Morgunblaðið - 17.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKIJDAGUR 17. MARZ 1976
31
FráAfríku
til Akureyrar
Allt bendir til þess, að þjálfari knattspyrnumanna Þðrs á
Akureyri næsta sumar verði Bretinn Douglas Reynolds. Dvaldi
hann hér á landi um slðustu helgi og mun gefa endanlegt svar um
hvort hann verður á Akureyri I sumar seinni part vikunnar.
Douglas Reynolds hefur bæði reynslu sem leikmaður og
þjálfari í knattspyrnu. 1 eina tfð lék hann með Manchester
United og svo með nokkrum lítt þekktum félögum. Sem þjálfari
hefur hann mikið dvalið I Afrlku — var m.a. landsliðsþjálfari I
Líberfu fyrir þremur árum. I fyrrasumar þjálfaði hann I Noregi.
Reynolds er 34 ára gamall og ef af komu hans í sumar verður yrði
hann níundi brezki þjálfarinn sem þjálfar hér á landi næsta
sitmar.
Þrír stórleikir
í bikarkeppninni
ÞRIÐJA umferð bikarkeppni Hand-
knattleikssambandsins býður upp á
þrjð stórleiki a8 minnsta kosti. Hauk-
ar ur Hafnarfirði fá Val I heimsókn,
Vlkingar mæta Ármenningum og
loks fá Akureyringar góða gesti er
Framarar koma norður og leika vi8
KA. DregiS var um það I fyrrakvöld
hvaða lið leika saman og aðrir leikir
þriðju umferðar verða eftirtaldir.
Grótta — Viðir úr Garði
KR — Breiðablik
Fylkir — Týr, Vestmannaeyjum
FH — ÍBK
ÍR — Sfjarnan
Leikjum þessara umferðar á að vera
lokið fyrir 24 marz
I kvennakeppninni var einnig dregið
I fyrrakvöld og leika m a. saman I
næstu umferð hjá stúlkunum tvö af
sterkustu liðunum I 1. deild, Valur og
FH Aðrir leikir verða þessir:
Vikingur — Breiðablik
Ármann — Haukar
Valur — FH
Fram — UMFN
í 2. flokki karla drógust þessí lið
saman:
Fram — KR
FH — Ármann
Stjarnan — Breiðablik
Fylkir — Haukar
KR vann F)lki 19:16 o«
staða írbæiarliðsins er slæm
KR sigraði botnliðið í 2 deild 19:16
í fyrrakvöld, í leikhléi var KR yfir 7:6.
„Gömlu” mennirnir vorn
drjúgir í leik HK og ÍR
HK og ÍR léku siðasta leikinn I fyrstu
umferð bikarkeppni HS( I fyrakvöld og
fóru (R-ingar með sigur af hólmi
24:19. í þessum leik mættust tveir
kunnir handknattleikskappar sem
gerðu garðinn frægan hér I eina tið,
þeir Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, og
Karl Jóhannsson, KR-ingurinn I HK-
liðinu.
Báðir stóðu þeir sig vel kapparnir I
þessum leik, Karl gerði flest mörk
HK-liðsins, eða 5 talsins Gunnlaugur
gerði 3 mörk I leiknum, sömuleiðis
Hörður Hákonarson.
KR-ingarnir voru betri I þessum leik og
verðskulduðu sigurinn, sem þó var
mun minni en búast hefði mátt við.
Fylkir verður að vinna að minnsta kosti
einn leik af þeim þremur sem liðið á
eftir til að hanga uppi. Fylkismenn hafa
nú hlotið 3stig,en Breiðablik er með 4
stig.
