Morgunblaðið - 14.05.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.05.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAI 1976 31 Fyrsti leikur íslandsmótsins í knattspyrnu: Stórsigur KR-inga gegn nýtiðum Þróttar KR-INGAR unnu Þrótt í fyrsta leik íslandsmótsins I knattspyrnu 6 nýja grasvellinum I Laugardal I gærkvöldi. Úrslitin urSu 4:1, en I leikhléi var staSan 1:0 KR-ingum I vil. Fyrsta mark islandsmótsins I ár skoraði Bjöm Pétursson, og Jóhann Torfason skoraði slðan mark númer 2 I byrjun seinni hálfleiksins. NýliSar Þróttar skoruðu slSan sitt fyrsta mark I 1. deildinni I ár úr vltaspyrnu Þorvaldur Þorvaldsson. en KR-ingar svöruSu meS tveimur mörkum frá Birni Péturssyni og Ottó GuSmundssyni. Aðstæður voru erfiðar I Laugar- dalnum I gærkvöldi, sex vindstig og rigning, sem gerði leikmönnum og áhorfendum lífið leitt Knattspyrnan sem liðin sýndu var þó yfirleitt betri en þessi lið sýndu I Reykjavikurmót- inu Höfðu KR-ingar það helzt fram yfir Þróttara að þeir voru mun bar- áttuglaðari og auk þess llkamlega sterkari Þróttarar áttu hins vegar mjög falleg skot i fyrri hálfleiknum er þeir léku undan vindinum, fyrst Sverrir Brynjólfsson og siðan Gunn- ar Ingvason tvivegis en I KR-markið vildi knötturinn ekki í fyrri hálfleikn- um. Með vindinn I bakið I seinni hálfleiknum réðu KR-ingar lögum og lofum á vellinum, en tækifæri Þrótt- ara voru sárafá — Mesti leki Framhald af bls. 1 anna (UNEP) í Nairobi hafa látið í ljós alvarlegan ugg vegna máls- ins og UNEP skorar á allar ríkis- stjórnir að undirrita samninga er hamli gegn mengun sjávarins. Tólf litil herskip og þyrlur dældu hreinsiefnum umhverfis flak Urqiola og öllum öðrum skipum var bannað að sigla inn i höfnina. 37 mönnum-var bjargað af skipinu sem strandaði á skeri en skipstjórans er saknað og hann er talinn af. Megn olíustybba er í bænum og öldruðu og veikluðu fólki hefur verið ráðlagt að halda sig innan dyra. Flutningaflugvélar sem hafa komið með hreinsiefni hafa ekki getað lent á flugvellinum í Coruna vegna reyks og hafa neyðst til að lenda i Santiago de Compostela sem er í 50 km fjar- lægð. Einhver mestu skelfiskmið álfunnar eru undan ströndinni, en auk skelfiskiðnaðarins er ferðamannaiðnaðurinn í hættu. Strönd Galizíu hefur verið vinsæl -^f ferðamönnum sem hafa viljað flýja hitann á Suður-Spáni. Yfirmaður ferðamála í hérað- inu, Luis Perez Diaz-Teran, segir að áhrifanna geti gætt í mörg ár. Hann benti á að ferðamönnum hefði þegar fækkað um 15 af hundraði það sem af er árinu og slysið gæti riðið starfseminni að fullu. I Madrid er sagt að ekkert sé hægt að segja að svo stöddu um orsök slyssins en rannsókn á því sé hafin. Sagt er að Urqiola hafi alltaf getað lagzt að bryggju i Coruna án erfiðleika. — Fjögur ítölsk Framhald af bls. 1 í dag I heimsókn til jarðskjálfta- svæðanna á Norður-ítalíu, skömmu eftir að bandarfska öldungadeildin samþykkti 25 milljón dollara fjárveitingu til hjálparstarfsins þar. Jafnframt hefur ítalska þingið samþykkt 459 milljón dala fjár- veitingu til hjálparstarfsins. For- seti fylkisstjórnarinnar í Frinuli, Antonio Comelli, sagði þegar hann kom til Udine frá rikis- stjórnarfundi í Róm, að þessi fjár- veiting væri aðeins fyrsta skrefið. Nú er talið að 900 hafi látizt i jarðskjálftunum, 1607 liggja slas- aðir i sjúkrahúsum og um 23.650 hús hafa skemmzt eða eyðilagzt í 40 bæjum og þorpum. Öttazt er að 300 til viðbótar hafi farizt og 150.000 hafa misst heimili sín. Mikill skortur er á tjöldum og fólk óttast fleiri jarðskjálfta. Um 15.000 manns hafa enn ekki feng- ið