Morgunblaðið - 14.05.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAl 1976
5
Ulrike Meinhof:
Allt bendir til
sjálfsmorðs
Stuttgart. V-Þýzkalandi 13. maí.
Reuter.
NIÐURSTÖÐUR krufningar á
líki Ulrike Meinhof benda
ekki til að nein átök hafi átt
sér stað áður en hún lézt, að
þvf er skýrt var frá f dag. Segir
einnig að sérfræðingur sá sem
krufði Ifkið hafi upplýst að
enginn vafi gæti verið á þvf, að
hún hefði látizt við hengingu.
Samkvæmt þessu virðist
staðfesting fengin á því að
Ulrike Meinhof hafi svipt sig
lífi, en sá kvittur kom upp að
ekki væri allt með felldu varð-
andi dauðdaga hennar og fjöl-
skylda hennar lýsti því yfir að
henni hefði verið komið fyrir.
Bankarán
París 13. maí. AP.
ÞRÍR menn vopnaðir skot-
vopnum og handsprengjum
réðust inn í Banco di Roma f
París í morgun og höfðu á
brott með sér 340 þúsund
franka. Þegar ránið var framið
var mikill fjöldi manna á ferli
í grennd við staðinn, en þrátt
fyrir það komust þjófarnir
undan með feng sinn. Lög-
reglan segir að svo virðist sem
ránið hafi verið mjög vel
skipulagt. í næsta nágrenni
voru aðdáendur knattspyrnu-
liðsins Saint Etienne að fagna
leikmönnum liðsins og tókst
ræningjunum að notfæra sér
mannþröngina og hávaðann til
að komast undan. Ekki særðist
neinn starfsmanna bankans.
Ford
frestar
undirritun
Washington 12. mai. Reuter.
BANDARÍKIN og Sovétrfkin
komu sér saman um texta
samnings f dag, þar sem
kveðið er á um takmörkun á
stærð kjarnorkusprenginga í
friðsamlegum tilgangi. Aftur á
móti mun undirritunin ekki
fara fram á morgun eins og
búizt hafði verið við og virðast
þar ráða bandarfskar innan-
rfkisástæður.
Ford Bandarikjaforseti
ákvað að undirritun samnings
þessa yrði frestað vegna vax-
andi þrýstings i tengslum við
forkosningarnar í Michigan
sem taldar eru geta ráðið úr-
slitum um framtíð Fords í for-
setastóli. Ráðgjafar forsetans
munu hafa sannfært hann um
að það gæti verið varasamt
fyrir hann að undirrita slfkan
samning við Sovétríkin fyrr en
eftir forkosningarnar. Reagan
keppinautur Fords hefur mjög
hampað því f kosningaáróðri
sínum að Ford hafi sýnt mikla
linku í samskiptum sfnum við
Sovétríkin í nafni „detente“.
Wm
KICKER
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22
LAUGAVEG 66 LAUGAyEG 20a
SIMI FRA SKIPTIBORÐI 28155
EkQ W7DSD QQQ
☆ I Fatadeild
☆ \ Skódeild
☆ í Hljómtækjadeild
☆ í Hljómplötudeildir
n—i—i—rw
ITALSKIR
GÖNGUSKÓR
GALLA-
BUXNASKÓR 4
SPÖNSK '
KÚREKASTÍGVVÉL
DENIM
BUXUR
VESTI
MUSSUR
JAKKAR
BUXNAPILS
-.OM.FL.-_.
BOLIR
BLÚSSUR
SKYRTUR
PEYSUR
PILS O.M.FL.