Hilmar Björnsson var eins og oftast
áður i vetur markhæstur I liði KR og
skoraði 5 mörk að þessu sinni Þor-
varður og Haukur Ottesen voru einnig
drjúgir, Þorvarður með 4 mörk, Hauk-
ur 3, Ingi Steinn, Ævar og Símon
skoruðu tvlvegis, og Friðrik 1 mark
Markvörður Fylkismanna, Ragnar
Árnason var drýgstur i liði Fylkis, en
Einar Ágústsson átti einnig góðan leik,
skoraði 5 mörk. Steinar gerði 4, Stefán
3, Örn 2, Einar E. og Halldór 1 hvor.
var
KR
ráða, en allir beztu leikmenn liðanna
voru þá komnir útaf með 5 villur
Bjarni Gunnar var stighæstur hjá
ÍS með 31 stig og átti mjög góðan
leik. Jón Héðinsson og Guðni voru
með 1 8 stig, Ingi Stefánsson 1 6, og
allir áttu þeir mjög góðan leik Þetta
var bezti leikur (S á keppnistimabil-
inu. — Kolbeinn Pálsson og „Trukk-
ur" voru beztu menn KR ásamt
Bjarna Jóhannessyni, en þeir fyrr-
nefndu fengu báðir 5 villur i siðari
hálfleik. „Trukkur" var stighæstur
með 29 stig
Og þá er ógetið þáttar dómar-
anna t þessum leik, Sigurðar
Helgasonar og Sigurðar Halldórs-
sonar. Fjölmargir dómar þeirra
voru algjör vitleysa án þess þó að
það bitnaði yfir höfuð meira á
öðru liðinu en hinu. Þó var 5.
villan sem dæmd var á „Trukk-
inn" ■ svo mikil vitleysa að fS-
menn hlógu bara þegar dæmt var,
og kann þessi dómur að hafa ráðið
útslitum leiksins. Oft hefur verið
rætt um lélega dómara I körfu-
boltanum, en nú tók út yfir allt
sem maður hefur áður séð.
Armann á
mikla möguleika
Ármenningar stefna nú að sigri I
Bikarkeppninni, og eftir að bæði
lið KR og ÍR hafa verið slegin þar
út verður að telja þá mjög sigur-
stranglega. Ármann sigraði Val
með 112 stigum gegn 102 I fyrra-
kvöld og er þar með komið f 4ra
liða úrslit ásamt Fram, ÍS og
UMFN eða Snæfelli sem eiga eftir
að leika
Heldur var leikur Ármanns og
Vals léleg skemmtun, því eftir að
Ármenningar höfðu náð að komast i
55:44 í fyrri hálfleik var raunar
aldrei spurning um hvernig myndi
fara Bæði Þórir og Torfi voru komn-
ir með 4 villur, og Torfi fékk sina 5.
um miðjan siðari hálfleik. Ármann
náði mest 1 8 stiga forustu i leiknum
og sigurinn var ávallt nær öruggur
Og eins og fyrri daginn bar mest á
þeim Jóni Sig og Jimmy i liði
Ármanns, og voru þeir drýgstir við
stigaskorun að vanda Jón var með
37 stig, Jimmy 30. Næstir komu
þeir Guðsteinn Ingimarsson og
Björn Christenssen með 10 stig
hvor. Sveinn bróðir hans lék ekki
með, og var leitt að sjá hann ekki
Þórir Magnússon átti góðan leik hjá
Val og skoraði 36 stig, Torfi
Magnússon 24, Þröstur Guðmunds-
son 1 3.
Framhald á bls. 18
Samsæri gegn
Ford og Reagan
upplýstist
í tæka tíð
San Francisco — 15.
marz — Reuter
Alríkislögleglu Bandarikjanna
hefur borizt vitneskja um sam-
særi óaldarfiokks um að ráða
Ford forseta og keppinaut hans
um útnefningu í forsetakosning-
unum Ronald Reagan, af dögum.
Starfsmenn Alrikislögregl-
unnar hafa hvorki viljað segja
hvaðan upplýsingar um samsærið
eru komnar, né hversu alvarlegs
eðlis málið er, en The Chicago
Tribune greinir frá því, að lög-
reglan hafi komizt á sporið þegar
húsrannsókn var gerð hjá óaldar-
flokki f grennd við San Francisco
i febrúar.
