Morgunblaðið - 29.04.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1976
15
Tugir fórust
í flugslysinu
St. Thomas 28. apríl
— Reuter
ÖTTAZT er að 38 manns hafi
farizt er bandarlsk farþegaþota
með 88 innanborðs sem flutti
ferðamenn frá Bandarfkjunum
til hátíðahalda á St. Thomas á
Jómfrúreyjum brotlenti á Harry
S. Truman-flugvellinum þar í
gærkvöldi. Þotan, sem var af
gerðinni Boeing 727, ruddist I
lendingunni vfir lendingarljós,
fór f gegnum varnarvegg og rann
vfir umferðargötu þar sem hún
féll saman og varð eldi að bráð er
eldsneytisgeymar sprungu. Talið
var að nokkrir bflar á götunni
hefðu orðið fvrir vélinni. Vitað
var um 50 sem komizt höfðu Iffs
af og meðal þeirra var maður sem
fannst hangandi f tré í um 300
metra f jarlægð frá flakinu.
Björgunarmenn óttast að fólk á
jörðu niðri hafi einnig beðið bana
og óstaðfestar fregnir hermdu að
nokkrir menn hefðu lokazt inni í
byggingum vegna hinnar logandi
flugvélar. Flugslys þetta sem ger-
ist nú eftir margra ára deilur um
öryggismál á flugvellinum, sem
ekki hafa verið talin í góðu lagi
vegna stuttrar flugbrautrar og
hættulegra hæða umhverfis hann.
Hvatt hefur verið til þess að flug-
brautin yrði lengd. Sjónarvottar
segja að svo hafi virzt sem flug-
maðurinn hafi á síðustu stundu
ætlað að reyna að hækka flugið á
ný og gera aðra atrennu að lend-
ingu.
Kúbumenn þjálfa
Rhódesíuskæruliða
Washington 28. april — NTB Milli 50 til 100 Kúbumenn hafa
KtJBANSKIR ráðgjafar þjálfa kotnið til Mozambique á síðustu
trúlega rhódesíska skæruliða úr tveimur mánuðum og talið er lík-
cga rnoaesiSKa sKæruuoa ui
nopi þjóðcrnissinna innan landa-
mæra Mozambique og Tanzaníu.
Hæstiréttur
Indlands
krýpur fyrir
Indiru
Nýju Delhí, 28. april.
NTB.
HÆSTIRÉTTUR Indlands
staðfesti í dag það viðhorf
indversku ríkisstjórn-
arinnar að hún þurfi ekki
að gefa nokkra ástæðu
fyrir þvi að halda mönnum
í fangelsi án dóms og laga
og þetta brjóti ekki í bága
við stjórnarskrá landsins.
Dómstólar hafi heldur ekki
vald til að krefjast þess af
stjórnvöldum að ástæóa
fangelsunar sé gefin upp.
Litið er á þessa nióurstöðu
hæstaréttar sem sigur
fyrir stjórn Indiru Gandhi
en frá því hún lýsti yfir
neyðarástandi í landinu í
júní í fyrra hafa þúsundir
manna verið fangelsaðir án
dóms og laga. Ýmsir lægri
dómstólar töldu að það
væri í andstöðu við stjórn-
arskrána að ástæður hand-
töku væru ekki tilgreindar.
Brezhnev
er nýr
Hitler”
— segja Kínverjar
FRÉTTAMAÐUR hinnar opin-
beru kínversku fréttastofu
Hsinhua, sem verið hefur á
ferðalagi um ýmis Evrópulönd,
sagði nýlega í útvarpssendingu
að „síaukin hernaðarútþensla
Sovétríkjanna" og „grímulaus
íhlutun í Angóla“ hefði gert
mörgum Vestur-Evrópubúum
ljóst að Leonid Brezhnev, leið-
togi sovézka Kommúnista-
flokksins, „fylgir í fótspor
Hitlers í tilraunum sinum til
heimsyfirráða", að sögn AP-
fréttastofunnar. í sendingu
Hsinhua sagði: „Það má ráða
af ummælum fólks úr fjöl-
mörgum stéttum að Vestur-
Evrópumenn munu aldrei láta
hinu nýju zari, sem fylgja i
fótspor Hitlers, leika lausum
hala í Evrópu.“
AP-mynd.
