Morgunblaðið - 18.02.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976 I atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Stúlka óskast Vön verzlunar- og skrifstofustörfum. Ein- hver tónlistarkunnátta æskileg. Vinnutími 13—18. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Mbl. merkt: „K-2484", fyrir 20. þ.m. Vanur bréfritari Óskum eftir að ráða í hluta starfs þjálfað- an starfskraft, til að annast bréfaskriftir og vélritun á íslenzku og ensku. Starfstími 2—4 tímar á dag, tvisvar til fjórum sinnum í viku, eða eftir nánara samkomu- lagi. Þeir sem áhuga hafa, sendi Mbl. tilboð er gefi uppl. um viðkomandi, merkt: Hluti starfs í Lágmúla 8656. Knattspyrnu- þjálfarar Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðár- króki vantar knattspyrnuþjálfara næsta sumar. Uppl. í síma 95-5566 eða 95- 5560. Knattspyrnu- þjálfarar 1. deildar-lið í Færeyjum vantar þjálfara strax. Allar uppl. gefur Björn Gíslason í síma 99-1344 á Selfossi til n.k. sunnu- dags 22. febrúar. Kjólaverzlun Afgreiðslustúlka óskast í kjólaverzlun hálfan daginn. Umsóknir um aldur og fyrri störf, sendist Mbl. merkt: „kjólaverzlun — 3789". Laust starf Staða deildarfulltrúa við innheimtu í fjár- máladeild er laus til umsóknar. Verzlunar- skólapróf eða hliðstæð menntun æskileg. Umsækjendur þurfa að hafa verkstjórnar- hæfileika og geta unnið sjálfstætt. Umsóknareyðublöð og nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu Rafmagnsveit- unnar, Hafnarhúsinu, 4. hæð. RAFMAGNSVEITA , REYKJAVlKUR Matsvein og háseta vantar á m.b. Jón Sturlaugsson til neta- veiða frá Þorlákshöfn. Upplýsingar um borð í bátnum við Grandagarð eða I síma 99-3725. — 3877. | raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Lögtaksúrskurður: Samkvæmt beiðni innheimtumanns ríkissjóðs úrskurðast hér með að lögtök geti farið fram fyrir eftirtöldum gjaldföllnum en ógreiddum gjöldum: Vörugjaldi af innlendri framleiðslu og innfluttum vörum, sölugjaldi fyrir október, nóvember og desember, svo og nýálögðum hækkunum á sölugjaldi, gjaldföllnum þungaskatti af diesilbifreiðum skv. ökumælum, almennum og sérstökum útflutningsgjöldum, aflatryggingasjóðsgjöldum, tryggingaið- gjöldum af skipshöfnum, ásamt skráningargjöldum svo og nýálögðum hækkunum þinggjalda, allt ásamt dráttarvöxt- um og kostnaði. Lögtökin geta farið fram að liðnum átta dögum frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, Seltjarnarnesi og Garðakaupstað, sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. fundir — mannfagnaöir Aðalfundur Krabbameinsfélags Vestur- Skaftafellssýslu verður haldinn í Víkur- skála sunnudaginn 29. febrúar kl. 1 5.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar eru vinsamlega minntir á gíróseðla. Stjórnin ýmislegt Vestmanneyingar Búslóðar sem geymd er í Vélsmiðjunni Héðni hf. Seljavegi 2, síðar í gosinu þarf að vitja strax, vegna þess að húsými þarf að rýma. Vélsmiðjan Héðinn h. f. til sölu Járnrennibekkur „Nebel" 225 m.m. x 2 metrar til sölu, strax. Vélsmiðjan Héðinn h. f., sími 24260. nauöungaruppboö sem auglýst var 46, 48 og 50 tbl. Lögbirtingablaðsins 1 975 á fasteigninni ishúsi í Gerðahreppi þinglesin eign Fiskiðju Suðurnesja h.f., fer fram á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 19. febrúar 1976 kl. 1 6. