Morgunblaðið - 17.03.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.03.1976, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUK 17. MARZ 1976 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976 17 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10 100. Aðalstræti 6, slmi 22 4 80. Mesta viðfangsefni nú- lifandi kynslóðar — og hættan á gerðardómi Isíðustu viku komu saman í Kaupmannahöfn tólf fiskifræðingar frá Englandi, Skotlandi, V-Þýzkalandi, Danmörku, Noregi, Færeyjum og íslandi á fund vinnunefndar Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Það var tvimælalaust eftir- tektarverðust niðurstaða þessa fundar, að hann staðfesti i einu og öllu svonefnda svarta skýrslu fiskifræðinga okkar um ástand islenzka þorskstofnsins. Samkvæmt útreikningum fiskifræðinganna náði hrygn- inga slofninn hámarki árið 195/ 1.200.000 tonnum en er nú kominn niður i um 370.000 tonn Fiskifræðingar telja að sókn í íslenzka þorsk- stofninn sé nú tvöföld við það, sem hæfilegt geti talizt, sem bitni m.a. á ungfiski. Stefnt sé að hruni stofnsins með óbiTvili' .eiðisókn Þrátt fyrir verulegan sam- drátt í veiðum útlendinga á íslandsmiðum undanfarin ár, telja fiskifræðingar, að sóknar- aukning hafi verið 30 til 40% á árabilinu 1970—1975, m.a. vegna umtalsverðrar stækkun- ar islenzka fiskiskipastólsins. Þrátt fyrir þessa stækkun fiski- skipastóls okkar og sóknar- aukningu hefur heildarafla- magn okkar ekki vaxið á um- liðnum árum og arðsemi út- gerðar á hverja rekstrareiningu farið síminnkandi. Sem dæmi má nefna að þrátt fyrir 40% sóknaraukningu frá árinu 1970 hefur aflinn á sama tíma minnkað um 100.000 tonn. Fiskifræðingar leggja ríka áherzlu á, að sókin í þorsk- stofninn verði að minnka, ef fyrirbyggja eigi hrun hans með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir útgerðina og atvinnu- og efnahagslif þjóðarinnar. Tak- mörkun á veiðisókn leiði að vísu til aflaminnkunar fyrst í stað en aflaaukningar og öryggis er frá líðí. 50% sóknar- minnkun geri það mögulegt að þrefalda hrygningarstofninn á tilteknu árabili. Það er von íslendinga og þeirra, sem gera sér Ijósa grein fyrir hrunhættu nytjafiska á Norðausturatlantshafi, að haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem nú er hafin, lykti á þá lund, að 200 mílna fiskveiðilandhelgi og einhliða réttur strandríkja verði alþjóða- regla, sem er forsenda þess að stefnt verði að fiskifræðilegum markmiðum á grundvelli vís- indalegra niðurstaðna fiski- fræðinga. Hins vegar er nú talin veruleg hætta á því að slik alþjóðaregla verði skilyrðis- bundin, annað tveggja vegna gjörðadóms eða svokallaðs hefðbundins réttar en slík skil- yrði eru mjög óhagstæð íslenzkum viðhorfum og hags- munum í fiskveiðimálum. Gamalgrónar fiskveiðiþjóðir, sem sótt hafa á íslandsmið hafa nú snúizt til fygis við 200 milna sjónarmiðið væntanlega í trausti þess, að slik skilyrðis- bundin ákvæði verði látin fylgja nýjum alþjóðlegum hafréttar- reglum Þau drög að gerðar- dómi sem nýlega hafa verið lögð fram eru strandríkjum stórháskaleg ef samþykkt yrðu. Fiskveiðideilan og átökin á íslandsmiðum eru m.a. notuð í rökstuðningi fyrir réttmæti skil- yrðisbundinna hafréttar- ákvæða Það var af þessum sökum, sem íslenzk stjórnvöld töldu rétt að leita hóflegra, tímabundinna og takmarkaðra samninga við aðrar þjóðir um fiskveiðar, fram yfir lyktir haf- réttarráðstefnunnar. Og