KÓNGUR t KUREKALANDI — Karl XVI Gústaf Sviakonungur hefur að undanförnu verið á ferðalagi
f Bandarfkjunum. Myndin sýnir konung máta kúrekahatt sem honum var fenginn að gjöf í síðustu
viku er hann var á ferð f Texas. Það er Mark White, ráðherra f fylkisstjórninni (t.v.), sem afhenti
honum gjöfina við komuna til Houston.
legt að nokkur hluti þeirra hafi
farið áfram til Tanzanfu þar sem
skæruliðar eru einkum þjálfaðir,
segja góðar heimildir f Washing-
ton. Bandarfskir embættismenn
hafa áhvggjur af þessari þróun en
ekki er þó talið að Kúba muni
senda nýjar hersveitir til Afrfku
á borð við þær sem sendar voru til
Angóla.
Samkvæmt heimildum þessum
eru um 2,500 skæruliðar virkir í
baráttunni í Rhódesfu, en fleiri
eru við þjálfun í Mozanbique og
Tanzaníu. Fjöldi kúbanskra her-
manna í Angóla hefur aukizt um
allt að 2000 manns en var um
11,400.
Þrír borgaraflokkar
boða stjórnarsamstarf
— ef meirihluti fæst eftir þingkosningamar í Noregi í haust
Ösló 28. apríl — NTB.
NORSKI Hægri flokkurinn,
Kristilegi þjóðarflokkurinn og
Miðflokkurinn munu ræða sín á
milli um myndun andsósíalfskrar
rikisstjórnar ef borgara-
flokkarnir fá sameiginlega meiri-
hluta á stórþinginu eftir kosn:
ingarnar i Noregi i haust.
Á blaðamannafundi í Ósló í dag
lögðu formenn flokkanna þriggja
og varaformenn fram yfirlýsingu
þar sem fram kemur að
flokkarnir hafa skyld viðhorf í
svo mörgum málum að það sé
Hermenn USA
bólusettir
BANDARlSKA varnarmálaráðu-
neytið ætlar aó bólusetja allt að
800.000 bandaríska hermenn og
fjölskyldur þeirra, sem starfa er-
lendis, gegn svínainnflúensu, að
því er AP-fréttastofan segir.
Verður bólusetningin skyldug
fyrir alla hermenn erlendis. Ráð-
gert er að bólusetning hefjist
siðla sumars eða árla hausts.
Ríkisstjórnin stendur straum af
kostnaðinum en ekki er ljóst enn
hversu hár hann verður.
hagsmunamál þeirra allra að berj-
ast fyrir því að kosningarnar leiði
til meirihluta borgaraflokkanna
og myndunar rikisstjórnar sem
hefði upp á annað að bjóða en
stjórn Verkamannaflokksins.
Flokkarnir eru sammála um að
endanleg ákvörðun um skipan
ríkisstjórnarinnar og stefnu
Norðmenn ræða
þorskkvótamál
Ósló 28. april—NTB
NORSKA rikisstjórnin mun i
þessari viku eða næstu viku fjalla
um skiptingu á hluta Noregs í
veiðikvótanum fyrir norska ís-
hafsþorskinn, að því er talsmaður
stjórnarinnar segir. Þetta varð
niðurstaða fundar fulltrúa norska
sjómannasambandsins með Odvar
Nordli, forsætisráðherra, i dag.
Hluti Noregs er 345,000 tonn en
sjávarútvegurinn telur að skipta
þurfi aflanum á annan hátt en
lagt hefur verið til ef útgerð eigi
ekki að stöðvast af fjárhagsástæð-
um. Lagt hefur verið til að
112,000 tonn af hlutnutn fari til
isfisktogara en útgerðin vill að
þessi tala verði hækkuð.