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. húsnæöi í boöi_________ Miðborg Skrifstofuhúsnæði óskast til leigu í mið- borginni, 150—200 fm. Álhar frekari upplýsingar veittar í síma 28566 frá kl. 8—17. Til leigu nú þegar 300 fm iðnaðar eða skrifstofu- húsnæði nálægt Hlemmi. Geymslur í risi geta fylgt. Uppl. ísíma 27220. tilboö — útboö (fj ÚTBOÐ Tilboð óskast i 1 1 kV rafbúnað í Aðveitustöð 1, fyrir Raf- magnsJéitu Revkiavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3. Tilboð verða opnúð á sama stað miðvikudaginn 24. mars 1976 kl. 1 1,0C f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 ' — Afmæli Framhald af bls. 11 Þetta var í miðju fyrra stríði. Gunnar hafði fest kaup á fyrsta bíl sínum, tveggja ára gömlum Ford, sem kostaði sextán hundruð krónur, en þá kostaði Ifka bensín- lítrinn 19 aura. Aksturinn var fólginn i lengri eða skemmri ferð- um, ýmist í nauðsynjaerindum eða til skemmtunar. Fyrir 125 krónur mátti fá skottúr austur á Þingvöll. Kolviðarhóll, Eyrar- bakki, Þjórsárbrú og Fljótshlíð voru algengir áfangastaðir. Ef staðið var við á Eyrarbakka hélt Gunnar jafnan til hjá Niels Isaks- syni, góðvini sínum, og móður hans. Nú kom nýr bxll með hverri skipsferð angandi upp úr kassan- um. Framan af hélt Gunnar mest upp á Overland bflana amerísku, en síðan kynntist hann Chevrolet og hefur átt þá tegund æ síðan. Margir góðir menn hafa stigið upp í bílinn hjá Gunnari á löng- um ökuferli, engu minni en hirð- menn Danakonungs. Má þar nefna heimsborgarann Gest á Hæli, Jónas ráðherra frá Hvirflu og vígslubiskupana séra Valdimar Briem og séra Bjarna Jónsson. Þegar Borgarættin eftir Gunn- ar Gunnarsson var kvikmynduð var Gunnar einkabílstjóri nafna sfns Sommerfeldts, sem fór með aðalhlutverkið í myndinni. Þá var ekki kominn vegur upp á Sand- skeið og slagveðursrigning upp á hvern einasta dag, en kom lítt að sök því að Gunnar var á átta manna Overland tryllitæki. Svo vel líkaði leikaranum við bílstjóra sinn, að hann skenkti honum að skilnaði áletraðan silfurbikar. I sambandi við myndatökuna kom Gunnar oft við sögu, eins og þegar hann hljóp i skarðið fyrir Ormar örlygsson og rak fjárreksturinn fræga yfir Elliðaárnar og bjargaði með innbornu snarræði sfnu dönsku frúnni frá því að detta í iðandi strauminn. Já, Gunnar hefur lagt gjörva hönd á margt. Hann hefur verið húsgagnasmíður, húsasmiður, leigubílstjóri og ökukennari. Mest hefur þó kveðið að starfi hans sem læknabílstjóri á næturvakt læknanna í Reykjavík. Hann byrj- aði á vaktinni 1928 og ók hverja einustu nótt i 18 ár, án þess að hafa afleysingamann. Er við- brugðið stundvísi hans, alúð og glaðværð í þvi starfi, svo erilsamt og þreytandi sem það var. Gunnar ber læknunum lika vel söguna og hefur átt marga góðvini i þeirri stétt. Minnisstæð er óveðursnótt með Stefáni Ólafssyni. Hafa kynnin við Stefán veitt Gunnari ómældar gleðistundir. Hinn 8. janúar 1921 gekk Gunn- ar að eiga Ragnheiði Bogadóttur, mikilhæfa dugnaðar- og ágætis- konu, dóttur hjónanna Ragnheið- ar Sigurðardóttur Johnsen frá Flatey og Boga Sigurðssonar, kaupmanns í Búðardal, sem kallaður hefur verið faðir staðar- ins. Börn þeirra eru: Jóhanna, Ingibjörg, Ragnheiður, Elisabet og Ólafur, en áður hafði Gunnar eignast dóttur, Huldu. Þau Gunn- ar og Ragnheiður hafa jafnan reynst hvort öðru eins og best verður á kosið og átt barnaláni að fagna. Heimili þeirra hefur ætfð verið mikil miðstöð mannfunda i stórri fjölskyldu og frá þvf hefur stafað blessun, sem margir hafa orðið aðnjótandi. Þau hafa verið fundvis á það, sem öðrum kemur vel, hvort sem átt hefur í hlut barn eða fullorðinn. Hjá þeim bjó lengi fósturmóðir Ragnheiðar.frú Ingibjörg Sigurðardóttir frá Búð- ardal. Elstu minningar þess, sem hér heldur á penna, eru frá Frakka- stíg 6a eða sumarbústaðnum góða fyrir ofan Hólmsárbrú, í heil- næmu og traustvekjandi andrúmslofti afa mins og ömmu. Ég óska Gunnari ynnilega til hamingju með þennan merkisdag i ævi hans og þakka honum fyrir allt, sem hann hefur fyrir mig gert. Hann tekur f dag á móti gestum á heimili dóttur sinnar, Elísabet- ar og manns hennar, Júliusar P. Guðjónssonar að Kvistalandi 19. Gunnar Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.