Morgunblaðið - 29.04.1976, Side 12

Morgunblaðið - 29.04.1976, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1976 KOMMÚNISTAR tóku öll völd í Kambódíu um miðjan apríl í fyrra Upp frá því hefur landið verið ..lok- að" Þó hafa stakar fregnir borizt þaðan við og við og eru fiestar á eina lund. Virðist svo, að nú sé hvergi í heiminum iðkaður afdráttar- lausari kommúnismi en i Kambódíu í Kambódíu búa átta milljónir manna. Allir þeirra, sem verkfærir eru hafa verið reknir upp í sveit „að moka skít fyrir ekki neitt", þ e að grafa áveituskurði og rækta hrís- grjón kauplaust Hafa hartnær allir bæjarbúar verið reknir að heiman af því tilefni og mun ólíklegt, að þeir komist heim aftur í bráð Þessar róttæku ráðstafanir eru þegarorðnar alldýrar Diplómötum, flóttamönn- um og starfsmönnum hjálparstofn- ana ber nokkurn vegin saman um það, að kvartmilljón manna a.m k hafi farizt af matarskorti, lyfjaskorti og striti frá því, að kambódískir kommúnistar, Rauðu khmerarnir, tóku völdin í sínar hendur. Sumir telja jafnvel, að mannfallið sé tvöfalt meira Að vísu sagði forsætisráð herrann í Kambódíu í útvarpinu fyrir stuttu, að hrísgrjónaframleiðslan hefði aukizt svo eftir valdatöku Rauðu khmera, að „höfuðvandi þjóðarinnar væri úr sögunni". En valt mun nú að treysta því Sendiherra Svia í Peking Kaj Björk, kom fyrstur vesturlanda- manna til Kambódíu eftir valdatöku kommúnista Að sögn hans er ströng herstjórn í landinu og þjóð- ernissinnaðir marxistar ráða þar öllu Björk sagði, að hvarvetna þar sem hann fór hefðu verið „ung- menni vopnuð vélbyssum og öðrum skotvopnum, bæði í höfuðborginni, Phnom Penh, og úti um sveitir" Af frásögnum Björks og annara virðist og Ijóst, að „peningar, markaður, talsími, ritsími, verzlanir, jarðeignir og laun séu ekki lengur til" í Kam- bódíu Enginn má vera að því að sinna þessu; allir eru að grafa áveituskurði En það vakir víst fyrir Rauðu khmerunum að stofna jarð- yrkjuveldi sjálfu sér nægt, í líkingu við það, sem var þarna fyrir þúsund árum Kambódíumenn fá lítið að éta um þessar mundir í kostarýrum héruð- um skrælast menn áfram á einum bolla hrísgrjóna á dag, en þeir í gjöfulli sveitunum fá tvo Salt, syk- ur, kjöt og fisk skammta byltingar- ráð á hverjum stað Þar fyrir utan verða menn að bjarga sér sjálfir Grafa þeir eftir rótum, tína ávexti og skorkvikindi og draga fyrir fisk í pollum til að seðja sig í þennan mat vantar bæði fjörefni og eggjahvítu- efni Ekki líkar öllum landsmönnum þetta líf. Flýja 100 manns að jafnaði land í viku hverri og leita þeir mest til Suðurvíetnams og Thailands og það þótt þeir séu illa séðir í Thai- landi a.m.k Aðrir reyna að hamla gegn yfirvöldunum heima Mun andkommúnískum skæruliðum fara fjölgandi í Kambódíu. Hafast þeir við í frumskógum og sæta lagi að gera illt af sér. Það stendur þessum andspyrnumönnum helzt fyrir þrif- um, að þá vantar mat, vopn og læknislyf. En auk þess eiga þeir óhægt um vik, því u.