það er sennilega af sömu sökum sem Bretar hafa gert sitt til að úti- loka alla samningsmöguleika fyrir hafréttarráðstefnuna. Auk þess að vilja styrkja hinn íslenzka málstað á hafréttarráð- stefnunni með takmörkuðum og timabundnum samningum, voru þau sjónarmið höfð í huga að hugsanlegir samningsaðilar kynnu að ganga nær síminnkandi þorskstofní án samninga en meðy sem og að tryggja frið á íslandsmiðum, en ófriðurinn á miðunum var löngu kominn á það stig, að mannslíf gátu verið í veði. Það er óþarfi að tíunda það hér og nú hver þýðing nytja- fiska okkar er fyrir atvinnu- og efnahagslíf þjóðarinnar/ Fram- tíðarvelmegun og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er órjúf- andi tengt þvf að auðlindir sjávar verði áfram sá verð- mætabrunnur íslendingum sem þær hafa verið til þessa. Fiskifræðilegar niðurstöður benda ótvírætt til þess, að nú verði að bregða skjótt og skyn- samlega við þeim vanda er við blasir, og skapa fiskstofnum skilyrði til að ná eðlilegri stofn- stærð, svo þær geti á ný gefið hámarksafrakstur í þjóðarbúið. Það er tvimælalaust mesta verkefni núlifandi kynslóðar i landinu, að stemma stigu við rányrkju auðlinda sjávar, skapa nytjafiskum okkar skil- yrði til að ná eðlilegri stofn- stærð á ný og skila framtíðinni óskemmdum þeim möguleik- um, sem efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar er undir komið i bráð og lengd. Það verður ekki gert með póli- tískum refskáksleikum á borð við það sem stjórnarandstaðan leikur nú nær dag hvern á Alþingi og kommúnistar í Þjóð- viljanum, ekki með sundur- lyndi og innbyrðis átökum litillar þjóðar, heldur með sam- stöðu, skynsamlegri íhugun og ákvarðanatöku, sem tekur aðeins mið af þeim fiskifræði- legu markmiðum og framtíðar- hagsmunum, sem hljóta að verða leiðarljós okkar í þessu mesta lífshagsmunamáli þjóð- arinnar. Jónas H. Haralz: Friáls Jónas H. Haralz bankastjóri á aðalfundi Verzlunarráðs lslands. verzlun og þróun efnahagsmála Ágrip af erindi á aðalfundi Verzlunarráðs íslands í fyrri viku Blómaskeið frjálsrar verzlunar Undanfarinn aldarfjórðungur hefur verið blómaskeið frjálsrar verzlunar. Innflutningshöft hafa veríð felld niður á meðal iðnaðarrikja heimsins og tollar stórlega lækkaðir um heim allan. Traust skipan gjaldeyrismála mestan hluta þessa timabils hefur jafnframt stuðlað að miklum og vaxandi alþjóða- viðskiptum. Viðgangur frjálsrar verzl- unar hefur haldizt í hendur við óvenju örar og stöðugar efnahagslegar fram- farir. Frjáls verzlun hefur verið ein meginforsenda þessara framfara, en jafnframt hefur hagstæð framþróun efnahagsmála myndað grundvöll nýrra áfanga á braut til enn frjálsari verzlun- ar. Ef þessi árangur í efnahagsmálum hefði ekki náðst, ef hagvöxtur hefði ekki orðið jafn mikill og atvinnuleysi jafn lítið og raun bar vitni,hefðu þjóðir heims verið tregar til að ganga æ lengra í átt til frjálsra viðskipta. Á síðustu árum hafa orðið mikil um- skipti í alþjóðlegri þróun efnahags- mála. 1 þessu erindi mun fjallað um eðli þessara umskipta og þau áhrif, sem þau hafa haft og kunna að geta haft á afstöðuna til frjálsrar verzlunar. Jafnframt mun fjallað um hliðstæðar breytingar hér á landi og væntanlegar afleiðingar þeirra. Ofþensla í efnahagsmálum Það skeið mikilla framfara, lítilla hagsveiflna og sivaxandi alþjóðlegrar verkaskiptingar, sem staðið hefur und- anfarna áratugi virðist nú á