Verkfall á
ansjósuflota
Perúmanna
Lima — 15. marz — Reuter
Verkfall um 10 þúsund sjó-
manna kom i veg fyrir, að
ansjósuveiðar Perúmanna hæfust
í gær eftir tíu mánaða hlé, sem
gert var á veiðunum vegna of-
veiði.
Ástæðan fyrir þessu verkfalli
er sú, að ríkisstjórnin leyfði ein-
ungis veiðar 400 báta af 600,
þannig að aðeins hluti sjómanna
gat snúið sér að starfi sínu á ný.
Byltingartil-
raun í Níger
Niamey, 15. marz — Reuter.
Hópur hermanna reyndi í dag
að steypa ríkisstjórn Vestur-
Afrikulýðveldisins Niger, en
ríkisleiðtoginn, Seyni Kountche
ofursti sagði síðar i útvarpsávarpi
að valdaránið hefði verið brotið á
bak aftur. Að sögn stjórnvalda
tókst hermönnunum, sem voru
undir forystu majórs og fyrrum
ráðherra að taka útvarpsstöð
landsins og halda henni um tima
en þeir voru handteknir skömmu
siðar.
— Yfirlýsing
Wilsons
Framhald af bls. 1
EBE-ríkja. Pundið féll víðast
hvar i verði t.d. í London niður
í 1.9130 dollara eða um eitt sent
á einúm degi, í París, Brússel,
Frankfurt og Kaupmannahöfn
auk New York. Vestur-þýzka
markið styrktist enn á kostnað
annarra gjaldmiðla, en meðal
annarra gjaldmiðla í sameign-
lega EBE-flotinu fóru belgíski
frankinn og danska krónan
mjög halloka og þurftu þá að-
stoð seðlabanka að halda. Þá
tók einnig að halla undan fæti
fyrir norsku krónunni.
— Loðna fryst
Framhald af bls. 3
inn á víkur og flóa á Norðurlandi,
en ekki er talið að um mikla
loðnu sé að ræða og raunar mis-
mikla frá ári til árs.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá Tryggva Finns-
syni á Húsavík er þetta góð loðna
til frystingar og svipuð þeirri sem
fryst hefur stundum verið á Húsa-
vík á undanförnum árum. Færa-
bátar hafa síðan notað loðnuna til
beitu yfir sumartimann, en í fyrra
gekk engin loðna inn á Skjálf-
anda og því var ekkert fryst.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur sagði í gærkvöldi, að
sér væri ekki kunnugt um bessa
loðnu, en oft hefði loðna gengið
inn á Skjálfanda á þessum árs-
tíma. Venjulega hefði magnið
verið lítið, svona rétt mátulegt
handa smábátunum á Húsavík.
— Skóla lokað
Framhald af bls. 32
að koma í veg fyrir frekari
sýkingu. Kvað hann ennfrem-
ur verið að rannsaka með
hvaða hætti þessi veiki hefði
komið upp. Skúli kvað þennan
sjúkdóm ekki mjög smitandi
og taldi hann fremur ólíklegt
að um matarsmit væri að ræða,
þvi að þáð gæti allt eins hafa
borizt milli barnanna með
öðrum hætti.
— Kjarnorku-
vopn
Framhald af bls. 1
að samningu hennar, og túlkaði
hún skoðanir hans, en ekki
bandalagsins í heild.
Talsmaðurinn sagði þá, að á
æðstu stöðum, bæói í aðalstöðvum
NATO og i höfuðborgum aðildar-
rikjanna, væri hernaðarskipulag
bandalagsins í stöðugri endur-
skoðun og þess væri vandlega
gætt, að unnt væri að beita kjarn-
orkuvopnum í tæka tið, reyndist
slík ráðstöfun nauðsynleg.
Hér höfðar talsmaðurinn án efa
til Bandaríkjaforseta m.a, en for-
setinn er sá eini sem vald hefur
til að fyrirskipa notkun kjarn-
orkuvopna í hugsanlegri styrjöld,
en auk Bandaríkjaforseta hefur
forsætisráðherra Bretlands um-
ráð yfir kjarnorkuvopnum, þótt i
litlum mæli sé, og sama er að
segja um forseta Frakklands.