viðunandi húsaskjól og aðbún- aður fólks sem býr i tjöldum er slæmur vegna kulda og rigninga, sem hafa valdið skriðuföllum. Spáð er sama veðri út vikuna. Fjárframlög hafa borizt frá mörgum löndum, þar á meðal Bretlandi, Kanada, Vestur- Þýzkalandi, Austurriki og Banda- ríkjunum. Rauða krossinum í Róm hefur borizt 500 tjöld frá sovézka Rauða krossinum auk annarra hjálpargagna. Sjálfboðaliðar hafa staðið fyrir fjársöfnun um alla ítalíu. Um 50 hjólhýsi komu til jarðskjálfta- svæðanna í dag frá Milano. Við komuna tli Udine i dag, sagði Rockefeller að hann vildi kynnast brýnustu þörfum fórnar- lamba jarðskjálftasvæðanna til að geta skýrt Ford forseta frá þeim. Hann kvað bandarisku þjóðina vilja hjálpa til við viðreisnarstarf- ið. . .______ — Kæra á Breta Framhald af bls. 1 miðum hafi verið fjölgað og að yfirgangur þeirra hafi aukizt. Ásiglingin á varðskipið Tý er kærð sérstaklega í bréfinu en þar segir að hún sé aðeins eitt dæmi af mörgum um ofsann í þeirri allsherjarárás sem var gerð á varðskipin þegar brezku togar- arnir sneru aftur á miðin á dög- unum. Á það er bent að nokkrar ásigl- inganna hafi átt sér stað þegar engin tilraun var gerð af hálfu varðskipanna til að koma í veg fyrir veiðar brezkra togara og tog- araflotinn var ekki á næstu grös- um. Sagt er að þetta framferði brezku herskipanna og aðstoðar- skipanna stofni lífi áhafna ís- lenzkra varðskipa í hættu. Ingvi Ingvarsson sagði í samtali við Mbl. i gær að þetta væri fjórða bréfið sem væri sent Öryggisráð- inu þar sem kvartað væri yfir og bent á yfirgang Breta á miðunum, siðan árásin á varðskipið Þór var gerð í desember. Öryggisráðið dreifir slíkum bréfum sem opinberum skjölum til allra fastanefnda ráðsins. — Bretar senda Framhald af bls. 1 þotnanna yrði aukið og jafnframt hefur sjóherinn ákveðið að senda tvær freigátur til viðbótar á miðin við ísland þannig að alls verða þar sex brezk herskip auk fjög- urra dráttarbáta. Freigátan Lowestoft, sem oft hefur komið við sögu i þorska- stríðinu, var í flýti send á vett- vang strax eftir atburðina í fyrra- dag og var væntanleg á miðin einhvern tima i gær. Atburðirnir hafa greinilega leitt til harðari afstöðu þing- manna til stefnu stjórnarinnar í deilunni. James Johnson, for- maður sjávarútvegsnefndar þingsins, sagði í gær að hann mundi ganga á fund Anthony Croslands utanríkisráðherra til að ræða við hann um siðustu atburði í þorskastriðinu. Johnson lýsti hneykslun sinni á aðgerðum Ægis og sagði blaða- mönnum: „Kurteislegt orð um þetta er sjórán. íslendingar leika sér að eldinum. Verið getur að við verðum að sýna meiri hörku til að binda enda á svona nokkuð.“ Mbl. spurði í gær talsmann brezka varnarmáiaráðuneytisins hvort sú frétt væri rétt, sem birzt hefur í Guardian og Daily Mail að beitiskipið Blake væri þess albúið að láta úr höfn og stefna á is- landsmið hvenær sem þurfa þætti. Talsmaðurinn sagði að þessi frétt væri „alröng". Aðspurður um hvort einhverjar frekari ráðstafanir hefðu verið ákveðnar af hálfu brezka flotans um aðgerðir gegn íslenzkum varð- skipum, til dæmis hvort þau hefðu fengið fyrirmæli um að beita byssum sínum, sagði tals- maðurinn: „Það hefur engin breyting orðið á þeim fyrirmæl- um sem brezku herskipin hafa haft hingað til.“ Er talsmaðurinn var spurður hvort Bretar myndu fjölga ferðum Nimrod-véla yfir íslands- mið sagði hann: „Enginn ákveðinn fjöldi véla er bundinn við störf á þessu svæði. Á þvi hefur engin breyting orðið.“ Er talsmaðurinn var að því spurður hvort fleiri herskip væru síðan á leiðinni á Islandsmið svaraði hann: „Nei, svo er ekki.