selja
flugvélar sínar í Japan. Sagði
hann, að í kjölfar þessa hefðu
tvær milljónir dollara verið
greiddar japönskum embættis-
mönnum gegn fölsuðum kvitt-
unum.
Rannsóknarnefnd sú, sem jap-
anska þingið skipaði til að kanna
þetta mál, er sögð engu nær eftir
tveggja daga opinberar vitna-
leiðslur, en 7 manns hafa komið
fyrir nefndina. Hins vegar hefur
enn ekki tekizt að yfirheyra aðal-
vitnið, hægri manninn Yoshio
Komada, sem sagður er hafa verið
leynilegur ráðgjafi Lockheeds frá
því 1958 og þegið f greiðslur 7
milljónir dollara. Þetta kom fram
við framburð Lockheedmanna
fyrir bandarísku öldungadeildar-
nefndinni. Hefur fregnin um
þetta þótt mikið áfall í japönskum
viðskiptaheimi. Komada, sem
varð 65 ára í dag, er heima hjá sér
og ber við að hann sé sjúkur
maður og geti ekki borið vitni.
Argentína:
Þingmenn neita
að hverfa heim
Buenos Aires 17.
febrúar — Reuter
Gífurleg reiði er meðal stjórn-
arandstöðuflokkanna í argen-
tfnska þinginu vegna aðgerða
Mariu Estellu Peron forseta til að
neyða þingmenn f frf. Dró stjórn-
in til baka öll mál, sem liggja
fyrir þingi, og skv. stjórnar-
skránni verða þingmenn þá að
hverfa heim, þar til næsta þing-
tímabil hefst f maf. Segja stjórn-
málafréttaritarar að þingmenn
muni virða aðgerðir stjórnarinn-
ar að vettugi og mæta til þing-
funda og halda áfram aðgerðum
til að koma forsetanum úr em-
bætti. Skv. stjórnarskránni getur
1/4 hluti þingmanna krafizt þess
að aukaþing verði kallað saman
til þess að fjalla um mjög alvar-
leg mál, sem snerta alla þjóðina.
Einn af leiðtogum stjórnarand-
stöðunnar, öldungadeildarþing-
maðurinn Fernando de la Rue,
lýsti yfir f dag ánægju sinni yfir
„að það væri þjóðhagslega óhjá-
kvæmilegt að koma forsetanum
frá völdum, hvort sem hún segði
af sér af frjálsum vilja eða þingið
lýsti þvi yfir að hún væri óhæf til
starfsins." De la Rue var varafor-
setaefni höfuð stjórnarandstöðu-
flokksons, Róttæka flokksins, i
kosningunum 1973.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
hafa verið með í undirbúningi að
sækja frú Peron til saka í þinginu
og svipta hana völdum, eða koma í
gegn sameiginlegri yfirlýsingu
þingdeildanna um að hún væri
óhæf til starfsins.
Atvinnurekendur í Argentínu
lokuðu fyrirtækjum sfnum f gær í
mótmælaskyni við stefnu stjórn-
arinnar í efnahagsmálum eða öllu
heldur stefnuleysi. Er talið að um
90% allra fyrirtækja í landinu
hafi verið lokuð. Segja stjórn-
málafréttaritarar þetta enn eitt
dæmið um hve einangruð stjórn
frá Peron sé eftir 19 mánaða
valdatímabil.
Oscarsverðlaunaútnefningin tilkynnt:
Jaws og Nashville
meðal beztu mynda
Los Angeles 17. febrúar
AP-Reuter.
FIMM kvikmvndir voru I dag
útnefndar sem beztu myndir
ársins vegna úthlutunar
Oscarsverðlaunanna I Banda-
rfkjunum sfðar á þessu ári.
Meðal þeirra var mvndin Jaws,
Okindin. Hinar mvndirnar
fjórar eru „One flew over the
Cuckoos nest“, sem fjallar um
Iffið á geðveikrahæli, en sú
mvnd hlaut alls 9 útnefningar,
Barry Lyndon, Dog Dav
Afternoon og Nashville.
Útnefningu fyrir beztan leik í
karlhlutverkum hlutu Jack
Nicholson fyrir One flew over
the Cuckoos nest, Walter
Matthau fyrir Sunshine Boys,
AI Pacino fyrir Dog Day
Afternoon, Maxmillian Schell
fyrir „The man in the glass
booth" og James Whitmore.
fyrir „Give them hell Harry“.
Sem beztar leikkonur voru
útnefndar þær Louisa Flestcer
fyrir sömu mynd og Nicholson,
Isabell Adjani fyrir „the story
of Adele H“, Ann Margret fyrir
„Tommy“, Glenda Jackson
fyrir „Heba“ og Carol Kane
fyrir „Chester Street".
Fyrir beztan leik í aukahlut-
verki hlutu útnefningu m.a.
George Burns, Burgess
Meredith, Chris Saranbon og
Jack Warden. I kvennahlut
verki keppa þær Lily Tomlin,
Ruth Blakley, Lee Grant, Sylvia
Miles og Brenda Vaccaro um
verðlaunin.
