Morgunblaðið - 17.03.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976
3
Loðna fryst
á Húsavík
Á MEÐAN flest loónuskipin hafa
legið í vari inni á snæfellskum
vfkum eða i höfnum þar hafa
Húsvíkingar veitt loðnu til frvst-
ingar inni á Skjálfandaflóa. 1
fvrradag fengu nokkrir smábátar
35 lestir af loðnu á þessum slóð-
um og var loðnan öll frvst hjá
Fiskiðjusamlaginu á Húsavík.
Þvkir loðnan góð til frvstingar.
Loðna gengur oft síðla vetrar
Framhald á bls. 31.
Byggingu flugtums
í Eyjum hraðað
„FLUGMÁLASTJÓRI hefur óskað eftir því að í mán-
aðarlokin liggi fyrir tilbúin teikning að nýjum flugturni
á Vestmannaeyjaflugvelli“, sagði Hrafn Jóhannsson
tæknifræðingur hjá Flugmálastjóra f samtali við
Morgunblaðið, en sem kunnugt er fauk hluti af gamla
turninum þar f roki fyrir skömmu og það sem eftir er af
byggingunni er þannig á sig komið að ákveðið er að
lappa ekki upp á það.
Hrafn kvað miðað við að teikn- sérbyggður. Þá kvað Hrafn hafa
ingin verði lögð fyrir Flugráð um verið rætt um að hefja fram-
Þótt það séu einkum Týr og Þór sem hafa orðið fyrir barðinu á brezkum freigátum
undanfarið, hafa fleiri varðskipanna komizt í kast við Bretann, eins og þessi mynd
sýnir en hún var tekin um borð f Baldri. (Ljósm. Jón P. Ásgeirss.).
mánaðarmótin, en turninn verður
Kona settur
hreppsstjóri
í Prest-
hólahreppi
Sýslumaöur Norður-
Þingevjarsýslu hefur nýlega
sett Guðbjörgu Vignisdóttur,
kaupfélagsstjórafrú á Kópa-
skeri, til að gegna starfi
hreppsstjóra í Presthóla-
hreppi. Eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst mun Guð-
björg vera fvrsta konan sem
gegnir starfi hreppsstjóra hér
á landi. Guðbjörg gegnir þessu
starfi til bráðabirgða en sýslu-
fundur skipar endanlega í
þetta starf.
„Mér Iízt alveg bærilega á
þetta starf,“ sagði Guðbjörg
þegar Morgunblaðið ræddi við
hana í gær, „en ég get ekki
sagt að ég sé búin að fá mikla
reynslu af því ennþá Sannast
sagna held ég að ekki sé mikið
annriki þessu samfara, fram til
þessa hef ég tekið á móti skatt-
skýrslum og skráð bílnúmer.
Starf hreppsstjóra er annars
umboðsmaður sýslumanns, og
undir starfið fellur fasteigna-
mat og lóðasamningar, bif-
reiðaskráningar auk þess sem
hann er oftast nær umboðs-
maður skattstjóra og trygg-
ingakerfisins. Hins vegar býst
ég ekki við að hafa mikil af-
skipti af lögreglumálum, að
minnsta kosti þurfti forveri
minn ekki að sinna mikið lög-
gæzlustörfum heldur visaði
þeim ýmist til Húsavíkur eða
lögreglunnar á Húsavík. Kópa-
sker er annars lítið þorp, svo
að ég á ekki von á því að þetta
verði mjög umfangsmikið hjá
mér, það hefur i það minnsta
verið rólegt hingað til,“ sagði
Guðbjörg.
kvæmdir við flugstöðvarbyggingu
í Eyjum strax þegar búið verður
að byggja flugturninn, en Hrafn
kvað ákveðið að reyna að ljúka
því verki af á skömmum tíma því
tæki Vestmannaeyjaflugvallar
liggja undir skemmdum í gamla
turninum og auk þess getur orðið
vafasamt með flugöryggi um völl-
inn á meðan turninn er ekki
öruggur.
Þorskalýsi
selt til 37 landa
Týndi maðurinn
kominn fram
ÁRNI Jón Árnason, maður úr
Kópavogi, sem saknað hefur verið
undanfarna daga er kominn fram.
Hann gaf sig fram við lögregluna
í gær, og var heill á húfi. Kvaðst
hann hafa verið einn síns liðs og
legið mest úti.