þ.b. 70 þúsund ungmenni úr liði Rauðra khmera vaka yfir þjóðinni alvopnuð og ár- vökur. Verðir þessir munu mjög dreifðir um landið og ekki nema fáeinir í hverju þorpi En enginn þorir að blaka við þeim, því víst mun, að margir yrðu drepnir fyrir hvern varðliða, sem félli Sumir segjast raunar hafa orðið vitni að því, er óbreyttir borgarar voru teknir af lífi og margir segjast hafa séð merki um slíkar aftökur. Reyndar hófu Rauðu khmerarnir herferð á hendur fyrrverandi her- mönnum og opinberum starfmönn- um gömlu ríkistjórnarinnar. Var það einlæg ætlur^ khmeranna að útrýma þessu fólki. Og víst er um það, að mörg þúsund manns hafa hrofið Þessir menn, sem „skorti pólitískan þroska" hafa eflaust fengið sömu örlög og ótal „vanþroskaðir" á und- an þeim MATT FRANJOLA. Kambódía Sultur og seyra — og áveituskurðir Khieu Samphan. hinn nýi forseti æSstaráðsins. sýnist stefna aS þvi aS gera Kambódíu aS „jarSyrkjuveldi". ÞAÐ varS fíknilyfjafurstum nokk- urt áfall. þegar Thailandsstjórn rak siðustu bandarisku hermenn- ina af höndum sér fyrir rúmum mánuSi. U-Tapaoflugvöllurinn við Siamsflóa var siSasta vigi Banda rikjamanna á meginlandi Suð- austurasiu. Þaðan kom lika mikiS af heróini beint til Bandarikjanna Nú eru krókaleiðir einar eftir. Það var mikið blómaskeið fíkni- lyfjasmygls meðan stóð á Vietnamstriðinu. Streymdu þá bandíttar til Vietnams og fyrr en varði var búið að „hagræða rekstrinum" og smyglið komið i fastar skorður. Fjölmargir 'her- menn flæktust i þetta og voru beinlinis ráSnir til smygls. Heróin- iS var faliS i flestum hugsanlegum hlutum, húsgögnum, handtöskum og jafnvel likum, sem senda átti heim til Bandarikjanna. ÞaS var svo sem ekki að undra þótt smyglarar væru óvandir að geymslum. Eitt kíló hreins herólns kostaSi 3500 dollara ( SuSaustur- asiu (um þaS bil 600 þús. isl. kr.) en svo sem 50 þúsund ( New York (u.þ.b. 8.5 millj. (sl. kr ) AuSvitaS hlekktist sumum á. Undan fariðár hafa mörg hundruS hermenn veriS handteknir fyrir heróinsmygl og fyrir stuttu komst upp ifm mikið bófafélag fyrrverandi og núverandi liSsforingja ( banda- riska hernum. HöfSu þeir smyglað heróini fyrir einar 200 milljónir dollara (h.u.b. 34.200 millj. (sl. kr.) og ætluðu að hafa þessa aura ( ellinni. MiSstöS þessa félagsskap- ar var ( bar nokkrum í Bangkok. HeróiniS var flutt í algengum hirzl- um; voru það handtöskur, hús- gögn og lik, eins og fyrr var frá sagt. Menn ibandarisku herstjórn- inni urðu ókvæða við, þegar upp komst um þetta. Hafði herstjórnin auSvitað gert ráð fyrir fiknilyfja- smygli og hafði ýmsan viSbúnað til að hamla gegn þvi, en þarna kom i Ijós, að sá viðbúnaður var til Iftils. Þv( miður verður trúlega litið lát á heróinsmyglinu, þótt ekki verði framar flogið beint frá U-Tapao. Bangkok er miðstöð fiknilyfja smygls. Auk þess hafa einir 300 þúsund Thailendingar vanizt heróini svo, að þeir mega ekki án Verðlækkun Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju- vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega: Bergamo Sófasettið hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000 Staðgreiðsluverð í dag kr. 179.000 Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner” stíl. Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt. Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð SMIDJUVEGI6 SÍMI44544 m KJÖRGARfíl SÍMI16975 TWYFORDS HREINLÆTISTÆKI □ HANDLAUGARí BORÐ □ HANDLAUGAR Á FÆTI □ BAÐKÖR STÁL & POTT □ FÁANLEG í SJÖ LITUM. □ TWYFORDS-HREINLÆTISTÆKIN ERU í SÉRFLOKKI. ÍBYGGINGAVQRUR Byggingavöruverzlun Tryggva Hannessonar SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 83290.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.