Útnefningu sem beztu leik-
stjórar hlutu Federico Fellini
fyrir „Amarcord", Stanley
Kubrick fyrir „Barry Lyndon",
Sidney Lumet fyrir „Dog day
Afternoon", Robert Altaman
fyrir „Nashville" og Milos
Foreman fyrir „One flew over
the Cuckoos nest“. Öscars-
hátíðin verður í april nk.
Heiftarlegur áróður í Sovét vek-
ur athygli á Gyðingaráðstefnu
SOVÉZK yfirvöld hafa leyst úr læðingi „hinn þögla
meirihluta“ Gyðinga f Sovétrfkjunum, en þar er nú
hafinn heiftúðlegur áróður gegn Brússel-ráðstefnunni
um hagi Gyðinga f kommúnistarfkjunum, en ráðstefnan
hófst í gær. Á undanförnum vikum hafa erlend sendiráð
og fréttaritarar f Moskvu fengið send ógrynni bréfa og
skeyta frá verkamönnum, bændum og menntamönnum
af Gyðingaættum. Allar eru orðsendingarnar á sömu
lund og er Brússel-ráðstefnan þar fordæmd og henni lýst
sem „zfonistfskri ögrunaraðgerð“. Þá var fyrir skömmu
haldinn fréttamannafundur í Moskvu þar sem heim-
fluttir Gyðingar lýstu þjáningum sfnum f tsrael og
Bandarfkjunum, en þeir höfðu á sfnum tfma sótt um
útflutningsleyfi frá Sovétrfkjunum, fengið það en sfðar
kusu þeir að koma aftur til Sovétrfkjanna.
Tass-fréttastofan hefur dreift
yfirlýsingu frá trúarleiðtogum
Gyðinga í Moskvu, þar sem ráð-
stefnunni er mótmælt og sagt, að
hún sé af illum toga spunnin.
I flestum bréfanna, sem áður
var getið, er lögð mikil áherzla á
tryggð bréfritara við föðurland
sitt — Sovét — og þar kemur ekki
fram gagnrýni á sovézka vald-
hafa. Sum eru bréfin handskrif-
uð, en önnur eru vélrituð. I
fæstum þeirra er heimilisfangs
sendanda getið. I bréfunum er
þess ekki getið, hvernig send-
endur hafa komizt yfir heimilis-
föng viðtakenda, sem fæst er að
finna i þeim skrám, sem almenn-
ingur í Moskvu hefur aðgang að.
Reutersfréttastofan i Moskvu
hefur fengið fjögur bréf, eitt frá
prófessor við bifvélavirkjatækni-
stofnun, annað frá yfirverkfræð-
ingi við pósthús Moskvu, þriðja
frá iðnverkamanni og hið fjórða
frá yfirmanni rannsóknastofu i
borginni. Fjórmenningarnir lýsa
þvi allir yfir að þeir hafi aldrei
sem Gyðingar orðið varir við
andúð af nokkru tagi, þeir og fjöl-
skyldur þeirra lifi góðu lifi og þau
vilji hvergi búa nema i Sovétrikj-
unum. Allir fjórir segjast vera
fyrrverandi hermenn úr heims-
styrjöldinni siðari.
Iðnverkamaðurinn Zakhar Bizi
sagðist hafa andstyggð á belgisku
stjórninni fyrir aðgefa leyfi fyrir
mmamamsmmmmmmmmm
Brusselráðstefnunni og skrifaði:
„Það er enginn vafi á því að mark-
miðið með þessari ráðstefnu er að
grafa undan yfirvöldum i föður-
landi mínu, Sovétríkjunum. Zíón-
istar hrópa til heimsins, að Gyð-
ingar í Sovétrikjunum sæti mis-
rétti og kúgun, sem er ekkert
annað en þvaður."
Prófessorinn, A.A. Nevelev,
sagðist fyllast djúpri vandlætingu
og bræði, er einhverjir óþokkar
og öfgamenn ziónista reyndu að
blanda sér I innanrikismál Sovét-
ríkjanna og eitra almenningsálit-
ið í heiminum. I svipuðum dúr
voru bréf hinna tveggja, að zión-
istar væru að reyna að eyðileggja
„detente" með óhróðri sínum og
grafa undan álitinu á Sovétríkj-
unum.
Það eru sjö Gyðingasamtök i
Evrópu, Bandaríkjunum og S-
Ameríku, sem standa að ráðstefn-
unni, sem lýkur á fimmtudag og
er þetta önnur heimsráðstefna
Gyðinga, sem haldin er i Brússel.
hin fyrri var haldin 1971. Á þeim
tima fordæmdu sovézku fjölmið)
arnir einnig ráðstefnuna og bréf
voru send til nokkurra sendiráða
en ekkert í líkingu við það flóð.
sem nú hefur skollið yfir. For-
ráðamenn ráðstefnunnar i
Brussel segja það tilgang sinn að
koma á stað alþjóðlegri hreyfingu
„gegn harðneskjulegri meðfcrð á
Gyðingum i Sovétrikjunum".
Ekki hafði verið gert ráð fyrir að
ráðstefnan vekti niikla athygli
fjölmiðla á Vesturlöndum og má
segja að hinn mikli áróður i
Sovétríkjunum hafi orðið til að
setja hana i brennidepil.