Á SÍÐAST liónu ári fram-
leiddu íslendingar 3949
tonn af þorskalýsi, en á ár-
inu 1975 nam framleiðslan
3936 tonnum. Af þessu
magni fóru 266 lestir til
notkunar innanlands, sem
er nokkru meira en nokkur
undanfarin ár.
Tryggvi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri, segir í grein í nýút-
31 þús. kr. stol-
ið frá ungum pilti
UNGUR piltur fór á mánudaginn
í Tryggingastofnunina til að taka
út bætur fyrir móður sína, sam-
tals 31.500 krónur. Á leiðinni
heim kom hann við í Breiðfirð-
ingabúð til að spila borðtennis en
þar varð hann fyrir því óláni, að
öllum peningunum var stolið.
Kemur það sér að sjálfsögðu mjög
illa fyrir fjölskyldu piltsins að
missa þessa peninga, og eru það
tilmæli rannsóknarlögreglunnar,
að þeir, sem upplýsingar geti
veitt, hafi samband við hana. En
auðvitað væri allra bezt ef þjóf-
urinn skilaði peningunum sjálfur.
Grettir L. Johannsen
heiðursdoktor við
Brandonhá|kóla
mann ^ Islands í sléttufvlkjuni ^
arinnar og sagði m.a. að þrátt
fyrir margvísleg störf hans sem
ræðismanns og síðar aðalræðis-
manns Islands í Manitoba, Saskat-
chewan og Alberta hefði Gretti
unnizt timi til að þjóna i mörgum
nefndum, sem láta sig varða ís-
lenzka tungu og íslenzkar bók-
menntir. Hann var og ötull starfs-
maður í útgáfunefnd Lögbergs
frá 1942 til 1959 og var einn
þeirra sem unnu að sameiningu
Lögbergs og Heimskringlu. Þá
vann hann að stofnun Islenzku-
deildar Manitobaháskóla, en til
hennar aflaði hann fjár. 'Hann
hefur gegnt mörgum tímafrekum
ábyrgðarstörfum fyrir þjóð-
ræknisfélag Islendinga í Vestur-
heimi frá því er það var stofnað
1918. Á ársþingi þess 1965 var j
hann gerður að heiðursfélaga
þess. Margt fleira væri unnt að
telja upp af störfum Grettis L. |
Johannsonar.
Grettir Leo Johannson er sonur
Ásmundar P. Jóhannssonar bygg-
ingarmeistara i Winnipeg og
konu hans Sigríðar Jónasdóttur.
Ásmundur var ætíð í fremstu röð|
manna um islenzk málefni, bæði í
Vesturheimi og á Islandi. Hann
komnu hefti af timaritinu Ægi, að
þær þjóðir, sem mest lýsi hafi
keypt af okkur á s.l. ári, hafi verið
sem fyrr Bandaríkin, Brasilía,
Finnland, Mexíkó og Venezuela.
Meðalalýsí var selt til 28 landa og
fóðurlýsi til 9 landa. 205 tonn
voru seld í smáumbúðum, 3,5 kg
og smærri. Birgðir í ársbyrjun
voru 1076 tonn en i árslok 1771
tonn.
Tryggvi segir, að meðalalýsis-
verðið hafi verið gott, sérstaklega
um miðhik ársins, en hafi nú
lækkað nokkuð og megi húast við
áframhaldandi lækkun. Fóður-
lýsið sé hins vegar háð samkeppni
við búklýsi og fylgi því nokkurn
veginn. Eins og kunnugt væri
hefði verðfall á allri feiti verið
mjög mikið síðan snemma árs
1974.
Þá kemur fram i grein Tryggva,
að af allri feiti sé mest framleitt
af sojabaunum en stundum hafi
orðið vart við þann misskilning að
búklýsi sé sjálfstæð tegund af
feiti hvað verð snerti. Þetta lýsi
nemi nálægt 2% af feitisfram-
leiðslu heimsins.
Samið við
blaðamenn
SAMKOMULAG tókst f gær
milli samninganefndar Blaða-
mannafélags tslands og samn-
inganefndar Félags blaðaút-
gefenda í Revkjavík. Lengi vel
gengu samningar þessir mjög
illa. þar sem aðilar gátu ekki
sætzt á, hvernig sérkröfu-
rammi sáttanefndar rfkisins
skvldi fvlltur, en að lokum
tókst samkomulag í gær-
morgun um klukkan 09 og vó
þá það eina prósent, sem sátta-
tillagan gerði ráð fvrir, um
2%.