“ — Listahátíð Framhald af bls. 32 staðinn hefur verið fundin skemmtileg lausn undir rit- stjórn Guðrúnar Jónsdóttur. Aftan á skemmtilegu plakati er dagskráin prentuð. Plakatið er unnið af Leifi og Friðriku í Myndiðn og á þvi er ljósmynd eftir Sigfús Eymundsson af Öxará, tekin 1885, þegar „Öxar við ána“ var fyrst flutt, og eru á myndinni tónskáldið Helgi Helgason og 3 ungir hljóðfæra- leikarar, Helgi Jónsson, Gísli Árnason og Páll Árnason. Á hljómleikum og oftar munu svo gefnar út dagskrár á einföldum fjórblöðungum. Sagði Knútur m.a. að reynt yrði að stefna sem flestu fólki á Kjarvalsstaði til þess m.a. að stuðla að því nú, að þar verði lifandi listamiðstöð. Sagði hann að e.t.v. væri íslenzk tónlist ekki eins mikil og oft áður, sem stafaði af því að strax á eftir Listahátíð taka við Norrænu músíkdagarnir með fjölbreyttri norrænni tónlist og 2—3 sinfóniutónleikum. Á meðan er hlé á Listahátiðinni, sem stendur frá 4.—16. júni, en á eftir eða 29. júní verður þó eftirmáli við listahátíð, jazztón- leikar Cleo Laine og John Dankworths.. Þannig að allan mánuðinn verður mikið fram- boð af góðri list. Lögð hefur verið áherzla á að fá íslenzkt listafólk, sem getið hefur sér orðstír erlendis, til að flytja list á hátíðinni. Og einnig er að því stefnt að eftir að Listahátíð í Reykjavík er vel komin á alþjóðlegt blað, þá verði farið að reyna að stuðla að því að íslenzkir listamenn kom- ist á framfæri erlendis. Hefur Listahátíðanefnd í þeim til- gangi nú boðið hingað dr. Eck- hardt frá Listahátið Berlínar, sem er ein af þekktustu hátið- um í Evrópu. Mun hann þvi verða gestur á Listahátíð i Reykjavík 1976. Baldvin Tryggvason fulltrúi Reykjavikurborgar i nefndinni, sagði að eftir þessa Listahátíð og sex ára starf ættum við möguleika á að gerast meðlimir í Sambandi evrópska listahá- tíða, en því fylgdu ýmsir kostir, svo sem að komast í alþjóðlegar listadagskrár og njóta margs- konar fyrirgreiðslu. I kjölfar þess gæti Listahátið í Reykja- vik verið búin að afla sér þann sess að það væru orðin með- mæli að hafa komið þar fram. Á dagskrá Listahátiðar eru fjölmörg atriði, sem ekki verða hér talin, enda kynnt smám saman. A skránni eru þrír höf- uðþættir, þ.e. listsýningar, leik- sýningar og tónlist. Listsýning- ar eru á Kjarvalsstöðum, Lista- safni islands, Norræna húsinu og höggmyndasýning i Austur- stræti. Listsýningar, sem ekki hefur áður verið sagt frá, eru yfirlitssýning á grafik og einn- ig sýning islenzkra arkitekta á teikningum og líkönum bygg- inga, sem aldrei hafa risið, und- ir nafninu Skýjaborgir og loft- kastalar á Kjarvalsstöðum. Og í fyrsta sinn er islenzk nytjalist sýnd á Listahátíð í Norræna húsinu og boðið tveimur kunn- um finnskum hönnuðum sem heiðursgestum. Af tónlist má telja svo eitt- hvað sé nefnt Michala-tríóið frá Danmörku, sem kemur i boði Norræna hússins, en með því er ungur heimsfrægur blokk- flautuleikari, Michala Petri, og tónsmiðju Svíans Gunnars Waltare, sem hefur ferðazt víða um heim og kynnt sér hljóð- færagerð frumstæðra þjóða og kemur hér fram á Kjarvalsstöð- um. Einnig er vert að nefna söngkonuna Gisellu May frá Austur-Þýzkalandi, sem er ein þekktasta Brecht-söngkona í heimi og starfaði með Brecht. En hún kemur fram i Þjóðleik- húsinu og á Kjarvalsstöðum. Og af leikhúsverkum má t.d. nefna Litla prinsinn eftir Saint Exupery sem fluttur verður í Þjóðleikhúsinu með brúðum og sænska leikaranum Michael Meschke. Og einnig merka frumsýningu á sögu Dátans eftir Stravinsky, sem Kammer- sveit Reykjavíkur og Leikfélag Reykjavikur