Morgunblaðið - 14.05.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAl 1976
Móðir mín. + MARGRÉT ODDSDÓTTIR COLLIN.
Lauganesvegi 34,
lézt 1 3 maí Kristín Collin Guðmundsdóttir.
+
Eigmkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
INGUNN GUNNARSDÓTTIR,
Vogabraut 1, Akranesi,
lézt á Sjúkrahúsi Akraness 4 maí Jarðarförin hefur farið fram
Magnús Kristjánsson,
Helgi Magnússon Magnús Magnússon,
Steinunn Ása Björnsdóttir Gunnar Magnússon,
Kristín Magnúsdóttir, Guðlaugur Þórðarson
og barnaböm.
+
Eigmmaður mmn,
ÓLI ORN ÓLAFSSON.
Vesturgötu 143, Akranesi,
verður jarðsungmn frá Akraneskirkju laugardagmn 1 5 maí kl 13 30
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hms látna, er
bent á Sjúkrahús Akraness c . .. . . _
1 Fyrir hond vandamanna,
Gíslína Magnúsdóttir.
Helgi Hjálmars-
son — Minning
Þriðjudaginn 13. april s.l. fór
fram frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum útför Helga
Hjálmarssonar, Kárastig 14
Reykjavík.
Helgi var fæddur i Efrikotum,
Vestur-Eyjafjöllum hinn 13.
október 1880, en lézt hinn 6. apríl
á 96. aldursári eftir fárra mánaða
sjúkdómslegur á sjúkrahúsinu í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar Helga voru hjónin
Kristín Sveinsdóttir og Hjálmar
Eiríksson, sem kunnur var á sín-
um tíma fyrir smíðisgripi sína og
ljöðagerð. Systkini Helga eru öll
látin, en þau voru: Eiríkur.
Þórunn, Þorgerður, .Sigurbjörg,
Hjálmn'm, Guðrún og Guðni.
Helgi var einn þeirra fjölmörgu
ungu manna er fluttu úr lág-
sveitum Rangárvallasýslu til
Vestmannaeyja, þar sem þeir
eygðu von um betri framtíð í ört
vaxandi útgerðarbæ. Var þetta á
þeim árum þegar áraskipin voru
að vikja af hólmi fyrir vélbátun-
um, sem að vísu voru ekki nema
fimm til níu rúmlestir og þóttu
færir í flestan sjó. Stundaði Helgi
sjó í mörg ár og var m.a. með
hinum kunna formanni Magnúsi
Jónssyni á Sólvangi. A þeim árum
fóru margir Eyjasjómenn austur
á fjörðu á sumrin og reru þar til
hausts en héldu síðan heim. Heigi
var einn þeirra er lögðu leið sína
til Austfjarða og reri frá Seyðis-
firði. Milli vertiða stundaði hann
smiðar, enda var hann hagleiks-
maður, svo sem verið hafði faðir
hans.
1 Vestmannaeyjum kynntist
hann Guðbjörgu Vigdísi Guð-
mundsdóttur frá Sigluvík á
Barðaströnd. Gengu þau í hjóna-
band árið 1915 og bjuggu i húsinu
Hamri í Vestm.eyjum. Helgi og
Guðbjörg eignuðust fimm börn:
Hermann, vélstjóra, kvæntur
Sigurlaugu Guðmundsdóttur,
Magnús vélstj. kvæntur Sólveigu
Þorleifsdóttur, Hjálmar
verzlunarm. kvæntur Elínu
Sumarliðadóttur, Agúst Ingi fisk-
matsm. i Vestm.eyjum kvæntur
Lovisu Guðjónsdóttur, Guðbjörg
gift Páli Beck kennara.
Konu sina Guðbjörgu missti
Helgi éftir tæplega áratugar sam-
búð. Hún lézt þ. 26. ágúst árið
1924 frá fimm ungum börnum,
það yngsta, dóttirin Guðbjörg, var
aðeins viku gamalt. Var hún tekin
í fóstur af systur Helga, Guðrúnu,
og manni hennar Guðmundi
Þórðarsyni á Akri í Vestmanna-
eyjum.