Frakkland tekur ekki þátt i hern-
aðarsamstarfi NATO, enda þótt
það eigi aðild að bandalaginu.
I gær fullyrti einn af hershöfð-
ingjum Bandarikjanna, George
Brown, i ræðu i Florida, að banda-
lagið væri þess umkomið að
verjast árás Varsjárbandalagsins,
án þess að treysta þyrfti á notkun
kjarnorkuvopna í upphafi hugs-
anlegra átaka. Hann bætti því við,
að NATO hefði styrkt þær varnir
sínar, sem ekki væru miðaðar við
notkun kjarnorkuvopna, og frum-
varp um aukin fjárframlög til
varnarmála, sem nú lægi fyrir
Bandaríkjaþingi, yrði til þess að
styrkja stöðuna á þessu sviði.
Hershöfðinginn vióurkenndi
samt sem áður, að endurbætur á
varnarkerfi NATO væru aðkall-
andi, þar sem austantjaldsríkin
hefðu nú yfir að ráða mun meiri
mannafla og vopnabúnaði (flug-
vélum, skotvopnum og flugvél-
um) en þjóðirnar í vestri.
— Afsögn
Wilsons
Framhald af bls. 1
þingflokkur Verkamannaflokks-
ins hefði valið nýjan leiðtoga sem
einnig verður forsætisráðherra.
0 Verkamannaflokkurinn kom
saman i kvöld til skvndifundar til
að ræða um málið og var ákveðið
að halda atkvæðagreiðslu um
leiðtogaembættið frá næsta
mánudegi til fimmtudags, en úr-
slit hennar verði svo tilkynnt á
fimmtudagskvöld. Ef enginn fær
meir en 50% atkvæða verður efnt
til nýrrar atkvæðagreiðslu. A veð-
málastofum Lundúna var James
Callaghan, utanríkisráðherra sem
er 64 ára vinsælastur sem eftir-
maður og jafnframt telja stjórn-
málafréttaritarar hann lík-
legastan. Denis Healey fjármála-
ráðherra, 58 ára, kemur einnig til
greina en hann á í vök að verjast
gagnvart vinstra armi flokksins
vegna harðra efnahagsráðstafana
hans. Uppáhald vinstri manna er
Tonv Benn, hinn umdeildi orku-
málaráðherra, 50 ára, sem er
mikill áhugamaður um þjóðnvt-
ingu, en hann nýtur ekki al-
menns fylgis. Roy Jenkins innan-
rlkisráðherra, 55 ára, og Shirlcy
Williams nevtendamálaráðherra,
45 ára, koma einnig til álita, en
Wilson gætti þess á blaðamanna-
fundinum að tala ætið um eftir-
mann sinn sem „hver sem hann
eða hún nú verður“.
Yfirlýsing Wilsons kom eins og
þruma úr heiðskiru lofti yfir
brezka þingmenn og varð mikill
usli i þingsölum og ringlureið og
vildu sumir ekki trúa og létu
segja sér þrisvar. Margaret
Thatcher, leiðtogi Ihaldsflokks-
ins, krafðist þess þegar í stað að
boðað yrði til þingkosninga til að
„eyða óvissunni“, en Wilson
vísaði þvi á bug og kvað ljóst að
Verkamannaflokkurinn yrði
áfram við völd. Sjálfur hefði hann
áhuga á að vera áfram á þingi
„svo lengi sem kjördæmi mitt
heldur mig út“.