setja á svið. í listahátíðarnefnd eru Knút- ur Hallsson, Baldvin Tryggva- son, Vigdis Finnbogadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Mai Britt Imnander og Þorkell Sigur- björnsson. Framkvæmdastjóri er Hrafn Gunnlaugsson. — Auglýst Framhald af bls. 3 rauðri stórri leigubifreið og ók á brott eftir áreksturinn, þetta gerðist um kl. 16:00. Þriðjudagur 13. aprfl. Ekið á bifr. R-44514, Simca 1100 fólks- bifr., gula að lit, árg. 1975, á bif- reiðastæði við Landspítalann, Eiriksgötumegin, á tímabilinu kl. 14:30—16:00. Vinstri afturhurð dælduð. Fimmtudagur 15. april. Ekið á bifr. R-40055, Citroen-fólksbifr., hvita að lit, á bifr. stæði Land- spítalans við álmu fæðingardeild- arinnar á tímabilinu kl. 15:00—15:45. Hægri afturhurð dælduð. Föstudagur 16. aprfl. öku- maður R-21055 kvaðst hafa ekið bifr. sinni, sem er af gerðinni Toyota-fólksb., í Kjós síðdegis þennan dag og mætt blárri Saab- bifr. Árekstur hefði orðið milli þeirra. Saab-bifreiðin var með E- skrásetningarnúmer, en vantar aðrar upplýsingar um þann aðila. Dældir og rispur á vinstri hlið bifreiðarinnar. Fimmtud. 20. aprfl. Ekið á bifr. R-44713, Austin-Mini fólksb., vin- rauða að lit, árg. 1975 á Kalkofns- vegi norðan Tryggvagötu. Dæld á skottloki og afturaurbretti hægra megin að aftan dældað. Tímabil kl. 15.00—15.30. Miðvikud. 5. maf. Ekið á bifr. G-8765, Toyota-Corona-fólksbifr., árg. 1974, appelsínurauða að lit, á bifreiðastæði við Kirkjuhvol, eða við Hallveigarstaði á Garðastræti á milli kl. 13.00—17.00. Hægri framhurð dælduð. Föstud. 7. maf. Ekið á bifr. Y- 3523, Ford Galaxie-fólksb., hvíta að lit, árg. 1965, á bifreiðastæði við Austurbæjarbarnaskólann, gegnt húsi nr. 27 við Bergþóru- götu. Hægra afturaurbretti skemmt. Vitað var um rauða sendiferðabifreið við hlið þessarar bifreiðar, en sú var með X-númeri og gæti verið Ford Transit eða Bedford. Miðvikud. 12. maí. Um kl. 23.25 var ekið á bifreiðina, R-980 sem er af gerðinni Mazda-fólksbifreið, en þessi bifreið stóð á bifreiðastæði við húsið nr. 8 við Austurberg. Ekið var aftan á bifreiðina og kastaðist hún áfram og lenti á bilskúrshurð og er bifreiðin mikið skemmd bæði aftan og framan. Það eru taldar líkur á að þarna hafi verið að verki stór amerísk bifreið, en mikið heyrðist í vél og ískur í hjólbörðum, þegar þessari bifreið var ekið á brott, en tilkynnandi hafði ekki séð tjón- valdinn. — íþróttir Framhald af bls. 30 stofu sambandsins þrjá daga í viku. Frá og með næstu mánaða- mótum verður hann á skrifstof- unni allan daginn alla virka daga vikunnar til ágústloka. Gerviefni á Laugardalsvöll 1978 Frjálsíþróttaforystan sagði að það væri mjög eðlilegt að keppnis- fólkið færi utan til æfinga þvi aðstaðan hér heima væri mjög bágborin. Vilyrði hefðu þó fengist fyrir því núna að setja gerviefni á nýja frjálsíþróttavöllinn vestan við Laugardalsvöllinn sumarið 1978. Myndi það breyta mjög miklu og möguleikar þá opnast til að halda hér stórmót með alþjóð- legri þátttöku. FRJALS VERZLUN Frjáls verzlun fjallar að þessu sinni um Svíþjóð. Sagt er frá velferðarrikinu i orði og á borði, sænskum efnahags- málum og skattabyrðinni, sem sænskur almenningur kvartar sáran undan. Ýmsum öðrum þáttum í sænsku þjóðlífi eru og gerð skil í blaðinu Byggðaþáttur fjallar að þessu sinni um Suðurnes. Gerist áskrifendur að Frjálsri verzlun. Frjáls verzlun kostar kr. 395 og er eingöngu seld í áskrift. Til Frjálsrar verzlunar, Laugavegi 178 pósthólf 1193 Rvfk. Óska eftir áskrift. Nafn Heimilisfang FRJALS VERZLUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.