enda. A undanförnum tveimur árum hefur fyrsta alvarlega efnahagskreppa ár- anna eftir styrjöldina gengið yfir, og þótt nú sjái fyrir lok þeirrar kreppu, er mikil óvissa rikjandi um efnahagsþró- un næstu ára. Eftir því sem framfarir urðu meiri og velmegum fór vaxandi, urðu kröfur til bættra lífskjara, til hvers konar umbóta og til þess að margvislegum réttlætismálum væri sinnt, sifellt meiri. Af háifu stjórn- málamanna og verkalýðsleiðtoga var í vaxandi mæli reynt að sinna þessum kröfum án tillits til heildargetu og án raunverulegs vilja til þess að gera upp á milli þeirra. Þetta leiddi til þess, að tök á almennri stjórn efnahagsmála, sem verið höfðu allgóð um langt skeið, urðu æ veikari. Til viðbótar þessu komu afleiðingar styrjaldarinnar í Viet Nam, upplausn alþjóðlegrar skipunar gjald- eyrismála og verðhækkun olíu. Afleið- ingin varð vaxandi verðbólga, almenn og mikil ofþensla i efnahagsmálum ár- in 1972 og 1973, og siðan sú kreppa, sem í kjölfarið fylgdi. Verðbólga — atvinnuleysi Á árinu 1974 komst verðbólga i lönd- um Efnahags- og framfarastofnunar- innar (OECD) í 13.4% að meóaltali og i sumum löndunum í 25%. Menn sann- færðust fljótlega um, að áframhald slíkrar verðbólgu myndi kippa stoðun- um undan skynsamlegri stjórn efna- hagsmála og efnahagslegum framför- um. Hafi heimskreppan eftir 1930 fært mönnum heim sanninn um, að vestræn þjóðféiög stæðust ekki almennt at- vinnuleysi, sannfærðust menn nú um, að þau myndu ekki heWur standast mikla og langvarandi verðbólgu. Þess vegna var rösklega tekið í taumana og lögð megin áherzla á að ráða niðurlög- um verðbólgunnar. Afleiðingin varð sú efnahagskreppa, sem staðið hefur árin árin 1974 og 1975. Fyrra árið varð enginn hagvöxtur í OECD ríkjunum í heild og nokkur minnkun þjóðarfram- leiðslu í Bandaríkjunum og Japan. Síð ara árið, 1975 minnkaði þjóðarfram- leiðsla um 2% í OECD ríkjunum, og nú voru það ýmis Evrópulönd, sem harðast urðu úti. Meginskoðun í stjórn efnahagsmála: Þess sjást nú merki, að hagsveiflan hafi snúið á uppleið að nýju. Fram- leiðsla hefur farið vaxandi í bæði Bandaríkjunum og Japan frá því á fyrri hluta s.l. árs, jafnframt því sem verðbólga hefur dvínað víðast hvar, Búizt er við, að á árinu 1976 nái hag- vöxtur 4% að meðaltali í OECD rikjun- um. Bandaríkin eru í fararbroddi með allt að 6% vöxt, en gert er ráð fyrir mun hægari vexti í Japan, Þýzkalandi og Frakklandi og enn hægari í Italíu, minni löndum Evrópu og i Bretlandi. Verðbólgan lækkaði í um9% að meðal- tali 1975 og búizt er við, að nokkuð slaki á henni til viðbótar á þessu ári, en þó tiltölulega lítið. Atvinnuleysi hefur verió meira á árinu 1975 en nokkru sinni síðan styrjöldinni lauk og lítils bata er vænzt i þessu efni á árinu 1976, nema þá helzt i Bandaríkjunum. Ekki er samt gert ráð fyrír neinum sérstök- um aðgerðum gegn atvinnuleysinu, sem áhrifaríkar yrðu. Hér kemur til greina sú skoðun, sem rutt hefur sér til rúms, ekki aðeins meðal hagfræðinga, heldur einnig meðal stjórnmálamanna, verkalýðsleiðtoga og alls almennings, að hversu mikið böl sem atvinnuleysi sé, þá sé verðbólgan enn meiri ógn. Það sé ekki lengur unnt að losa sig undan svipu atvinnuleysisins með því að auka við verðbólguna. Sé það reynt, muni menn missa stjórn á verðbólgunni og upp skera enn meira atvinnuleysi. Þetta er sú meginskoðun, sem nú ræð- ur stjóm efnahagsmála í öllum helztu