Sama ár réðst sem bústýra til
Helga Sigríður Sigurðardóttir
Sveinssonar frá Beigaldri í
Borgarfirði. Gengu þau siðar í
hjónaband og eignuðust sjö börn.
Þau eru: Sigurður, ókvæntur og
hefur búið með foreldrum sínum
að Kárastíg 14, Hlöðver, bif-
reiðastj. kv. Katrínu Jónsdóttur,
Gústaf, ókv. Hugó, alinn upp hjá
móðursystur sinni búsettri í Sví-
þjóð, Laufey g. Káre Grandehaug
í Oslo, Unnur g. Kjeld Gundersen
í Oslo, Sigrún g. Sæmundi Inga
Sveinssyni bifreiðastj. Rvík.
Helgi og Sigríður fluttust frá
Vestmannaeyjum að Efri-rotum,
Eyjafjöllum og síðar að Berjanes-
koti, en þaðan fluttust þau til
Reykjavíkur árið 1943.
Undirritaður kynntist Helga
ekki fyrr en hann var kominn á
áttræðisaldur. Hann var þá vel
ern og að lokinni læknisaðgerð
um það leyti fékk hann þá heilsu
sem margur áratug yngri hefði
kalláð góða. Var hann mikil á
ferli, vann sér til afþreyingar í
smiðaherbergi sinu, las mikið og
fylgdist með gangi þjóðmála. Án
efa ræður viljastyrkur nokkru um
það hvernig menn bera aldur sinn
og af honum átti Helgi nóg til
hinstu stundar. A uppvaxtarárum
og starfsárum hans var Island
ekki það velferðarríki, sem við
þekkjum í dag og hafði það mótað
skapgerð hans og hert, en látið
hann óbugaðan. Hann var að
eigin ósk jarðsettur í Vestmanna-
eyjum, þar sem hann ungur að
árum hafði fyrst leitað sér lífs-
starfs.
Páll Beck.
+
Elskulegur eiginmaður mmn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN Á SUMARLIÐASON,
fyrrv. bifreiðaeftirlitsmaður,
Kópavogsbraut 5, Kópavogi,
sem andaðist föstudaginn 7 maí verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju, mánudaginn 1 7 maí kl 1 5 00
Hrefna Ólafsdóttir,
Ólafur Reynir Jónsson, Sigrún Kristinsdóttir,
Guðrún Sif Jónsdóttir, Davíð Guðmundsson,
Hallgrímur Smári Jónsson, Jóhanna B. Hauksdóttir,
og barnaböm.
+
Jarðarför móður okkar
DÝRLEIFAR PÁLSDÓTTUR,
frá Möðrufelli
sem andaðist i Landspítalanum 8 þ m fer fram laugardaginn 15
þ m frá Fossvogskirkju kl 10 30fh
Guðný Aradóttir, Páll Arason.
+
Þökkum hjartanlega fyrír auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför.
GUNNARS JÓNS ENGILBERTSSONAR,
Dóra María Aradóttir og börnin.
foreldrar, systkini og tengdaforeldrar.
+
Þökkum mnilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður, dóttur og tengdadóttur
GUÐRÚNAR MARGRÉTAR INGIMARSDÓTTUR,
Sigluf irði,
Bjórn Jónasson, Rakel Björnsdóttir,
Hrefna Hermannsdóttir, Elsa Bjömsdóttir,
Jónas Björnsson, Ingimar Þorláksson
Lokað í dag
vegna jarðarfarar
HERVALD EIRÍKSSON,
Heildverzlun,
Laufásvegi12.
