Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976 Leit undirbúin að litlum báti í gær Fannst vélarvana út af Jökli í gærkvöldi SLYSAVARNAFELAGIÐ var í gærkvöldi aó undirhúa leit að báti — Fagurev SH-257 sem hafði ekki svarað tilkvnningaskvIdunni frá því að hann fór frá tsafirði í gærkvöldi áleiðis suður með vesturströndinni. Búið var að hiðja allar strandstöðvar á svæð- inu að kalla upp hátinn og einnig Jóhann Þorsteins- son, kennari í Hafnarfirði látinn var varðskip farið til að svipast eftir bátnum i víkum og fjörðum á Vestfjörðum. I gærkvöldi var verið að undir- búa mikla leit með flugvélum að bátnum, þegar Arsæll KE sem var á loðnumiðunum út af Jökli varð var við eld ekki fjarri um kl. 10.15 i gærkvöldi. Fóru skipverjar á Arsæli til að kanna nánar hvað þarna væri á ferðinni og kom þá í ljós að þar var Fagurey komin. Höfðu skipverjar á bátnum látið vita af sér með því að kveikja bál, en að sögn Hannesar Hafstein hjá Slysavarnafélagi Islands, höfðu nánari upplýsingar ekki borizt hvað verið hefði að bátnum en svo virtist sem hann hefði bæði verið vélarvana og öll fjarskiptatæki hans úr lagi gengin úr því að áhöfnin gat ekki látið vita af sér með öðrum hætti en að kveikja bál á dekkinu. Fagurey er 140 tonn að stærð, og voru 4 menn á bátnum eftir því sem næsl verður komist. Mikill áhugi fyrir nýju flugfélagi JOHANN I. Þorsteinsson, fvrrum kennari og forstjóri Sólvangs í Ilafnarfirði, er látinn, 77 ára aó aldri. Jóhann fæddist að Berustöðum f Holtum í Rangárvallasýslu 1899, og voru foreldrar hans Þorsteinn Þorsteinsson og kona hans Ingi- gerður Runólfsdóttir. Jóhann lauk gagnfræðapröfi frá Flens- borg árið 1922 og kennaraprófi 1927. Hann hélt smábarnaskóla í Hafnarfirði 1922—25, en var síð- an kennari við barnaskóla í Hafnarfirði frá 1929—49 og gagn- fra'ðaskólann frá 1949 og um ára- bil. Jóhanni voru falin ýmis trúnaðarstiirf innan bæjarins og tók hann virkan þátt í félagsmál- um þar í bæ, saí i barnaverndar- nefnd um skeið, átti sæti i íþrótta- ráði bæjarins um árabil og var forniaður Iþróttabandalags Hafnarfjarðar við stofnun þess. Þá var Jóhann einnig um skeið forst jöri Sólvangs i Hafnarfirði. Jóhann var kvæntur Astrid Alva Maria hjúkrunarkonu. FREKARI undirbúningur að stofnun nýs flugfélags til að halda uppi sams konar leiguflugi og Air Viking annaðist er í fullum gangi að því er Ragnar Ingólfsson í undirbúningsnefnd áhugamanna- hóps um slíkt flugfélag tjáði Morgunblaðinu. Kvað hann fjöl- marga aðila hafa sýnt málinu áhuga, og margir hefðu gefið fyrirheit um hlutafé þegar af stofnun hlutafélags um rekstur flugfélagsins yrði. Ekki verður sagt að stúlkan þessi sé beinlfnis klædd fyrir umhleyp- ingasama veðráttuna hér syðra — en við verðum bara að vona, að hún hafi ekki þurft langt að fara. Heildaraflinn minnkaði um V3 fyrstu tvo mánuðina HEILDARAFLI lands- manna minnkaði um 127.375 lestir fyrstu tvo mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Að þessu sinni varð aflinn alls 211.932 lestir á móti 339.307 lestum. Minni afla má fyrst og fremst rekja til verkfalla á bátaflotan- um og minni skuttog- urunum, sem hófst 14. febrúar s.l. og lauk ekki fyrr en um mánaðamót. Þorskafli bátaflotans var fyrstu tvo mánuðina 21.361 lest á móti 24.390 lestum. Afli togara var nú 27.211 iestir en á sama tíma í fyrra 28.341 lest. Minni þorskafli er í öllum landsfjórðungum hjá bátaflotanum, nema á Vestfjörð- um þar sem aflinn jókst um 700 lestir. A Norðurlandi minnkaði hann hins vegar um 800 lestir. Afli skuttogara sem landað var heima var 24.248 lestir á móti 25.471 lest. Loðnuafli var nú 161.343 lestir á móti 284.734 lestum, sem er 127.375 lestum minna en fyrstu tvo mánuði s.I. árs. Rækjuaflinn var 1.611 lestir, sem er um 60 lestum minna en í fyrra, en hins vegar var hörpu- disksafli nú 406 lestir á móti 166 lestum. Slökkviliðsmenn reyna nýju búbótina, „Tankinn" Slökkviliðið á Keflavíkur- flugvelli sigursælt sem fyrr SLÖKKVILIÐIÐ á Keflavíkur- flugvelli sigraði enn einu sinni f deild sinni f alþjóðlegri