Wilson sagði i yfirlýsingu sinni
að hann hefði lengi haft í hyggju
að segja af sér og í desember s.l.
sagði hann drottningu að hann
ætlaði að láta af embætti i marz-
mánuði. Talið er að upphaflega
hafi Wiison ætlað að segja af sér á
afmælisdeginum i síðustu viku,
en það gat hann ekki því þann
dag varð hann að óska eftir
traustsyfirlýsingu við stjórn sína
á þinginu vegna þess að vinstri
sinnaðir Verkamannaflokksþing-
menn höfðu setið hjávið atkvæða-
greiðslu um sparnaðarráðstafanir
og þar með fellt frumvarpið. Wil-
son neitaði því á blaðamanna-
fundinum að þessi „uppreisn"
vinstri manna hefði átt þátt í
ákvörðun hans um að segja af sér.
ÖBREYTT
STJÓRNARSTEFNA
Wilson sagði að hann hefði nú
verið flokksleiðtogi í 13 „spenn-
andi og stormasöm'* ár, verið á
þingi í 31 ár og 11 ár í ríkisstjórn.
„Enginn ætti að biðja um rneir."
,,Eg hef augljósa skyldu gagnvart
þjóðinni og þinginu að vera ekki í
þessu embætti svo lengi að öðrum
sé meinað tækifæri til að reyna að
ná kosningu til þess." Hann
kvaðst viss um að hin nýja ríkis-
stjórn yrði jafnákveðin í baráttu
sinni við verðbólguna og að
standa við skuldbindingar Breta
gagnvart bandamönnum þeirra
og Efnahagsbandalaginu. Hann
hefði valið gott augnablik til að
segja af sér vegna þess aó stjórnin
væri nú að nálgast úrslitastig í
mótun næsta áfangá í baráttunni
gegn verðbólgunni. Þjóðin hefði
samþykkt stefnu hans um að
halda launahækkunum innan við
10% og nú væri nýtt samkomulag
í þessu efni fyrir dyrum.
Talið er liklegt að erfitt starf
biði eftirmanns Wilsons við að
halda saman hinum sundurleita
flokki, ekki sizt með tilliti til hins
herskáa vinstri arms, en Wilson
var meistari i að sigla milli skers
og báru og miðla málum. Fáir
virðast útvaldir til þess starfs, og
Joe Gormley, leiðtogi kolanáma-
mannasambandsins, kvaðst engan
vita um sem fær væri til þessa.
Ihaldsmenn sögðu hins vegar i
dag að Wilson hefði sagt af sér
vegna þess að hann gæti ekki
haldið aftur af marxistunum inn-
an flokksins.
Wilson sjálfur var þó bjartsýnn
á blaðamannafundinum, brosandi
og kveikti í sífellu í pípunni
sinni, — vörumerki sínu. Verka-
mannaflokkurinn hefði gott
mannval og það væri „lýðræðinu
skaðlegt" að halda fram að einn
maður væri ómissandi. Hann
sagði að heilsa sín væri góð, og
það staðfesti læknir hans. Hann
bað blaðamenn afsökunar áþvi að
fréttir um yfirvofandi afsögn
hefði ekki lekið út og því komið
svo á óvart.
Talið er að nýr flokksleiðtogi og
forsætisráðhprra verði valinn inn-
an hálfs mánaðar, en hugsanlegt
er einnig að hinn nýi leiðtogi
muni óska eftir kosningum til að
styrkja aðstöðu sina. Kosningar
eiga að öðrum kosti ekki að vera
fyrr en árið 1979
VIÐBRÖGÐ
ERLENDIS
Fréttin um afsögn W’ilsons
vakti mikla athygli um allan
heim, en almennt var ekki talið að
hún myndi hafa afgerandi áhrif á
stefnu Bretlands gagnvart urn-
heiminum. I aðalstöðvum EBE i
Brussel lofuðu menn hæfileika
Wilsons, en þó var söknuðúr þar
almennt ekki djúpur. Tassfrétta-
stofan sagói frá fréttinni á stutt-
aralegan hátt að venju. Meðal
þeirra rikisleiðtoga sem hældu
Wilson var Joop den Uyl, forsæt-
isráðherra Hollands, sem er
sósialisti, en hann sagði aó Verka-
mannaflokkurinn missti „aðdáan-
legan foringja".