iðnaðarlöndum heimsins, hvort sem miðflokkar eða jafnaðarmannaflokkar fara þar með völd. Þetta er stefna Helmut Schmidts i Þýzkalandi og Har- old Wilsons í Bretlandi í jafnríkum mæli eins og Gerald Fords í Bandaríkj- unum. Óvissa um framtíð hagþróunar Sé horft lengra fram í timann, er rikjandi mikil óvissa um framtíð hag- þróunar. Uppi eru meðal hagfræðinga mjög skiptar skoðanir í þessu efni. Algengasta skoðunin er sú, að hag- sveiflan muni þróast með svipuðum hætti og slíkar sveiflur hafa gert, en verða þó hægari og ekki risa eins hátt og venjulega. Hagvöxturinn muni verða minni, atvinnuleysi meira og verðbólga jafnframt tiltölulega meiri heldur en áður. Þetta sé vottur þess, að mönnum takist ekki lengur að sam- ræma mismunandi markmið í efna- hagsmálum eins vel og þeim tókst áður. En það eru líka til hagfræðingar, sem halda því fram, að horfurnar séu mun verri en þetta. Þeir búast við þvi, að á árinu 1977 fari hagþróunin úr skorðum aftur. Vöxtur verði örari en menn hafi búizt við og verðbólga miklu örari. Gripið verði þá til nýrra og harkalegri aðgerða til að ráða bót á þessu, og önnur og enn alvarlegri kreppa muni sigla í kjölfarið. Hvernig hefur þá frjálsri verzlun reitt af á þessum umbrotatímum? Hef- ur hún orðið fórnardýr nýrrar kreppu, eins og menn höfðu óttast? Svo hefur ekki orðið enn og ekki eru heldur horf- ur á að svoþurfi að verða. Eigi að síður hefur frjáls verziun vissulega verið í hættu á þessu tímabili og það má segja, að framsóknin til aukins frelsis í við- skiptamálum hafi stöðvazt, um sinn að minnsta kosti. Tilraunir til þess að halda fram tollalækkunum meó al- þjóðasamningum hafa ekki gengið vel. Hvergi hefur verið komið á almennum innflutningshöftum, en sums staðar hefur verið komið á verndun fyrir viss- ar vörur eða iðngreinar, ekki sízt í Bretlandi og Svíþjóð á síðasta ári. I nokkrum löndum hefur verið komið á timabundinni innborgunarskyldu í sambandi við vöruinnflutning. Þá hafa verið lögð á tímabundin innflutnings- gjöld i nokkrum löndum. Allar þessar ráðstafanir bera keim af þvi, að ríkis- stjórnir hafi verið að reyna að taka viss pólitisk tillit, og þá einkum verið að friða viss sjónarmið innan sinna eigin stuðningsflokka. Raunveruieg áhrif á greiðslujöfnuð og hagþróun hafa verið lítil. Sem betur fer hafa ríkin getað forðast að taka slíkar ráðstafanir upp hvert af öðru, og alþjóðleg samræming í stjórn efnahagsmála hefur að nýju farið vaxandi. Kemur þetta ekki sízt fram í farsælli þróun gjaldeyris- og gengis mála, þar sem fljótandi gengi hefur verið tekið upp án þess að til samkeppni um gengislækkanir hafi komið. Horfur og þróun frjálsrar verzlunar Enda þótt meginstoðir frjálsrar verzlunar hafi staðizt og ekki hafi verið gripió til beinna innflutningshafta eða tollahækkana, hefurþó i vaxandi mæli verið gripið til ýmissa ráðstafana af opinberri hálfu, sem horfatil skerðing- ar eðiilegra viðskipta. Má í því sam- bandi nefna ýmis konar mismunun i skattamálum, styrki við fyrir- tæki og mismunun í lánamálum. Hef- ur þetta ekki sízt átt sér stað i sam- bandi við framkvæmd byggðastefnu. Þess sjást þó nokkur merki, að um endurskoðun sé að ræða i þessum mál- um og meiri gagnrýni sé uppi á hvers konar afskiptum rikisvaldsins í þessum efnum, heldur en verið hefur um skeið. Þeirrar gagnrýni virðist gæta i flestum eðaöllum stjórnmálaflokkum. Hverjar eru þá horfurnar um