eldvarna- samkeppni, sem bandarísku brunavarnasamtökin efna til. Er þetta þréttánda árið í röð sem slökkviliðið á Keflavfkurflugvelli undir stjórn Sveins Eirfkssonar hefur skipað sér í eitt af þremur efstu sætunum f þessari samkeppni en í deildinni ásamt því eru 56 herstöðvar með íbúa- tölu á bilinu frá 1.500 til 3.500 manns. Slökkviliðið á Keflavfkur- flugvelli varð i öðru sæti f fyrra. Slökkviliðið á Keflavíkurflug- velli hefur nú fengið risastóran slökkviliðsbíl, sem slökkviliðs- menn kalla „Tankinn". Tæki þetta er 20 metrar að lengd og getur borið um 5 þúsund gallon af slökkviefni auk 300 gallona of kvoðu, sem myndar eldeyðandi froðu þegar hún blandast vatni. Keflavíkurflugvöllur er ein af aðeins fimm herstöðvum sem fengið hefur slökkvibifreið af þessu tagi, og var það gert með tilliti til hins mikla fjölda flug- véla og farþega sem lenda á flug- vellinum. Einnig hefur slökkvi- liðið nú fengið sérstakt farartæki til að bjarga farþegum, þegar flugvél hefur hlekkzt á og eldur komið upp í henni. Akraneskonur hafa lokið mán- aðarverkfalli KVENNADEILD Verkalýðsfé- lags Akraness hefur aflýst verkfalli, sem staðið hefur f nær mánuð eða frá 17. febrúar síðastliðnum. 1 fvrrinótt um kl. 04 tókust samningar milli frystihússeigenda á Akranesi og kvennadeildarinnar, en fundur hafði þá staðið frá því kl. 13.30 f fyrradag. A félags- fundi f gær samþykktu verka- konurnar samkomulagið. Samkomulagið er í megin- atriðum samhljóða því sem gert var milli aðila vinnumark- aðarins fyrir síðustu fnánaða- mót. Konurnar á Akranesi felldu samningana vegna upp- sagnarákvæðis um kauptrygg- ingu og í því stappi stóð þar til í fyrrinótt. Akvæði heildar- samtakanna var að hvaða dag vikunnar sem er sé viku upp- sagnarfrestur, en í samkomu- laginu á Akranesi var sætzt á, að uppsagnardagar væru aðeins mánudagar og föstu- dagar. Að öðru leyti gildir það samkomulag, sem gert var milli aðila vinnumarkaðarins hinn 27. febrúar síðastliðinn. Rétt viðbrögð komu í veg fyrir eldsvoða Slökkviliðið var kvatt að Aspar- felli 4 rétt fyrir kl. 11 í gærmorg- un. Þar hafði komið upp eldur f fataskáp f barnaherbergi á 7. hæð. Talsverður eldur var í skápnum og hlutust skemmdir af völdum hans í herberginu. Húsmóðirin á staðnum lokaði strax barnaherberginu er hún varð vör við reykinn og kallaði á aðstoð. Tveir menn komu til hjálpar með handslökkvitæki og tókst þeim að slökkva eldinn að mestu áður en slökkviliðið kom á staðinn. Slökkviliðið vill benda á, að þessi viðbrögð komu í veg fyrir að eldurinn breiddist út og ekki hlauzt meira tjón af. Varla veiðiveður hjá Bretum TtÐINDALAUST var á miðunum út af Austfjörðum í gær, en þar var þá suðaustanátt, 8 vindstig og naumast veiðiveður. Brezku tog- ararnir voru 27 og verndarskipin 10 talsins, og héldu þau sig á Hvalbaksmiðunum. Dráttarskipið Lloydsman kom ámiðin í gær. Ritstjóri í 40 ár Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri og alþingismaður, á merkisaf- mæli f dag, þvf að liðin eru 40 ár frá þvf að hann var ráðinn rit- stjóri. Hann var þá aðeins 21 árs að aldri, og hefur ekki yngri maður tekið við ritstjórastarfi á dagblaði hérlendis. Jafnframt er Þórarinn nú handhafi blaða- mannaskfrteinis nr. 1. Þórarinn var aðeins 18 ára þegar hann hóf starf sem blaða- maður hálfan daginn en ári síðar eða 1934 varð hann fastráðinn blaðamaður við Nýja dagblaðið, sem Framsóknarflokkurinn gaf þá út daglega en Tíminn kom hins Þórarinn Þórarinsson vegar út vikulega. Þórarinn varð sfðan ritstjóri Nýja dagblaðsins 17. marz 1936 og þegar það var lagt niður 1938 og Tfminn hóf að koma út daglega varð Þórarinn ritstjóri hans. „Ég hef alltaf haft gaman af blaðamennskustarfinu og áhuga á því,“ sagði Þórarinn þegar Morgunblaðið hafði samband við hann út af þessum tímamótum. Kvaðst Þórarinn því ekki hafa nein áform um að hætta, þrátt fyrir að starfsævin væri orðin svo löng. Starfsfélagar Þórarins á Morgunblaðinu óska honum til hamingju með afmælið og árna honum allra heilla í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.