Gunnlaugur B. Krist-
insson — Kveðja
Þann 24. apríl fór fram útför
Gunnlaugs Bjarna Kristinssonar
en hann andaðist í Landakosts-
spítala 12. s.m. Hann fæddist í
Miðengi i Grímsnesi 24. ágúst
1906, sonur hjónanna Sigríðar
Bjarnadóttur og Kristins
Guðmundssonar. Sigriði og börn-
um hennar kynntist ég sem barn,
eftir að hún var orðin ekkja og
flutt til Reykjavíkur. Ekki get ég
+
Þann 11 þ m. andaðist að Elli-
heimilinu Grund, faðirokkar,
BJÖRN BJORNSSON,
frá Múla
MagnúsG. Bjömsson,
Inga Pála Björnsdóttir.
hugsað mér elskulegra fólk, man
ég eftir því að hún vildi öllum
gott gera og hvers manns vanda
leysa, það var sama hvort það var
smáfólkið, eins og ég var þá, eða
þeir sem voru komnir til vits og
ára eins og sagt er, og þessa eigin-
leika erfði sonur hennar i ríkum
mæli.
Gunnlaugur, eða Billi eins og
hann var alltaf kallaður af þeim
sem þekktu hann, var einstakur
maður á margan hátt. Hann var
alltaf glaður á hverju sem gekk,
við vissum að hann gekk ekki
alltaf heill til skógar, því hann
var búinn að vera höfuðveikur frá
því hann var barn, og ýmis veik-
indi steðjuðu að á lífsleiðinni, en
hann bar það með karlmennsku,
og lét engan bilbug á sér finna.
Ég sakna þess innilega að koma í
heimsókn á Mánagötuna, að eiga
ekki eftir að finna hans trausta
handtak og glaða viðmót, en við
verðum að sætta okkur við það, í
LOKAÐ
milli kl. 1 4 og 1 5 í dag vegna jarðarfarar
VERKSMIÐJAN MAX H/F
SJÓKLÆÐAGERÐIN H/F,
SKÚLAGÖTU 51
bili. Við eigum eftir að takast í
hendur siðar.
Billi var einstaklega hjálpfús,
hann mátti ekki vita að neinn af
sínum vinum eða vandamönnum
ætti í einhverjum vanda, svo að
hann væri ekki boðinn og búinn
til að rétta fram hjálparhönd.
Hann var mikill hagleiksmaður,
bæði i huga og hönd og mörg eru
handtökin sem vinir og ættingjar
eiga honum að þakka, og erum við
hjónin ein þar á meðal.
Ekki er hægt að minnast Billa,
svo ekki sé minnst á hans góðu
konu, en hún er Ragna Bjarna-
dóttir, það var þeirra gæfuspor er
þau gengu í hjónaband 11.
október 1930. Þau eignuðust einn
son, Bjarna, en urðu fyrir þeirri
miklu sorg að missa hann á fyrsta
ári. Sambúð þeirra hjóna var
alltaf einstakiega innileg, og í
gegnum lífsins mótlæti og með-
læti ljómaði alltaf ástríki og gagn-
kvæmur skilningur í augum
þeirra beggja. Ragna hefur átt við
mikla vanheilsu að stríða undan-
farin ár, og tók hann það mjög
nærri sér og gerði allt sem hann
gat til þess að létta henni sjúk-
dómsbyrðina.
Margir hafa notið gestrisni
þeirra hjóna, enda voru þau sam-
hent í því eins og öðru, að taka vel
á móti gestum sem að garði bar,
og eigum við margar góðar
minningar frá þvi, þegar setið var
við spil fram eftir kvöldum og leið
þá tíminn fljótt.
Nú þegar komin er kveðju-
stund, viljum við hjónin þakka
áratuga vináttu við okkur og fjöl-
skyldu okkar, og Ragna mín, við
biðjum þér Guðs blessunar á
ókomnum árum.
Far vel vinur, friður Guðs þig
blessi. Q.ö.
VtKNÁ
FLOKk
JÚDÓDEILD ÁwNIA
ÁRMÚLA 32