þróun frjálsrar verzlunar í heiminum á næstu árum? Þetta fer eftir því, hvort unnt reynist að halda þeim tökum, sem þrátt fyrir allt hafa náðst á stjórn efnahags- rhála. Ef þetta tekst og ef búast má við nokkrum hagvexti minnkandi atvinnu- leysi og vaxandi alþjóðaviðskiptum, þarf varla að óttast um afdrif frjálsrar verzlunar. Fari hins vegar svo, að stjórn efnahagsmála fari úr böndun- um, að ný verðbólgualda rísi og ný kreppa fylgi í kjölfar hennar, þá getur allt annað orðið uppi á teningnum. Stjórn efnahagsmála mótar framhaldið Að loknu þessu stutta alþjóðlega yf- irliti er rétt að vikja til ástands og viðhorfa hér á landi. Við höfum i stór- um dráttum fylgt þeirri alþjóðlegri þróun, sem orðið hefur á undanförnum áratugum. Við höfum lika lifað blóma- skeið frjálsrar verzlunar síðastliðinn hálfan annan áratug. Við fetuðum þessa braut að vísu seinna en aðrir að lokinni mikilli villu kreppu- og styrjald arára, en við gerðum það samt. 1 kring- um 1960 var frjáls verzlun að nýju sett til öndvegis og framkvæmd i áföngum, fyrst með afnámi innflutningshafta og síðan með lækkun tolla, fyrst hægt og siðan örar í sambandi við inngöngu okkar í EFTA og samninga vió Efna- hagsbandalagið. Þessi þróun hélt áfram þrátt fyrir það, að stjórnarskipti ársins 1971 leiddu til stefnubreytingar í mörgum greinum. Það sem úrslitum réði í þessu efni var það sama og í öðrum löndum. í fyrsta lagi áttuðu menn sig þrátt fyrir allt á samhenginu milli hagvaxtar og velmegunar annars vegar og frjálsrar verzlunar hins vegar, og á þvi, að islendingar gátu ekki vikið af braut frjálsrar verzlunar heima fyr- ir og um leið ætlast tii þess að njóta góðs af frjálsri verzlun i öðrum lönd- um. 1 öðru lagi ráku menn sig á það þegar til átti að taka, að innflutnings- höft, eins og þau tíðkuðust áður fyrr, eru óframkvæmanleg við nútíma að- stæður. Það má þvi segja, að frjáls verzlun hafi fram að þessu einnig hér á landi staðizt þá raun, sem erfiðar efna- hagsaðstæður og pólitiskar umbreyt- ingar hafi haft i för með sér. Þetta ætti að vera grundvöllur til nokkurrar bjartsýni. En eins og erlendis mun framhaldið hér á landi fyrst og fremst ráðast af því, hvernig til tekst um stjórn efnahagsmála. Þjóðarframleiðsla og viðskiptakjör Hvert er þá ástandið í efnahagsmál- um hér á landi og hverjar eru horfurn- ar um framvindu þeirra? I stórum dráttum hafa Islendingar fylgt alþjóð- legum ferli i efnahagsmálum fram að þessu. Hér var enn nokkur hagvöxtur á árinu 1974, er þjóðarframleiðsla jókst um 3%. Þá versnuðu viðskiptakjör hins vegar mikið, verðlag á innflutn- ingi hækkaði, ekki sízt á oliu, og verð á útflutningsvörum lækkaði. Versnandi viðskiptakjör þurrkuðu þvi út ávinning aukinnar þjóðarframleiðslu og þjóðar- tekjur stóðu i stað. Arið 1975 versnaði þetta enn. Talið er, að þjóðarfram- leiðslan hafi þá minnkað um 3.5% en viðskiptakjör versnað um 12% með þeim afleiðingum, að þjóðartekjur lækkuðu um 8% Þess sjást nú merki hér eins og annars staðar, að hagsveifl- an sé að byrja að snúast við. Verólag á útflutningsvörum okkar tók á hækka siðari hluta árs 1975 og er ekki ósenni- legt, að sú þróun haldi áfram, þótt varasamt sé að vonast til of mikils í því efni. Jafnframt þessu dró talsvert úr hraða verðbólgunnar eftir því sem leið á árið 1975. Á hinn bóginn reyndist halli á greiðslujöfnuði svipaður og áð- ur, eða 12% af þjóðarframleiðslu