Áð öðru leyti eru samningar
Blaðamannafélagsins og
Félags blaðaútgefenda
nákvæmlega hinir sömu og um
samdist milli ASI og VSI
skömmu fyrir siðustu mánaða-
mót. Blaðamenn fá sömu
launahækkanir og ASI fékk,
6, 6 og 5%, auk tveggja rauðra
strika.
__ W
Fyrirlestur í HI
I FRETT frá Háskóla Islands
kemur fram að prófessor Harald-
ur Bessason frá Winnipeg heldur
opinberan fyrirlestur i boði heim-
spekideildar Háskóla Islands.
Nefnist fyrirlesturinn Edduívaf í
sögum. Öllum er heimill aðgangur
að fyrirlestri þessum sem verður
á fimmtudaginn 18. marz kl. 5.15 i
stofu 422 i Árnagarði.
GRETTIR Leo Johannson, fvrr-
um aðalræðismaður Islands (til
vinstri). Mvndin er tekin sfðast-
liðið sumar, en þá var Grettir hér
ásamt eftirmanni sinum í aðal-
ræðismannsstarfinu, Sigursteini
Aleck Thorarinssyni, sem er með
honum á mvndinni.
sat t.d. í stjórn Eimskipafélags
Islands frá stofnun þess til dauða-
dags. Vestur-lslendingar lögðu
eins og kunnugt er upprunalega
mikið fé af mörkum til Eimskipa-
félagsins, sem varð þess valdandi
að unnt var að kaupa fyrsta skip
þess, Gullfoss. Asmundur gaf
einnig stórfé til stofnunar
Islenzkudeildar Manitobaháskóla
og hefði sú deild ekki komizt svo
fljótt á laggirnar ef Ásmundar
hefði ekki notið við. Gestrisni
Asmundar og Sigriðar var við-
brugðið fyrir rausn og höfðings-
skap.
Grettir hefur fetað vel i fótspor
foreldra sinna og unnið mörg
þrekvirki fyrir ættland sitt og
Kanada. Hann er því mjög vel
kominn að þeim heiðri, sem
háskólinn í Brandon hefur veitt
honum.
Ráðstefna Sjálfstæðismanna:
„Hvað er framimdan í
verzlun landsmanna”
HVAÐ er framundan I verzlun
landsmanna er spurning, sem
gerist áleitin nú á tímum, þegar
innflutningshöft birtast á ný,
verðlagsákvæðum og verðlags-
eftirliti er beitt á óvægari hátt en
áður og verzlunarárferði almennt
fer versnandi.
Til þess að ieita svars við þess-
ari spurningu hyggst Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Revkjavík
gangast fyrir eins og hálfs dags
ráðstefnu um verzlunar- og nevt-
endamál. Ráðstefnan fer fram á
Hótel Loftleiðum, Kristalssal, 17.
og 18. marz frá kl. 17:30 og
fimmtudag frá kl. 10:00. A ráð-
stefnunni verður fjallað um eftir-
talda sex meginmálaflokka:
1. Viðskiptaleg tengsl við um-
heiminn.
2. Fjármál og afkoma verzlunar.
3. Fræðslumál verzlunar.
4. Skattamál og þjónusta er
verzlunin innir af hendi fvrir
hið opinbera
5. Verzlunarþjónusta I Reykja-
vík.
6. Fjármagnsstrevmi verzlunar.
Ráðstefnunni lýkur með panel-
umræðum er hefjast kl. 20:30
annað kvöld (fimmtudagskvöld).
Geir Hallgrfmsson, Gunnar
Thoroddsen, Matthías A. Mathie-
sen og Birgir Isl. Gunnarsson
sitja fvrir svörum.
Eftir dagskránni að dæma er
fjallað um helztu málefni, sem
varða verzlun og stjórnmál sam-
eiginlega og einnig er ætlunin að
vekja athvgli á þýðingu verzlunar
fyrir þjóðarheildina.
Þar sem á ráðstefnunni gefst
einstakt tækifæri fyrir áhugafólk
um verzlun og neytendamál til
umræðna um þessi mál, er sér-
stök ástæða til að sækja ráðstefn-
una og taka virkan þátt í störfum
hennar.
Til að auðvelda undirbúning er
óskað eftir því að þátttaka sé til-
kvnnt til skrifstofu Fulltrúaráðv
ins i sfma 82963 eða 82900. Ráð-
stefnugjald er kr. 2.200.— inni-
falið er matur og kaffi báða dag-
ana auk ráðstefnugagna.