Edde og Sarkis keppa um
embætti Líbanonsforseta
hennar verði tekin eftir kosn-
ingarnar af þingflokkum og öðr-
um stofnunum flokkanna.
Flokksformennirnir þrir, Kaare
Kristiansen, Erling Norvik og
Dagfinn Vaarvik, lýstu þvi allir
yfir að þeir litu á yfirlýsinguna
sem bindandi skjal sem væri afar
sterk viljayfirlýsing svo löngu
fyrir kosningar. Yfirlýsingin er
lokaúrsiit samstarfsumleitan;
sem staðið hafa frá þvi
janúarmánuði s.l. I yfirlýsingunn
segir m.a. að stefna slikrar ríkis
stjórnar myndi byggjast „;
kristnum menningargrundvell
og þjóðlegum og lýðræðislegum
hefðum okkar".
Bandarískt
herskip 1
ísrael ef tir
13 ára hlé
Tel Aviv, 28. april. AP.
BANDARÍSKUR tundúr-
spillir búinn fjarstýrðum
eldflaugum kom í dag til
hafnar í Haifa í ísrael og er
það fyrsta heimsókn
bandarísks herskips til
Israels i næstum 13 ár.
Talsmaður bandaríska
sendiráðsins í Tel Aviv
Beirut, 28 april. Reuter.
0 VÆNTANLEGAR forsetakosn-
ingar í Libanon á laugardag hafa
ekki bundið enda á ofbeldis-
verkin í landinu og i dag áttu
deiluaðilar i skotbardögum í
Beirut, en ekki var vitað um
mannfall. Elias Sarkis, seðla-
bankastjóri Libanons tilkvnnti í
dag formlega um að hann bvði sig
fram f forsetakjörinu, en hann
tapaði naumlega í síðustu kosn-
ingum árið 1970 fyrir Suleiman
Franjieh. Helzti keppinautur
hans er Raymond Edde, leiðtogi
Þjóðfylkingarflokksins úr hópi
kristinna íhaldsmanna. Sarkis
hefur hins vegar haldið sig að
mestu utan við stjórnmálaátökin
í landinu.
0 Hinn áhrifamikli leiðtogi
vinstri manna Kamal Junblatt
hefur mótmælt því að forseta-
kjörið verði þegar á laugardag og
telur vera of skamman tfma til
stefnu. Helzti andstæðingur hans,
Camille Chamoun, fyrrum for-
seti, hefur tekið undir þessi mót-
mæli Junblatts. Stafar þessi
óánægja af því að þeir telja að
kosningar svo snemma muni
verða Sarkis f hag. Sarkis nýtur
stuðnings Sýrlendinga sem lengi
hafa reynt að miðla málum í
Lfbanon og einnig hefur hinn
hægri sinnaði Falangistaflokkur
lýst opinberlega vfir stuðningi
við hann.
Vitað er að Junblatt vill heldur
Edde í embætti forseta og rýmri
tíma til að afla honum fylgis
meðal þingmanna sem kjósa for-
setann. Dagblað í Beirut segir í
dag að Junblatt sé þegar farinn að
tala um Edde sem forseta
Líbanons. Talið er hugsanlegt að
Junblatt muni láta 12 manna
þingflokk sinn hætta við þátttöku
í forsetakjörinu og reyna að fá
fleiri þingmenn í Iið með sér i því.
Þá er enn ekki vitað hvort hið
ótrygga ástand í höfuðborginni
muni gera þingmönnunum 98
kleift að koma saman á laugardag.
Á blaðamannafundi í dag þar
sem hann tilkynnti um framboð
sitt sagði Sarkis að hann gæti
fallizt á viss atriði í umbótakröf-
um vinstri manna, þ.á m. kröfuna
um að afnumin verði sú hefð að
úthluta aiðstu embættum rikisins
eftir trúflokkum. En framkvæmd-
in yrði erfið ef ekki ógerleg við
núverandi aðstæður.
sagði aó heimsóknin væri
ekkert óvenjuleg i sjálfu
sér og væri hugsuó sem
fjögurra daga hvild fvrir
. ERLENT