bæði árin 1974 og 1975. I þeirri þjóðhagsspá, sem lögð var fram i nóvembermánuði s.l„ var gert ráð fyrir, að á árinu 1976 myndi þjóðar- framleiðsla standa í stað og litil sem engin aukning verða á þjóðartekjum. Gert var ráð fyrir að bæði einkaneyzla og samneyzla myndu standa í stað en fjármunamyndun minnka Þótt nokkuð slakaði á eftirspurn eftir vinnuafli, myndi atvinna haldast næg. Verðbólga myndi réna nokkuð og verulega draga úr hinum mikla halla viðskiptajafnað- ar. Hugmyndir, sem þarfnast endurskoöunar Þessar hugmyndir þarfnast nú veru- legrar endurskoðunar. Að vísu er ekki ástæða til meiri svartsýni varðandi verðlag útflutnings en áður, nema sið- ur væri. Á hinn bóginn verður að gera ráð fyrir samdrætti þjóðarframleióslu bæði vegna áhrifa verkfallsins og fyrir- hugaðra ráðstafana gegn ofveiði. Verð- bólga mun fara vaxandi frá því, sem var siðustu mánuði ársins 1975, og væntanlega verða 25—30% á árinu sem heild. Getur það haft alvarleg áhrif á sparnað og greiðslujöfnuð, að menn sjái fyrir áframhald jafnmikillar verðbólgu í stað þess að búast við rén- un hennar. I stuttu máli er ljóst, að þörf er nýrrar og samræmdrar stefnu í efnahagsmálum, er tekur fullt tillit til áhrifa lækkandi framleiðslu og mikill- ar verðbólgu og beinist umfram allt að því að draga verulega úr hinum mikla halla á viðskiptajöfnuði. Áframhald- andi lánstraust landsins erlendis, sem við þurfum nú meira á að halda en nokkru sinni fyrr, byggist á því, að verulegur árangur náist í þessu efni, og það sem allra fyrst. Forsendur hag- vaxtar, velmegunar, heilbrigðrar verðmyndunar og frjáls neyzluvals Hverjar eru horfurnar um frjálsa verzlun við þessar aðstæður? Þar ræður mestu, hvernig til tekst í stjórn efna- hagsmála á næstunni. Reynist unnt á grundvelli einbeittrar og samræmdrar stefnu í peningamálum og fjármálum og með áhrifum á þróun launamála, að þvi leyti sem unnt er að hafa slík áhrif, að draga verulega úr hallanum á viðskiptajöfnuði, eru ekki rök til að draga úr þvi viðskiptafrelsi, sem ríkj- andi hefur verið undanfarin ár. Þvert á móti mun áframhald þess frelsis þá stuðla að viðgangi framleiðslu og út- flutnings. Takist hins vegar með þess- um hætti að draga fljótlega úr hallan- um, mun þeirra sjónarmiða gæta i vax- andi mæli, bæði meðal stjórnmála- manna og alls almennings, að óhjá- kvæmilegt sé að minnka gjaldeyris- notkun með beinum aðgerðum sem tollahækkunum, innflutningsgjöldum eða innborgunarskyldu. Margendur- tekin reynsla, jafnt hér á landi sem annars staðar, fyrir haldleysi slíkra að- gerða, nema þá um skamma hrið, og margvislegt tjón, er af þeim hlýzt, til lengdar, mun ekki koma í veg fyrir að til þeirra verði gripið við slíkar aðstæó- ur. Reynsla undanfarinna áratuga hefur enn á ný fært okkur Islendingum jafnt sem öðrum þjóðum heim sanninn um gildi frjálsrar verzlunar. Hún er ein af meginforsendum hagvaxtar, aukinnar velmegunar, heilbrigðrar verðmyndun- ar og frjáls neyzluvals. Hún er eina skipan viðskiptamála, sem er í sam- ræmi við hagsmuni allra þjóðarinnar, launþega jafnt sem vinnuveitenda, neytenda jafnt sem kaupsýslumanna. Eigi sá miklu ávinningur að haldast, sem frjáls verzlun felur i sér, er nú umfram allt nauðsynlegt að tökum sé náð á almennri stjórn efnahagsmála og unnt reynist áð draga úr hallanum á viðskiptajöfnuði sem allra fyrst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.